Minningin um eldgosið endist alla ævi 30. apríl 2010 02:30 Hópur erlendra sjálfboðaliða tók til hendinni við bæinn Moldnúp undir Eyjafjöllum í vikunni, enda mikið magn af ösku sem þurfti að moka burtu af bæjarhlaðinu.Mynd/Meir Kfir
Hópur erlendra sjálfboðaliða á vegum sjálfboðaliðasamtakanna SEEDS hjálpaði til við að hreinsa ösku af túnum undir Eyjafjöllum. Sjálfboðaliðarnir segja það góða tilfinningu að geta hjálpað fólki. „Það kom mér á óvart hvað var mikið af ösku, og hversu þétt hún var eftir rigningar. Eftir að verkinu var lokið gengum við upp á hól nærri bænum. Við sáum hvernig grasið var að rembast við að komast upp úr öskunni, og það minnti mig á fugla sem festast í olíuflekk og eru við það að kafna.“ Svona lýsir Matic Kraševec, sjálfboðaliði frá Slóveníu, upplifun sinni af því að moka ösku af túnum á bænum Moldnúpi undir Eyjafjöllum. Hópur átta sjálfboðaliða frá sjö löndum tók þátt í hreinsunarstarfinu, og er von á fleiri erlendum sjálfboðaliðum til að hreinsa til eftir öskufallið. Fólkið, sem flest er á aldrinum 20 til 30 ára, kom sérstaklega hingað til lands til að stunda sjálfboðaliðastörf, en átti ekki von á því að hluti af störfunum yrði að hreinsa til eftir eldgos. „Ég heimsótti svæðið þar sem öskufallið var hvað mest áður en gosið í Eyjafjallajökli byrjaði, svo það var mikið sjokk að sjá hvernig askan hefur lagst yfir þetta fallega landslag. Það hefur allt breyst,“ segir Anais Kerroc‘h, sjálfboðaliði frá Frakklandi. „Það tóku allir mjög vel á móti okkur fyrir austan og skýrðu fyrir okkur hvað þurfti að gera og hvers vegna. Það var þykkt lag af ösku á túnunum við bóndabæinn, og við þurftum að moka henni upp og keyra burtu á hjólbörum.“ Bæði Anais og Matic segjast meira en tilbúin til að fara aftur austur fyrir fjall til að hjálpa til við að hreinsa upp öskuna, enda ætla þau að dvelja áfram hér á landi fram á sumar. „Það veltur á því hvort íbúarnir hafa verkefni fyrir okkur, en ég held að við værum alveg tilbúin til að gera miklu meira,“ segir Matic. „Ég ætlaði upphaflega að vinna við verkefni í Þórsmörk, en af augljósum ástæðum gekk það ekki eftir. Þegar ég heyrði af möguleikanum að hjálpa til við að hreinsa til eftir eldgosið stökk ég á það,“ segir Anais. „Það er gott að geta hjálpað fólki, askan hefur lagst yfir stór svæði og það er mikilvægt verk að koma henni í burtu. Það er góð tilfinning að hjálpa þeim sem virkilega þurfa á aðstoð að halda,“ segir hún. „Fyrir mig er þetta eitthvað sem ég varð að gera, vinna við hliðina á eldfjalli sem er að gjósa, þetta er minning sem verður með mér alla ævi. Ég sótti um styrkinn til að koma hingað fyrir hálfu ári, og svo gerist þetta einmitt þegar ég er hérna. Ég hefði ekki getað verið heppnari,“ segir Matic. Þau viðurkenna bæði að vinir og fjölskyldan heima hafi smá áhyggjur af þeim á Íslandi þegar eldfjöllin gjósa hvert á fætur öðru. Matic segir sjálfboðaliðana þó einnig geta hjálpað við að leiðrétta þann leiða misskilning að hér sé allt í kalda kolum, með því að veita fjölmiðlum í heimalöndum sínum viðtöl. Sjálfur hafi hann veitt slóvenskum fjölmiðli viðtal, og einhverjir hafi talað við danska og þýska sjónvarpsmenn.brjann@frettabladid.is Hreinsað Anais Kerroc‘h frá Frakklandi segir öskuna sums staðar hafa verið svo fína og þétta að hún hafi getað hnoðað öskubolta.Mynd/Meir Kfir
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira