Fleiri fréttir

Papeyjarsmygl: Götuverðmæti rúmlega hálfur milljarður

Götuverðmæti fíkniefnanna sem komu til landsins með skútunni Sirtaki í apríl síðastliðnum er rúmlega hálfur milljarður króna, samkvæmt nýjustu verðkönnun SÁÁ sem var gerð um svipað leyti og fíkniefnin voru haldlögð. Mest verðmæti voru fólgin í amfetamíni sendingarinnar en það er metið á tæpar þrjúhundruð milljónir króna. Lögregla telur kaupverð efnanna erlendis vera 34 milljónir króna.

Segja Borgarahreyfinguna hafa óbreytta afstöðu til ESB

Borgarahreyfingin er enn þeirrar skoðunar að ekki sé hægt að taka afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu nema að undangengnum aðildarviðræðum, líkt og stefna hreyfingarinnar var í aðdraganda kosninga. Þetta kemur fram í tilkynningu sem framkvæmdastjóri hreyfingarinnar sendi fjölmiðlum í morgun.

Sló tæp tíu klukknahljóð á flokkssystur sína

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sýndi enn fylgni við rétt fundarsköp í dag þegar hún notaði þingklukkuna tæplega tíu sinnum á flokksystur sína, Ólínu Þorvarðardóttur, undir umræðum um fundarstjórn forseta.

Papeyjarsmyglið: Meintur höfuðpaur neitar sök

Hollendingurinn Peter Rabe, meintur höfuðpaur í svokölluðu Papeyjarmáli, neitaði sök í málinu við þingfestingu þess í morgun. Tveir aðrir sakborningar, þeir Rúnar Þór og Árni Hrafn neita einnig sök.

Efnisgjöld skila 200 milljónum í kassann

Menntamálaráðherra lagði frumvarp fyrir Alþingi í gær sem heimilar framhaldsskólum að innheimta efnisgjald af nemendum sem njóta verklegrar kennslu. Ákvæðið er til bráðabirgða næstu þrjú árin.

Rýrnun útflutningsverðmætis um 10 - 15 milljarða

Hagsmunahópar í sjávarútvegi telja að niðurskurður á kvótum á næsta fiskveiðiári, sem hefst 1. september, þýði að útflutningsverðmæti sjávarafurða rýrni um tíu til 15 milljarða króna.

Sjófugladauði vegna vítamínskorts

Sjófugladauða við Eystrasalt og hér við land má fyrst og fremst rekja til skorts á B-1 vítamíni en ekki fæðuskorts, samkvæmt niðurstöðum vísindamanna við Háskólann í Stokkhólmi.

Hreindýratímabilið hafið

Hreindýraveiðitímabilið hefst í dag og má veiða 1.333 dýr, eða jafnmörg og í fyrra. Fyrst í stað má aðeins skjóta fullorðna tarfa, en þegar líður á tímabilið má veiða fleiri kýr en í fyrra.

Hátt í 20 skip að veiða norsk-íslenska síld

Stóru fjölveiðiskipin, sem voru á makrílveiðum þar til þær voru stöðvaðar nýverið, eru nú farin að veiða síld úr norsk-íslenska síldarstofninum norðaustur af landinu.

Rætt um ESB til miðnættis

Fimmtán alþingismenn voru enn á mælendaskrá þegar hlé var gert um miðnætti á umræðum um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Minnkar tekjur um 3,5 milljarða

Kristján Gíslason, skipstjóri á Mars RE, segir óþolandi að sjávarútvegsráðherra taki ekki mark á neinum öðrum en Hafrannsóknastofnun þegar kemur að ákvörðun um fiskveiðikvóta.

Opnuð í húsi SPRON í ágúst

Bókabúð Máls og menningar verður opnuð í gamla SPRON-húsinu á Skólavörðustíg í ágúst. Leigusamningur búðarinnar á Laugavegi 18 rennur út um mánaðamótin og eigendur búðarinnar sáu sér ekki fært að ráða við hækkun á leigu þar.

Þingið marki Icesave pólitíska umgjörð

Svavar Gestsson, formaður samninganefndar um Icesave, segir óhjákvæmilegt að Alþingi hafi pólitíska skoðun á því hver verði framgangur samningsins. Hana mætti setja fram hvort sem er í nefndaráliti eða með öðrum hætti. Samninginn sjálfan verði hins vegar að samþykkja eða fella.

Hættulegar lóðir hreinsaðar

Starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu í gær að því að hreinsa upp rusl á lóð borgarinnar við Hestavað í Norðlingaholti. Fréttablaðið greindi frá því í gær að börn hefðu slasað sig á lóðinni, meðal annars lá drengur á spítala með blóðeitrun eftir að hafa stigið þar á nagla.

Kviknaði í út frá gasgrilli

Líklegasta orsök bruna Hótels Valhallar er að eldur hafi komið upp í gasgrilli í eldhúsinu, að sögn Þorgríms Óla Sigurðssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns lögreglunnar á Selfossi. Mikil fita hafði safnast á grillinu og líklegt sé að kviknað hafi í henni. Eldurinn hafi við það farið upp um háf í eldhúsinu. Þaðan hafi eldurinn náð upp á milliloft og svo breiðst hratt út.

Segir lögfræðinga Seðlabankans blekkja

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, segir lögfræðinga Seðlabankans hafa blekkt utanríkismálanefnd. Minnisblað sem Sigríður Logadóttir aðallögfræðingur og Sigurður Thoroddsen, lögfræðingur á Alþjóða- og markaðssviði bankans, lögðu fyrir utanríkismálanefnd Alþingis, var ekki umsögn Seðlabankans. Þetta áréttaði Sigríður í tölvubréfi á þriðjudagskvöld. Nefndarmenn stóðu í þeirri meiningu að um formlegt álit bankans væri að ræða.

Seljendur kvóta fá leyfi til strandveiða

Margir þeirra sem hafa fengið leyfi til strandveiða eru gamlir eigendur kvóta. Hafa þeir selt kvótann sinn, haldið skipunum, veiðarfærum og öðru og hafa nú fengið leyfi til strandveiða, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Nokkuð er um það að menn reki jafnvel tvo báta til strandveiða. Einnig eru dæmi þess að menn sem eiga lítinn kvóta hafi veitt veiðiskyldu sína í vor, fengið leyfi til strandveiða og leigi nú út kvótann sinn. Markmið strandveiða var meðal annars að auka nýliðun í greininni.

Hagnast um 3,4 milljarða dala

Bandaríski bankinn Goldman Sachs hagnaðist um 3,44 milljarða dala eða 426 milljarða króna á núverandi gengi á tímabilinu apríl til júníloka. Uppgjörið sýndi umtalsvert betri afkomu en greinendur höfðu áður gert ráð fyrir.

Hreiðar Már til Lúxemborgar

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er að flytja til Lúxemborgar. Hreiðar mun opna skrifstofu ráðgjafarfyrirtækisins Consolium ytra en fyrirtækið stofnaði hann í fyrrahaust ásamt samstarfsmönnum úr Kaupþingi.

Þreifingar við Breta vegna fyrirvara um ríkisábyrgð

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að óformlegar þreifingar hafi átt sér stað á milli Íslendinga annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar vegna afgreiðslu Alþingis á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave.

Skeiðará komin yfir í Gígjukvísl

„Við skjótum á að helmingurinn af Skeiðará sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón Ragnarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Höfn.

Feginn að þessu sé lokið

Allir starfsmenn SPRON á uppsagnarfresti fengu launin sín greidd í gær en slitastjórn SPRON hafði lofað því að það yrði gert.

Sólgleraugu seljast grimmt

Erlendir ferðamenn kaupa nú dýr sólgleraugu sem aldrei fyrr, að sögn Gunnars Guðjónssonar í Gleraugnamiðstöðinni við Laugaveg.

Sóknarfærin eru gríðarleg

Velta vegna hvalaskoðunar í heimin-um hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu tíu árum. Árið 1998 fóru 9 milljónir ferðamanna í 87 löndum í hvalaskoðun og var heildarveltan um 127 milljarðar íslenskra króna. Tíu árum síðar, árið 2008, fóru 13 milljónir manna í hvalaskoðun í 119 löndum og var heildarveltan um 267 milljarðar.

Bíða eftir heimtengingum

Íbúar við Hörpugötu í Reykjavík eru ósáttir við að ekki verði lagður ljósleiðari í hús í götunni þrátt fyrir rask á vegum Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar í götunni. Hverfið er ekki á áætlun ársins segir framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Telja skilyrðin alltof bindandi

Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur ákvað í gær að mæla með því við borgarráð að samþykkja ekki skilyrði sem sett hafa verið fram vegna endurfjármögnunar Strætó bs.

Atkvæði vonandi greidd í dag

Ekki er víst að atkvæði verði greidd í dag um tillögu meirihluta utanríkismálanefndar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Seðlabankinn svarar ekki fyrir „einkaflipp“ yfirlögfræðingsins

Ritstjóri Seðlabanka Íslands, Stefán Jóhann Stefánsson, hefur ekki viljað svara vegna álits yfirlögfræðings seðlabankans, sem var kynnt fyrir utanríkismálanefnd og fjárlaganefnd í gær. Í ljós kom að álitið var alls ekki unnið fyrir Seðlabanka Íslands líkt og nefndarmenn töldu í upphafi heldur var það skoðun yfirlögfræðingsins, sem heitir Sigríður Logadóttir. Samkvæmt fréttastofu Ríkisútvarpsins í kvöld þá er notast við álit Sigríðar í áliti Seðlabanka Íslands sem mun verða kynnt á morgun.

Framkvæmdir vegna undirganga við Kjalarnes hafnar

Framkvæmdir við girðingu og göng undir Vesturlandsveg á Kjalarnesi voru kynntar á fundi umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í dag samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Flokksmenn VG saka eigin formann um klækjastjórnmál

Ellefu flokksmeðlimir Vinstri grænna, þar af einn bæjarfulltrúi á Akureyri, skrifa undir opið bréf til Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, og saka hann um að vera ómerkingur orða sinna tryggi hann frumvarpi um ESB brautargengi á þingi.

Barnalán á gjalddaga sama ár og Icesave afborganir

Tiltölulega stór lán eru á gjalddaga árið 2016, sama ár og afborganir af Icesave láninu eiga að hefjast. Um er að ræða lán í tvennu lagi frá árunum 1981 og 1983 að upphæð fimmtán milljónir punda í hvort skipti, alls þrjátíu milljónir.

Einar K: Verið að beita sparisjóðina fantabrögðum

„Það er verið að beita sparisjóðina fantabrögðum," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, inntur eftir viðbrögðum við lögum um fjármálafyrirtæki sem samþykkt voru fyrir helgi.

Rússnesku kafbátarnir farnir

Rússnesku kafbátarnir sem voru við Drekasvæðið norðaustur af Íslandi í liðinni viku eru farnir þaðan, að sögn Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra Varnarmálastofnunar. Ellisif segir að áfram verði fylgst með svæðinu enda sé það hlutverk stofnunarinnar. „Við fylgjumst með þessu eins og við gerum á hverjum degi og gerum alltaf," segir Ellisif Tinna.

Keyrði dópaður og átti helling af grasi

Tuttugu og eins árs gamall Akureyringur var í gær dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi, til sjötiu þúsund króna sektar og ökuleyfissviptingu fyrir fíkniefnabrot.

Ákæran í Papeyjarsmygli: Peter Rabe höfuðpaur

Ákæra á hendur sex mönnum sem handteknir voru fyrir að smygla 109 kílóum af eiturlyfjum til landsins í apríl, verður þingfest í fyrramálið. Hollendingurinn Peter Rabe er ákærður fyrir að skipuleggja innflutninginn.

Sjá næstu 50 fréttir