Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skilanefndin hótaði Bjarna Ármanns Bjarni Ármannsson endurgreiddi rúmar sex hundruð milljónir til skilanefndar Glitnis eftir að nefndin hótaði að leita réttar síns gagnvart Bjarna fyrir dómi. Hæstaréttardómur í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn fyrrverandi stjórn Glitnis gaf skilanefndinni vopn sem hún notaði gegn Bjarna. 11.12.2009 18:29
Kröfufundur á morgun Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á morgun klukkan 15 á Austurvelli. Helstu kröfur fundarins eru leiðrétting höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar, að veð takmarkist við veðandlag og að skuldir fyrnist á 5 árum. 11.12.2009 20:01
Opið í Skaftafelli í fyrsta sinn að vetrarlagi Upplýsingamiðstöðin í Skaftafelli er nú í fyrsta sinn opin yfir vetrarmánuði enda segir þjóðgarðsvörður íslenska náttúru einnig draga ferðamenn að um háveturinn. Heitt vatn, sem nýlega fannst á staðnum, býður upp á nýja möguleika. 11.12.2009 19:16
Meira tjón en hlýst af Icesave Ríkisendurskoðandi segir að meira tjón hljótist af tæknilegu gjaldþroti Seðlabankans en Icesave, verði heimtur Landsbankans eins og spáð er. Að minnsta kosti hundrað sjötíu og fimm milljarðar króna munu lenda á íslensku þjóðinni vegna ástarbréfa Seðlabankans. 11.12.2009 19:03
Veikir ekki stjórnarsamstarfið Fjármálaráðherra segir það ekki veikja stjórnarsamstarfið að tveir þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn Icesave frumvarpinu. Afstaða þeirra hafi þó valdið honum vonbrigðum. Hann reiknar með að málið muni að lokum njóta stuðnings meirihluta þingmanna. 11.12.2009 18:56
Sendinefnd AGS kynnir árangur viðræðna Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur dvalið hér á landi frá byrjun mánaðarins og beint athygli sinni að endurreisn fjármálakerfisins og rætt við ráðherra og fleiri um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og sjóðsins. Á mánudaginn fer fram blaðamannafundur í Seðlabankanum þar sem Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndarinnar, og Franek Rozwadowski, sendifulltrúi sjóðsins á Íslandi, kynna vinnu sendinefndarinnar og árangur viðræðna. 11.12.2009 17:33
Catalina í vikulangt gæsluvarðhald Miðbaugsmaddaman, Catalina Ncogo, hefur verið úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald en hún hefur þegar sætt varðhaldi í tvær vikur. Kona sem var einnig handtekinn í tengslum við málið hefur verið sleppt. 11.12.2009 16:46
Skotar unnu í samkeppni um Gömlu höfnina Arkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni sem Faxaflóahafnir sf. efndu til vegna skipulags Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við athöfn í Víkinni sjóminjasafni nú síðdegis um leið og sigurlaunin voru afhent, 7,5 milljónir króna. Allt í allt veittu Faxaflóahafnir 14 milljónir króna í verðlaun í samkeppninni. 11.12.2009 16:30
Ók á brúarstólpa Betur fór en á horfðist þegar fólksbíl var ekið á brúarstólpa á Reykjanesbraut á fjórða tímanum. Brúin sem ekið var á er á milli Breiðholts og Smiðjuhverfis í Kópavogi. 11.12.2009 16:05
Tónlistarhúsið heitir Harpa Tónlistar og ráðstefnuhúsið við höfnina hefur fengið nafnið Harpa. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í dag. Efnt var til samkeppni um nafn á húsið í febrúar í fyrra og létu viðbrögð ekki á sér standa og bárust fjölmargar tillögur. 11.12.2009 15:48
Vopnaþjófur dæmdur Maður um tvítugt var dæmdur fyrir að stela tvívegis haglabyssum í Öxarfirði á síðasta ári og vopnalagabrot. Annarsvegar fór hann inn um ólæstar dyr íbúðarhússins að Katastöðum og tók þaðan úr geymslu í forstofuherbergi haglabyssu af gerðinni Stevens. 11.12.2009 15:33
Dæmdur fyrir að ofsækja barnsmóður sína Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir að ofsækja barnsmóður sína og mann sem var með henni. Meðal annars hellti hann gosi inn um glugga hjá henni, á tölvu sem eyðilagðist í kjölfarið. 11.12.2009 15:19
Flugfreyjur samþykkja verkfallsheimild Flugfreyjur í Flugfreyjufélagi Íslands samþykktu í atkvæðagreiðslu í gær að veita stjórn félagsins heimild til verkallsboðunar. Gert er fyrir að verkfallið geti hafist 2. janúar næstkomandi náist ekki samningar við Icelandair en að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, formanns Flugfreyjufélagsins, snýst kjaradeila flugfreyja um forgangsréttarákvæði í leiguflugi erlendis og starfsaldursákvæði. 11.12.2009 14:57
Ólína spyr um skuldameðferð sjávarútvegsfyrirtækja Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram skriflega fyrirspurn til efnahags- og viðskiptaráðherra um skuldameðferð sjávarútvegsfyrirtækja í bönkum. 11.12.2009 14:32
Vilja lengra gæsluvarðhald yfir Catalinu - vitorðsmanni sleppt Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Catalinu Ncogo, sem er grunuð um að hafa haft milligöngu um vændi og mansal. Kona sem var handtekin með henni, og er grunuð um sömu brot, hefur verið sleppt. 11.12.2009 14:04
Í sjokki eftir brotsjó - myndir „Við erum svona að jafna okkur. Þetta var auðvitað sjokk,“ segir Unnsteinn Líndal Jensson, skipstjóri línubátsins Sighvats GK 57, en brotsjór lenti á bátnum með þeim afleiðingum að sjór flæddi inn og tveir sjómenn slösuðust. Sauma þurfti sex spor í augabrún annars þeirra. 11.12.2009 12:31
Kirkjuklukkum hringt 350 sinnum vegna umhverfisógnar Í tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn verður kirkjuklukkum um allan heim hringt 350 sinnum, sunnudaginn 13. desember klukkan þrjú, „til að minna á þá umhverfisvá sem steðjar að jarðarbúum vegna hlýnunar andrúmsloftsins," að því er fram kemur í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni. Hér á landi verður kirkjuklukkum hringt víða um land. 11.12.2009 11:20
Dómsmál: Bankastjóri kom í veg fyrir að fjármálastjóri tæki út arð Fyrrum fjármálastjóri Kaupþings, Guðný Arna Sveinsdóttir, hefur höfðað einkamál á hendur nýja Kaupþingi/Arion banki, vegna 25 milljón króna sem hún segist eiga á reikningi í bankanum en fær ekki að taka út. Um er að ræða arð af hlutabréfum. 11.12.2009 11:16
Meira bóluefni berst í næstu viku Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt í byrjun næstu viku og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju við bólusetningar en efnið kláraðist á dögunum. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir að bólusetning hefjist á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista. Þrír liggja nú á spítala vegna veikinnar og er einn þeirra á gjörgæslu. 11.12.2009 10:39
Samstarfskonu Catalinu hugsanlega sleppt Gæsluvarðhald rennur út í dag yfir Catalinu Ncogo og annarri konu sem eru grunaðar um mansal og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær voru handteknar fyrir tveimur vikum síðan og voru strax úrskurðaðar í varðhald, aðeins tveimur dögum eftir að Catalina hafði verið dæmd í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa haft milligöngu um vændi og fíkniefnabrot. 11.12.2009 10:16
Hús Steingríms Wernerssonar atað málningu Rauðri málningu var skvett á hús Steingríms Wernerssonar í nótt og var meðfylgjandi mynd send fréttastofunni. 11.12.2009 08:38
Sluppu ómeidd þegar eldur kviknaði Kona og ungt barn hennar sluppu ómeidd þegar eldur kom upp í íbúð þeirra á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi við Egilsgötu í Borgarnesi í gærkvöldi. 11.12.2009 07:19
Brotist inn í tvo skóla Brotist var inn í Háteigsskóla í Reykjavík um klukkan fimm í morgun, en lögreglumenn gómuðu þjófinn utandyra með tvo skjái, sem hann hafði stolið þar. 11.12.2009 07:17
Óskar eftir fundi þingnefnda vegna Mjólku Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir sameiginlegum fundi viðskiptanefndar og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar vegna fyrirhugaðs samruna Mjólku og mjólkurbús Kaupfélags Skagfirðinga. 11.12.2009 07:12
Lögregla stöðvaði kannabisrækt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í fyrradag ræktun á 210 kannabisplöntum í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði og lagði jafnframt hald á tæplega tvö og hálft kíló af marijúana. 11.12.2009 07:07
Fyrrverandi hæstaréttardómarar veita ekki álit á Icesave og stjórnarskrá Ekki kemur til þess að hæstaréttardómararnir fyrrverandi, Guðrún Erlendsdóttir og Pétur Kr. Hafstein, veiti Alþingi lögfræðiálit um hvort Icesave-frumvarpið standist ákvæði stjórnarskrár. 11.12.2009 06:15
Þrjár stúlkur játuðu árás í Heiðmörk Þrjár sautján ára stúlkur játuðu fyrir dómi í fyrradag að hafa ráðist á fjórðu stúlkuna í Heiðmörk í apríl á þessu ári. Vegna skýlausra játninga stúlknanna var málið í kjölfarið dómtekið og má búast við dómi á næstu vikum. 11.12.2009 06:00
Pörunin stangast á við lög um þingsköp Útpörun Sivjar Friðleifsdóttur Framsóknarflokki í atkvæðagreiðslunni um Icesave-málið á Alþingi á þriðjudag hefur vakið athygli. Var útpörunin viðhöfð þar sem Helgi Hjörvar Samfylkingunni, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs, var ytra í embættiserindum. 11.12.2009 05:30
Adakris er orðinn stærsti verktaki Reykjavíkurborgar Litháíska verktakafyrirtækið Adakris hefur fengið 385 milljónir greiddar frá Reykjavíkurborg á árinu, en Malbikunarstöðin Höfði, opinbert fyrirtæki, hefur fengið næst mest, 263 milljónir. 11.12.2009 05:15
Segir sjóðinn vera arf frá gömlum tíma „Ég sé engin sérstök rök fyrir því að halda þessum sjóði sérgreindum frá Atvinnuleysistryggingasjóði. Það er eðlilegt að við séum með eitt og sama kerfið fyrir alla landsmenn,“ segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga. 11.12.2009 05:00
Fiskvinnslur í hættu ef ákvörðun stendur „Á þetta útspil ráðherrans lítum við innan samtakanna mjög alvarlegum augum. Það stefnir í að fjölmargir missi vinnuna vegna þess að svo til ekkert hráefni berst inn á fiskmarkaðina og leigumarkaðurinn er frosinn,“ segir Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda. 11.12.2009 05:00
Leikskólastjórar múlbundnir af borginni Leikskólakennurum í Reykjavík hefur verið meinað að áframsenda á stjórnir foreldrafélaga fundarboð frá hagsmunasamtökum foreldra leikskólabarna. Þeir mega heldur ekki hengja upp veggspjöld frá samtökunum þar sem slíkir fundir eru auglýstir, né tala á neikvæðum nótum um fyrirhugaðan niðurskurð hjá leikskólum borgarinnar. 11.12.2009 04:45
Samfylkingin ein skilar á réttum tíma Hátt í 180 tilkynningar frá frambjóðendum og flokkum höfðu borist Ríkisendurskoðun að loknum skrifstofutíma í gær, þegar frestur stjórnmálamanna og -flokka til að skila margvíslegum upplýsingum um fjármál sín síðustu árin rann út. 11.12.2009 04:45
Nota Netið helst til leikja Nær 80 prósent barna á aldrinum níu til sextán ára sögðust helst vera í leikjum þegar þau eru á Netinu að því er fram kemur í nýrri könnun. Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga (SAFT), stóð fyrir könnuninni sem gerð var síðastliðið vor. Sambærileg könnun var gerð fyrir þremur árum og sögðust þá ríflega 80 prósent barna helst vera í leikjum þegar þau væru á Netinu. Tæp 70 prósent þátttakenda í könnuninni sögðu foreldra sína þekkja mikið eða nokkuð mikið til þeirra leikja sem þau spila á Netinu. 11.12.2009 04:30
Kennt á níu tungumálum HB Grandi stendur þessa dagana fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk sitt í fiskvinnsluverum fyrirtækisins í Reykjavík og á Akranesi. Á námskeiðunum er farið yfir meðhöndlun á hráefni, hreinlæti, umgengni og þrif og þess freistað að bæta gæði afurða og fyrirtækisbrag. 11.12.2009 04:15
Nýr skóli vígður í Grindavík Hópsskóli, nýr grunnskóli í Grindavík, var vígður í dag við hátíðlega athöfn. Um 200 manns mættu á vígsluna, þar á meðal nemendurnir sem hefja störf eftir áramót og foreldrar þeirra. 10.12.2009 23:23
Ingvi Hrafn gerir tæplega 30 milljóna króna kröfu í Glitni Fyrirtæki sjónvarpsstjórans Ingva Hrafns Jónssonar gerir 28,5 milljón króna kröfu í þrotabú Glitnis. Þetta kemur fram í kröfuhafalista sem fréttastofa hefur undir höndum. „Lögmaður Langárveiða taldi rétt að senda inn kröfuna. Ég reikna ekki með því að Langárveiðar flái feitan gölt af því," segir Ingvi Hrafn. 10.12.2009 20:39
Brýnt að ræða öryggismál Reykjavíkurflugvallar „Þeirri spurningu þarf að svara hvort þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á starfsemi slökkviliðs á Reykjavíkurflugvelli ógni öryggi vallarins. Þar hefur verið sagt upp samningi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sem þýðir að óbreyttu uppsagnir 20 slökkviliðsmanna,“ segir í fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingar sem lögð var fram á fundi ráðsins í dag. 10.12.2009 22:20
Dregur úr inflúensunni Mikið hefur dregið úr inflúensunni. Í síðustu viku greindist samtals 101 einstaklingur með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar. Tilfellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Frá 29. júní til 6. desember höfðu greinst 9733 einstaklingar með inflúensulík einkenni, þar af voru 4453 karlar og 5280 konur. Þetta kemur fram á vef landlæknisembættisins. 10.12.2009 21:18
Framboð Sóleyjar ekki vantraustsyfirlýsing Þorleifur Gunnlaugsson, oddviti VG í Reykjavík, segir að yfirlýsing Sóleyjar Tómsdóttur borgarfulltrúa þar sem hún gefur kost á sér í fyrsta sæti í forvali flokksins vegna komandi borgarstjórnarkosningum sé ekki vantraustsyfirlýsing. Hann hefur áhuga á því að starfa áfram í forystusveit VG. 10.12.2009 21:05
Gylfi: Einokun á mjólkurmarkaði skelfileg Viðskipta- og efnahagsráðherra segir skelfilegt að einokun ríki nú á mjólkurmarkaði. Búvörusamningur gengur framar samkeppnislögum og Samkeppniseftirlitið getur ekki komið í veg fyrir samruna Mjólku, sem hefur verið sjálfstæður framleiðandi, og Kaupfélags Skagfirðinga. 10.12.2009 19:28
Aðstandendurnir ætla sjálfir að rannsaka dauðsfallið Ríkissaksóknari hefur lokið athugun á erindi aðstandenda tveggja manna sem fundust látnir í Daníelsslipp við Mýrargötu í Reykjavík í mars árið 1985. Aðstandendurnir mannanna segja niðurstöðuna yfirklór og ætla að hefja sína eigin rannsókn. 10.12.2009 19:45
Þingnefndir ræði samruna á mjólkurmarkaði Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir sameiginlegum fundi viðskiptanefndar og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar vegna samruna Mjólku og Kaupfélags Skagfirðinga og athugasemda Samkeppniseftirlitsins vegna samrunans. Þar segir að minni samkeppni þýði hærra verð fyrir neytendur og lægri greiðslur til bænda. Eygló segir brýnt að þingnefndirnar fari yfir málið. 10.12.2009 19:42
Leikskólastjórum boðið í kokteil - aðrir fá ekki jólagjafir Á meðan jólagjafir til starfsmanna leikskóla Reykjavíkurborgar eru lagðar niður og leikskólasvið þarf að skera niður um fjögur prósent, býður sviðið leikskólastjórum upp á léttvín og meðlæti á besta útsýnisstað. 10.12.2009 18:54
Marijúana og kannabisplöntur fundust við húsleit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 2,4 kíló af marijúana og 210 kannabisplöntur. Um var að ræða svokallaða vatnsræktun en plönturnar voru flestar mjög stórar og í fullum blóma, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. 10.12.2009 18:50