Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óður hrafn drepinn á Akranesi Árásargjarn hrafn réðst á barn og hund á Akranesi í gær. Hann var aflífaður í viðurvist lögreglumanna eftir árásina, segir á fréttavefnum Skessuhorni. 6.10.2010 11:41
Lesblindir ánægðir með Snilldarlausnir Marel Snævar Ívarsson, starfsmaður Félags lesblindra á Íslandi, segir það sérstakt fagnaðarefni fyrir lesblinda að hugmyndum í samkeppnina Snilldarlausnir Marel skuli skilað inn á myndbandi. „Það vakti strax áhuga minn að þeir biðja um að fá hugmyndirnar á myndbandi og hvað þetta verkefni er því aðgengilegt fyrir okkar skjólstæðinga, þá sem eru lesblindir," segir hann. 6.10.2010 11:05
Stjórnarandstaðan mætti ekki á fund ráðherra Enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar á Alþingi mætti á fund með fimm ráðherrum í morgun þar sem átti að ræða aðgerðir til þess að koma til móts við skuldavanda heimilanna. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekkert fundarboð hafa fengið. Hrannar B. Arnarson aðstoðarmaður forsætisráðherra segir hinsvegar að stjórnarandstaðan hafi verið boðuð á fundinn að loknum fyrsta fundi hópsins sem haldinn var í gær. 6.10.2010 10:52
Gerir ekki lengur kröfu um arf Fischers Aðild Marilyn Felonia Young að máli vegna arfs eftir skákmeistarann Bobby Fischer hefur verið felld niður. Young gerði kröfu í arfinn fyrir hönd dóttur sinnar, Jinky Young, sem hún sagði að væri dóttir Fischers. Niðurstöður DNA-rannsókna í haust leiddu hins vegar í ljós að svo var ekki. 6.10.2010 10:43
Tvö ár frá því að Geir bað guð um að blessa Ísland Tvö ár eru í dag síðan að neyðarlög vegna bankahrunsins, sem þá var yfirvofandi, voru sett. Geir Haarde forsætisráðherra flutti sjónvarpsávarp eftir hádegi þann daginn og klykkti út með því að biðja guð um að blessa Ísland. Hann mælti svo fyrir frumvarpi að lögunum á þingfundi. Frumvarpið var svo samþykkt seint um kvöldið. 6.10.2010 09:49
Kjalnesingagoði: Þjóðernissinnar misnota sólkrossinn Jóhönnu Harðardóttur, Kjalnesingagoða Ásatrúarfélagsins, var brugðið þegar hún komst að því að svokallaðir þjóðernissinnar notuðu fána með sólkrossinum í mótmælunum við Alþingishúsið á mánudag. 6.10.2010 09:35
Vill að bankarnir einbeiti sér að smærri fyrirtækjum Viðskiptabankarnir þurfa að fara að einbeita sér meira að smærri fyrirtækjum í stað þess að hafa hugann einungis við stór fyrirtæki, segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 6.10.2010 09:24
Leita allra leiða vegna fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í gær létu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar bóka að skýrt komi fram í lögum að þegar sveitarfélög geta ekki lengur staðið í skilum skuli leita aðstoðar sveitastjórnarráðuneytisins sem getur heimilað jöfnunarsjóði sveitarfélaga að veita bæjarstjóði styrk eða lán. 6.10.2010 08:37
Bílvelta á Elliðavatnsvegi - ökumaðurinn týndur Lögregla kom að bíl á hvolfi við Elliðavatnsveg um klukkan hálfþrjú í nótt. Tveir menn stóðu við bílinn en báðir neituðu því að hafa verið undir stýri þegar hann valt. 6.10.2010 07:41
Kom að innbrotsþjófi inni á stofugólfi Innbrotsþjófar voru á ferð í Garðabæ í nótt. Í Brekkubyggð vaknaði maður upp við það klukkan kortér í fjögur að einhver var að reyna að opna svalahurðina hjá honum. 6.10.2010 07:21
Skýr skilaboð til stjórnmálanna „Ég held að það séu fólgin sterk skilaboð í þessum mótmælum, og þessari stemningu í samfélaginu, til okkar allra,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. Þau beindust að þinginu, ríkisstjórn og stjórnmálahefðinni í landinu. Stjórnmálamenn þyrftu að nálgast þau skilaboð af auðmýkt. 6.10.2010 07:00
Hentu grjóti í Alþingishúsið Um tuttugu til þrjátíu manns stóðu í gærkvöldi fyrir framan Alþingishúsið og börðu á tunnur í friðsamlegum mótmælum. Mótmælin stóðu til að ganga ellefu í gærkvöldi og að sögn lögreglu þurfti engin afskipti að hafa af þeim sem börðu tunnurnar. 6.10.2010 06:57
Kallað eftir nýrri hugsun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á mánudagskvöld að húsnæðis- og skuldamál væru forgangsverkefni. Til þess yrðu allir sem vettlingi geta valdið kallaðir til samráðs og þeirra á meðal aðilar vinnumarkaðarins og Hagsmunasamtök heimilanna. En hvaða hugmyndir koma þessi samtök með að borðinu? 6.10.2010 06:45
Þverpólitísk vonbrigði „Það olli mér vonbrigðum að heyra fulltrúa stjórnarandstöðunnar kalla þennan fund sýndarfund og það ber ekki vott um samstarfsvilja. Mér var full alvara og boðaði til samstarfsins af einlægni.“Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sem ásamt Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra fundaði með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna síðdegis í gær um samvinnu allra flokka um lausnir á skuldavanda fólks og heimila. 6.10.2010 06:30
Persónugervingar á ferð Allmargir þættir þurfa að koma saman við hönnun farartækja, að því er fram kom í máli Chris Bangle, fyrrverandi aðalhönnuðar BMW-bílaframleiðandans, á Driving Sustainability ráðstefnunni í Reykjavík. Hönnuðir þurfa að horfa til þess hvaða þætti verði að hafa með, hvað sé hægt að gera, hvað þeir vilji gera og sé skynsamlegt að gera. „Til dæmis er skynsamlegt að hafa bollastatíf, þau eru nú meðal þess sem fólk býst við að sé í bílum,“ sagði hann. 6.10.2010 06:00
Girtu fyrir bein átök við Alþingishúsið „Þetta var eitt af stærstu verkefnunum sem við höfum tekist á við og það gekk bara býsna vel.“Þetta segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um aðgerðir lögreglu vegna hinna fjölmennu mótmæla við Alþingishúsið í fyrrakvöld. 6.10.2010 06:00
Slagurinn tapast eða vinnst í borgunum Kína Með fyrri orkuskiptum þar sem hætt var að nota olíu og kol til húshitunar og jarðvarmi tók við hafa Íslendingar sýnt heiminum að slíkar umbreytingar eru færar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á alþjóðlegu ráðstefnunni Driving Sustainability sem fram fór í Reykjvík í september. Hann segir raunhæfan möguleika á að Reykjavík gæti með orkuskiptum í samgöngum orðið fyrsta borg í heimi til þess að reiða sig að fullu á visthæfa orku. 6.10.2010 06:00
Fáir fá sértæka skuldaaðlögun Eingöngu 128 einstaklingar hafa gengið frá endanlegum samningum um sértæka skuldaaðlögun og 51 fyrirtæki í farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. 6.10.2010 06:00
Treystir á víðtækt samstarf um úrlausnir Ríkisstjórnin treystir á samvinnu við stjórnarandstöðuna, hagsmunasamtök heimilanna, aðila vinnumarkaðarins og bankana um lausnir á skuldamálum heimila og fyrirtækja. 6.10.2010 06:00
Þakka björgunarsveitarfólki Ættingjar Andrésar Tómassonar, sem fannst látinn í Kleifarvatni í fyrradag, vilja koma á framfæri innilegum þökkum til lögreglu, björgunarsveita og allra þeirra sem tóku þátt í leitinni með einum eða öðrum hætti. 6.10.2010 06:00
Sýnir og gefur myndir án leyfis höfundanna Ljósmyndir eftir tvo myndasmiði sem eru í verki Ólafs Elíassonar, Cars in Rivers, eru notaðar án heimildar höfundanna. Þær myndir eru úr albúmi sem skálaverðir Ferðafélags Íslands í Langadal í Þórsmörk settu saman. 6.10.2010 06:00
Oddný stýrir fjárlaganefnd fyrst kvenna Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingunni, verður kosin nýr formaður fjárlaganefndar á fundi hennar á föstudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Eftir því sem blaðið kemst næst hefur kona aldrei fyrr gegnt formennsku í nefndinni. 6.10.2010 06:00
Blésu lífi í flogaveikan mann „Maðurinn var orðinn alveg blár þegar þeir komu með hann upp úr. Svo blésu þeir lífi í hann. Það var algjör unaður að sjá fólkið að störfum, það gerði allt rétt,“ segir Birkir Guðjónsson sundlaugargestur. 6.10.2010 05:15
Bekkjum forðað tímabundið Starfsmenn Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar fjarlægðu í gær nokkra garðbekki af Austurvelli. Sjö bekkir voru bornir á bálið á mótmælunum síðastliðið mánudagskvöld og því var ákveðið að fjarlægja þá sem eftir voru tímabundið, til að fyrirbyggja frekari skemmdir. 6.10.2010 04:45
Flagga í hálfa stöng vegna áforma stjórnvalda Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna tillagna stjórnvalda um niðurskurð til reksturs Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Þar fordæma þau „glórulausar" tillögur stjórnvalda og segja þær lýsa algeru þekkingarleysi ríkisvaldsins á staðháttum, starfsemi og starfssvæðinu „sem nær yfir báðar Þingeyjarsýslurnar eða um 17% af landinu." 5.10.2010 21:44
Ljósmæður segja ríkið hafi sóað langri jafnréttisþróun Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands mótmælir „þeim ömurlegu" sængurgjöfum sem ríkið býður foreldrum. Félagið afþakkar þær fyrir hönd foreldranna. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að Íslendingar hafi stysta fæðingarorlof allra Norðurlandabúa. Ríkið hafi sóað áralangri jafnréttisþróun. 5.10.2010 20:55
Engin samstaða náðist á fundinum - þjóðstjórn ekki tímabær Engin samstaða náðist á fyrsta fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um aðgerðir handa skuldsettum heimilum. Forsætisráðherra segir að finna verði lausn á vandanum sem fyrst en telur ekki tímabært að mynda þjóðstjórn. 5.10.2010 19:11
Verktakar börðust grimmt um Suðurstrandarveg Fimmtán verktakar börðust grimmt um að fá að leggja síðustu fimmtán kílómetra Suðurstrandarvegar en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Lægsta boð, frá Háfelli, hljóðaði upp á 179 milljónir króna og reyndist aðeins 41 prósent af kostnaðaráætlun. Næstlægsta boð átti Suðurverk, upp á 56 prósent af áætlun. 5.10.2010 19:11
Bjartsýnn um Búðarhálsvirkjun Lægsta boð í vélbúnað Búðarhálsvirkjunar reyndist 85 prósent af kostnaðaráætlun og kveðst forstjóri Landsvirkjunar nú bjartsýnn á að fjármögnun ljúki á næstu vikum og að framkvæmdir hefjist um áramót. 5.10.2010 19:02
Prjónaði yfir sig Ökumaður mótóhjóls prjónaði yfir sig á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú á sjötta á tímanum. 5.10.2010 18:54
Vilja ekki skoða hugmyndir frá stjórnarandstöðu Fundi leiðtoga stjórnarflokkanna, með forystumönnum stjórnarandstöðunnar, lauk nú rétt fyrir klukkan fimm. Fréttmaður Stöðvar 2 og Vísis ræddi við leiðtoga stjórnarandstöðunnar að fundi loknum og segir að ekki sé að skilja að neinar heildstæðar hugmyndir séu um lausnir á skuldavanda heimila. 5.10.2010 17:24
Birgitta ber í tunnur Þingmenn ræða enn fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár en 1. umræða um það hófst klukkan tvö í dag. Það aftrar þó ekki þingkonunni Birgittu Jónsdóttur frá því að taka þátt í mótmælunum en hún hefur staðið á Austurvelli í dag á meðal annarra mótmælenda og barið í tunnur. 5.10.2010 16:59
Niðurskurði á Austurlandi harðlega mótmælt Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. 5.10.2010 16:53
Einlæg skilaboð ráðamanna til AGS: „Very truly yours" Venjan er að stjórnvöld sendi Alþjóðagjaldeyrissjóðnum viljayfirlýsingu samhliða hverri endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. 5.10.2010 15:06
Austurvöllur í gærkvöldi: „Allir á sama máli“ - myndband Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir mætt á Austurvöll til þess að mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu en í gærkvöldi. Talið er að um átta þúsund manns hafi verið á svæðinu þegar mest var og Andri Ólafsson, fréttamaður Stöðvar 2 tók nokkra þeirra tali. 5.10.2010 14:09
Fámenn en hávær mótmæli Mótmælin á Austurvelli sem boðað var til klukkan tvö í dag eru fámenn en hávær, segir fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem staddur er í þinghúsinu. Hún segir að um það bil tíu manns séu á Austurvellli og berji í tunnur. Hávaðinn frá þeim heyrist greinilega inn í Alþingishúsið. 5.10.2010 16:06
Forsætisráðherra telur að landsdómsmálið spilli ekki samstarfi Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fundar með leiðtogum stjórnarandstöðunnar núna klukkan fjögur um mögulegt samstarf milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Jóhanna var spurð að því í dag hvort að hún óttaðist að að landsdómsmálið yrði til þess að spilla samstarfi 5.10.2010 15:47
Mótmæli ekki ætluð börnum Það er almennt ekki rétt að börn séu höfð með í mótmælum eins og þau fóru fram í gær. Þó að það sé brýnt að þjálfa börn í lýðræðislegri þátttöku voru aðstæður þetta kvöld ekki við hæfi barna, segir Umboðsmaður barna í pistli á vefsíðu sinni. 5.10.2010 14:34
Greiðslur til feðra dragast saman Sparnaðaraðgerðir Fæðingarorlofssjóðs hafa bitnað einna mest á meðalútgjöldum til feðra. Munur á greiðslum Fæðingarorlofssjóðs til mæðra og feðra hefur farið minnkandi frá því feðrum var fyrst veitt feðraorlof árið 2001. Meðalútgjöld til feðra voru 82,5 prósentum hærri til feðra en mæðra þetta fyrsta ár sem báðir foreldrar gátu tekið orlof vegna fæðingar. Bráðabirgðatölur ársins 2010 gefa til kynna að bilið milli feðra og mæðra sé enn að minnka og eru meðalútgjöld til feðra samkvæmt þessum tölum 29,1% hærri en útgjöld til mæðra. 5.10.2010 14:21
Skuldavandi heimila verði strax settur á dagskrá Aldrei hef ég orðið vitni að slíkum mótmælum og fóru fram í gærkvöldi, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, við upphaf þingfundar í dag. Hún sagði að þúsundir manna sem væru að missa lífsviðurværi sitt hefðu mótmælt á Austurvelli í gær. Við þessu yrði að bregðast strax og taka tafarlaust á dagskrá Alþingis umræður um skuldavanda heimilanna. 5.10.2010 14:12
Vill kjósa til Alþingis í vor Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill kjósa til Alþingis í vor. Að hans mati er núverandi ríkisstjórn ekki vaxin þeim vanda sem samfélagið stendur frammi fyrir. 5.10.2010 13:37
Jóhanna segir þjóðstjórn ekki í myndinni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að þjóðstjórn sé ekki lausn á þeim vanda sem nú er glímt við. Fyrsta markmiðið er að mati hennar að ná einhverskonar sátt og samstöðu um leiðir til þess að ná utan um skuldavanda heimilanna. 5.10.2010 13:15
Saksóknari Alþingis kjörinn á morgun Það ræðst væntanlega ekki fyrr en á morgun hvort að Sigríður Friðjónsdóttir mun taka að sér embætti sérstaks saksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. 5.10.2010 13:13
Jóhanna: Einkavæðing félagslega íbúðakerfisins mistök Forsætisráðherra viðurkenndi í gær að einkavæðing félagslega íbúðakerfisins hafi verið mistök. Hún upplýsti jafnframt að þegar hefði verið lagður grunnur að kaupleigukerfi hjá Íbúðalánasjóði. 5.10.2010 12:33
Hrina mótmæla vegna niðurskurðar á landsbyggðinni Hávær hrina mótmæla er hafin í þeim byggðum á landsbyggðinni sem þurfa að taka sig stórfelldan niðurskurð í heilbrigðisþjónustu. Á Húsavík er búið að boða til borgarafundar á fimmtudag. 5.10.2010 12:23