Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grunuð um ölvunarakstur: Var að hugsa um eitthvað annað Ökumaður á leið Miklubraut í austurátt missti stjórn á bíl sínum klukkan rúmlega eitt í dag og hafnaði uppi á stétt hinu megin við akrein úr mótstæðri átt eftir að hafa keyrt í gegnum grindverk. 22.8.2009 13:43
Aðgerðir öfgahóps gætu stuðlað að dreifingu erfðabreytts byggs „Það sem þeir gera þarna, og hvernig þeir skilja við reitinn, er nákvæmlega það sem okkur ber ekki að gera" segir Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni, um öfgahóp sem olli stórskemmdum á tilraunaræktun fyrirtækisins í Gunnarsholti. 22.8.2009 13:07
„Vítavert" vítavert í sölum Alþingis Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis, hvatti Tryggva Þór Herbertsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, tvisvar til að gæta hófs í orðavali fyrir að nota orðið vítavert í máli sínu í þingsal í gærkvöld. 22.8.2009 11:28
Tölvurefur ræðst á Náttúruverndarsamtök Íslands Tölvuþrjótur hefur ráðist á heimasíðu Náttúruverndarsamtaka Íslands. Þegar reynt er að fara inn á síðuna birtast skilaboðin HAcked by EJDER ;) - eins konar yfirlýsing hins sigri hrósandi tölvurefs. 22.8.2009 10:38
Vetur gerir vart við sig Frost gerði mjög víða til landsins í nótt, bæði láglendi og hálendi. Mesta frostið á láglendi var á Þingvöllum 3,0 gráður en það stóð yfir í á fimmta tíma, eða frá klukkan ellefu í gærkvöldi til klukkan að verða fjögur í nótt þegar hitinn skreið yfir frostmark að nýju. 22.8.2009 12:08
Snarpur skjálfti við Bárðarbungu Jarðskjálftafræðingur á bakvakt Veðurstofu var ræstur út í nótt þegar skjálftahrina hófst í Bárðarbungu í norðanverðum Vatnajökli. Hrinan hófst um hálftvöleytið í nótt með skjálfta upp á 3,4 stig á aðeins eins kílómetra dýpi og á eftir fylgdi á annan tug skjálfta, flestir milli tvö og þrjú stig. 22.8.2009 12:02
Steingrímur ræsti Reykjavíkurmaraþonið Reykjavíkurmaraþonið var ræst í Lækjargötu klukkan tuttugu mínútur í níu í morgun. Metþáttaka er í hlaupinu. Fleiri en ellefu þúsund þátttakendur höfðu skráð sig í hlaup í dag, þar af 670 manns í heilt maraþon. 22.8.2009 10:25
Fleiri gripnir dópaðir undir stýri en drukknir Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af þremur ökumönnum grunuðum um fíkniefnaakstur í Keflavík í gærkvöld og í nótt. Einn þeirra var með sex grömm af kannabisefnum á sér, sem talið er að hafi verið til einkaneyslu. 22.8.2009 10:06
Ísafjörður: Drukkin kona féll fimm metra í blómabeð Lögreglan á Ísafirði var kölluð til klukkan átta nú í morgun vegna konu sem virtist vera að fara sér að voða, en hún var komin upp á húsþak í miðbænum. Lögreglumenn mættu samstundis á vettvang og reyndu að ná sambandi við konuna sem var undir miklum áhrifum áfengis. 22.8.2009 09:51
Miðaldra kona stungin í miðbænum í morgun Lögregla rannsakar nú líkamsárás við Barónstíg og Njálsgötu, en tilkynning um árásina barst rúmlega tíu í morgun. Að sögn lögreglu er fórnarlambið eitthvað slasað, en hugsanlega er um hnífstungu að ræða. Konan var flutt á slysadeild, en var að sögn lögreglu með meðvitund. 22.8.2009 11:07
Birtíngur hótar að kæra Vilhjálm til siðanefndar Framkvæmdastjóri útgáfufélagsins Birtíngs, Elín G. Ragnarsdóttir, vill að lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson biðji blaðamenn sem starfa hjá útgáfunni afsökunar á þeim orðum sínum að þeir séu síbrotamenn á sviði ærumeiðinga og annarra brota á prentlögum. Elín hótar því í fréttatilkynningu að kæra ella Vilhjálm til siðanefndar lögmannafélagsins fyrir ýmis brot. 22.8.2009 09:30
Algjört hrun í sölu bíla til fyrirtækja Nýskráningar fyrirtækjabifreiða hafa dregist saman um 87 prósent það sem af er ári miðað við sama tímabil árið 2007. Aðeins hafa 1.704 bílar verið skráðir á fyrirtæki en á sama tíma árið 2007 voru þeir 12.715. Sjaldgæft er að fleiri nýskráningar séu hjá einstaklingum, en þær eru 2.104 það sem af er ári. Heildarsamdráttur nýskráninga er því um 81 prósent frá árinu 2007. 22.8.2009 09:00
Þóknun til lögmannsstofu alltof há Þóknun sem lögmannsstofan Lögmál innheimti af brunatryggingu hjá Tryggingamiðstöðinni (TM) er tæplega sjöfalt hærri en lög gera ráð fyrir. Þetta er mat Lögmanna-félagsins og talsmanns neytenda. 22.8.2009 09:00
Greiðslurnar tólffaldast á milli ára Rúmlega tólf og hálfur milljarður króna var greiddur út í atvinnuleysisbætur fyrstu sex mánuði ársins. Þetta þýðir að kostnaður við atvinnuleysisbætur var rúmlega 69 milljónir á dag. Sömu sex mánuði í fyrra var rúmur milljarður greiddur út. Greiðslurnar tólffölduðust því á milli ára. 22.8.2009 08:30
Íslenskt vatn á risa-skíðasvæði Icelandic Glacial verður aðalvatnið sem selt verður á stærsta skíðasvæði Kaliforníu, Squaw-dalnum. Stofnandi Icelandic Glacial er Jón Ólafsson athafnamaður en margar af helstu skíðastjörnum heims sækja svæðið árlega. Jón Ólafsson segir, í fréttatilkynningu frá Icelandic Glacial, að það sé frábært að staður, sem sé eins fallegur og Squaw-dalurinn, hafi valið vatnið. Scott Rutter, yfirmaður matar- og drykkjar hjá hjá Squaw-dalnum, segir í sömu tilkynningu að dalurinn séu stoltur af því að geta boðið gestum sínum upp á alvöru ískalt vatn eins og Icelandic Glacial. 22.8.2009 07:00
Mikill fjöldi fluttur frá Íslandi Rúmlega fimmtán hundruð fleiri fluttust frá landinu en til þess á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra höfðu 2.674 fleiri flutt til landsins en frá því. 22.8.2009 05:00
Allar breytingatillögur samþykktar Breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar vegna Icesave samningsins voru allar samþykktar á Alþingi fyrir stundu. Frávísunartillaga Framsóknarflokksins var felld. Flestar breytingatillögur ríkisstjórnarinnar voru samþykktar með 51 atkvæði gegn 9, líkt og búist hafði verið við. Frávísunartillaga Framsóknarmanna var felld með 48 atkvæðum gegn 10 en 2 greiddu ekki atkvæði. Þeir sem greiddu tillögunni atkvæði voru 9 þingmenn Framsóknarflokksins og Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í kjölfarið að hann drægi breytingartillögurnar sem hann lagði fram við frumvarpið, til baka til 3. umræðu. 21.8.2009 22:31
Bílbruna á Laufásvegi svipar til hommaofsókna - myndband Af öryggismyndum af dæma virðist sem brennuvargarnir sem kveiktu í Range Rover á Laufásvegi í fyrrinótt, hafi haft hraðar hendur. Ekki verður loku fyrir það skotið að hugmyndina hafi þeir fengið í myndbandi sem finna má á internetinu, þar sem kveikt er í samskonar bíl. 21.8.2009 20:05
Skrifstofustóll tókst á loft og festist í segulómunartæki Skrifstofustóll tókst á loft og festist inni í segulómunartæki hjá Domus Medica í gær. Sjúklingi var ekið í stólnum að tækinu, en þegar hann stóð upp af stólnum, og settist á bekk segulómunartækisins, þá greip öflugt segulsvið tækisins í stólinn sem flaug inn í opið, þar sem hann situr fastur. 21.8.2009 18:55
Innbrotum fækkað eftir að pólskt þjófagengi var handtekið Innbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur snarfækkað frá því lögreglan handtók pólskt þjófagengi sem grunað er um að hafa staðið á bak við hundruð innbrota undanfarna mánuði. Gæsluvarðhaldi yfir mönnunum var framlengt í dag. 21.8.2009 18:39
Fimmti maðurinn handtekinn í tengslum við Íbúðalánasjóðssvindlið Fimmti maðurinn hefur verið handtekinn í tengslum við tugmilljóna króna Íbúðalánasjóðssvindlið sem uppgötvaðist fyrr í sumar. Sex hundruð og fimmtíu þúsund krónur fundust við húsleit efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hjá honum og pappírsgögn sem talin eru bendla hann við málið. 21.8.2009 18:35
Lögreglan leitar þriggja Range Rover brennuvarga Lögreglan leitar þriggja manna í tengslum við bruna í Range Rover bifreið aðfararnótt síðastliðins þrijudags. Bíllinn var í eigu þeirra Stefáns Hilmarssonar, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs og Friðriku Hjördísar Geirsdóttur dagskrárgerðarkonu. 21.8.2009 17:18
Harður árekstur í Breiðholti Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka nú á fimmta tímanum. Á tímabili var talið að klippa þyrfti fólk út úr bílunum og var því tækjabíll frá slökkviliðinu sendur á staðinn ásamt tveimur sjúkrabifreiðum. Á þessari stundu er ekki vitað hversu margir hafi slasast en samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum eru meiðsl þeirra sem voru í bílunum ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. Einhverjar umferðartafir eru á Breiðholtsbraut vegna slyssins. 21.8.2009 16:58
Fótbrotnaði í vélhjólaslysi Talið er að bifhjólamaður hafi fótbrotnað þegar að hann féll af hjóli sínu á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrabrautar um hálfþrjúleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var ekki um árekstur að ræða heldur missti ökumaðurinn stjórn á hjólinu af öðrum ástæðum. 21.8.2009 16:09
Lagaprófessor: Fyrirvarar öðlast gildi þegar Bretar samþykkja „Ég skil þá að því leyti að ég myndi vilja hnykkja á þessu," segir Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, um álit InDefence hópsins varðandi Icesave fyrirvarana. InDefence lýsti í morgun áhyggjum af því að fyrirvararnir hefðu hugsanlega ekki gildi fyrir breskum dómstólum. 21.8.2009 15:39
Borgarfulltrúar fara í leikhús þeim að kostnaðarlausu Borgarfulltrúar fá aðgang að leiksýningum í Borgarleikhúsinu þeim að kostnaðarlausu. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, sem hefur gagnrýnt boð til borgarfulltrúa um laxveiði í Elliðaánum, segir að spurningin sé sú hvar mörkin liggi þegar kemur að slíkum boðum til kjörinna fulltrúa. „Hvað á að þiggja og hvað ekki?" spyr Þorleifur. 21.8.2009 14:45
Steingrímur ræsti jarðgerðarstöð Jarðgerðarstöð Moltu ehf. í Eyjafirði tók formlega til starfa í dag, en stöðinni er ætlað að taka á móti lífrænum úrgangi af Eyjafjarðarsvæðinu og úr Þingeyjarsýslu. 21.8.2009 15:34
Áttræður ruglaðist á bensíngjöfinni og bremsunni Áttræður maður missti stjórn á Subaru bifreið sinni á bílastæði Bónus á Akranesi í gærdag þegar hann steig á óvart bensíngjöfina í stað bremsunnar. 21.8.2009 14:40
Forsetadóttir ráðin til ASÍ Dalla Ólafsdóttur, dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands, hefur verið ráðin til lögfræðideildar Alþýðusambands Íslands. Hún hefur störf um miðjan september. Frá þessu er greint á vef ASÍ í dag. 21.8.2009 14:37
36 tonna framtíðartæknitrukkur á Íslandi 36 tonna tæknitrukkur frá tölvurisanum IBM verður hér á landi næstu daga. Í trukknum er að finna framtíðartækni fyrirtækisins. 21.8.2009 13:26
Skoða málshöfðun gegn stjórnendum Landsbankans Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að verið sé að skoða hvort hægt sé að höfða mál gegn fyrrverandi stjórnendum Landsbankans vegna Icesave málsins. 21.8.2009 13:00
Sigmundur Ernir: Næturgalsi í þingsalnum „Upp úr klukkan tíu og fram til hálftólf var kominn mikill galsi í þingsalinn og orðafar manna eftir því," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar. 21.8.2009 12:36
Veltir fyrir sér hvar börn séu í forgangsröðun meirihlutans Fulltrúi Vinstri grænna í Íþrótta og tómstundaráði Reykjavíkur, veltir því fyrir sér hvar börn séu í forgangsröð meirihlutans í Reykjavík. 21.8.2009 12:36
Fjórtán þúsund nemendur í grunnskólum í Reykjavík Rúmlega 14 þúsund nemendur taka til starfa í grunnskólum í Reykjavík þegar skólar verða settir á mánudaginn. 21.8.2009 12:31
InDefence: Óvíst hvort fyrirvarar hafi gildi InDefence hopurinn hefur eftir sérfræðingi í alþjóðarétti við Cambridge háskóla að hann telji óvíst að fyrirvararnir hafi nokkurt gildi samkvæmt breskum lgöum. Því telur InDefance hópurinn að afgreiðsla málsins með fyrirvörum, feli í sér mikla áhættu fyrir Íslendinga. 21.8.2009 12:28
Icesave gæti orðið að lögum á morgun Icesave ríkisábyrgðin gæti orðið að lögum frá Alþingi á morgun. Það skýrist þó ekki fyrr en að loknum fundi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, með formönnum þingflokka eftir hádegi en þar á að freista þess að ná samkomulagi um afgreiðslu þessa umdeilda máls. 21.8.2009 12:23
Rætt um sameiginleg kaup á hlut OR í HS orku Rætt er um að íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og Rarik, kaupi í sameiningu ríflega 20% hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS orku. 21.8.2009 12:19
Grunaður sæti geðrannsókn - morðvopnið var samlokugrill Lögreglan hefur óskað eftir því að Bjarki Freyr Sigurgeirsson, sem er grunaður um að hafa orðið manni að bana í Dalshrauni að kvöldi mánudagsins sæti geðrannsókn. 21.8.2009 11:56
Ráðherrar vilja að stofnanir niðurgreiði strætó Umhverfisráðherra og samgönguráðherra hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Ráðherrarnir leggja til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þeir kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó. 21.8.2009 11:30
Segir sérstaka nefnd hafa takmarkað opinbert eftirlit „Það var meira að segja sett upp þriggja manna nefnd sem átti að hafa stjórn á því að hinn svokallað eftirlitsiðnaður færi ekki úr hófi fram," segir Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, í samtali við Netvarpið. 21.8.2009 11:24
Varað við slæmu veðri við Vatnajökul Veður er nú afar slæmt norðan Vatnajökuls og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg þeim tilmælum til ferðafólks að vera ekki á ferð þar nema brýna nauðsyn beri til. 21.8.2009 11:14
Lokið við stækkun friðlands í Þjórsárverum snemma næsta árs Undirbúningur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum hefst nú þegar samkvæmt tillögu Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, sem var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að Svandís vilji ljúka stækkun friðlandsins eigi síðar en snemma árs 2010. 21.8.2009 11:05
Reisa NATO og öðrum heimsvaldasinnum níðstöng Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi hafa ákveðið að reisa Atlantshafsbandalaginu (NATO) níðstöng til að fyrirbyggja komu heimsvaldasinna til landsins vegna ásælni þeirra í olíulindir í Norðurhöfum. 21.8.2009 10:44
„Loga ekki öll ljós í kolli háttvirts þingmanns" „Það er nokkuð ljóst að það loga ekki öll ljós í kolli háttvirts þingmanns ef hann getur ekki munað tvær-þrjár spurningar sem beint er til hans hér úr ræðustól," sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í þingsal rétt fyrir hálftólf í gærkvöld. 21.8.2009 10:38
Bandaríski flugherinn æfði aðflug á Akureyri Bandaríski flugherinn framkvæmdi í gær aðflugsæfingar að Akureyrarflugvelli í tengslum við loftrýmisgæslu hér á landi, að fram kemur á vef Varnarmálastofnunar. 21.8.2009 10:24