Fleiri fréttir

Sindri kominn í leitirnar

Sindri Þór Ragnarsson, drengurinn sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir í kvöld er kominn fram heill á húfi. Lögreglan þakkar veittar ábendingar sem bárust eftir að lýst var eftir drengnum.

Öskuframleiðslan aðeins brot af því sem hún var

Kvikustreymi og gosmökkur á Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Sprengivirknin og öskuframleiðsla er aðeins brot af því sem hún var í byrjun gossins en engin merki sjást um að gosi sé að ljúka.

Lýst eftir 13 ára dreng

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Sindra Þ. Ragnarssyni. Sindri fór af heimili sínu um hádegisbilið í dag og vitað er að hann hafi farið til Reykjavíkur. Að sögn lögreglu er Sindri á 14. aldursári, um 173 cm á hæð, með skollitað hár með mikið af ljósum strípum og grannvaxinn.

Jón Sigurðsson: Ég hef engin lög brotið

Skattrannsóknarstjóri krafðist í gær kyrrsetningar á eignum Jóns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Stoða um leið og gerð var krafa um kyrrsetningu á eignum félagsins. Í yfirlýsingu frá Jóni segir að rök skattrannsóknarstjóra hafi verið þau að nauðsynlegt hafi verið að kyrrsetja eignir hans til tryggingar fyrir hugsanlegri fésekt vegna meintrar refsiverðrar háttsemi hans í tengslum við skil Stoða á virðisaukaskatti.

Breiðavíkurnefnd: Kannað hvort rannsaka þurfi fleiri heimili

Fjöldi ungs fólks, sem segir að brotið hafi verið á sér á opinberum meðferðar- og vistheimilum, hefur leitað til Breiðavíkurnefndarinnar. Formaður hennar segir nefndina ekki rannsaka heimili sem starfrækt voru eftir árið 1992. Kannað verði hvort tilefni sé til að rannsaka nýrri heimili í ljósi þessara frásagna.

Bílalánafrumvarp lagt fram á næstu dögum

Höfuðstóll bílalána í erlendri mynt gæti lækkað um tuttugu til þrjátíu og fimm prósent nái frumvarp félagsmálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun, fram að ganga. Ráðherra útilokar ekki að frumvarpið verði dregið til baka ef samningar takast við fjármögnunarfyrirtækin.

Flóttamaður fær ekki búsetuleyfi

Útlendingastofnun hefur synjað flóttakonu á þrítugsaldri um búsetuleyfi en hún kom hingað til lands í boði íslenskra stjórnvalda frá Kólumbíu fyrir fimm árum. Stofnunin telur að konan geti ekki framfleytt sér á námsstyrk til að klára stúdentspróf sem hún þáði frá félagsþjónustunni.

Besti flokkurinn bætir gríðarlega við sig í fylgi

Besti flokkurinn fékk 12,7 prósent í könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins í mars en mælist nú með 23,4 prósent og fengi fjóra af fimmtán borgarfulltrúum. Hann mælist með meira fylgi en Samfylkingin og er næst stærsti flokkurinn í borginni.

Varðskip aðstoðar portúgalskan togara

Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á leið til aðstoðar portúgölskum togara sem fékk veiðarfæri í skrúfuna við mörk 200 sjómílna lögsögunnar. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að togarinn hafi verið við úthafskarfaveiðar og fékk hann veiðarfærin í skrúfuna í morgun. Var þá leitað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og munu kafarar varðskipsins freista þess að skera veiðarfærin úr skrúfu togarans.

Komin niður úr krananum heil á húfi

Sex ára stelpan sem klifraði upp í krana í vallahverfinu í Hafnarfirði er nú komin niður með aðstoð slökkiliðsmanns. Hún mun hafa verið í hjólatúr í hverfinu og fékk þá hugdettu að virða fyrir sér útsýnið úrk krananum. Hún komst alla leið upp að stýrishúsi kranans og var því komin í um það bil 25 metra hæð. Þá hætti henni að lítast á blikuna og þorði ekki niður aftur.

Sex ára stelpa í sjálfheldu í krana í Hafnarfirði

Sex árs stelpa klifraði upp í byggingakrana á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði fyrir stundu. Hún komst ekki niður af sjálfsdáðum og var þá kallað á lögreglu og slökkvulið. Slökkviliðið sendi körfubíl á staðinn og fór einn slökkviliðsmaður upp í kranann búinn klifurbúnaði og er aðgerðin enn í gangi.

Meintir kókaínsmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi

Fimm manns, fjórir karlar og ein kona, hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald en þau eru grunuð um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni. Um er að ræða rúmlega 3 kg af mjög hreinu kókaíni, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglunni bar skylda til að sinna kalli frá dómnum

„Við erum kallaðir þarna til af dómara eftir að tilraunir dómara og þingvarða til þess að fá fólk, sem að var ofaukið i réttarsalnum, úr salnum báru ekki árangur og við sinnum einfaldlega því kalli,“ segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.

Leikfélag Sólheima sýnir verk um ævi Sesselju

Leikfélag Sólheima sýna um þessar mundir leikritið „Þar sem sólin á heima“ eftir Eddu Björgvinsdóttur. Leikritið var frumsýnt á sumardaginn fyrsta og verður sýnt á Sólheimum um helgina. Hátíðarsýning verður svo í Þjóðleikhúsinu næstkomandi miðvikudag klukkan átta. Leikritið er um ævi Sesselju Sigmundsdóttur, stofnanda Sólheima, og er stiklað á stóru í lífshlaupi hennar.

Björgólfur og Sigurður Einarsson verða ekki sviptir fálkaorðunni

Það hefur aldrei verið rætt formlega í orðunefnd um Hina íslensku fálkaorðu að svipta þá Sigurð Einarsson og Björgólf Guðmundsson orðunni, segir Ólafur G. Einarsson, formaður orðunefndarinnar. Í grein í Fréttablaðinu í dag gagnrýnir Njörður Njarðvík, fyrrverandi háskólakennari, orðuveitingar forseta Íslands til Björgólfs Guðmundssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Landsbankans, og Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings.

Siv: Breið samstaða um breytt hjúskaparlög

Stefnt er að því að ný hjúskaparlög verði afgreidd frá Alþingi fyrir sumarleyfi þingsins. En í gær tókst stuðningsmönnum við frumvarpið ekki af afla tillögu þar að lútandi stuðnings á Prestastefnu.

Össur ósammála Jóhönnu um málskotsréttinn

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru ósammála um það hvort afnema eigi málskotsrétt forseta Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudaginn að hún teldi að leggja ætti niður málskotsréttinn í núverandi mynd og þjóðin gæti sjálf kallað beint eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Kvikuflæðið allt að 50 tonn á sekúndu

Talið er að kvikuflæðið upp úr gosrásinni í Eyjafjallajökli, sé allt að 50 tonn á sekúndu, sem er meira en haldið hefur verið, en minna en við upphaf gossins. Þetta flæði jafngildir þyngd fimmtíu lítilla fólksbíla á sekúndu.

Lögreglan fjarlægði fólk úr dómssal með valdi

Til átaka kom í dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur upp úr klukkan ellefu í morgun þegar lögregla fjarlægði tvo einstaklinga sem voru að fylgjast með fyrirtöku i máli níu mótmælenda sem sóttir eru til saka fyrir að fara inn í alþinghúsið í Búsáhaldabyltingunni í byrjun síðasta árs.

Viðbúnaður vegna dómsmáls gegn mótmælendum

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var með talsverðan viðbúnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar tekin var fyrir ákæra gegn níu einstaklingum, sem eru ákærðir eru vegna mótmæla á þingpöllum í Búsáhaldabyltingunni.

Ógnaði ungum dreng með hnífi

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun nítján ára gamlan pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ógnað tveimur ungum drengjum með hnífi á Selfossi í júní í fyrra.

Tíu sveitarfélög til sérstakrar skoðunar vegna fjárhagsvanda

Tíu sveitarfélög á Íslandi hafa verið til sérstakrar skoðunar af hálfu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurði ráðherra út í málið á Alþingi. Samkvæmt svari ráðherra er um að ræða sveitarfélögin Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarbæ, Sveitarfélagið Álftanes, Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbæ, Bolungarvík, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað.

Björgólfur Thor: Skil reiði almennings

„Ég skil réttláta reiði almennings gagnvart þeim sem voru þátttakendur í þeirri atburðarás sem leiddi til hrunsins. Það mun taka mig mörg ár að byggja upp mannorð mitt á Íslandi á nýjan leik ef það tekst á annað borð, en ég er staðráðinn í að gera mitt besta til þess. Ég geri hins vegar ráð fyrir að grundvallarreglum réttarríkisins verði framfylgt í meðferð þeirra mála sem tengjast hruninu, sem og við afgreiðslu mála almennt hjá Alþingi og ríkisvaldi,“ segir athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson í bréfi sem hann sendi iðnaðarnefnd fyrr í mánuðinum í tengslum við gagnaver Verne Holding á Suðurnesjum.

Engin merki um að gosi sé að ljúka

Vatnsrennsli undan Gígjökli í Eyjafjallajökli jókst nokkuð undir morgun og er að berast út í Markarfljót. Þetta er þó ekki neitt stórhlaup og tala vísindamenn frekar um gusu. Annars hélt gosið ámóta krafti í nótt og verið hefur síðasta sólarhringinn. Engin merki er um að gosinu sé að ljúka.

Bensínverð hækkar

Olíufélögin Olís, Skeljungur og N-1 hækkuðu öll bensínverð i gær og er það nú komið upp í tæpar 213 krónur lítrinn í sjálfsafgreiðslu en 218 krónur með fullri þjónustu. Félögin hækkuðu verðið nær alveg jafn mikið og sömuleiðis dísilolíuna.

Heimild til að kaupa erlenda gjaldeyri lækkar

Heimild til að kaupa erlenda gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga til útlanda, lækkar í dag úr 500 þúsund krónum niður í 350 þúsund, samkvæmt nýjum reglum Seðlabankans. Einnig er gerð breyting á sérstökum undanþágum, til að taka af allan vafa um ólögmæti aflandsviðskipta.

Á gjörgæslu eftir gasleka í Hellisheiðarvirkjun

Fjölmennt lögreglu- og slökkvilið ásamt sjúkrabílum og læknum voru send að Hellisheiðarvirkjun í nótt, eftir að þaðan barst beiðni um bráðaaðstoð. Þar varð einhverskonar gasleki laust fyrir klukkan fjögur, með þeim afleiðingum að tveir starfsmenn misstu meðvitund og féllu ofan af vinnupall, eða úr stiga, en sá þriðji komst út og kallaði á hjálp.

Bólusetja á við eyrnabólgu

Draga mun verulega úr slæmri eyrnubólga barna, lungnabólgu, blóðsýkingu og heiluhimnubólgu af völdu pneumókokkabaktería þegar bólusetning í ungbörnum gegn bakteríunum hefst. Stefnt er á að það verði gert á næsta ári.

Landsdómur er æðsti dómur

Lög um Mannréttindasáttmála Evrópu gera ráð fyrir því að sérhver sá sem dómstóll finnur sekan fyrir afbrot, skuli hafa rétt til að láta æðri dóm fjalla á ný um sakfellinguna eða refsinguna. Svo segir í fyrstu málsgrein 2. greinar í sjöunda viðauka laganna.

Víðtækar refsiheimildir vegna ráðherra

Refsiheimildir vegna vanrækslu ráðherra á starfsskyldum ná bæði yfir ráðleggingar og fortölur sem ráðherra beitir vegna máls sem annar ráðherra ber ábyrgð á og til þess sem fram fer á ríkisstjórnarfundum þar sem ráðherrar skiptast á skoðunum og ráða ráðum. Þetta má lesa í sextánda kafla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Matur hækkar um 66 prósent

Verðkönnun SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu sýnir að matarkarfa landsmanna hefur hækkað um 66 prósent á síðustu fjórum árum. Karfan hefur hækkað um 34 prósent frá því í byrjun október 2008.

Notuðu garðklippur á fingur

Þrír menn eru nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sakaðir um að hafa svipt mann frelsi sínu og klippt hann í fingurinn með garðklippum í því skyni að kúga af honum hálfa milljón króna.

Magma horfir til Kerlingarfjalla

Magma Energy á Íslandi hefur átt í óformlegum viðræðum við sveitarstjórn Hrunamannahrepps um rannsókn á virkjanakostum. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy á Íslandi, staðfestir að viðræður hafi átt sér stað. „Við erum einfaldlega að skoða hvar geta legið tækifæri til skynsamlegrar orkunýtingar í náinni framtíð,“ segir hann.

Starfsemi lamast af völdum hestahósta

Margar tamningastöðvar eru lamaðar, mótum er aflýst og vorsýningar kynbótahrossa kunna að vera í uppnámi vegna hrossahóstans sem smitast enn út um landið.

Minningin um eldgosið endist alla ævi

Hópur erlendra sjálfboðaliða á vegum sjálfboðaliðasamtakanna SEEDS hjálpaði til við að hreinsa ösku af túnum undir Eyjafjöllum. Sjálfboðaliðarnir segja það góða tilfinningu að geta hjálpað fólki.

Kynjakvóti flækti endurröðun á lista

Kynjakvóti á framboðslista Framsóknar í Reykjavík flækti endurröðun eftir að Guðrún H. Valdimarsdóttir hagfræðingur, sem var í öðru sæti, sagði sig frá listanum á mánudag. Niðurstaðan varð að Valgerður Sveinsdóttir lyfjafræðingur færist upp um sæti og skipar annað sætið. Þuríður Bernódusdóttir færist úr 11. sæti í það þriðja en Bryndís Guðmundsdóttir bókari kemur ný inn og mun skipa 11. sætið.

Gosið heldur sínu striki

Kvikustreymi og gosmökkur hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa á Eyjafjallajökli og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Af gufu sem leggur upp af Gígjökli má ráða að hraunið sé komið í hallann til norðurs. Ekki sjást merki umað gosi sé að ljúka. Þetta kemur fram í daglegri skýrslu Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar háskólans.

Hjálmar kjörinn formaður BÍ

Hjálmar Jónsson var rétt í þessu kjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands á aðalfundi félagsins. Miklar deilur voru í aðdraganda fundarins og dró Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fyrrverandi formaður framboð sitt til baka í morgun. Hjálmar var því sjálfkjörinn.

Borgarstjóri telur „þjóðstjórn“ farsælasta stjórnarformið

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri kallar eftir þjóðstjórn við stjórn borgarinnar. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að stjórnmálin þurfi að breytast. Ég held að það sé kominn timi á það að einbeita sér að því sem sameinar menn en ekki það sem sundrar,“ segir Hanna Birna.

BÍ: Tillaga um að fresta ársfundi var felld

Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands hófst klukkan átta en mikil átök hafa verið í félaginu síðustu daga. Svavar Halldórsson stjórnarmaður lagði fram tillögu þess efnis að aðalfundinum yrði frestað um þrjár viku. Taldi hann að lögmæti fundarins væri laskað, meðal annars vegna þeirra deilna sem uppi hafa verið um ársreikninga félagsins en meirihluti stjórnarinnar neitaði að undirrita reikningana fyrir ársfundinn.

Jónína hætt í framsókn

Jónína Benediktsdóttir hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum en hún skipaði 15. sæti listans í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Á Facebook síðu sína skrifaði hún í dag: „Ég hef sagt mig úr Framsóknarflokknum. Treysti því ekki að spilltu öflin séu horfin úr flokknum. Ég verð því ekki á listanum.“

Sjá næstu 50 fréttir