Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fótboltakappi vill verða formaður Pétur Georg Markan, knattspyrnumaður úr Val og varaþingmaður Samfylkingarinnar, gefur kost á sér til formennsku í Hallveigu, ungum jafnaðarmönnum í Reykjavík. Pétur vakti athygli í sumar fyrir að skora mark þegar átta sekúndur voru liðnar af leik Vals gegn ÍBV. 7.9.2009 11:14
Tvö þúsund manns vilja reisa minnisvarða um mótmælanda Íslands Rúmlega 2000 manns vilja reisa minnisvarða um Helga Hóseasson sem lést á elliheimilinu Grund í gærmorgun, 89 ára að aldri. Helgi hefur oft verið nefndur mótmælandi Íslands. Einna þekktastur var Helgi fyrir kröftug mótmæli sín gegn ríki og kirkju en hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn. 7.9.2009 10:48
Lögreglan leitar skemmdarvarga á torfæruhjólum Lögreglan á Suðurnesjum leitar að tveimur aðilum sem voru á torfæruhjólum, eða svokölluðum krossurum, í Hamradal á Djúpavatnsleið um klukkan þrjú í gær. 7.9.2009 10:19
Þýðir ekkert fyrir Steingrím að skæla Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, segir að Vinstri græn séu jafn ábyrg fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu og Samfylkingin. Ekki þýði fyrir Steingrím J. Sigfússon, formann VG, að skæla yfir örlögum sínum. 7.9.2009 09:55
Mældist á 160 kílómetra hraða Tvítugur ökumaður var stöðvaður eftir að hafa mælst á of miklum hraða í grennd við Þorlákshöfn í gær. Hann sagðist ekki hafa tekið eftir stöðvunarmerkjum lögreglu og hélt áfram norður Þrengslaveginn og nam ekki staðar fyrr en skammt var ófarið að Suðurlandsvegi. 7.9.2009 07:14
Eldur í bílskúr í Grindavík Eldur kviknaði í bílskúr í Grindavík laust fyrir miðnætti og kölluðu húsráðendur á slökkvilið. Þeim hafði hins vegar tekist að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom og þurfti það aðeins að reykræsta skúrinn. 7.9.2009 07:08
Stórtækir sígarettuþjófar ófundnir Lögregla leitar enn þjófs eða þjófa sem brutust inn í áfengisverslunina á Selfossi í fyrrinótt og stálu þaðan hundrað kartonum af sígarettum. Þeir virðast hins vegar ekki hafa snert við áfenginu, sem þar er innandyra. 7.9.2009 07:03
Stiglitz fundar með ráðherrum í dag Bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz mun hitta nokkra ráðherra úr ríkisstjórn Íslands seinni part dags í dag til að ræða um efnahagsástandið. 7.9.2009 06:30
Ábendingar um svik færri en áður „Ábendingunum hefur aðeins fækkað frá því sem var þegar átakið var fyrst kynnt að ráði. Þá fengum við tæplega hundrað ábendingar, enda var auglýsingaherferð sett af stað,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Milli sextíu og sjötíu ábendingar um atvinnuleysisbótasvik bárust stofnuninni í ágúst. Síðan í maí hefur fólki gefist tækifæri til að leggja inn nafnlausar ábendingar til Vinnumálastofnunar og Ríkisskattstjóra um svik á vinnumarkaði. 7.9.2009 06:00
Leigumarkaður í jafnvægi og húsaleiga fer hækkandi „Verðið hefur staðið í stað og það er heldur að maður heyri það hjá leigjendum að verðið sé að fara upp aftur. En ég get þó ekki sagt að ég sjái það marktækt á tölum,“ segir Hildur Ketilsdóttir hjá Leigulistanum. Hildur segir það sína tilfinningu að meira jafnvægi sé á leigumarkaði en til dæmis var á vormánuðum. „Það var mjög mikið framboð í vor, við vorum með allt að þúsund íbúðir á skrá en höfum undanfarin ár verið með 200 íbúðir á skrá að jafnaði.“ 7.9.2009 05:30
Sameing háskólanna rædd Menntamálaráðherra fundar í dag með stjórnendum háskólanna um sameiningu ákveðinnar starfsemi skólanna. Er þar sérstaklega horft til stoðþjónustunnar, að innritun verði sameiginleg. 7.9.2009 05:30
Telur samning um HS gegn anda laga Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur sent bæjarstjóra og bæjarstjórn Reykjanesbæjar bréf þar sem hún lýsir þeirri skoðun sinni að samningur bæjarfélagsins við HS orku, um afnot af orkuauðlindum í eigu bæjarins, gangi lengra en gert er ráð fyrir í lögum um afnotarétt á jarðhita og vatnsréttindum. Ráðherra telur að leigutíminn, 65 ár, sé of langur. 7.9.2009 05:00
Barnahjálpin í Keníu í miklum kröggum Lágt gengi íslensku krónunnar hefur haft afar slæm áhrif á hjálparstarf ABC barnahjálpar í Keníu. Að sögn Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur, formanns samtakanna, er nauðsynlegt að fá aukið fjármagn ef samtökin eiga að geta sinnt áfram öllum þeim börnum sem nú dvelja á barnaheimilinu í Keníu, en samtökin styðja um sex hundruð börn og þar af eru eitt hundrað og sextíu börn í heimavist. 7.9.2009 05:00
Segir kæru FME aðför gegn skynsemi Fyrsta sakamálið sem sérstakur saksóknari, Ólafur Hauksson, tók til rannsóknar, var meint brot blaðamannsins Kristins Hrafnssonar á bankaleynd. Kristinn birti upplýsingar um lánveitingar Kaupþings til Róberts Tchenguiz og forsvarsmenn Fjármálaeftirlitsins (FME) telja að með því hafi hann rofið bankaleynd. 7.9.2009 04:30
Óvænt vitneskja í máli Bretanna Mál skilanefndar Kaupþings gegn breska fjármálaráðuneytinu var flutt munnlega fyrir breskum áfrýjunardómstól hinn 1. júlí. 7.9.2009 04:00
Skoða stofnun orkusamlaga Til skoðunar er í iðnaðarráðuneytinu að stofna sérstök félög um orkuframkvæmdir og fá lífeyrissjóði og erlenda fjárfesta að borðinu. Iðnaðarráðherra segir að mjög mikilvægt sé að hefja framkvæmdir til að geta selt orku, vöntun sé á henni í dag. 7.9.2009 03:45
Átján ára tekinn á 180 „Hann er mjög heppinn vegna þess að hann var stöðvaður áður en hann olli sjálfum sér og öðrum skaða,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. 7.9.2009 03:00
Loftgæði bætt í höfuðborginni Stefnt er að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík um 35 prósent til ársins 2020 og um 73 prósent til ársins 2050, samkvæmt loftslags- og loftgæðastefnu Reykjavíkurborgar. 7.9.2009 03:00
Sóknarmarkskerfið hefur reynst illa Sóknarmarkskerfið sem notað er við stjórnun fiskveiða í Færeyjum hefur ekki skilað þeim árangri sem til var ætlast. Þetta kom fram í erindi Hjalta í Jákupsstovu frá Havstofunni á ráðstefnu um skilvirka fiskveiðistjórnun sem nýlokið er í Reykjavík. Havstofan er hafrannsóknastofnun Færeyja. 7.9.2009 02:30
Ólafur Ragnar á alþjóðlegri vísindaráðstefnu Í fyrramálið verður sett hér á landi alþjóðleg vísindaráðstefna um bindingu koltvísýrings í jarðlögum. Ráðstefnan fer fram á heimavelli fjölþjóðlega CarbFix verkefnisins, í Hellisheiðarvirkjun, og á meðal fyrirlesara eru nokkrir fremstu loftslagssérfræðinga heims. 6.9.2009 20:49
Stálu verðmætum ferðamanna Innbrotstilraun var gerð í austurhluta Reykjavíkurborgar í morgun en íbúar hússins vöknuðu við lætin og hröktu þjófanna á brot áður en þeir komust inn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 6.9.2009 20:00
Fullyrðir að bóluefnið gegn svínaflensunni sé öruggt Læknar í Bretlandi hafa verið beðnir um að fylgjast með mögulegum aukaverkunum af bóluefni gegn svínainflúensu, þá sérstaklega sjaldgæfri lömunarveiki. Bretar ætla að nota sama bóluefni og Íslendingar en sóttvarnarlæknir fullyrðir að efnið sé öruggt. 6.9.2009 18:30
Sagður fullur að halda framhjá Björgvin G. Sigurðsson þingmaður skrifar áhugaverða grein á bloggsíðu sína í dag þar sem hann veltir fyrir sér níð í skjóli nafnleysis. Björgvin veltir fyrir sér hver það sé sem beri ábyrgð á slíkum níð. Hann tekur nokkuð nýlegt dæmi sem snertir hans persónu en stofnaður var þráður á síðunni er.is fyrir skömmu þar sem því var logið blákalt upp á Björgvin að hann hefði verið drukkinn á skemmtistað og á kvennafari að auki. Semsagt; „fullur að halda framhjá,“ eins og hann orðar það. 6.9.2009 15:19
Ísraelsk flugvél nauðlenti á Íslandi Ísraelsk flugvél, á vegum El Al flugfélagsins, nauðlenti á Íslandi í síðustu viku. Vélin var á leið frá Ísrael til Bandaríkjanna, en farþegar dvöldu á Íslandi í tæpan sólarhring vegna bilunar í vélinni. 6.9.2009 13:09
Vilja jöfn kynjahlutföll á framboðslistum Á landsþingi Landssambands sjálfstæðiskvenna (LS) sem haldið var í Stykkishólmi um helgina var samþykkt ályktun þar sem LS fagnar framgögnu þingflokks Sjálfstæðisflokksins í Icesave-málinu og þeim fyrirvörum sem samþykktir voru við óviðunandi frumvarp ríkisstjórnarinnar frá því í sumar. 6.9.2009 12:46
Helgi Hóseasson látinn Helgi Hóseasson lést á elliheimilinu Grund í morgun, 89 ára að aldri. Helgi sem hefur verið nefndur mótmælandi Íslands fæddist í Höskuldstaðarseli í Breiðdal þann 21.nóvember árið 1919. Hann var næst elstur fjögurra systkina. 6.9.2009 11:55
Bústaðurinn ónýtur eftir bruna: „Mikið tilfinningalegt tjón„ Sumarbústaður sem fjölskylda Jónasar R. Jónssonar fjölmiðlamanns og fyrrum umboðsmanns íslenska hestsins er ónýtur eftir bruna um miðjan dag í gær. Jónas segir að kviknaði hafi í út frá rafmagnstöflu og þakkar fyrir að eldurinn hafi komið upp um miðjan dag, en ekki nótt. Hann segir bústaðinnm, sem er á Þingvöllum, hafa verið í eigu fjölskyldunnar í þrjátíu ár, en enginn slasaðist í brunanum. 6.9.2009 10:21
Helmingi minni velta á fasteignamarkaði Velta á fasteignamarkaði var helmingi minni í síðustu viku miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. Alls var 34 kaupsamningum vegna fasteignakaupa þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku en þeir voru 84 á sama tíma í fyrra. 6.9.2009 10:05
40 þúsund manns á Ljósanótt Talið er að um 40 þúsund manns hafa sótt Reykjanesbæ heim í gær en þar stendur nú yfir hátíðin Ljósanætur. Skemmtanahöld fóru vel fram að sögn lögreglu en þrír fengu að gista fangageymslur vegna ölvunar. 6.9.2009 09:48
Gengið til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini Árleg styrktarganga, Göngum saman, er nú hafin víða um land en gengið er á 7 stöðum á landinu, Reykjavík, Ísafirði, Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstöðum, Höfn og Vestmannaeyjum. 6.9.2009 09:44
Stálu sígarettum í innbroti á Selfossi Laust eftir miðnætti í gær var brotist inn í Vínbúðina á Selfossi að sögn lögreglu. Þjófarnir höfðu á brott með sér tvo kassa af sígarettum en þeir komust undan. Málið er í rannsókn. 6.9.2009 09:27
Stakk sambýlismann sinn eftir átök Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um átök í húsi í Grafarholti rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Karlmaður hafði þá gengið í skrokk á sambýliskonu sinni og slegið hana þannig að hún féll í gólfið, því næst sparkaði hann í hana þar sem hún lá í góflinu. Konan varð mjjög hrædd við atganginn, tók upp eldhúshníf og stakk manninn í höndina. Konan sagðist ekki hafa ætlað að stinga manninn en nokkuð blæddi úr sárinu. Þegar lögregla mætti á svæðið var maðurinn farinn út úr íbúðinni en fannst neðar í götunni. Hann var fluttur á slysadeild. Ekki er vitað um afdrif konunnar. 6.9.2009 09:07
Handtekinn eftir að hafa otað hnífi Átök brutust út í íbúð í Ásgarði á fjórða tímanum í dag en þar otaði maður hnífi að öðrum manni, að því loknu gekk hann út úr íbúðinni. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn hafi verið handtekinn um hálftíma síðar og vistaður í fangageymslu. 5.9.2009 20:00
Brotist inn í björgunarsveitarbíl í morgun var brotist inn í bíl sem er í eigu björgunarsveitarinnar Ársæls. Nokkrir félagar sveitarinnar voru ásamt fleiri björgunarsveitamönnum við æfingar í nýbyggingu við Reykjavíkurhöfn þegar rúða var brotin í bílnum og tölvuskjár ásamt bakpoka með ýmsum mikilvægum skjölum eins björgunarsveitamannana hrifsuð úr bílnum og hlaupið á brott. 5.9.2009 19:46
Menntamál ekki í forgrunni hjá þessari ríkisstjórn Í dag fór fram útskrift frá Háskólanum á Bifröst. Alls voru 115 nemendur brautskráðir, þar af 29 með meistaragráðu. 5.9.2009 23:30
Atvinnuleysistryggingasjóður tæmist að öllu óbreyttu Atvinnuleysistryggingasjóður þarf að óbreyttu að greiða allt að 26 milljarða króna í atvinnuleysisbætur á þessu ári. Sjóðurinn mun tæmast á næsta ári ef ekki kemur til aukið fjármagn frá ríkinu. 5.9.2009 19:15
Bauhaushúsið fer hvergi Bauhaus hefur engar fyrirætlanir um að flytja húsið sem reist var á Íslandi til annars lands. Talsmaður fyrirtækisins segir að ætlunin sé að bíða eftir að efnahagsástandið á Íslandi komist aftur í fyrra horf. 5.9.2009 19:00
Í sínu þriðja opinbera starfi á árinu Einar Karl Haraldsson, nýráðinn upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, er í sínu þriðja starfi á árinu hjá hinu opinbera. Auk þess að þiggja biðlaun, hefur hann gengið í tvö störf hjá hinu opinbera sem ekki voru auglýst. 5.9.2009 18:33
Eldur í bíl og nokkur innbrot í dag Nokkur erill hefur veirð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Í tilkynningu frá lögreglu segir meðal annars að tilkynnt hafi verið um eld í bifreið á Höfðabakka á móts við Árbæjarsafn í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn af viðbragðsaðilum en bifreiðin er mikið skemmd eftir eldinn. 5.9.2009 18:09
Skúrkar í bílaviðskiptum Undanfarin misseri hafa verið að birtast í blöðum auglýsingar þar sem boðist er til að borga með bílum gegn því að kaupandinn yfirtaki áhvílandi lán sem eru orðin eigandanum um megn. 5.9.2009 17:53
Fordæma samning OR um sölu á hlutnum í HS Orku Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og andstyggð á því að sveitarfélög geti tekið sér það gerræðisvald að koma auðlindum þjóðarinnar í hendur einkaaðila án nokkurar lýðræðislegrar umræðu eða þverpólítisks vilja í samfélaginu. Borgarahreyfingin fordæmir það harkalega, að þjóðin sé svipt nýtingarrétt sínum á eigin auðlind í 65 ár í allt að 130 ár sem er fordæmislaus árafjöldi sé miðað við vestræn lýðræðisríki á borð við Bandaríkin sem miðar við 10 ár, í skjóli skammtímahagsmuna og einbeitts vilja fulltrúa sveitarfélaganna til að nýta sér tækifæri kreppunar til einkavæðingar án umræðu og umboðs. 5.9.2009 17:20
Hneig niður fyrir utan Krónuna Ungur maður hneig niður fyrir utan Krónuna úti á Granda um hádegisbil í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hlaut maðurinn höfuðáverka eftir árás nokkurra aðila og var fluttur á slysadeild. 5.9.2009 15:21
Tjá sig ekki frekar um deilurnar við Landsbankann Styrktarsjóður hjartveikra barna harmar þá umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna daga í tengslum við þá fjármuni sem sjóðurinn tapaði vegna eignastýringar Landsbankans. Í ljósi umfjöllunnar síðustu daga og ekki síst í ljósi staðhæfinga Páls Benediktssonar upplýsingafulltrúa skilanefndar bankans hefur sjóðurinn sent frá yfirlýsingu. 5.9.2009 14:30
Ekkert að frétta af viðbrögðum vegna Icesave Formleg viðbrögð frá ríkisstjórnum Hollendinga og Breta vegna Icesavemálsins hafa ekki enn borist. Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu er búist við viðbrögðum í fyrsta lagi í upphafi vikunnar. 5.9.2009 13:52
Bílavarahlutir hafa hækkað um tæp 40% Kostnaður við rekstur ökutækja hefur hækkað um 14 prósent á síðustu tólf mánuðum samkvæmt rannsókn Rannsóknarseturs verslunarinnar. Bílavarahlutir hafa hækkað um tæp 40 prósent. Rúmlega 6.600 ferðavagnar eru enn óskoðaðir en eigendur þeirra verða rukkaðir um sérstakt vanrækslugjald frá og með 1. október. 5.9.2009 12:07