Fleiri fréttir

Slökkvistarfi lokið í bryggjuhverfi

Slökkvistarfi er nú lokið í bryggjuhverfinu í Grafarvogi en þar kom upp eldur í gámum sem stillt hafði verið upp og byggt skýli yfir yfir. Gámarnir sem brunnu voru úr plasti en skýlið virðist að sögn slökkviliðsins hafa verið notað sem bátaskýli eða til viðgerða á bátum. Engir bátar voru þó í skýlinu þegar eldurinn kom upp. Eldsupptök eru ókunn og fer málið í rannsókn.

Akranes braut lög með samningi við son forseta bæjarstjórnar

Akraneskaupstaður braut gegn íslenskum lögum og EES-reglum þegar bærinn bauð ekki út kaup á tölvuþjónustu og samdi við fyrirtækið Securstore sem stýrt er af syni forseta bæjarstjórnar. Þetta er niðurstaða kærunefndar útboðsmála.

Eldur í bryggjuhverfinu í Grafarvogi

Slökkviliðið berst nú við eld sem logar í gámastæðum í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Samkvæmt sjónarvottum er um talsverðan eld að ræða en vaktstjóri slökkviliðs segir að gámarnir hafi verið notaðir til þess að hýsa báta.

Trilla sökk vestan við Grindavík

Sex tonna trilla sökk við Staðarberg á Reykjanesi rétt vestan við Grindavík fyrir hádegi eftir að leki kom að bátnum. Einn maður var um borð og er hann heill á húfi. Slæmt skyggni er á svæðinu.

Piltur kærir nauðgun

Piltur um tvítugt hefur lagt fram kæru um nauðgun. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins kærði maðurinn misneytinguna af hendi sér eldri karlmanns til lögreglu eftir helgina.

Rekstur Landspítalans réttu megin við strikið

Rekstur Landspítala var réttu megin við strikið eftir fjóra fyrstu mánuði ársins. Björn Zoëga, forstjóri spítalans, segir að það sé gífurlega góður árangur á erfiðum tímum. „Á síðustu mánuðum hefur verið óvenju mikið álag en allir hafa lagt sitt fram til að þessi árangur náist," segir Björn í pistli á heimasíðu spítalans.

Flóðið olli ekki skemmdum á vegamannvirkjum

Eðjuflóðið sem kom niður Svaðbælisá og fór yfir varnargarða við Þorvaldseyri hefur ekki valdið skemmdum á vegamannvirkjum. Flóðið er að sjatna en vatn hefur farið yfir varnargarða á 150 metra kafla, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Mikil eðja er í vatninu og framburður.

Ólafur Ragnar flutti setningarræðu í Portúgal

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í gær, setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu í boði Norður-Suður stofnunarinnar (e. North-South Centre) sem starfar á vegum Evrópuráðsins. Ráðstefnan bar heitið „The 21st Century: A Century of Global Interdependence and Solidarity“ og var haldin í ráðhúsi Lissabonborgar í Portúgal. Stofnunin var sett á laggirnar fyrir 20 árum á grundvelli samþykkta þings Evrópuráðsins. Ráðstefnuna sótti fjöldi sérfræðinga sem og fulltrúar alþjóðastofnana og aðildarríkja Evrópuráðsins.

Franklin Stiner dæmdur í fangelsi

Franklin Stiner var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir vörslu fíkniefna. Hann var ákværður fyrir að hafa í október 2008 haft í fórum sínum rúm 150 grömm af amfetamíni, 32 grömm af kókaíni, lítilræði af hassi og 23 alsælutöflur sem lögregla fann við leit. Tæpu hálfu ári síðar fundu lögreglumenn aftur fíkniefni hjá Franklín, í þetta sinn rúm 22 grömm af amfetamíni 2 alsælutöflur og lítilræði af tóbaksblönduðu kannabis.

Eyjafjallajökull: Eðjuflóð í Svaðbælisá

Mikið eðjuflóð hófst í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum upp úr klukkan níu í morgun og vatnar yfir varnargarðana á svæðinu. Að sögn Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri, sem var staddur á brúnni yfir ánna fyrir stundu, sýnist þetta vera eðja frekar en vatn og að hún komi frá Eyjafjallajökli, eins og síðasta flóð þarna nýverið.

Reyndi að brjótast inn í apótek

Lögreglumenn handtóku undir morgun mann, sem var að reyna að brjótast inn í apótek í austurborginni. Hann gistir fangageymslur og verður yfirheyrður í dag, en aðeins eru nokkrir dagar síðan reynt var að brjótast inn í annað apótek í borginni. Það mistókst líka.

Innanlandsflug hafið

Biðstaða var í innanlandsfluginu í morgun og var öll áætlun Flugfélags Íslands og Ernis í nánari athugun. Nú er hinsvegar búið að opna Reykjavíkurflugvöll og hófst innanlandsflug upp úr klukkan átta. Ekki er þó víst hvort hægt verður að fljúga til Ísafjarðar, en búið er að opna Akureyrarflugvöll.

Innanlandsflug í nánari athugun

Biðstaða er í innanlandsfluginu þessa stundina og öll áætlun Flugfélags Íslands og Ernis er í nánari athugun. Aska er víða í háloftunum og er verið að kortleggja hana nánar. Keflavíkurflugvöllur er hinsvegar opinn og hefur millilandaumferð verið með eðlilegum hætti í morgun.

Eldur kviknaði í eldunartæki

Eldur kviknaði í eldunartæki í íbúð við Hverfisgötu í Reykjavík í gærkvöldi og var kallað á slökkviliðið. Íbúum tókst að slökkva eldinn áður en það kom á vettvang, en slökkviliðsmenn reykræstu íbúðina. Engum varð meint af.

Býður sig fram í varaformanninn

Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins sem kosið verður í á landsfundi flokksins í lok júní.

Nýjar bókhaldsreglur blása út eigið fé sveitarfélaganna

Gunnlaugur Júlíusson, sviðstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands sveitarfélaga, hefur sent stjórn sambandsins harða gagnrýni á vinnubrögð reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga. Nefndin ákvað 9. apríl síðastliðinn að breyta reikningsskilareglum hvað varðar lóðir og lönd sveitarfélaga.

Samfélagsleg ábyrgð komi í stað arðsemi

Lífeyrissjóðirnir gegna lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í gær. Ráðherra sagði að sjóðunum bæri til þess siðferðisleg skylda auk þess sem það væri efnahagslega skynsamlegt fyrir þá.

Klessti á bifreið á slysstað

Tveir aðilar voru fluttir með sjúkrabifreið og einn leitaði sjálfur á slysadeild eftir umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú undir kvöldmat.

Fyrstu hrefnunni landað

Hvalveiðibáturinn Hafsteinn SK-3 landaði fyrstu hrefnunni í ár í Hafnarfirði í dag. Hún var veidd í gær á utanverðum Faxaflóa. Um 23 feta tarf var að ræða.

Mæðgur draga framboð sitt til baka af lista Ólafs F

Bryndís Torfadóttir, framkvæmdastjóri SAS, hefur ákveðið að draga til baka framboð sitt á H-lista Ólafs F. Magnússonar, en hún sendi tilkynningu þess eðlis út í kvöld. Hún er hinsvegar enn á listanum og verður á kjördag þar sem hún var of sein að draga framboðið til baka.

Öryrkjar mótmæla harðlega niðurskurði

Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega niðurskurðaráætlunum í félagsmála- og tryggingaráðuneytinu. Ráðherrann, Árni Páll Árnason, boðaði 10 milljarða niðurskurð fyrir helgi.

Áttu hey?

Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur skapast óvissa um fóðuröflun á öskufallssvæðinu í sumar. Fyrirsjáanlegt er að talsvert viðbótarhey þarf inn á svæðið og því er nauðsynlegt að tryggja nægar heybirgðir fyrir haustið samkvæmt heimasíðu naut.is.

Borgarstjórn auglýsir eftir sérfræðingum í rannsóknarnefnd

Borgarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað það í dag að auglýsa eftir sérfræðingum í þriggja manna nefnd til að gera rannsókn á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og fól borgarráði að skipa í nefndina á fundi sínum 27. maí nk.

Ríkið bregst við fíklamömmum

Barnaverndaryfirvöldum berst árlega fjöldi tilkynninga vegna mæðra sem þykja ógna lífi og heilsu ófæddra barna sinna með áfengis- og fíkniefnaneyslu.

Meirihlutinn kolfallinn á Akureyri

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn samkvæmt könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkurinn geldur afhroð og missir tvo af fjórum bæjarfulltrúum.

Tveir á slysadeild eftir hópslagsmál

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að hópslagsmál brutust út í Töllakór í Kópavoginum samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsmannafjöldinn þrefaldist - fjárþörf dómstóla einnig metin

Gert er ráð fyrir því að starfsmannafjöldi hjá sérstökum saksóknara þrefaldist frá því sem nú er og verði allt að 80 manns en ríkisstjórnin hefur samþykkt að stórauka fjárveitingu til embættisins og verður fimm milljörðum veitt allt í allt til embættisins. Í greiningu á kostnaðarþáttum sem embættið skilaði inn er gert ráð fyrir að meginþungi rannsókna verði á árunum 2010-2011 og að þeim verði lokið að fullu á fyrri hluta ársins 2013.

Askan nær til borgarinnar

Aska frá Eyjafjallajökli berst nú yfir höfuðborgarsvæðið í suðaustlægri átt sem nú er ríkjandi. Gildi svifriks á mælum í borginni hafa hækkað hratt en búist er við úrkomu og þá er reiknað með að gildin lækki hratt á ný. Klukkan hálffjögur var hálftímagildi svifryks í mælistöðinni á Grensásvegi 318 míkrógrömm á rúmmetra að því er fram kemur í tillkynningu frá Reykjavíkurborg. Einnig eru gildin há í mælistöðinni í Hafnarfirði.

Dagur gagnrýnir Árna Pál flokksbróður sinn

Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur hefur komið á framfæri „alvarlegum athugasemdum“ við forystu ríkisstjórnarinnar og Árna Pál Árnason félagsmálaráðherra vegna yfirlýsinga Árna um nauðsynlegan niðurskurð í velferðarkerfinu. Á dögunum sagði Árni óhjákvæmilegt að fækka starfsmönnum hins opinbera. Borgarstjóri spurði Dag út í ummæli flokksfélaga síns á borgarstjórnarfundi í dag.

Rannsóknarskýrslan rædd í fræðilegu ljósi

Háskóli Íslands mun bjóða stúdentum sérstakt fjölfræðilegt námskeið í sumar þar sem fjallað verður um hrunið í fræðilegu ljósi. Um er að ræða tvö 6 eininga námskeið á BA stigi, sem haldin eru í samfellu. Hið fyrra verður frá 20. maí til 8. júní og hið síðara frá 10. júní til 29. júní. Nemendur geta tekið hvort sem er 6 eða 12 einingar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HÍ.

Tæp 11% treysta Alþingi vel

Einungis 10,5% landsmanna bera mikið traust til Alþingis, ef marka má nýja könnun MMR. Þeir voru 18% í sömu könnun MMR frá því í september. Jafnframt fjölgar þeim sem segjast bera lítið traust til Alþingis, eru nú 56,4% en voru 52,4% í september 2009.

Vilja fá Magma til að minnka nýtingarréttartímann

Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt að fara þess á leit við forsvarsmenn Magma Energy að nýtingarréttur HS Orku á orkuauðlindum verði minnkaður í 40 til 45 ár í stað þess að hann verði 65 ár eins og nú er.

Sérstakur saksóknari fær milljarða til að ljúka rannsóknum

Embætti sérstaks saksóknara verður styrkt verulega með 470 milljóna aukafjárveitingu í ár og 960 milljóna fjárveitingum á næsta og þarnæsta ári. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag. Heildarframlög til embættisins hafa því verið aukin gríðarlega en gert er ráð fyrir að saksóknarinn ljúki störfum árið 2014 og á því tímabili hafi það fengið fimm milljarða króna frá ríkinu.

Besti flokkurinn til umræðu á Alþingi

Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar ræddi um Besta flokkinn í umræðu um störf þingins á Alþingi í dag. Þór segir að Besti flokkurinn sé gríðarleg háðsádeila og ef hann fái fylgi í samræmi við skoðannakannanir muni það vekja heimsathygli.

Lyklafrumvarpið fast í nefnd í sjö mánuði

Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins skorar á Allsherjarnefnd Alþingis að afgreiða frá sér svokallað lyklafrumvarp Lilju Mósesdóttur þingmanns Vinstri grænna. Óli Björn segir að þetta frumvarp hafi nú setið fast í nefndinni í sjö mánuði.

Mistur yfir Hvolsvelli en engin aska

Aska úr Eyjafjallajökli virðist nú vera að falla norðan við Hvolsvöll. Að sögn lögreglunnar í bænum hefur askan ekki náð inn í bæinn ennþá en Veðurstofan gerir ráð fyrir austanátt á svæðinu í dag. Lögregla segir að hálfgert mistur liggi yfir bænum en vonir standa til að honum verði hlíft við öskufallinu að minnsta kosti í dag. Askan virðist aðallega vera að falla til jarðar á hálendinu og mögulega inni í Þórsmörk. Hvolsvallarbúar hafa nú verið lausir við öskufallið í tvo daga.

Samstarf um bætta öryggismenningu í fiskiskipum

VÍS og Slysavarnaskóli sjómanna hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér formlegt samstarf um bætta öryggismenningu um borð í fiskiskipum og um auknar forvarnir gegn slysum meðal sjómanna. Liður í samstarfinu er að VÍS mun afhenda Slysavarnaskóla sjómanna 10 flotgalla árlega næstu þrjú árin til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Í tilkynningu frá VÍS segir ennfremur að tekið verði upp samstarf við útgerðir sem tryggja hjá VÍS með það að markmiði að sporna við slysum meðal sjómanna á fiskiskipum þeirra.

Sigurður kærir handtökuskipun til Hæstaréttar

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur kært handtökuskipun sem gefin var út á hendur honum til Hæstaréttar. Interpol hefur lýst eftir Sigurði en sérstakur saksóknari vill fá hann til viðtals. Í hádegisfréttum RÚV var greint frá því að kæran hafi borist í gærdag og að frestur málsaðila til þess að skila gögnum renni út í dag. Þá sagði að líklegt væri að Hæstiréttur felli úrskurð sinn fljótlega.

Dagur vonar að ruglið endi á kjördag

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir ánægjulegt hvernig Besta flokknum hefur tekist að hreyfa við borgarstjórnarpóltíkinni en vonar að ruglið sem hann segir hafa einkennt kjörtímabilið endi á kjördag.

Árni bæjarstjóri: Óvíst hvaða áhrif hærra orkuverð hefur

Óvíst er hvaða áhrif boðanir forstjóra Magma á hækkun á orkuverð til stóriðju mun hafa á aðkomu fjárfesta að álverinu í Helguvík. Þetta segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hann segist þó telja að svigrúm sé til hækkanna. Hann hafnar fullyrðingum um að kaup Magma séu fjármögnuð með opinberu fé.

Sjá næstu 50 fréttir