Fleiri fréttir

Fimm manna þjófagengi handtekið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. Mennirnir voru í haldi síðdegis í gær og stóðu yfirheyrslur þá enn yfir.

Olíufundur þar ýtir undir áhuga á rannsóknum hér

Fundur skoska olíufélagsins Cairn Energy á gasi og olíu í sandlagi á hafsbotni undan vesturströnd Grænlands kann að ýta undir áhuga á olíurannsóknum á íslenska landgrunninu. Cairn upplýsti í gær að fundist hefðu vísbendingar um olíu í fyrstu tilraunaborholu félagsins á Baffinsflóa. Í umfjöllun Berlingske Tidende í gær var félagið sagt hafa fengið „bingó“ eftir sex vikna leit.

Erum neðst Vestur-Evrópuríkja

Ísland er staðsett á milli Egyptalands og Papúa Nýju-Gíneu á lista yfir lönd þegar borinn er saman hagvöxtur í þeim síðustu tvo áratugi.

Eyjamenn vilja fleiri ferðir Herjólfs

Vestmanneyingar vilja að ferðum Herjólfs milli Eyja og Landeyjahafnar verði fjölgað. Einungis er mánuður frá því að ný Landeyjahöfn var tekin í notkun og ferðum var fjölgað verulega en bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að skipið anni ekki eftirspurn að óbreyttu.

Stærsta laxi sumarsins var sleppt

„Hann var eins og fallegt, feitt konulæri,“ segir Geir Gunnarsson, forstjóri Honda-umboðsins, sem í gær veiddi stærsta lax sumarins, 110 sentimetra langan og 51 sentimetra að ummáli.

Ráðherrar hitta iðnaðarnefnd

Iðnaðarnefnd Alþingis ætlar að fá umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra á sinn fund á morgun til þess að ræða stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og áhrif þeirrar stækkunar á áform um Norðlingaölduveitu.

Skáru göt á sextíu heyrúllur

Skorið var á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum í síðustu viku. Lögreglan á Selfossi hefur málið til rannsóknar en skemmdarverkin voru unnin fimmtudagskvöldið 19. ágúst eða aðfaranótt föstudagsins.

Búið að slökkva eldinn

Eldur kviknaði í íbúð að Jörfabakka í Breiðholti fyrir stundu. Um er að ræða fjölbýlishús. Samkvæmt varðstjóra var eldurinn ekki kominn á gang hússins og þurfti ekki að flytja aðra íbúa út úr húsinu vegna eldsins.

Ungliðar krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar

Ungir Jafnaðarmenn krefjast tafarlausrar afsagnar Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vegna ummæla hans um ESB og birtust í Morgunblaðinu í dag.

Hundruð manna til Þjóðskrár

Hundruð manna hafa lagt leið sína á skrifstofu Þjóðskrár Íslands í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur stór fjöldi þeirra verið þar til að skrá sig úr Þjóðkirkjunni en nákvæmar tölur um það liggja ekki fyrir.

Ökumanninum sleppt eftir skýrslutökur

Maðurinn sem var handtekinn ölvaður eftir að hafa keyrt inn í anddyri Íslandsbanka er laus úr haldi lögreglunnar. Honum var sleppt eftir hádegi í dag eftir skýrslutökur á lögreglustöð.

Um 80 þúsund tóku strætó

Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt, sem er með því mesta sem almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu hafa flutt á einum degi frá upphafi.

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning hafin

Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitafélaga hófst í dag. Hún mun standa til næsta mánudags. Gögn um samninginn voru send trúnaðarmönnum í gær í tölvupósti. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Færri og stærri heilsugæslustöðvar gætu skilað tíu prósenta sparnaði

Til að tryggja að fólk leiti að jafnaði fyrst til heilsugæslunnar, áður en það fer til dýrari sérfræðinga, er lagt til að leggja mishá komugjöld á sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, í vinnuskýrslu um eflingu heilsugæslunnar. Fækkun og stækkun heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu gæti skilað tíu prósenta sparnaði.

Forsætisráðherra hefur íhugað að segja sig úr Þjóðkirkjunni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur íhugað að segja sig úr Þjóðkirkjunni. Þetta sagði hún við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í dag. Jóhanna vildi ekki svara því hvort þessar íhuganir hennar væru tilkomnar vegna nýjustu málefna Þjóðkirkjunnar.

Framandi úrræði að vista þýska vandræðaunglinga á Íslandi

Forstöðumaður félags- og skólaþjónustu Snæfellinga segir það framandi úrræði og fjarrænt að senda þýska unglinga til vistunar á íslenskum sveitaheimilum eins og gert hefur verið undanfarin ár. Unglingarnir eru settir á heimili þar sem ekki er töluð þýska og ganga í skóla á meðan þeir eru vistaði hér.

Segir Karl hafa þrýst á Ólaf að segja af sér

Fyrrverandi biskupsritari segist hafa lagt að Ólafi Skúlasyni að segja af sér embætti. Það hafi núverandi biskup einnig gert. Ólafur hafi hinsvegar tekið illa í þær hugmyndir því hann hafi litið svo á að með því hafi hann verið að viðurkenna þær ásakanir sem á hann voru bornar. Hann segist í engum vafa um að ásakanirnar hafi alla tíð verið réttar.

Garðar á þaki höfuðstöðva Landsbankans

Arkitektastofan Work í New York birti nýlega teikningar sínar af nýjum höfuðstöðvum Landsbankans. Stofan tók þátt í samkeppni um hönnun þeirra árið 2007 og var tillaga hennar ein af fimm sem valdar voru til áframhaldandi þróunar. Líkt og margar aðrar teikningar sem gerðar voru í góðærinu verða þessar eflaust ekki að veruleika.

Dreifðu brauði fyrir utan Stjórnarráðshúsið

Vörubílstjórinn Sturla Jónsson mótmælti í félagi við annan mann fyrir utan Stjórnarráðshúsið í dag þar sem fram fór ríkisstjórnarfundur. Í samtali við fréttamann á staðnum sagði Sturla sig og félaga sinn dreifa brauði fyrir utan húsið til að laða máva að lóðinni í mótmælaskyni við sitjandi ríkisstjórn.

Ásta Björg ráðin sveitarstjóri Skagafjarðar

Ákveðið hefur verið að ráða Ástu Björgu Pálmadóttur, núverandi útibússtjóra Landsbanka Íslands á Sauðárkróki, sem sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Miðað er við að hún hefji störf um miðjan september.

Vann ekki á KFC

Íslenski karlmaðurinn sem er í haldi lögreglunnar í Litháen eftir að hafa verið tekin með eitt kíló af fíkniefnum vann ekki á KFC-kjúklingastað í Vilníus eins og mishermt var í Fréttablaðinu í dag.

Harðari viðurlög við brotum á banni við áfengisauglýsingum

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir að þar sem ekki hafi tekist að draga nægjanlega mikið úr áfengisneyslu landsmanna verði að grípa til árangsríkari aðgerða. Hún vill að harðar verði tekið á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum.

Vill 700 þúsund krónur vegna ólögmætrar handtöku

Ungur karlmaður hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir ólögmæta handtöku. Maðurinn var handtekinn í júní í hitteðfyrra vegna gruns um aðildar að líkamsárás. Manninum var haldið í tíu klukkustundir á lögreglustöð á meðan yfirheyrslur fóru fram. Honum var síðan sleppt.

Viðgerð hafin á anddyri Íslandsbanka

Viðgerð er hafin á anddyri Íslandsbanka við Kirkjusand. Um tvöleytið í nótt ók ölvaður maður inn í bygginguna í gegnum glerdyr. Hann sakaði ekki. Lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvun mannsins. Ekki liggur fyrir hve mikið tjónið er.

Skar á 62 heyrúllur

Óprúttinn aðili tók sig til og skar á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum, annað hvort á síðasta fimmtudagskvöld eða aðfararnótt föstudagsins. Lögreglan á Selfossi segir það vera ljóst að þarna sé um að ræða tjón sem talið er í hundruðum þúsunda en umtalsverður kostnaður felst í því að pakka rúllunum upp og óvíst er hversu mikið tjón verður á heyinu við það að súrefni kemst að því.

Þagnarskylda takmarkast við öryggi barna

Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, segir prestum skylt að tilkynna um brot gegn börnum. Að hans mati lýkur þagnarskylda presta þegar kemur að barnaverndarlögum. Þagnarskylda víkur þannig fyrir tilkynningarskyldu.

Ökumenn séu varir um sig

Umferðarstofa minnir ökumenn á yngstu þátttakendurna í umferðinni, sem eru mörg hver á gangi til og frá skóla þessa dagana. Það er mikilvægt að ökumenn takmarki hraða í íbúðahverfum og við skóla en einnig þarf að taka tillit til þess að börn skynja umhverfi sitt á annan hátt en fullorðinn.

Hannes jarðsunginn á fimmtudag

Hannes Þór Helgason sem myrtur var á heimili sínu fyrir rúmri viku verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á fimmtudaginn.

Jóhanna meðal mestu kvenleiðtoga heims

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er í öðru sæti á lista tímaritsins Time yfir tíu mestu kvenleiðtoga heims sem birtur var í gær. Að mati tímaritsins er Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, sú áhrifamesta en í þriðja sæti er Cristina Fernández de Kirchner, forseti Argentíu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er í fimmta sæti og þá er Tarja Halonen, forseti Finnlands, í því áttunda.

Ók inn í bankann

Bifreið var ekið inn í Íslandsbanka á Kirkjusandi klukkan rúmlega tvö í nótt. Að sögn lögreglu var ökumaðurinn ölvaður og fór bíllinn í gegnum glerhurð í andyri og hálfur í gegnum vegg þar fyrir innan. Ökumanninn sakaði ekki en lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvunina. Ekki mun þó hafa verið um ránstilraun að ræða heldur fremur að maðurinn hafi talið sig eiga óuppgerðar sakir við bankann. Hann gistir nú fangageymslur og bíður þess að komast í yfirheyrslu.

Almenningur vill sjá vægari refsingar

Almennir borgarar á Norðurlöndunum eru refsimildari en dómstólar þeirra. Þetta sýnir umfangsmikil norræn rannsókn á afstöðu almennra borgara til refsinga. Niðurstöðurnar voru kynntar á norrænu dómstólaþingi í Kaupmannahöfn síðastliðinn fimmtudag.

Sá sem talar fyrir fólkið mun sigra

Reynsla Norðmanna af tveimur atkvæðagreiðslum um aðild að því sem í dag heitir Evrópusambandið sýnir að það eru ekki endilega efnahagsleg rök eða varðstaða um auðlindir sem ráða mestu um útkomuna, heldur eðli þeirrar orðræðu sem andstæðar fylkingar hafa uppi.

Þjóðkirkjan hrökk í vörn

Karl Sigurbjörnsson biskup segir kirkjuna hafa brugðist í málefnum kvennanna þriggja sem leituðu hjálpar vegna kynferðislegrar áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar biskups. Hann vísar því á bug að hafa reynt að þvinga konurnar til að falla frá ásökununum. Biskup segir málið snúið og auðvelt sé að vera vitur eftir á. Hann segir þjóðkirkjuna hafa brugðist og greinilegt sé að ekki hafi verið komið konunum til hjálpar.

Kertum fleytt í minningu Hannesar Þórs Helgasonar

Mörg hundruð manns söfnuðust saman við lækinn í Hafnarfirði í kvöld til að minnast Hannesar Þórs Helgasonar sem myrtur var á heimili sínu fyrir um viku. Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið. Kertum var fleytt á lækinn og Flensborgarkórinn söng lög. Fjölskylda Hannesar var meðal viðstaddra og einkenndi mikill samhugur og samkennd þessa minningarstund.

Biskupinn í Kastljósinu: Ætla ekki að segja af mér

Karl Sigurbjörnsson neitar því að hafa hvatt konurnar, sem sökuðu Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisofbeldi, að draga ásakanir sínar til baka. Hann segist ekki rengja sögu Guðrúnar Ebbu, dóttir Ólafs Skúlasonar, sem jafnframt sakaði biskupinn um kynferðisofbeldi. Karl sagði í Kastljósviðtalinu ekki telja ástæðu til að hann stigi til hilðar.

Slitastjórn í mál við fyrrum bankastjóra

Slitastjórn Landsbankans ætlar að krefjast fjögur hundruð milljóna króna af fyrrverandi bankastjórum bankans, Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, og millistjórnanda í bankanum, fyrir að hafa innleyst kaupréttasamninga nokkrum dögum fyrir hrun þrátt fyrir að þeir væru ekki innleysanlegir fyrr en um tveimur mánuðum síðar.

Vifta bilaði í járnblendiverksmiðjunni

Ástæðan fyrir reyknum úr járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga var bilun í viftu í reykhreinsivirki verksmiðjunnar. Í tíufréttum Rúv var haft eftir Einari Þorsteinssyni, forstjóra Elkem, að enga hættu stafi af reyknum og búið sé að tilkynna atvikið til umhverfisstofnunar líkt og lög og reglur geri ráð fyrir.

Sjá næstu 50 fréttir