Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Erfitt að tryggja atvinnuöryggi Erfitt er að tryggja atvinnuöryggi blaðamanna, nema með auknum styrkjum til fjölmiðla, en í nýju frumvarpi til fjölmiðlalaga verður reynt að bæta réttarstöðu þeirra. Meðal annars á þá að verða úr sögunni að blaðamenn séu dæmdir fyrir orð viðmælenda sinna. 8.2.2010 03:30
Vopnað rán í Sunnubúðinni Vopnað rán var framið í Sunnubúðinni í Hlíðunum um sjö leytið í kvöld. Maður ógnaði starfsmanni með hníf og komst burtu með nokkra fjármuni úr peningakassa. 7.2.2010 21:34
Þróun opinberra starfsmanna hér á landi á sér tæpast hliðstæðu Að minnsta kosti níu af hverjum tíu sem misst hafa vinnuna eftir bankahrun störfuðu á almennum vinnumarkaði. Viðskiptaráð telur að mikið ójafnvægi hafi myndast á milli almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera. Á sama tíma og störfum fækkaði á almennum vinnumarkaði fjölgaði þeim hjá ríkinu. 7.2.2010 18:33
Fimmta tjón Náttúrufræðistofnunnar - vatnsleki eyðilagði gróðurkort Litlu mátti muna að stórtjón hefði orðið í geymslu Náttúrufræðistofnunnar Íslands í Súðavogi ef ekki hefði verið fyrir Þorvald Björnsson, starfsmanns stofnunarinnar, en þegar hann kom til vinnu var geymslan full af vatni. Vatnið náði honum upp að ökklum og hafði lekið niður af efri hæðinni, sennilega vegna mannlegra mistaka. 7.2.2010 18:22
Búrka-bófar rændu banka í Frakklandi Tveir einstaklingar klæddir í Búrka, sem er trúarlegur klæðnaður múslímskra kvenna, rændu banka í París á dögunum og komust í burtu með tæpa milljón. Ránið átti sér stað um miðjan dag í hverfinu Athis Mons en langflestir íbúar hverfsins eru múslimar frá Norður-Afríku. 7.2.2010 17:29
Loðnan komin óvanalega langt vestur Svo virðist sem loðna sé óvenju snemma á ferð undan Suðurströndinni þetta árið ef marka má staðsetningu fjölveiðiskipa á fiskislóðinni. Ekki er vitað hversu mikið magn er um að ræða, en sú loðna sem þarna er virðst vera á hraðri vesturleið. 7.2.2010 17:07
Spilavíti í Heilsuverndarstöðina- Landlæknir skoðar málið „Heilbrigðisráðuneytið leggst gegn hugmyndinni,“ segir Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, en óskað hefur verið eftir óformlegum umsögnum lögreglu og landlæknaembættisins til þess að meta hvort það sé heppilegt að lögleiða fjárhættuspil á Íslandi. 7.2.2010 16:22
Ríflega helmingur þjóðarinnar ónæmur fyrir Svínaflensu Meira en helmingur þjóðarinnar er nú ónæmur fyrir svínainflúensunni A(H1N1). Búið er að bólusetja um 130.000 manns og ætla má að á bilinu 50-60.000 manns hafi fengið veikina í faraldrinum sem gekk yfir landið á síðari hluta árs 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landlæknaembættinu. 7.2.2010 13:53
Hollenski seðlabankinn sinnti ekki eftirlitsskyldum sínum Hagfræðingurinn Robert Wade segir að Ísland hefði aldrei sætt sömu meðferð af hálfu Hollendinga og Breta ef Ísland hefði verið stærra land eða hluti af ESB. 7.2.2010 13:27
Tekur ekki sæti í Garðabæ: „Ég segi nei takk og gangi þeim vel" Lögfræðingurinn Ragný Þóra Guðjohnsen, sem sóttist eftir 2-3 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að taka sjötta sætinu þar sem hún endaði í prófkjörinu en hún hefur verið varabæjarfulltrúi flokksins síðan 2002. 7.2.2010 11:41
Óvanaleg steinbítshrygna í Vestmannaeyjum Í nótt hrygndi steinbítshrygna í fiskasafni Vestmannaeyja. Hrygningin er óvanaleg að því leytinu að hrygningartími steinbíts er venjulega í október og nóvember en þessi hrygning á sér stað í febrúar. Hrygnan hefur þegar myndað hrognabolta og hefur vafið sig utan um hann. Þannig ver hún hrognin sem eru á að giska 1000 til 2000 talsins. 7.2.2010 14:16
Framsókn ekki á leiðinni í ríkisstjórn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segist ekki vita hvaðan orðrómur um að flokkur hans sé að setjast í ríkisstjórn sé kominn. Hann hafi gefið núverandi stjórn tækifæri sem minnihlutastjórn en fengið það strax í bakið. 7.2.2010 12:56
Segja Eið Smára hafa greitt fyrir þagmælsku frönsku fyrirsætunnar Slúðurblaðið News Of the World greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen hafi greitt frönsku undirfatafyrirsætunni Vanessu Perroncell tíu þúsund pund þegar meintu ástarsambandi þeirra á að hafa lokið árið 2003. Greiðsluna á Eiður Smári að hafa innt af hendi til þess að tryggja að hún héldi trúnaði við hann varðandi meint ástarsambandið samkvæmt News of the World. 7.2.2010 10:18
Karlmaður nefbrotinn í nótt Lögreglunni barst tilkynning um líkamsárás laust eftir klukkan fjögur. Karlmaður hafði verið sleginn í andlitið við skemmtistað á Laugavegi með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Lögreglan kom manninum á slysadeild. 7.2.2010 09:36
Hnuplaði jakka og endaði á því að stela bíl Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og verkefnin af öllum toga eins og segir í tilkynningu embættinu. 7.2.2010 09:31
Hera Björk sigraði með Je ne sais quoi Það verður Hera Björk Þórhallsdóttir sem verður fulltrúi Íslands í Eurovision kepninni sem fram fer í Noregi í vor. Lag Örlygs Smára, Je ne sais quoi, sigraði í Söngvakeppni sjónvarpsins sem fram fór í kvöld. Hera hefur greinilega sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar en í öðru sæti varð lagið One more time, sem sungið var af Jögvan Hansen. 6.2.2010 21:51
Sóley hreppti fyrsta sætið í forvali VG Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi sigraði í forvali VG í Reykjavík sem fram fór í dag. 1062 atkvæði voru greidd í forvalinu og hlaut Sóley 439 atkvæði í fyrsta sæti. Í öðru sæti varð Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi og í því þriðja hafnaði Líf Magneudóttir. 6.2.2010 22:04
Góð þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Mikil þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Garðabæ í dag en alls kusu 1700 manns. 6.2.2010 20:48
Nýliði í þriðja sæti VG - Líf er í skýjunum og með báðar fætur á jörðinni „Ég er alveg í skýjunum. Himinlifandi, en auðvitað spyr maður að leikslokum,“ segir Líf Magneudóttir sem er í þriðja sæti í forvali VG í Reykjavík en þess ber að geta að aðeins þrjúhundruð atkvæði af þúsund hafa verið talin. Því getur staðan hæglega breyst. 6.2.2010 21:00
Andrea náði fyrsta sætinu í forvali VG á Akureyri Andrea Hjálmarsdóttir, kennari við Háskólann á Akureyri náði fyrsta sætinu í forvali Vinstri grænna þar í bæ og skaut þar bæjarfulltrúann Baldvin H. Sigurðsson ref fyrir rass en hann sækist einnig eftir fyrsta sætinu. Baldvin er í þriðja sæti þessa stundina en í öðru sæti er Edward Huijbens. 6.2.2010 20:05
Tvær konur í sex efstu sætum Sjálfstæðismanna í Garðabæ Endanlegur listi liggur fyrir í Garðabæ en búið er að telja öll greidd atkvæði. Aðeins tvær konur eru á listanum og þær ná ekki þremur efstu sætunum. Erlingur Ásgeirsson, bæjarfulltrúi, er með fyrsta sætið. 6.2.2010 19:54
Prófkjör á Álftanesi: Forseti Bæjarstjórnar efstur Fyrstu tölur úr prófkjöri í Álftanesi eru komnar en þar er Kristinn Guðlaugsson, forseti bæjarstjórnar, efstur á blaði. Þá vekur athygli að Guðmundur G. Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi til margra ára nær ekki einu af sex efstu sætunum. 6.2.2010 19:49
Prófkjör í Garðabæ: Erling Ásgeirsson efstur Þegar talin hafa verið 1.000 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Garðabæ þá er listinn svona: 6.2.2010 19:44
VG í Reykjavík með jafn mikla kjörsókn og Sjálfstæðisflokkurinn Af þeim 2800 einstaklingum sem eru skráðir í Vinstri græna í Reykjavík kusu þúsund í forvali flokksins sem haldið var í dag. Það gera tæplega 36 prósent. 6.2.2010 19:34
Sóley í fyrsta sæti VG í Reykjavík - 20 atkvæði skilja sætin að Um þúsund atkvæði hafa verið greidd á kjörstað í forvali VG í Reykjavík og nokkrir tugir utankjörfundaratkvæða með póstkosningu. 6.2.2010 19:05
Leki kom upp um kannabisræktun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Krummahólum í Breiðholti í dag. Þetta er fjórða kannabisræktunin sem lögreglan upprætir á innan við hálfum mánuði. 6.2.2010 18:55
Flestar mæður eyða fóstrum með litningagalla Nær flestar mæður barna sem greinast með litningagalla á meðgöngu fara í fóstureyðingu. Hins vegar fæðast nokkur börn á ári með downs heilkenni eða aðra litningagalla sem ekki greinast í fósturskimun. Þó nokkrar konur kjósa að eyða ekki fóstrinu þrátt fyrir líkur á litningagalla. 6.2.2010 18:51
Prófkjör og Forvöl víða um land Prófkjör og forvöl fóru fram víða í dag fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þátttakan hefur verið góð en mesta spennan er í Reykjavík þar sem tveir borgarfulltrúar takast á um efsta sætið á lista Vinstri-grænna. 6.2.2010 18:46
Bretar og Hollendingar vilja semja ef erlendir samningamenn aðstoða Þeir Össur Skarphéðinsson og Steingrímur J. Sigfússon sátu fund með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna í fjármálaráðuneytinu í morgun þar sem Icesave-málið var rætt. 6.2.2010 18:41
Vill börnin sín frá Haítí Ung kona frá Haítí sem búsett er hér á landi vinnur að því að fá móður sína og börn til landsins en þau hafa verið á götunni eftir jarðskjálftann þar í landi. Stjórnvöld áætla að flytja um tuttugu Haítíbúa hingað til lands en kostnaðurinn við verkefnið er allt að áttatíu milljónir. 6.2.2010 18:30
Góð kjörsókn í forvali VG Alls hafa 700 manns greitt atkvæði í forvali Vinstri grænna til borgarstjórnarkosninga í dag en fyrir fjórum árum greiddu alls 500 manns atkvæði í forvali flokksins. Að sögn Stefáns Pálssonar, formanns kjörstjórnar VG, þá kusu þúsund manns í forvali fyrir Alþingiskosningar. 6.2.2010 16:24
500 manns búnir að kjósa í prófkjöri í Mosfellsbæ Um fimmhundruð manns eru búnir að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ að sögn Elísabetar S. Ólafsdóttur, formanns fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins. 6.2.2010 15:57
Ágúst Einarsson hættir sem rektor í sumar Háskólinn á Bifröst útskrifaði í dag 63 nemendur, þar af 11 með meistarapróf. Í útskriftarræðu tilkynnti Ágúst Einarsson rektor að hann myndi láta af störfum 5. júní næstkomandi eða við næstu útskrift. 6.2.2010 15:35
Á fjórða hundrað manns mótmæla á Austurvelli Nokkur hundruð manns eru mætt á mótmæli á Austurvelli en það eru samtökin Nýtt Ísland sem halda þau. Meðal annars var farið heim til bankastjóra stærstu bankanna í morgun og þeir vaktir. 6.2.2010 15:15
Meiðyrðamálið vegna SS: Oddur áréttar sakleysi sitt Oddur Eysteinn Friðriksson, sem hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að halda úti vefsíðu og á henni birt meiðyrði um forstjóra og starfsmenn Sláturfélags Suðurlands, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Fréttablaðsins af málinu. 6.2.2010 14:31
Ekki á leið í frí „Það er bara fullkomlega eðlilegt að hún taki örfáa daga fyrir sjálfa sig," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um frí sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók sér í morgun. 6.2.2010 13:50
Fundi stjórnar og stjórnarandstöðu lokið um Icesave - málum miðar vel Ríkisstjórn og stjórnarandstöðuflokkar kláruðu fund sín á milli í Fjármálaráðuneytinu nú fyrir stundu varðandi Icesave. Utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson sat fundinn fyrir hönd Samfylkingarinnar, en Jóhanna Sigurðardóttir er í fríi erlendis eins og Vísir hefur greint frá. Þá sat Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fundinn fyrir Vinstri græna. 6.2.2010 13:27
Jóhanna farin í frí - fór til útlanda í morgun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er farin í frí. Ekki er gert ráð fyrir ríkisstjórnarfundi á þriðjudaginn vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Hinsvegar er gert ráð fyrir að forsætisráðherra sitji ríkisstjórnarfund á föstudaginn samkvæmt upplýsingum frá Einari Karli Haraldssyni upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins. 6.2.2010 13:04
Þjóðfundur á Bolungarvík Þjóðfundur er haldin í dag á Bolungarvík en þar koma saman fulltrúar íbúa á Vestfjörðum, sem valdir eru eru með tilviljanakenndu úrtaki, og fulltrúar hagsmunaaðila af svæðinu. 6.2.2010 12:03
Steingrímur J: Betri Icesave-lausn eru fréttir um óorðinn hlut „Þetta eru fyrirfram fréttir um óorðinn hlut,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, spurður út í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag þar sem segir að flest bendi til mun betri lausnar í Icesave málinu. 6.2.2010 10:45
Hálkublettir á Vesturlandi Á Vesturlandi eru hálkublettir í Borgarfirði, á Bröttubrekku og víða á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og yfir Þröskulda einnig er hálka á Óshlíð og Súðavíkurhlíð. Hálkublettir eru á flestum öðrum leiðum. 6.2.2010 10:01
Bankastjórar vaktir af Nýju Íslandi Samtökin Nýtt Ísland munu vekja upp bankastjóra og forstjóra fjármálafyrirtækja á laugardagsmorgun til að minna á kröfur fólksins í landinu. Kröfurnar verða bornar fram á tíunda kröfu- og mótmæla fundi vetrarins á Austurvelli á laugardaginn kl 15:00. 6.2.2010 09:57
Sex prófkjör í dag Sex prófkjör fara fram víða um land í dag. Hjá Vinstri grænum fer fram prófkjör í Reykjavík og á Akureyri. Sjálfstæðismenn standa einnig í ströngu þar sem fjögur prófkjör eru hjá flokknum í dag. 6.2.2010 09:44
Skíðasvæðið á Siglufirði opið Skíðasvæðið á Siglufirði er opið í dag frá kl 10-16. Þar er logn, frost um 5 stig og heiðskírt. 6.2.2010 09:34
Ökufantur tekinn á Suðurlandi Rétt rúmlega tvítugur karlmaður var stöðvaður af lögreglunni á Selfossi þegar hann á 178 kílómetra hraða í nótt. Maðurinn ók Biskupstungnabraut þegar hann var stöðvaður. Maðurinn reyndist ekki ölvaður. 6.2.2010 09:27