Fleiri fréttir

Ólíklegt að ríkið komi að uppbyggingu á Valhallarreitnum

Ólíklegt er að afkoma ríkissjóðs á næstum árum leyfi byggingu nýs húss á Þingvöllum í stað þess sem brann í júlí, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hún hefur ekki hug á að breyta fyrirkomulagi yfirstjórnar þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um uppbyggingu á Þingvöllum.

Leiðsögumaður: Ólafur Ragnar stóð sig eins og hetja

„Við feðgar fórum með Ólaf Ragnar og frú ásamt fleirum í tveggja tíma reiðtúr,“ segir hestamaðurinn Magnús Ólafsson, sem leiddi hópinn ásamt syni sínum sem er tamningamaður, um fallegar sveitir Húnaþings.

Enn eitt kjötránið á höfuðborgarsvæðinu

Enn eitt kjötránið var framið á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þegar frystigámur var spenntur upp og miklu af lundum stolið. Nytjastuldur af þessu tagi færist jafnan í vöxt þegar þrengir að í þjóðfélaglinu.

Yngsti mannræningi á Íslandi ákærður í Barðastrandarmálinu

Axel Karl Gíslason, einn þeirra sem ákærður er fyrir innbrotið og frelsissviptinguna á Barðaströnd 25. maí síðastliðinn, á að baki tveggja ára fangelsisdóm fyrir að ræna starfsmanni Bónuss á Seltjarnarnesi árið 2005. Axel, sem var á skilorði á þeim tíma, neyddi starfsmanninn með hótunum ofan í skott á bíl og var svo ekið á brott. Bíllinn var stöðvaður við hraðbanka þar sem starfsmaðurinn var neyddur til að taka 30 þúsund krónur út úr hraðbanka, sem voru svo hirtar af honum.

Framsóknarmenn vilja nýjar viðræður

Framsóknarflokkurinn vill að frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave verði vísað frá Alþingi og að ríkisstjórnin hefji viðræður við yfirvöld í Bretlandi og Hollandi um nýtt samkomulag.

Á 150 í Hafnarfirði

Lögregla stöðvaði bifhjólamann á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í nótt, eftir að hann mældist á 150 kílómetra hraða. Hann var réttindalaus og hjólið ótryggt. Nokkru fyrr valt bíll á mótum Klapparstígs og Skúlagötu í Reykjavík, líklega vegna of mikils hraða í beygjunni. Þrír menn sáust hlaupa af vettvangi, en eigandi bílsins segir að þeir hafi tekið hann ófrjálsri hendi.

Icesave rætt á Alþingi

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, mælti fyrir meirihlutaáliti fjárlaganefndar um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta þegar þingfundur hófst klukkan níu í morgun. Gert er ráð fyrir að málið verði samþykkt á Alþingi um helgina.

Ólafur Ragnar axlarbrotnaði aftur

Ólafur Ragnar Grímsson forseti, féll af hestbaki í Húnaþingi í gærkvöldi og brotnaði á vinsti öxl. Sjúkrabíll frá Hvammstanga flutti hann á Slysadeild Landsspítalans í Reykjavík.

Féll ofan af þaki og brotnaði á báðum höndum

Unglingspiltur féll ofan af þaki Vallaskóla á Selfossi í gærkvöldi og brotnaði á báðum handleggjum. Hann var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi og síðan á Slysadeild Landsspítalans í Reykjavík, þar sem han gekkst undir aðgerð vegna skaða á úlnlið.

Jóhanna á lista yfir valdamestu konur heims

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera hefur í fysta sinn náð inn á árlegan lista sem tekinn er saman yfir 100 valdamestu konur heimsins. Jóhanna vermir 74. sæti listans.

Morðvopnið brotið í mél í barsmíðunum

Áhaldið sem notað var til að myrða mann í Dalshrauni í Hafnarfirði á mánudags­kvöld var mölbrotið eftir atganginn og svo illa farið að lögreglumenn áttu erfitt með að greina hvað það var. Samkvæmt heimildum blaðsins var um einhvers konar eldhústæki að ræða, líklega brauðrist eða grill, um eða yfir kíló að þyngd.

Kjartan svarar ekki áskorunum

Kjartan Gunnarsson, fyrrum bankaráðsmaður Landsbanka, vill í engu svara áskorun fjármálaráðherra um að hann biðjist afsökunar á þætti sínum í bankahruninu né ávirðingum Jóns Baldvins Hannibalssonar sem birtust í gær.

Lífeyrissjóðir taki þátt í kaupum á HS Orku

Ríki og sveitarfélög hafa mikla hagsmuni af því að arður af auðlindum á borð við jarðvarma á Suðurnesjum verði eftir í landinu, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann vill ekki að hlutur Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku verði seldur einka­aðilum.

Heldur sonum sínum fram að réttarhöldum

Borghildur Guðmundsdóttir, sem gert var að fara til Bandaríkjanna með syni sína tvo um helgina, heldur forræði yfir þeim fram til 15. október. Þá hefur verið ákveðið að réttað verði í forræðismáli hennar og fyrrum eiginmanns hennar, Richards Colby Busching.

Grolsch-léttölið ekki til úti í búð

Grolsch-léttöl fæst ekki í neinni af helstu matvöru­verslunum landsins í dag, þrátt fyrir að auglýsingar frá Öl­gerðinni um léttölið hafi sést undanfarið. Samkvæmt áfengislögum eru hvers konar auglýsingar á áfengi bannaðar.

Enn ein fléttan í bæjarstjórn Álftaness

Margrét Jónsdóttir, óháður bæjarfulltrúi á Álftanesi, og fulltrúar Á-listans, boðuðu til fundar á dögunum til að biðla til D-lista um samstarf. Ástæðan var að enn er óvissa um meirihlutasamstarf Á-lista þar sem ekki hefur tekist að ná samstöðu með Kristjáni Sveinbjörnssyni bæjarfulltrúa, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Líklegast að Tinna muni sitja áfram

Þær Tinna Gunnlaugsdóttir, sitjandi þjóðleikhússtjóri, og Þórhildur Þorleifsdóttir voru, af þjóðleikhúsráði, metnar hæfastar til að gegna starfi þjóðleikhússtjóra, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Munu útskrifa 39 á skólaárinu

Alls verða 39 lögreglumenn útskrifaðir úr Lögregluskóla ríkisins á því skólaári sem nú er að hefjast, segir Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskólans.

Líkja Rasmussen við kreppu

Samtök hernaðar­andstæðinga hafa sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er fyrirhugaðri komu Anders Fogh Rasmussen, aðalritara Atlantshafsbandalagsins, hingað til lands, en hann er væntanlegur í vikunni. Í ályktuninni segir að sjaldan sé ein báran stök, kreppa hafi dunið á þjóðinni, kvikusöfnun sé í helstu eldstöðvum landsins og nú sé von á Anders Fogh til landsins. Samtökin segja vandséð hvernig íslenskir ráðamenn geti frábeðið sér heimsókn ísraelsks ráðherra vegna árása Ísarelsmanna, en fundað síðan með „aðalritaranum vígfúsa“.- kóp

Skilar bæði arði og árangri

Hringsjá, náms- og starfsendurhæfing, er gríðarlega arðbær stofnun í rekstri, að sögn Ragnheiðar Lindu Skúla­dóttur, forstöðumanns Hringsjár. Ef nemandi, um þrítugt, sem annars væri á örorkubótum, kemur og endurhæfist á stofnuninni, fær fullt starf á meðallaunum til 67 ára og borgar sinn skatt, skilar hann um það bil jafn miklum peningum til samfélagsins og kostar að reka Hringsjá á ári.

Ákveða hvenær fólk er með vinum

„Ég skil ekki hvaða Stasi-vinnubrögð þetta eru,“ segir Jóhann Hlíðar Harðarson, einn skipuleggjenda bekkjarmóts 1963-árgangs Hólabrekkuskóla. Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að STEF krafði að­standendur mótsins um leyfisgjald til þess að flytja tónlist á samkomunni, sem haldin verður 5. september. Gjaldið getur numið um 23 þúsund krónum. Jóhann segist ósáttur við vinnubrögð STEFs.

Segja leiðréttingu skulda vísi að samfélagssátt

„Öll þessi samtök voru alveg sammála um það að fleiri og fleiri væru að koamst í þá stöðu að gefast upp. Geta fólks til að greiða af lánum er að bresta og viljinn líka," segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.

Ólafur Ragnar datt af hestbaki í Húnaþingi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, féll af hestbaki þar sem hann var í hestaferð í Húnaþingi í kvöld, frá þessu var fyrst greint á DV.is. Hann mun nú vera á sjúkrahúsi í Reykjavík.

Segist ekki skulda þjóðinni afsökunarbeiðni

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum bankastjóri Kaupþings, segist ekki skulda íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni vegna aðkomu sinnar að bankahruninu. Þess í stað skuldi hann hluthöfum, kröfuhöfum og starfsmönnum bankans afsökunarbeiðni. Þetta kom fram í viðtali sem Sigmar Guðmundsson tók við Hreiðar í Kastljósi kvöldsins.

Jeppi valt á Skúlagötu

Jeppi valt á móts við Björnbakarí á Skúlagötu á tólfta tímanum í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu virðist sem engin slys hafi orðið á fólki, ekki var óskað eftir sjúkraaðstoð á vettvangi.

EES samningurinn gæti verið í uppnámi vegna neyðarlaga

EES samningurinn gæti verið í uppnámi ef í ljós kemur að neyðarlögin stangast á við ákvæði samningsins, segir fyrrum yfirlögfræðingur EFTA. Þrjátíu og níu evrópskir bankar og fjármálastofnanir hafa sent inn formlega kvörtun til eftirlitsstofnunar EFTA vegna setningu neyðarlaganna.

Lést í umferðarslysi á Þingvallavegi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Þingvallavegi að kvöldi 17. ágúst síðastliðinn hét Ágúst Björn Hinriksson. Ágúst var fæddur 6. nóvember 1960 og var til heimilis að Norðurvangi 34 í Hafnarfirði.

Tólf lögreglumenn af Suðurnesjum segja upp

Tólf lögreglumenn úr óeirðarhópi lögreglunnar á Suðurnesjum hafa sagt sig úr hópnum til að sýna félögum sínum á höfuðborgarsvæðinu samstöðu. Þeir vilja með uppsögnum einnig mótmæla aðbúnaði og skerðingu á álagsgreiðslum. Óeirðarhópar lögreglumanna voru áberandi í janúar síðastliðnum þegar hvað mest var mótmælt við Alþingishúsið.

Kemur ekki til greina að greiða atkvæði með bónusgreiðslum

Formaður stjórnar lífeyrissjóðs verslunarmanna segir að lífeyrissjóðurinn muni aldrei greiða atkvæði með áætlun Straums um milljarða bónusgreiðslur til starfsmanna bankans, hún sé andsnúin hugmyndum sjóðsins. Ef áætlunin gengur eftir fær hver starfsmaður Straums 3,7 milljónir í bónusgreiðslu á mánuði næstu fimm árin.

Magma kemst í kringum íslensk lög

Kanadíska jarðhitafélagið Magma Energy kemst í kringum íslensk lög, sem takmarka fjárfestingar útlendinga í íslenskum orkufyrirtækjum, með sænsku skúffufélagi.

Fjórir karlmenn dæmdir fyrir kannabisræktun

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi fyrir helgi þrjá karlmenn í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa staðið að ræktun á kannabisplöntum í bílskúr á Skagaströnd. Fjórði karlmaðurinn var dæmdur til greiðslu 100 þúsund króna sektar en hann var dæmdur fyrir að hjálpa til við ræktunina. Lögreglan fann plönturnar, sem voru 147 talsins, við húsleit í desember síðastliðnum. Mennirnir játuðu allir brot sín.

Fundu sokkið herskip í Faxaflóanum

Landhelgisgæslan hefur fundið bandaríska skipið USCGC Alexander Hamilton á botni hafsins í Faxaflóa en það var olíublettur sem kom gæslumönnunum á sporið. Skipið hefur legið á botninum síðan árið 1942 þegar það varð fyrir árás þýska kafbátsins U-132.

Jarðskjálfti í Krýsuvík

Jarðskjálfti upp á 3,1 á Richter var´um 5 kílómetrum norðaustur af Krýsuvík um klukkan 18 mínútur í tvö í dag. Skjálftans varð vart víða á höfuðborgarsvæðinu.

Með kannabis í svaðilför

Lögreglan hafði afskipti af aðila vegna þess að hann reyndist vera með 27 grömm af kannabis á sér í vikunni. Maðurinn var að koma á slöngubát frá Vestmannaeyjum og lenti í háska við Bakkafjöru.

Goldfingermálið kært til Mannréttindadómstólsins

Mál blaðamannsins Bjarkar Eiðsdóttur hefur, með stuðningi Blaðamannafélags Íslands og Birtings útgáfufélags ehf. verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Í fréttatilkynningu frá Blaðamannafélagi Íslands er kærð niðurstaða Hæstaréttar í máli Ásgeirs Þórs Davíðssonar á veitingahúsinu Goldfinger gegn blaðamanni og ritstjóra Vikunnar.

Get ekki ímyndað mér að gengið verði að bónustillögum Straums

„Þetta er auðvitað mjög vel í lagt og algerlega úr takti við það sem samfélagið horfir uppá í dag," segir Stefán Einar Stefánsson viðskiptafræðingur um þá hugmynd stjórnenda Straums að starfsmenn bankans fái bónusgreiðslur í samræmi við endurheimtur á eignum bankans. Bónusgreiðslur sem gætu numið allt að 10 milljörðum króna á fimm árum eða 222 milljónum á hvern starfsmann bankans.

Breyttur kennslutími í grunnskólum borgarinnar

Töluverðar breytingar verða á skólatíma barna í öðrum til fjórða bekk í grunnskólum Reykjavíkur, sem verða settir eftir helgi. Í sumum tilvikum seinkar skólabyrjun um hátt í klukkustund, en víðast styttist dagurinn í hinn endann. Frístundaheimili eiga að taka við börnum fyrr en áður.

Sjá næstu 50 fréttir