Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sagði yfirmann sennilega leiðinlegasta mann í heimi Ríkissaksóknari hefur ákært Odd Eystein Friðriksson, fyrrum starfsmann Sláturfélags Suððurlands fyrir ærumeiðandi móðganir og aðdróttanir í garð Steinþórs Skúlasonar, forstjóra Sláturfélagsins. Skrifin á Oddur Eysteinn að hafa birt nafnlaust á vefsíðu sem aðgengileg var almenningi. 6.2.2010 04:00
Vilja öryggi Samtök útvegsmanna og sjómanna skora á stjórnvöld að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar svo hún fái sinnt lögbundnu eftirlits- og öryggishlutverki sínu. Tilefnið er alvarleg veikindi sjómanns um helgina á togaranum Sturlaugi Böðvarssyni. LHG gat ekki orðið við beiðni um aðstoð þar sem skipið var um sjötíu sjómílur frá landi og aðeins ein þyrluvakt til taks. Við slíkar aðstæður er þyrla ekki send lengra en tuttugu mílur á haf út. 6.2.2010 03:30
Hrikalegt að horfast í augu við þetta „Er það svo að Landhelgisgæslan geti ekki haldið úti lögbundnu hlutverki sínu nema með þeim peningum sem hún hefur haft og er lítið hægt að skerða þau framlög? Að þessu spyr ég mig þessa dagana. Allt sem gert er virðist ógna öryggi sjómanna og það er hrikalegt að þurfa að horfast í augu við það,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, um stöðu Landhelgisgæslunnar. 6.2.2010 03:00
Sorpstöðin kærð og sökuð um getuleysi Íslenska gámafélagið hefur kært Sorpstöð Suðurlands fyrir brot á bæði samkeppnislögum og stjórnsýslulögum. 6.2.2010 02:30
Bæjarstjórnin vill fá skýrari svör frá Alcan Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að þrátt fyrir formlegt svar frá Rannveigu Rist, forstjóra Alcan á Íslandi, séu enn atriði sem þarfnist útskýringar varðandi viðhorf fyrirtækisins til nýrrar íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík. Þetta kom fram á síðasta fundi bæjarráðs. Þar benti áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna á að álversforstjórinn hefði sagt að fyrirtækið sæktist ekki eftir stækkun. Þess utan komi fram í svari fyrirtækisins að það hafi ekki aðgang að orku sem þurfi fyrir stækkunina. - gar 6.2.2010 02:00
BUGL: Bráðainnlögnum fjölgar um þriðjung Bráðainnlögnum ungmenna á barna-og unglingageðdeild Landspítalans hefur fjölgað um rúmlega þriðjung síðustu þrjá mánuði. Innlagnir eru flestar vegna sjálfsvígstilrauna, sjálfsskaða, þunglyndis og kvíða. Geðlæknar eru órólegir yfir þessari þróun og óttast að efnahagsástandið sé farið að bitna á geðheilsu barna. 5.2.2010 19:03
Fimm embætti héraðsdómara auglýst laus til umsóknar Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið auglýsir nú laus til umsóknar fimm embætti héraðsdómara í samræmi við lög nr. 147/2009 þess efnis að heimilt sé að fjölga héraðsdómurum tímabundið um fimm, úr 38 í 43. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að gert sé ráð fyrir að dómarar verði 43 fram til 1. janúar 2013 en eftir þann tíma skuli ekki skipa í embætti héraðsdómara sem losna fyrr en þess gerist þörf, þar til dómarar í héraði verði aftur 38 að tölu. 5.2.2010 19:00
Ekki kosið um stækkun álvers samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu Atkvæðagreiðsla um nýtt deiliskipulag sem felur í sér stækkun álversins í Straumsvík, fer ekki fram samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave. Alcan greiddi á sínum tíma fyrir gerð deiliskipulags, sem bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir lúta öðrum reglum er kostun á gerð aðalskipulags. 5.2.2010 18:45
Aldrei nær samkomulagi Fjármálaráðherra segir stjórn og stjórnarandstöðu nær því en nokkru sinni fyrr að ná saman um hvernig staðið yrði að nýjum samningum um Icesave við Breta og Hollendinga. Hann segir jákvætt ef Norðmenn vilji lána Íslendingum fyrir skuldbindingunni á betri kjörum, en engar formlegar viðræður hafi átt sér stað við Norðmenn um það. 5.2.2010 18:36
Meirihluti frambjóðenda á móti flugvellinum Meirihluti frambjóðenda í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, sem á annað borð svöruðu fyrirspurn fréttastofunnar, vill að flugvallarstarfsemi verði lögð af í Vatnsmýrinni. 5.2.2010 18:33
Ungu fólki utan skóla líður verr en skólafólki Ungt fólk sem er ekki í skóla líður verr en jafnöldrum þeirra sem eru í námi. Það er líklegra til að hafa brotna sjálfsmynd, neyta áfengis og ólöglegra vímuefna. 5.2.2010 18:30
Formaður Sjálfstæðisflokksins fundaði með dönskum ráðherra Formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson átti í dag, 5. febrúar, fund með Lene Espersen, viðskipta- og efnahagsráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Danmerkur. 5.2.2010 18:06
Minna skorið niður hjá HSS en talið var nauðsynlegt Niðurskurður á þjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður ekki jafn mikill og talið var. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem yfirstjórn stofnunarinnar sendir frá sér í kjölfar fundarhalda með Álheiði Ingadóttur heilbrigðisráðherra. Þar var farið ítarlega yfir stöðu HSS og niðurskurð á framlögum til stofnunarinnar á fjárlögum. 5.2.2010 17:44
Kröfum Baldurs hafnað - áfrýjar til Hæstaréttar Kröfum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, um ógildingu á kyrrsetningu eigna hans var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Arnar Þór Stefánsson lögmaður Baldurs hyggst kæra úrskurðinn til Hæstaréttar á mánudag. 5.2.2010 17:02
Hosmany Ramos áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Brasilíumanninum Ramos Hosmany en hann hefur verið í haldi síðan hann kom til landsins síðasta sumar. 5.2.2010 16:42
Facebook nauðgari áfram í varðhaldi Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á aldrinum 13 til 16 ára. Maðurinn heitir Ívar Anton Jóhansson og er 22 ára gamall. Hann kynntist stúlkunum á Facebook samskiptavefnum eins og rakið hefur verið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 5.2.2010 16:28
Þjóðfundur í Bolungarvík Á morgun verður haldinn þjóðfundur í Íþróttahúsinu í Bolungarvík þar sem koma saman fulltrúar íbúa á Vestfjörðum, sem valdir eru með tilviljunarkenndu úrtaki úr þjóðskrá, og fulltrúar hagsmunaaðila af svæðinu. Þar er um að ræða fólk úr sveitarstjórnum, atvinnulífi, launþegasamtökum, stofnunum og stjórnmálaflokkum. 110 hafa skráð sig til þátttöku en 80 manns voru á þjóðfundi á Egilsstöðum síðastliðinn laugardag sem heppnaðist vel. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 5.2.2010 16:16
Brot 85 ökumanna mynduð í Vesturbænum Brot 85 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, að Furumel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 627 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. 5.2.2010 16:10
Bjarnfreðarson og Fangavaktin með flestar tilnefningar Kvikmyndin Bjarnfreðarson og sjónvarpsþáttaröðin Fangavaktin í leikstjórn Ragnars Bragasonar fá langflestar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár. Bjarnfreðarson er tilnefnd til fimm verðlauna og Fangavaktin sjö í sitt hvoru lagi og þá eru kvikmyndmyndin og sjónvarpsþátturinn tilnefnd sameiginlega í sex flokkum. Aðalleikarnir Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson og Pétur Jóhann Sigfússon eru allir tilnefndir sem leikari ársins. 5.2.2010 15:42
Lögðu hald á hundrað kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 100 kannabisplöntur en megnið af þeim var á lokastigi ræktunar. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. 5.2.2010 14:46
Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Fyrir stundu varð háspennubilun í Mosfellsbæ og er rafmagnslaust við Fitja og í Leirvogstungnahverfi. Verið er að vinna að viðgerð og vonast eftir að rafmagn komist á fljótlega, að fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 5.2.2010 14:38
Hverfisgötufantar fengu níu mánaða dóm Fjórir Lettar voru í dag dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, fyrir fólskulega líkamsárás og innbrot haustið 2008. Mennirnir ruddust grímuklæddir inn í íbúðarhús við Hverfisgötu að kvöldi laugardags 25. október og réðust þar á fjóra samlanda sína. Þetta gerðu því þeir töldu sig eiga óuppgerðar sakir við einn þeirra sem staddur var í húsinu. 5.2.2010 14:18
Þyrluþjónusta Landhelgisgæslunnar verði efld Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna telja brýnt að efla þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar. Nýlegt atvik undirstriki að niðurskurður á rekstrarfé Gæslunnar ógni öryggi sjómanna á hafi úti. 5.2.2010 14:09
Um 2,5% færri leituðu til Landspítala Um 2,5% færri einstaklingar leituðu til Landspítala í fyrra en árið áður. 5.2.2010 13:36
Steingrímur Hermannsson jarðsunginn á þriðjudag Útför Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, fer fram á vegum ríkisins næstkomandi þriðjudag 9. febrúar klukkan tvö frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 5.2.2010 13:08
Barist um fyrsta sætið í Reykjavík og á Akureyri Á morgun fer fram forval Vinstri grænna í Reykjavík og á Akureyri fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Tvær konur gefa kost á sér gegn núverandi oddvitum flokksins í bæjarfélögunum. 5.2.2010 12:44
Varðskip og flugvél Gæslunnar sinni eftirliti í Miðjarðarhafi Flugvél og varðskip Gæslunnar sinni eftirliti í Miðjarðarhafi Allt útlit er fyrir að Landhelgisgæslan muni missa eina af þremur þyrlum sínum í maí. Forstjóri Gæslunnar segir að til standi að lána flugvél Gæslunnar og eitt varðskip til landamæraeftirlits í Miðjarðarhafi. 5.2.2010 12:35
Þingmenn bera persónulega ábyrgð á uppsögnunum á RÚV Starfsmenn Ríkisútvarpsins harma þá ákvörðun Alþingis og ríkisstjórnarinnar að skera framlög til RÚV niður um einn tíunda. „Þessi ákvörðun hefur leitt til þess að um fimmtíu starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa nú misst vinnuna, bæði fastir starfsmenn og verktakar, í höfuðborginni og á landsbyggðinni. Sérhver alþingismaður ber persónulega ábyrgð á uppsögnunum,“ segir í yfirlýsingu sem starfsfólk Ríkisútvarpsins samþykkti nýverið. 5.2.2010 12:14
Orkan fyrir norðan flutt suður? Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra benti á Þingeyjarsýslur þegar Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði á Alþingi hvar ætti að fá raforku í þau verkefni sem virkjanir í neðri Þjórsá áttu að sinna. Kristján Þór sagði hins vegar að Norðlendingar myndu ekki standa eilíflega í því að flytja orkuna og lífsbjörgina suður. 5.2.2010 12:09
Ráðherra eykur strandveiðikvótann um 2.000 tonn Í frumvarpi um strandveiðar gerir ráð fyrir að heimild til strandveiða verði lögfest og fyrirkomulag veiðanna verði í meginatriðum það sama og í fyrra. Þannig er gert ráð fyrir að strandveiðar muni einkum takmarkast af þeim aflaheimildum sem ráðstafað er sérstaklega til veiðanna, eða allt að 6.000 lestum af óslægðum botnfiski í stað 3.995 lesta af þorski auk annarra tegunda líkt og var á síðasta ári. 5.2.2010 12:09
Steingrímur: Fögnum samstarfsvilja Norðmanna Fjármálaráðherra segir jákvætt að vilji sé til þess í Noregi að lána Íslendingum fyrir Icesaveskuldbindingunum. Þetta hafi þó ekki verið rætt formlega við norsk stjórnvöld. 5.2.2010 12:07
Halli í Andra býður sig fram í prófkjöri Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fer fram á morgun, laugardag. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sækist einn eftir fyrsta sætinu en fimm mann sækjast eftir öðru sæti; Bryndís Haralds, Eva Magnúsdóttir, Hafsteinn Pálsson, Herdís Sigurjónsdóttir og Örn Jónasson. 5.2.2010 12:03
Slökktu sinueld við Hofsstaðarskóla Sinueldur logaði á svæði við Hofsstaðarskóla í Garðabæ í morgun. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn rétt fyrir klukkan ellefu en hann logaði í sinu á um hundrað fermetra svæði. 5.2.2010 11:46
Engin rök fyrir ofurlaunum útvarpsstjóra Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingar, segir að spara þurfi meira í yfirstjórn Ríkisútvarpsins. Engin málefnaleg rök eru fyrir launum Páls Magnússonar útvarpsstjóra sem eru 1,5 milljónir króna á mánuði, að mati þingmannsins. 5.2.2010 11:32
Styrktu rústabjörgunarsveitina um milljón Fulltrúar Lionshreyfinginnar á Íslandi afhentu Slysavarnafélaginu Landsbjörg eina milljóna í gær svo að íslenska alþjóðabjörgunarsveitin sem sinnti nýverið björgunarstörfum á Haítí geti keypt tvær rafstöðvar. Slíkar rafstöðvar eru meðal þess búnaðar sem sveitin skyldi eftir á Haítí þegar hún fór þaðan. 5.2.2010 10:51
Erlendir fjölmiðlar ætla að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni Að minnsta kosti 10 erlendir fjölmiðlar hafa þegar boðað komu sína hingað til lands þegar að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave fer fram. 5.2.2010 10:45
Skrökvuliðar vilja ekki formanninn „Þetta er akkúrat sú staða sem við óskuðum eftir. Nú getum við dregið hinar hreyfingarinnar að borðinu og knúið þær til einhverskonar samvinnu Aðalhugsunin hjá okkur er að útrýma fylkingum og meirihlutaræðinu,“ segir Stefán Rafn Sigurbjörnsson, fyrsti maður á lista Skrökvu, félags flokksbundinna framapotara, sem fékk einn mann kjörinn í kosningum til Stúdentaráð Háskóla Íslands sem fóru fram í gær og fyrradag. 5.2.2010 10:36
Davíð staðfestir orð Wellinks Davíð Oddsson fyrrverandi seðlabankastjóri staðfestir við Morgunblaðið, þar sem hann heldur nú um ritstjórnartauma, að hann hafi varað Nout Wellink þáverandi kollega sinn í Hollandi við ástandi íslenska bankakerfisins. Þeir Davíð og Wellink hittust á fundi í Basel í Sviss í september 2008 að frumkvæði Hollendingsins og var um trúnaðarfund að ræða. 5.2.2010 07:55
Skrökva komst í oddaaðstöðu Kosningar til Stúdentaráðs í Háskóla Íslands fóru fram í gær og í fyrradag og liggja úrslit fyrir. Vaka hefur haft meirihluta í eitt ár en nýtt framboð, Skrökva, kom manni að í þetta skiptið og er í oddaaðstöðu. 5.2.2010 07:06
Leiguverð lækkað um þrettán til 32 prósent Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur að jafnaði lækkað um 13 til 32 prósent síðan á vordögum 2008. Þetta er niðurstaða nýrrar verðkönnunar Neytendasamtakanna, sem er sú þriðja sem samtökin ráðast í á tæpum tveimur árum. 5.2.2010 05:00
Margt annað þarf að klára fyrst Áður en gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið þarf að huga að þrennu, að mati varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur: 5.2.2010 04:00
Skilar ekki fjárhagsupplýsingum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, nýr fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í þingnefnd sem fjalla á um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hefur ekki sent Ríkisendurskoðun upplýsingar um kostnað við prófkjör sitt fyrir kosningarnar 2007. 5.2.2010 03:30
Heilsuverndarstöðin verði Icelandair-hótel Heilsuverndarstöðin á Barónsstíg verður orðin að hóteli fyrir vorið fallist skipulagsyfirvöld í Reykjavík á áform eiganda byggingarinnar. 5.2.2010 03:15
Eykt vill ekki Höfðatorg við Katrínartún „Ég hefði kosið að nafn Höfðatúns yrði óbreytt,“ segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Höfðatorgs. 5.2.2010 03:00
Félagsfærni einhverfra unglinga bætt Námskeið fyrir einhverfa unglinga þar sem félagsfærni þeirra verður meðal annars efld verður haldið næsta sumar. 5.2.2010 03:00