Morðvopnið brotið í mél í barsmíðunum 20. ágúst 2009 05:30 Það var í þessu húsi sem morðið var framið og Bjarki Freyr birtist alblóðugur hjá nágranna sínum.Fréttablaðið / gva
Áhaldið sem notað var til að myrða mann í Dalshrauni í Hafnarfirði á mánudagskvöld var mölbrotið eftir atganginn og svo illa farið að lögreglumenn áttu erfitt með að greina hvað það var. Samkvæmt heimildum blaðsins var um einhvers konar eldhústæki að ræða, líklega brauðrist eða grill, um eða yfir kíló að þyngd. Rúmlega þrítugur karlmaður, Bjarki Freyr Sigurgeirsson, sætir nú einangrunarvist á Litla-Hrauni grunaður um morðið og verður í gæsluvarðhaldi til 1. september hið minnsta. Hann kærði ekki úrskurðinn til Hæstaréttar. Hinn látni var kunningi Bjarka og í heimsókn í litlu leiguherbergi hans í húsinu að Dalshrauni. Svo virðist sem þeim hafi sinnast með þeim afleiðingum að Bjarki barði manninn ítrekað í höfuðið með eldhústækinu. Lítil ummerki um átök voru í herberginu, sem er litlu stærra en fangaklefi samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Árásin virðist einungis hafa átt sér stað í einu horni þess. Fórnarlambið marghöfuðkúpubrotnaði við árásina og var afar illa leikið á eftir. Er það mat lögreglu að maðurinn hafi líklega misst meðvitund nær samstundis við barsmíðarnar og áverkarnir hafi dregið hann mjög fljótt til dauða. Hann bar ekki teljandi áverka nema á höfði. Bjarki Freyr var í annarlegu ástandi þegar hann bankaði alblóðugur en pollrólegur upp á hjá nágranna sínum á eftir og sagði félaga sinn hafa slasast við að leika Köngulóarmanninn. Bjarki var handtekinn í kjölfarið. Ekki fæst uppgefið hvort Bjarki hefur játað á sig morðið, en að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns beinist grunur ekki að neinum öðrum. Hann segir rannsóknina í raun langt komna. Tæknideildin vinni nú úr gögnum auk þess sem enn sé verið að ræða við vitni sem voru í húsinu þegar morðið var framið. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Fleiri fréttir Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Sjá meira