Starfsemi lamast af völdum hestahósta 30. apríl 2010 02:45 Eigendur huga þessa dagana vel að hrossum sínum. Systurnar Katla Sif og Sara Dís Snorradætur voru í hesthúsinu í gær til að athuga hvort hryssan þeirra, Vilma, væri orðin veik.Fréttablaðið/Vilhelm
Margar tamningastöðvar eru lamaðar, mótum er aflýst og vorsýningar kynbótahrossa kunna að vera í uppnámi vegna hrossahóstans sem smitast enn út um landið. Þetta segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma. Að sögn Sigríðar hefur enn ekki fundist hvað veldur pestinni. Hins vegar hafa þekktar sýkingapestir í öndunarfærum hrossa verið útilokaðar með veitugreiningu. Allt þykir benda til að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þéttskipuðum hesthúsum. Bakteríusýkingar virðast í mörgum tilfellum fylgja í kjölfarið og geta hrossin þá fengið hita og graftarkenndan hor í nös. Bakteríuræktun hefur leitt í ljós að oft er um að ræða streptókokka sem nú er verið að greina nánar. Slíkar sýkingar er í mörgum tilfellum hægt að meðhöndla til að flýta bata hrossanna. Nú er að koma í ljós að mörg hross eru lengi með hóstapestina, allt upp í fjórar vikur, og enn sér ekki fyrir endann á því hversu lengi þau verða að jafna sig að fullu. Unnið er áfram að greiningu hennar bæði á Tilraunastöðinni á Keldum og á Dýralækningastofnun Svíþjóðar. „Pestin er mjög lúmsk þegar hún er að byrja,“ segir Sigríður. „Síðan magnast hún upp með tímanum og fer að breiðast út. Allra fyrstu einkenni eru þurr hósti, glært nefrennsli og slappleiki sem þó verður aðeins vart í reið. Hestarnir sækja gjarnan niður með hausinn til að hósta. Ég legg mikið upp úr því að eigendur hrossa átti sig því fljótt á því ef þau veikjast. Þá er nauðsynlegt að gefa þeim frí og búa vel að þeim. Mikilvægt er að loftið sé gott, en alls ekki kalt. Með vorinu á að vera hægt að koma betur til móts þessar þarfir.“ Sigríður segir ekki vitað til þess að hross hafi drepist í kjölfar pestarinnar né orðið það alvarlega veik að þeim hafi verið hætta búin. Mörg hrossanna gangi í gegnum veikindin án þess að fá hita. „Hins vegar er vandinn sá að þetta situr lengur í hrossunum heldur en við héldum í fyrstu og kemur þess vegna verr við alla hestatengda starfsemi. En það er ekkert sem bendir til þess að þetta valdi hrossunum varanlegu tjóni.“ Sigríður segir að pestin raski að líkindum vorsýningum kynbótahrossa, þannig að meginþunginn verði á síðsumarsýningunum. jss@frettabladid.is
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Sjá meira