Innlent

Nýr forstjóri Innheimtustofnun sveitafélaga ráðinn

Jón Ingvar Pálsson.
Jón Ingvar Pálsson.

Nýr forstjóri hefur verið ráðinn til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Jón Ingvar Pálsson lögfræðingur tók við starfinu 1. ágúst. Hilmar Björgvinsson fráfarandi forstjóri lét nýlega af störfum fyrir aldurs sakir samkvæmt tilkynningu frá innheimtustofnunni.

Jón Ingvar hefur starfað hjá Innheimtustofnun í níu ár, nú síðast sem yfirlögfræðingur stofnunarinnar. Jón Ingvar er lögfræðingur að mennt frá Háskóla íslands með mastersgráðu (LL.M.) frá Duke University í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Hann er kvæntur Eygló Jónsdóttur og eiga þau samtals fimm uppkomna syni

Alls sóttu 32 um stöðu forstjóra Innheimtustofnunar þegar hún var auglýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×