Fleiri fréttir

Ragnheiður Elín: Ég vil ekki hefnd

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi fyrir stundu að Íslendingar þurfi í sameiningu að hugsa hvernig hægt sé að gera landið að því besta í heimi. Hún flutti einnig sögu af vini sínum.

Launin verði þau sömu

Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar ákvað 16. september síðastliðinn að kjör fyrstu varaborgarfulltrúa verði færð til fyrra horfs. Kjör þeirra verða því eins og þau hafa verið í fjölda ára, eða 70% af launum borgarfulltrúa eða um 283 þúsund krónur.

Engar arðgreiðslur frá Orkuveitunni

Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur ákveðið að fara að tillögu borgarráðs frá því á dögunum og fella arðgreiðslur frá fyrirtækinu tímabundið niður. Í einróma bókun á fundi eigenda segir að alla jafna sé eðlilegt að gera kröfur um arð af OR enda hafi það verið gert frá stofnun fyrirtækisins óháð stöðu þess. Bent er á í tilkynningu frá Orkuveitunni að síðustu tvö ár hafi arðgreiðslur verið lækkaðar um helming og við núverandi aðstæður í rekstri OR sé talin ástæða til að ganga lengra og fella þær alveg niður tímabundið.

SS hættir við Halal slátrun

Ekkert verður af frekari slátrun hjá SS með svokallaðri Halal aðferð múslima, segir Steinþór Skúlason forstjóri SS í samtali við Vísi. Ástæðan er sú að ekki náðust samningar um sölu á kjötinu erlendis og kvartanir sem SS bárust vegna fyrirætlananna.

Justin Bieber of ungur fyrir The Charlies - myndband

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að stúlknahljómsveitin The Charlies er flutt til Hollywood enda komin með samning hjá Hollywood Records. Í viðtali við þáttinn StarCam sem hefur verið birt á vefsíðunni Youtube segja þær frá helstu áhrifavöldum sínum í tónlistarbransanum.

Árni Páll: Skýrslan ekki nægur grunnur fyrir ákærur

Árni Páll Árnason, viðskipta- og efnahagsráðherra, segir Rannsóknarskýrslu Alþingis ekki nægjanlega sterka heimild til að reisa á ákærur. Hann lofar skýrsluna sem slíka en segir að í henni sé atburðum jafnvel lýst út frá vitnisburði fárra hagsmunaaðila í stað þess að þar sé birt niðurstaða óháðrar rannsóknar.

Jón vill hitta alla en eftirspurnin er gríðarleg

Regína Ásvaldsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra segir að Jón Gnarr borgastjóri sé allur af vilja gerður til þess að hitta sem flesta borgarbúa sem eftir því sækjast. Fulltrúar Frjálslynda flokksins hafa gagnrýnt Jón fyrir að hafa ekki samband og Júlía Hjaltadóttir sagðist á Vísi í dag vera óhress með að hafa beðið í rúman mánuð eftir viðtali hjá borgarstjóra án árangurs.

Handtóku mann fyrir kannabisræktun

Tvítugur karlmaður var handtekinn á Akureyri í gær, grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit á heimili hans þar sem hald var lagt á um 20 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til neyslu þeirra. Auk þess kom í ljós að maðurinn hafði verið að rækta kannabis í íbúð sinni en í litlum mæli þó. Samkvæmt upplýsingum frá

BSRB vill óþvingaða stéttarfélagsaðild

Vegna deilna SFR og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra, sem færast nú yfir til sveitarfélaga, vill BSRB ítreka þá afstöðu að starfsmenn geti valið um hvort þeir verði í áfram í SFR eða viðkomandi bæjarstarfsmannafélagi.

Heitavatnslaust í Hafnarfirði

Vegna vinnu við stofnæð verður heitavatnslaust í Hafnarfirði í dag til klukkan 18:00 í Áslands- Valla- og Helluhverfum, Öldutún, Ölduslóð, Hvaleyrarholti og í efri byggðum Setbergs.

Ólína segir Davíð, Halldór og Valgerði vera hina raunverulegu gerendur

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðnar efasemdir um að réttlætinu verði fullnægt með því að draga fyrir dóm þá fjóra ráðherra sem hluti þingmannanefndar Atla Gíslasonar telur að hafi sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008 og að ábyrgð þeirra fjögurra sé lögð að jöfnu.

Nýr sveitastjóri tekinn við í Skagafirði

Ásta Björg Pálmadóttir hefur tekið við embætti sveitarstjóra í Skagafirði. Hún tók við lyklum af Ráðhúsinu á Sauðárkróki úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar, sem þó mun aðstoða Ástu við að kynnast starfinu til næstu mánaðarmóta.

Bíður eftir borgarstjóra en er númer 200 í röðinni

Móðir barns í Ölduselsskóla í Breiðholti tekur undir þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa að undanförnu þess efnis að erfitt sé að komast í samband við Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur. Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins sagði í viðtali á Vísi í gær að erfiðara væri að komast í samband við Jón en Osama bin Laden.

Ekki hægt að ákæra ráðherra úr ríkisstjórn Davíðs

Ekki er hægt að ákæra ráðherra eftir að þrjú ár eru liðin frá því að brot þeirra er framið, samkvæmt 14. grein laga um ráðherraábyrgð. Þetta er ein meginforsenda þess að þingmannanefnd Atla Gíslasonar hefði aldrei getað komist að þeirri niðurstöðu að ákæra bæri þá ráðherra sem sátu í ríkisstjórn þegar bankarnir voru einkavæddir.

Neytendasamtökin krefja Landsnet skýringa

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, hefur krafið Landsnet skýringa á því hvað sé við átt þegar fyrirtækið hafnar allri ábyrgð á tjóni vegna rafmagnstruflana sem ollu nýverið skemmdum í rafmagnstækjum, nema ef orsökina megi rekja til mistaka starfsmanna Landsnets.

Fundað um makríl

Sjómenn óttast að mikil makrílganga á Íslandsmið í sumar hafi breytt Norsk- íslensku síldargöngunni þannig að síldin sé að hopa frá landinu undan makrílnum.

„Dr. Bæk“ býður ókeypis hjólaviðgerðir

Hjólandi vegfarendum gefst kostur á ókeypis yfirferð á reiðhjólum á Lækjartorgi í dag til kl. 14.00. Tjald hefur verið sett upp í tilefni af Samgönguviku og tveir vanir menn taka hjólin út, smyrja og pumpa í dekkin.

Atli vill nýjar kosningar ef þingið axlar ekki ábyrgð sína

Atli Gíslason segir að ef þingið axli ekki þá ábyrgð sem á það er lögð í kjölfar bankahrunsins og dragi til ábyrgðar þá sem sýndu vanrækslu í aðdraganda þess, þá sé full ástæða til að boða til nýrra kosninga þannig að þingmenn endurnýi umboð sitt.

Jóhanna til New York í dag

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra heldur til New York borgar í dag til þess að taka þátt í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forsætisráðherra er óráðið hvenær Jóhanna mun snúa aftur. Það verði þó eins fljótt og auðið er.

Vonar að ræða ráðherra hafi ekki áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, er ósammála ýmsu sem kom fram í ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi í gær. Þetta sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Hann sagðist einkum vera ósammála því sem kom fram í ræðu forsætisráðherra um gagnrýni á Atlanefndina svokölluðu. Forsætisráðherra væri þó heimilt að tjá eigin skoðanir á málinu.

Eygló um ræðu Bjarna: „Lifi samtrygging stjórnmálamanna!"

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í Atla-nefndinni svokölluðu, fannst lítið til ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, koma þar sem Bjarni sagðist algjörlega mótfallinn þingsályktunartillögu um að kæra skuli fjóra ráðherra vegna vanrækstu í bankahruninu. Eygló er einn flutningsmanna tillögunnar. Í upphafi máls síns sagði Eygló að það væri venjan að þakka fyrri þingmanni fyrir sína ræðu en hún væri ekki viss um að hún gæti það í þessu tilviki.

Sex slasaðir eftir alvarlegt bílslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrir stundu vegna bílslyss sem varð milli Minni Borgar og Svínavatns. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að sex manns hafi verið í bílnum að því er talið er.

Bjarni: Þessari tillögu ber að hafna

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er ósammála í öllum grundvallaratriðum þeirri þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram af þingmönnum í Atlanefndinni svokölluðu og mælir fyrir því að fyrrverandi ráðherrar verði ákærðir. Bjarni telur að tilögunni beri að hafna.

Fágæt íslensk frímerki á uppboði: Gætu farið á tugi milljóna

Íslensk skildingaumslög eru ákaflega fágæt og þykja því mikil tíðindi í heimi frímerkjasafnara þegar slík umslög eru falboðin. Eitt örfárra íslenskra skildingaumslaga sem er í einkaeigu verður selt á uppboði hjá Thomas Hojland í Danmörku í byrjun næsta mánaðar. Lægsta boð er rúmar 200 þúsund danskar krónur eða um fjórar milljónir íslenskra króna. Viðbúið er að skildingaumslagið verði selt mun hærra verði.

Opinn fundur um kynjagreiningu á rannsóknarskýrslunni

Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða til opins fyrirlestar í dag um kynjagreiningu á Rannsóknarskýrslu Alþingis. Heiti fundarins er „Skál fyrir genunum, peningunum og framtíðinni!"

Krabbamein dró 562 til dauða á síðasta ári

Á síðasta ári létust alls 2.002 einstaklingar, 969 konur og 1.033 karlar. Ekki hafa orðið teljandi breytingar varðandi dánartíðni eftir helstu flokkum dánarmeina frá fyrra ári. Vegna fámennis á landinu geta þó tilviljanasveiflur milli ára verið nokkrar og ber því að taka samanburði um dánarmein milli einstakra ára varlega.

Vinnuslys á dekkjaverkstæði

Starfsmaður dekkjaverkstæðis á Akureyri slasaðist þegar stórt vörubílsdekk sprakk, þegar hann var að dæla lofti í það á verkstæðinu undir kvöld í gær.

Þokkaleg veiði á síldarmiðunum

Fjölveiðiskipin, sem eru að veiða úr Norsk-íslenska síldarstofninum eru nú um 150 sjómílur norður af Lagnanesi í þokkalegri veiði, en síldin finnst ekki annarsstaðar þrátt fyrir talsverða leit.

Dósent segir lög um gengislánin brjóta stjórnarskrá

Stjórnvöld gætu bakað sér skaðabótaábyrgð verði boðað frumvarp, sem ætlað er að jafna stöðu þeirra sem tekið hafa gengistryggð lán, að lögum, segir dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Hann varar við slíkri lagasetningu og hvetur til þess að stjórnvöld reyni að ná samkomulagi við lánafyrirtækin um lausn málsins.

Banaslysum fækkar um 42%

Negld vetrardekk geta minnkað líkur á banaslysum í hálku um 42 prósent samkvæmt rannsókn sem unnin var af sænsku umferðaröryggisstofnuninni Trafikverket.

Ákærurnar styðjast hvorki við lög né rök

Lög hníga ekki til þess að Alþingi gefi út ákærur á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum og engin rök eru til þess að téð tiltekin brot séu refsiverð eða uppfylli það grundvallarskilyrði að meiri líkur en minni séu á sakfellingu.

Áframhaldandi rannsókn á kristniboða ólíkleg

Samtökum íslenskra kristniboða (SÍK) bárust ásakanir frá þremur einstaklingum um kynferðislega áreitni á hendur presti sem starfað hefur hjá þeim. Ásakanirnar bárust hinn 23. ágúst síðastliðinn og var fagráði Þjóðkirkjunnar um kynferðismál tilkynnt um atvikin strax daginn eftir. Biskupsstofa staðfestir það.

Heilbrigðisráðuneytið eitt fram úr fjárlögum

Heilbrigðisráðuneytið fór, eitt tólf ráðuneyta, fram úr fjárheimildum á fyrri hluta ársins. Skýrist það einkum með stöðu Sjúkratrygginga sem fóru rúman milljarð króna fram úr heimildum.

Tæplega fimm þúsund bílar á ábyrgð tryggingafélaganna

Alls eru 4.684 ótryggð ökutæki í umferð í dag. Flest eru þau á skrá Umferðarstofu vegna vangoldinna tryggingagjalda. Tryggingafélögin bæta tjón sem þessi ökutæki valda. Ótryggðum ökutækjum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Árið 2005 voru þau tæplega 2.500 talsins og í fyrra tæplega 4.000.

Gætu verið handverk fimm manna

Taflmennirnir sem fundust á Lewis-eyju úti fyrir Skotlandi árið 1831 gætu verið handverk fimm mismunandi manna.

„Alvarlegt umhugsunarefni fyrir mig“

„Þetta er mjög alvarlegt umhugsunarefni fyrir mig. Ég ætla að sofa á þessu og telja upp að tuttugu,“ segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar, vegna ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi í gær.

Ráðning afturkölluð vegna gjaldþrots umsækjanda

Hreppsnefnd Reykhólahrepps ákvað á fundi sínum þann 9. september síðastliðnum að afturkalla ákvörðun sína um að ganga til samninga við Gylfa Þór Þórisson, sem sótti um stöðu sveitarstjóra.

600 manns í hópmálsókn

Samtök lánþega ætla að fara í skaðabótamál gegn fjármálastofnunum, stjórnendum og eigendum þeirra fyrir að hafa innheimt lán sem klárlega hafi ekki staðist lög. Ríflega 600 manns hafa nú skráð sig til þátttöku í hópmálsóknum samtakanna.

Rök gegn gjaldþrotafrumvarpi haldi ekki lengur

Formaður Viðskiptanefndar Alþingis segir að rök gegn frumvörpum sem fela í sér mikla hagsbót fyrir skuldara, séu ekki lengur fyrir hendi eftir nýfallinn dóm Hæstaréttar. Þingmenn og ríkisstjórn verði að taka skýra afstöðu með skuldurum.

Sjá næstu 50 fréttir