Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kjör bænda skerðast um mánaðamótin Bændur verða fyrir kjaraskerðingu um þessi mánaðamót þegar ríkið hættir að greiða mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð þeirra. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda segir erfitt fyrir þá að vega skerðinguna upp með hækkun afurðaverðs. 26.8.2010 12:12
Mistök gerð hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna Tæknileg mistök hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna höfðu í för með sér að upp undir þúsund ífeyrisþegar fengu rangan útreikning. Þar var tilkynnt um lækkun eða jafnvel niðurfellingu á lífeyrisgreiðslum. Öryekjabandalagið vekur athygli á þessu og segir að leiðréttingarbréf sé væntanlegt frá greiðslustofunni. 26.8.2010 11:47
Svíakóngur drakk kampavín á Austur Karl Gústav, konungur Svíþjóðar, ákvað að gera sér dagamun á veitingastaðnum Austur í gærkvöld. Þar var hann í nokkuð fjölmennum hópi fólks og drakk kampavín, samkvæmt heimildum Vísis. Starfsfólk Austur staðfesti fréttirnar þegar Vísir hafði samband þangað en vildi að öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér um málið. 26.8.2010 11:40
Morðið í Hafnarfirði: Karlmaður í haldi Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Hann hefur ekki verið yfirheyrður áður í tengslum við morðið. 26.8.2010 11:26
Össur í Ríga Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tekur þátt í árlegum samráðsfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem að þessu sinni er haldinn í Ríga í Lettlandi í dag og á morgun. 26.8.2010 11:15
Auðveldara að meta börn eftir átta ára aldur Tryggingafélagið Sjóvá metur hvort hægt sé að tryggja börn með þroskaröskun, eins og ofvirkni með athyglisbrest, eftir að barnið hefur náð átta ára aldri, samkvæmt vinnureglum fyrirtækisins. Þetta segir Valborg Sveinsdóttir, sérfræðingur í persónutryggingum hjá Sjóvá. Hún segir að ástæðan sé sú að eftir þann aldur sé auðveldara að meta barnið. 26.8.2010 11:11
Fleiri fóru til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra Skráðum viðtölum hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á heilsugæslustöðvum fjölgaði töluvert milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði. 26.8.2010 11:08
KFC og Góu lokað vegna útfarar Hannesar Vegna útfarar Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á heimili sínu í Hafnarfirði fyrir ellefu dögum, verður lokað í dag hjá Sælgætisgerðinni Góu-Lindu, á veitingastöðum KFC og Taco Bell ásamt skrifstofum þessara fyrirtækja. Hannes verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag klukkan 13. 26.8.2010 10:43
Ásta fundar með kvenþingforsetum ESB Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, situr fund kvenþingforseta aðildarríkja Evrópusambandsins í Varna í Búlgaríu á morgun í boði Tsetsku Tsachevu, forseta búlgarska þingsins. Til fundarins er boðið öllum kvenþingforsetum aðildarríkja ESB auk umsóknarríkja. Aðalumræðuefni fundarins eru samskipti ólíkra menningarheima í Evrópu og notkun veraldarvefsins í því samhengi, að því er fram kemur á vef Alþingis. 26.8.2010 10:01
Fær ekki að tryggja barn með athyglisbrest Sunna Albertsdóttir fékk ekki að tryggja sjö ára gamlan son sinn sem er greindur með ofvirkni og athyglisbrest. Hún gagnrýnir Sjóvá og segir tryggingarskilmálana afar undarlega - til dæmis sé ekki hægt að tryggja börn sem greind eru með lesblindu. 26.8.2010 10:00
Bæjarstjóri gáttaður á bréfi forstjóra Magma „Ég er gáttur á þessu bréfi og það setur málið í allt aðra stöðu," segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, um bréf forstjóra Magma til iðnaðarráðherra. Hann segir að sett hafi verið upp leikrit í kringum sölu Íslandsbanka á hlut Geysis Green Energy í HS Orku til Magma í stað lífeyrissjóðanna eða Norðuráls. Hann telur að samkomulag hafi verið gert um að selja raforku HS Orku til annarra fyrirtækja en álvers Norðuráls í Helguvík. 26.8.2010 09:04
Japanir boða hvalveiðiþjóðir til fundar Japönsk stjórnvöld hafa boðið hvalveiðiþjóðum til fundar í nóvember til þess að efla samstöðuna um að taka upp hvalveiðar í atvinnuskyni að nýju. Um 40 þjóðum hefur verið boðið til fundarins og eru Íslendingar og Norðmenn á meðal þeirra sem fengið hafa fundarboð. 26.8.2010 08:04
Innbrot í fyrirtæki á Laugavegi Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki á Laugavegi um klukkan hálfsjö í morgun. Lögregla er á staðnum og rannsakar málið og málsatvik eru óljós sem stendur. Þá var einn ökumaður tekinn í höfuðborginni í nótt grunaður um ölvunarakstur en að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglu. 26.8.2010 07:04
Evran hefði litlu breytt í hruninu „Ég átti satt að segja von á því að aðild að myntbandalaginu myndi skipta meira máli,“ segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. 26.8.2010 07:00
Fóðra kanínur í trássi við reglur borgarinnar Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur íhugar nú hvort ástæða sé til að skera upp herör gegn kanínum sem hreiðrað hafa um sig í Elliðaárdalnum. 26.8.2010 06:30
Niðurstöðu senn að vænta Starfshópur um endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu er að ljúka störfum. Drög að heildarskýrslu verða lögð fyrir á fundi hópsins í dag. Stefnt er að því að skýrslan líti dagsins ljós í næstu viku. 26.8.2010 06:30
Engin kvörtun borist ríkislögreglustjóra Ekkert erindi hefur borist embætti ríkislögreglustjóra varðandi ásakanir þess efnis að skráningum brotamála hjá lögreglu sé breytt þannig að þær gefi ranga tölfræðilega mynd af eðli og tíðni brota. 26.8.2010 06:00
Ofurtollum beitt gegn samkeppni Innflutningur á ostum og kjöti er nær útilokaður eftir að landbúnaðarráðherra breytti aðferð við álagningu tolla. Neytendur borga þúsundum króna meira fyrir hvert kíló af innfluttri vöru eftir breytingu. 26.8.2010 05:30
Mígreni tengt meiri líkum á hjartaáfalli Heilbrigðismál Auknar líkur eru á því að fólk með ákveðna tegund mígrenihöfuðverkja deyi af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Í niðurstöðum íslenskrar rannsóknar sem birt var í gær í vefútgáfu British Medical Journal (BMJ) kemur fram að fólk sem þjáist af mígreni með áru, en þá fylgja höfuðverknum sjón- eða skyntruflanir, sé í þessum áhættuhópi. Fólk með mígreni án áru er ekki í aukinni hættu. 26.8.2010 05:00
Aukið eftirlit við grunnskóla í borginni Lögreglan biður ökumenn að hafa í huga að framhalds- og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og því megi búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. 26.8.2010 03:00
Bjarni býr til hrægamm úr máfi Eyþór Arnalds, forseti bæjarstjórnar Árborgar, segir sveitarfélagið skoða það alvarlega að segja upp samningi við umhleðslustöð á gámasvæði Árborgar. Ástæðan er slæmur frágangur umhleðslustöðvarinnar sem hefur orðið þess valdandi að vargur hefur haft nægt æti í sumar og gert bæjarbúum lífið leitt. 25.8.2010 20:15
Hjóli stolið af uppistandara „Fundarlaun... ætli ég segi ekki bara þeim sem skilar mér hjólinu brandara," segir uppistandinn Þórdís Nadía en hjólinu hennar var stolið á menningarnótt. Þórdís hefur auglýst eftir hjólinu á Feisbúkk og hótar góðvinur hennar Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA, að senda handrukkara á þjófinn - skili hann ekki hjólinu innan sólarhrings. 25.8.2010 22:20
Yoko Ono heldur friðarsýningu í London Verk eftir listakonuna Yoko Ono verða til sýnis í London. Verkin heita Imagine Peace og War is over - eða ímyndaðu þér frið og stríðið er afstaðið - og verða til sýnis á tveim stórum skiltum í miðborg Lundúna. 25.8.2010 22:06
Villtar kanínur í Elliðaárdalnum - myndband Hoppandi kátar kanínur hafa lengi verið eitt af aðalsmerkjum Elliðaársdalsins, en óvenju mikið er af þessum krúttlegu greyjum þar í sumar. Vandamál segja sumir en aðrir líta á það sem forréttindi að hafa þær í bakgarðinum. Breki Logason fór í kanínuleit í dag. 25.8.2010 18:50
Hvalhræ urðað við Ásbúð Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað gert verði við hræið af Steypireyði sem rak á land við eyðibýlið Ásbúð á Skaga fyrir skömmu. Líklegt er þó að það verði urðað í fjörunni. 25.8.2010 18:41
Árni Friðriksson í olíuleit á Drekasvæðinu Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er komið í olíuleit á Drekasvæðinu. Skipið safnar borkjarnasýnum úr efstu botnlögum til að kanna hvort í þeim leynist olía eða gas. Fréttir af gasfundi við Grænland gætu skipt Íslendinga máli. 25.8.2010 18:39
Eigum ekki að óttast EFTA-dómstólinn Lagaprófessor við Háskóla Íslands segir að íslensk stjórnvöld eigi ekki að óttast að láta EFTA-dómstólinn dæma í Icesave-málinu, en fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg niðurstaða af Íslendingar töpuðu málinu þar og vill frekar semja. 25.8.2010 18:30
Kirkjuráð biðst fyrirgefningar Kirkjuráð biður fórnarlömb Ólafs Skúlasonar biskups fyrirgefningar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá kirkjuráði. Þar kemur fram að Kirkjuráð trúi frásögnum þeirra Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og fyrir hönd þjóðkirkjunnar biðji kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. 25.8.2010 17:21
Lögreglan lýsir eftir Jóni Helga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Hann er fæddur þann 24.07.1993, er um 168 sm á hæð og 60 kg. Hann er með dökkt hár og ljósar strípur. Hann fór frá Hamarskoti í Flóa þann 12. ágúst. Talið er að hann dvelji í Reykjavík og ábendingar hafa borist um að hann hafi sést á ferð í Breiðholti. Þeim sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóns Helga er bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1180. 25.8.2010 16:33
Nýjar vísbendingar um tengsl mígrenis og hjartaáfalla Fólk á miðjum aldri sem þjáist af mígrenihöfuðverkjum ásamt undanförum þeirra, sem geta verið sjóntruflanir, svimi og dofi, deyja frekar vegna hjarta og æðarsjúkdóma en þeir sem ekki þjást af slíkum höfuðverk 25.8.2010 16:30
Biskup ræddi við Pétur Hafstein um sannleiksnefnd Karl Sigurbjörnsson biskup fundaði i dag með Pétri Kr. Hafstein um að sá síðarnefndi taki að sér að kanna möguleika á skipun nefndar til þess að fara yfir mál Ólafs Skúlasonar heitins biskups. Tillögur að nefndinni eiga að vera tilbúnar fyrir næsta kirkjuþing sem haldið er síðar á árinu. 25.8.2010 14:55
Kynungabók komin út Mennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu 25.8.2010 14:12
Fullnægjandi lyktir í máli Geirs Niðurstaða fundar Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, og Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, í morgun er fullnægjandi að mati Guðbjargar Jóhannesdóttur, formanns Prestafélags Íslands. Geir hafði verið gagnrýndur fyrir að segja í blaðagrein að hann teldi þagnaskyldu presta vera algera. Eftir fund hans og biskups í morgun lýsti sá síðarnefndi því yfir að Geir myndi hlýða tilkynningaskyldu. 25.8.2010 14:00
Ögmundur: Jón er ekki einn Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir menn fara hamförum gegn samflokksmanni hans, Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og líkja megi því við einelti. Ögmundur segir að Jón sé ekki einn í afstöðu sinni að vera andvígur aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 25.8.2010 13:25
Lögreglan sýnilegri við skólana á næstunni Framhaldsskólar og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og má því búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. 25.8.2010 12:55
Fundur um makrílveiðar smábáts mikilvægari Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kaus á funda með eigendum lítils sjávarútvegsfyrirtækis á Rifi á Snæfellsnesi, um reynslu af makrílveiðum smábáts, fremur en að sitja ríkisstjórnarfund í gærmorgun. 25.8.2010 12:12
Peningar í óskilum Peningar, sem fundust í vesturbæ Reykjavíkur, eru í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað þeirra í afgreiðslu lögreglunnar á Hverfisgötu 115, Reykjavík, sem er opin virka daga frá kl. 8-16. Afhending fer fram gegn staðfestingu á eignarhaldi, segir í tilkynningu frá lögreglunni. 25.8.2010 12:09
Grænland datt í lukkupottinn Fréttir í gær um að gas hefði fundist undan ströndum Grænlands og vísbendingar um olíu eru taldar auka áhuga alþjóðlegra olíufyrirtækja að hefja olíuleit allt í kringum þetta næsta nágrannaríki Íslands. 25.8.2010 12:07
Enginn í haldi lögreglu vegna morðsins Enginn er nú í haldi lögreglu vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni að sögn rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn er enn í fullum gangi og voru nokkrir aðilar yfirheyrðir í gærkvöldi. Yfirheyrslum verður framhaldið í dag að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. Tíu dagar eru nú liðnir síðan Hannes fannst myrtur á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði. 25.8.2010 12:00
Þjófagengi í Árbæ: Tveimur sleppt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. 25.8.2010 12:00
Ágreiningur leystur í Svíþjóð vegna ákvæða í samningi Norðurál hefur stefnt HS Orku fyrir gerðardóm í Svíþjóð vegna ágreinings um magn og verð á raforku fyrir álver í Helguvík. Ástæða þess að ágreiningurinn verður leystur í Svíþjóð er ákvæði í samningi HS Orku og Norðuráls og hefur ekkert með eignarhaldið á HS Orku að gera. 25.8.2010 12:00
Síra Geir hlýðir tilkynningaskyldu Síra Geir Waage, prestur í Reykholti, mun hér eftir sem hingað til hlýða þeirri tilkynningaskyldu og samsvarandi ákvæðum sem kveðið er á um í siðareglum þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu. Síra Geir fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands í morgun. 25.8.2010 11:47
Týr aðstoðar vélarvana togara Varðskipið Týr kom um klukkan fjögur í nótt að erlendum togara sem hann var vélarvana um 490 sjómílur vestsuðvestur af Reykjanesi. Varðskipið lagði úr höfn síðdegis á mánudag til aðstoðar togaranum sem er 60 metra langur. Þegar varðskipið kom að togaranum í nótt var dráttarlínu skotið yfir og gekk aðgerðin vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Hagstæða veðurskilyrði eru á svæðinu og standa vonir til að varðskipið verði komið í Faxaflóa á laugardag. 25.8.2010 11:43
Starfsmenn Gæslunnar fræddir um Senegal Starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem héldu til Afríkuríksins Senegals um síðustu helgi fengu áður færðslu um landið. Fram í október mun TF-SIF, flugvél Gæslunnar flaug sinna landamæraeftirliti fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Varðskipið Ægir hefur sinnt sama verkefni frá byrjun maí. 25.8.2010 11:23
Biskup fundar með síra Geir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og síra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, funda nú saman á Biskupsstofu. Biskup boðaði Geir til fundarins vegna blaðagreinar sem hann skrifaði um helgina. Þar sagði Geir að þagnaskylda presta gagnvart þeim sem skrifta væri alger. 25.8.2010 11:04