Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rafmagnslaust í nágrenni Reykjavíkur Fyrir stundu varð bilun sem veldur rafmagnsleysi á Lögbergslínu, á Hellisheiði, í Bláfjöllum og á Miðdalslínu. Verið er að leita bilunarinnar og er búist við að rafmagnslaust geti orðið í um tvær klukkustundir. 19.8.2009 10:09
Ísland segir sig úr NASCO Ísland ætlar að segja sig úr NASCO, sem eru Samtök um verndun villtra laxa á Norður-Atlantshafi. 19.8.2009 09:55
Landsmönnum fækkar í fyrsta sinn í 120 ár Íbúum Íslands fækkaði um 109 á einu ári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þeir voru 319.246 þann 1. júlí síðastliðinn en voru 319.355 fyrir ári síðan. Fækkunin nemur 0,03%. Langt er síðan íbúum Íslands hefur fækkað milli ára. Það átti sér síðast stað árið 1889. 19.8.2009 09:08
Ölvaður veiðimaður vistaður í fangageymslu Lögreglan á Selfossi handtók í gærkvöldi ölvaðan mann, sem hafði ekið jeppa sínum út af Nesjavallavegi og sat þar fastur. 19.8.2009 08:14
Sóttu erlendan ferðamann í Hrafntinnusker Erlendur ferðamaður var við það að örmagnast vegna kulda og bleytu við Hrafntinnusker í gær og var óskað eftir aðstoð björgunarsveitarinnar á Hellu. Björgunarmenn sóttu ferðamanninn og fluttu hann fyrst í skála á svæðinu, þar sem komið var hlýju í hann. 19.8.2009 08:09
Nítján ökumenn teknir um helgina Nítján ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina, fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fikniefna. Langflestir, eða sautján voru teknir fyrir ölvunarakstur, samkvæmt samantekt lögreglunnar. 19.8.2009 08:02
Stjórnarformaður OR: Hefur ríkið áhuga á HS Orku? Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur hefur óskað eftir fundi með fjármálaráðherra vegna sölu á hlutabréfum í HS Orku. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér seint í gær segir að yfirlýst andstaða umhverfisráðherra og annara fulltrúa VG stangist á við afstöðu iðnaðarráðherra sem telji heppilegt að þessi sala fari fram. „Í því ljósi er mikilvægt fyrir Orkuveitu Reykjavíkur að vita hvort ríkið hafi raunverulegan áhuga á að eignast umræddan hlut eða ekki,“ segir Guðlaugur. 19.8.2009 06:15
Óttast að arður af orku renni úr landi Orkuveita Reykjavíkur (OR) ætti að grípa inn í einkavæðingarferli HS Orku og nýta forkaupsrétt sinn til að eignast meirihluta í félaginu, segir Þorleifur Gunnarsson, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn OR. Hann óttast að arður af jarðvarma á Suðurnesjum renni að mestu úr landi eftir einkavæðingu HS Orku. 19.8.2009 05:30
Ójöfnuður í norræna menntakerfinu Fjárhagsstaða foreldra, búseta og félagslegar aðstæður virðast hafa síaukin áhrif á árangur grunnskólabarna, segir í Northern Lights on PISA 2006, nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar. 19.8.2009 05:00
Ráðherra rólegur í skugga málshöfðana Frá því að neyðarlögin voru sett síðasta haust hefur legið fyrir að það myndi reyna á lögmæti ýmissa aðgerða sem farið var í fyrir dómstólum, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. 19.8.2009 04:30
Hundrað dagar í hallærinu Hundrað dagar voru í gær liðnir frá því að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna tók við völdum. Ólíklegt er að nokkur stjórn hér á landi hafi þurft að takast á við jafn krefjandi verkefni; endurreisn peningakerfis og uppbyggingu samfélags í efnahagslegu hallæri. Stjórnin setti sjálfri sér strax virkt aðhald með því að birta 100 daga verkefnaskrá. Ekki hefur tekist að ljúka öllum verkefnum á skránni. 19.8.2009 04:00
Erfið verkefni og miklu ólokið „Ríkisstjórnin hefur staðið í miklum ólgusjó og ef allrar sanngirni er gætt hefur hún staðið vaktina sæmilega miðað við allar aðstæður,“ segir Úlfar Hauksson, stjórnmálafræðingur við Háskólann í Reykjavík. Hann vísar í lista yfir þau verkefni sem ríkisstjórnin hefur unnið á 100 dögum og segir vel að verki staðið að hafa náð að uppfylla hann að mestu miðað við aðstæður. 19.8.2009 03:00
STEF-gjöld fyrir bekkjarmót Aðstandendur bekkjarmóts 1963-árgangs Hólabrekkuskóla þurfa að greiða leyfisgjald til STEF vegna tónlistarflutnings í veislunni. Skólamótið verður haldið 5. september næstkomandi og var aðstandendum sent bréf þar sem þeir voru minntir á leyfisgjald STEF, vegna auglýsingar sem birtist í Fréttablaðinu 12. ágúst. 19.8.2009 02:30
Bæjarstjóra langar í brauð Grindavík Bæjarstjórinn í Grindavík, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, hefur sótt um embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi. 19.8.2009 02:00
Anders Fogh heimsækir Ísland Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim á fimmtudag. Er þetta fyrsta heimsókn nýs framkvæmdastjóra NATO til aðildarríkis bandalagsins. 18.8.2009 21:43
Meintur morðingi í gæsluvarðhald til 1. september Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. september. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið manni að bana í Dalshrauni í Hafnafirði í gærkvöld. Gæsluvarðhaldið er á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 18.8.2009 17:37
Erum að komast á beinu brautina, segir Jóhanna Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á hundrað daga starfsafmæli ríkisstjórnarinnar í dag að endurreisn íslensks efnahagslífs yrði komin á beinu brautina í kringum næstu mánaðamót. 18.8.2009 19:10
Nýr verktaki á Lyngdalsheiði Vinna við gerð nýja vegarins um Lyngdalsheiði er hafin á ný eftir að Vegagerðin féllst á að nýr verktaki tæki yfir verksamning Klæðningar. 18.8.2009 19:06
Óvíst hvort viljayfirlýsing um Bakka verði framlengd Sex vikum áður en viljayfirlýsing milli stjórnvalda og Alcoa um álver við Húsavík rennur út ríkir fullkomin óvissa um hvort hún verði endurnýjuð, þrátt fyrir eindreginn vilja Alcoa. Efasemdir eru í ríkisstjórninni og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur mjög dvínandi líkur á Bakkaálveri. 18.8.2009 18:49
Stálust í sund og lentu í yfirheyrslum Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku við hin ýmsu mál. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er það nokkuð óvenjulegt miðað við tíma árs, þar sem mikið fækkar í bænum á þessum tíma þegar heimamenn taka sitt sumarfrí að lokinni Þjóðhátíð. Meðal þeirra mála sem lentu inni á borði lögreglu voru strákapör fjögurra drengja sem stálust í sund. 18.8.2009 17:56
Meintur morðingi í tveggja vikna gæsluvarðhald Lögreglan hefur krafist tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir manni sem er grunaður um að hafa orðið manni að bana í Dalshrauni í gærkvöldi. 18.8.2009 16:56
Geir Haarde: Erfiðustu dagar á starfsævi minni Vikurnar eftir fjármálahrunið á Íslandi voru rosalegar, sagði Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á BBC World Service. 18.8.2009 16:33
Vill frekar sértækar aðgerðir fyrir skuldara en almennar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, varaformaður félags- og tryggingamálanefndar, segir ekki von á frumvarpi úr nefndinni vegna skuldavanda heimilanna. Nefndin fundaði um málið í morgun og fékk til sín gestafjöld, þar á meðal fulltrúa Hagsmunasamtaka heimilanna, Íbúðalánasjóðs og stóru bankanna þriggja. 18.8.2009 16:32
Lömdu gísl með járnröri og hentu brennandi klósettpappír í hann Piltur sem tveir karlmenn og kona tóku í gíslingu á Akureyri í síðustu viku þurfti að þola pyntingar og að vera laminn með járnröri. Þá köstuðu þau logandi klósettpappír í hann og settu því aðra íbúa í fjölbýlishúsi sem þau voru stödd í í stórhættu. Rannsókn lögreglunnar hefur gengið vel. 18.8.2009 16:20
Fjármálafyrirtæki hafa þegar höfðað mál gegn íslenska ríkinu Erlend fjármálafyrirtæki hafa þegar höfðað mál gegn íslenska ríkinu og fyrirtækjum til að ná aftur fé sínu eftir bankahrunið. Þetta segja lögfræðingar hjá bresku lögfræðifyrirtæki sem nýlega lét kanna viðhorf erlendra kröfuhafa til Íslands eftir hrunið. Þeir segja marga kröfuhafa líta svo á að íslenska ríkið hafi sniðgengið þá í viðræðum um sátt. 18.8.2009 16:05
Sautján stútar stöðvaðir Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. 18.8.2009 16:05
Fertug undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för tveggja ökumanna í Reykjavík um helgina sem báðir voru undir áhrifum fíkniefna. 18.8.2009 16:02
Morðið á Dalshrauni: „Eins og að ganga inn í sláturhús“ „Hann bankaði hjá mér en ég var bara að horfa á sjónvarpið. Ég fór til dyra og sá hann þá alblóðugan," segir nágranni mannsins sem er grunaður um að hafa myrt jafnaldra sinn í gærkvöldi. Nágranninn vill ekki láta nafns síns getið en það var hann sem kom fyrstur að hinum látna og lét lögregluna vita. Hann segir aðkomuna hafa verið hryllilega. 18.8.2009 15:54
Yfirheyrslur hafnar vegna morðsins í Hafnarfirði Lögreglan er byrjuð að yfirheyra þrítugan mann, sem er í hennar haldi, grunaður um að hafa verið valdur að dauða jafnaldra síns við Dalshraun í Hafnarfirði í gærkvöld. 18.8.2009 15:35
Sprenging í vinsældum Hellisheiðarvirkjunar Hellisheiðarvirkjun nýtur sívaxandi vinsælda meðal ferðamanna, en alls eru skráðir gestir frá upphafi árs til júlíloka liðlega 61 þúsund talsins. Það er mikil fjölgun frá því í fyrra, en þangað komu 33.500 gestir allt árið 2008. 18.8.2009 15:15
Miðbaugs-maddaman ákærð fyrir fíkniefnasmygl Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Catalinu Mikue Ncogo fyrir innflutning á rúmlega 400 grömmum af kókaíni. 18.8.2009 15:09
Sigurður Grétar Sigurðsson nýr sóknarprestur Útskálaprestkalls Valnefnd í Útskálaprestakalli ákvað á fundi sínum mánudaginn 17. ágúst að leggja til að séra Sigurður Grétar Sigurðsson verði skipaður sóknarprestur í Útskálaprestakalli. Hann var annar karlumsækjenda um embættið, en af tíu umsækjendum voru alls átta konur. 18.8.2009 14:40
Um 1% ók of hratt um Hvalfjarðargöngin Einungis um 1% ökumanna óku of hratt um Hvalfjarðargöngin þegar hraðinn var mældur þar vikuna 4-10. ágúst. Vöktuð voru 22.610 ökutæki og óku 193 of hratt eða yfir svokölluðum afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sjö óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 104. 18.8.2009 14:17
Jeppahópur bjargaði Spánverjum úr Krossá „Ef bíllinn hefði farið tuttugu metrum lengra þá hefði hann oltið og óvíst hvort hægt hefði verið að bjarga fólkinu," segir Hilmar Viktorsson, leiðsögumaður hjá ferðaskrifstofunni Atlantik. 18.8.2009 14:14
Engin dæmi þess að rafmagn hafi orsakað eld í Range Rover „Ég veit nú ekki um dæmi þess," segir Sigurður Harðarson verkstæðisformaður hjá B&L aðspurður um það hvort hann þekkti til þess að kviknað hafi í Range Rover út frá rafmagnsbilun. 18.8.2009 13:55
Ríkisstjórnin vonar að atvinnuleysi fari ekki yfir 10 prósent Ríkisstjórnin vonast til þess að atvinnuleysi fari ekki yfir 10% á næsta ári en það muni þá ná hámarki sínu. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem forystumenn ríkisstjórnarinnar héldu í stjórnarráðinu nú laust fyrir hádegi. 18.8.2009 12:50
Hundrað dagar liðnir frá stjórnarmyndun - Flest málin í höfn Í dag eru hundrað dagar liðnir frá því að meirihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tók til starfa. Stærstu málin af 100 daga áætlun sem ríkisstjórnin lagði þá fram eru enn óleyst þó að flest málin séu komin í höfn. 18.8.2009 11:53
Morð á Dalshrauni: Barinn með búsáhaldi Maðurinn sem fannst látinn á Dalshrauni í Hafnarfirði seint í gærkvöldi hafði verið laminn með búsáhaldi samkvæmt sjónarvotti sem kom fyrstur á glæpavettvanginn. 18.8.2009 11:05
Óþægilegast að sjá tvo brennda barnabílstóla Stjörnukokkurinn Friðrika Hjördís Geirsdóttir varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að horfa upp á Range Rover-bifreið sína brenna til kaldra kola fyrir utan heimili hennar að Laufásvegi í nótt. Hún segir það mildi að enginn hafi slasast. 18.8.2009 10:14
Gæsluvarðhalds krafist í dag Líklegt er að farið verði fram á gæsluvarðhald seinni partinn í dag yfir manninum sem grunaður er um manndráp við Dalshraun í Hafnarfirði í gærkvöld. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að ekki sé byrjað að yfirheyra manninn en það verði líklega gert síðar í dag. 18.8.2009 10:09
Fjölþjóðlegar veiðar ganga vel Fjölþjóðlegar veiðar íslensku uppsjávarskipanna norðaustur af landinu ganga vel og eru sum skipin langt komin með síldarkvótann. Afli er á fast úr þremur fjölþjóðlegum stofnum. 18.8.2009 08:44
Range Rover brann á Laufásveginum í nótt Nýlegur Range Rover jeppi eyðilagðist í eldi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang um klukkan hálf þrjú, logaði glatt í bílnum, sem stóð fyrir utan íbúðarhús á Laufásvegi, en húsið var ekki í hættu. 18.8.2009 07:44
Sá grunaði hefur alloft komið við sögu lögreglu vegna ofbeldisbrota Maðurinn sem grunaður er um að hafa verið valdur að dauða annars manns í Hafnarfirði í gær er um þrítugt, eins og fórnarlambið, og hann hefur oft komið við sögu lögreglu vegna ofbeldisbrota. 18.8.2009 07:17
Banaslys við Þingvelli Banaslys varð á þjóðveginum rétt vestan við þjóðgarðinn á Þingvöllum um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi, þegar maður á bifhjóli missti stjórn á því með þeim afleiðingum að það hafnaði utan vegar. 18.8.2009 06:59
Manndráp í Hafnarfirði Um klukkan hálftólf í gærkvöldi barst tilkynning til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um látinn mann í leiguhúsnæði í Hafnarfirði. Í tilkynningunni var talað um manndráp að sögn lögreglu. 18.8.2009 06:14