Innlent

Vopnað rán í Sunnubúðinni

Vopnað rán var framið í Sunnubúðinni í Hlíðunum um sjö leytið í kvöld. Maður ógnaði starfsmanni með hníf og komst burtu með nokkra fjármuni úr peningakassa.

Lögreglan leitar nú mannsins en eftirlitsmyndavélar eru við búðina og því er vonast til að unnt verði að finna hann fljótt.

Fyrir rúmum tveimur árum var einnig reynt að ræna búðina. Þá réðust þrír menn með exi að starfsmanni og höfðu með sér fjármuni og tóbak.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×