Ákæran í Papeyjarsmygli: Peter Rabe höfuðpaur 14. júlí 2009 13:54 Peter Rabe Mynd/ Pjetur
Ákæra á hendur sex mönnum sem handteknir voru fyrir að smygla 109 kílóum af eiturlyfjum til landsins í apríl, verður þingfest í fyrramálið. Hollendingurinn Peter Rabe er ákærður fyrir að skipuleggja innflutninginn. Mennirnir eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á samtals 55.116,65 g af amfetamíni, 53.889,65 g af kannabis og 9.432 MDMA töflum til Íslands, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru flutt áleiðis til Íslands frá Belgíu með skútunni Sirtaki og var slöngubát af gerðinni Valiant siglt til móts við hana. Bátarnir hittust á hafi úti þann 18. apríl innan við 30 sjómílur suð- austur af landinu og voru efnin þar flutt milli báta. Slöngubátnum var síðan siglt með efnin til Djúpavogs. Á Djúpavogi voru efnin flutt yfir í bifreið og þeim ekið áleiðis til Selfoss þar sem til stóð að geyma efnin þar til þau yrðu sótt og afhent óþekktum aðila, að því er segir í ákærunni. Lögregla stöðvaði bifreiðina við Höfn og haldlagði efnin. Mennirnir eru: Peter Rabe leiddur út úr varðskipinu Tý. Mynd/ Pjetur Peter Rabe, 44 ára Hollendingur. Hann er ákærður fyrir að skipuleggja innflutning fíkniefnanna og fá þá Rúnar Þór Róbertsson og Árna Hrafn Ásbjörnsson til ferðarinnar. Hann móttók efnin erlendis og flutti fíkniefnin sjóleiðis með skútunni, áleiðis að strönd Íslands ásamt þeim Rúnari og Árna þar sem þeir afhentu þeim Jónasi Árna Lúðvíkssyni og Halldóri Hlíðari Bergmundssyni efnin en þeir höfðu siglt til móts við þá á gúmmíbát. Rúnar Þór RóbertssonMynd/ Pjetur Rúnar Þór Róbertsson, 41 árs Íslendingur. Hann er ákærður fyrir að hafa siglt á skútunni ásamt þeim Árna og Petar áleiðis að strönd Íslands þar sem þeir afhentu þeim Jónasi Árna og Halldóri fíkniefnin en þeir höfðu siglt til móts við þá á gúmmíbáti. Árni Hrafn ÁsbjörnssonMynd/ Pjetur Árni Hrafn Ásbjörnsson, 29 ára Íslendingur. Hans þáttur er sá sami og Rúnars. Það er að hafa siglt á skútunni með fíkniefnin áleiðis að Íslandsströndum þar sem þeir afhendu Jónasi og Halldóri efnin. Jónas Árni LúðvíkssonMynd/ Valli Jónas Árni Lúðvíksson, þrítugur Íslendingur. Hann er ákærður fyrir að hafa siglt ásamt Halldóri Hlíðari á slöngubátnum til móts við skútuna þar sem þeir móttóku fíkniefnin frá meðákærðu Peter, Rúnari Þór og Árna Hrafni og fluttu þau á Djúpavog þar sem meðákærði Pétur Kúld Pétursson tók við þeim í því skyni að flytja þau áfram til Selfoss. Jónas hugðist síðar taka á ný við efnunum á Selfossi og afhenda til óþekktra aðila. Halldór Hlíðar BergmundssonMynd/ Valli Halldór Hlíðar Bergmundsson, 32 ára Íslendingur. Hann er ákærður fyrir að hafa siglt ásamt Jónasi á slöngubáti til móts við skútuna og móttekið fíkniefnin frá Peter, Rúnari Þór og Árna Hrafni. Þaðan hafi þeir flutt þau í land á Djúpavogi þar sem Pétur Kúld tók við þeim. Pétur Kúld PéturssonMynd/ Valli Pétur Kúld Pétursson, 28 ára Íslendingur. Hann veitti fíkniefnunum móttöku á Djúpavogi frá Jónasi Árna og Halldóri Hlíðari og flutti áleiðis til Selfoss en var stöðvaður af lögreglu. Pétur hugðist geyma efnin á Selfossi uns meðákærði Jónas Árni tæki við þeim á ný. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig fer ákæruvaldið fram á að fíkniefnin sem flutt voru til landsins verði gerð upptæk. Einnig er farið fram á að gerð verði upptæk 0,47 grömm af amfetamíni sem fundust við húsleit á heimili Halldórs Hlíðars Bergmundssonar, sunnudaginn 19. apríl. Einnig er krafist upptöku á 12 ml af anabólískum stungulyfjum sem fundust við sömu húsleit, þar af 6 ml af lyfinu Sustanon, 4 ml af lyfinu Primobolan og 2 ml af lyfinu Testosteron, sem voru ólöglega flutt til landsins eða ólöglega seld hérlendis.
Papeyjarmálið Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira