Fleiri fréttir

Björgvin G. fékk víst styrk frá Baugi

Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar fékk 300 þúsund krónur í styrk frá Baugi vegna þáttöku í prófkjöri árið 2007. DV hafði greint frá þessu á miðvikudaginn en Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sem var kosningastjóri Björgvins á sínum tíma hafði samband við blaðið og þvertók fyrir að Björgvin hefði þegið styrk frá Baugi. DV birtir hins vegar í dag frétt um að blaðið hafi nú sannreynt að styrkurinn hafi verið greiddur.

Ábyrgðarhluti hjá Sigmundi að fullyrða með þessum hætti

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist ekki hafa séð þau gögn sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vísaði til í gær um eignastöðu bankanna. Hann segir að það sé gífurlegur ábyrgðarhluti hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni,

Flutningabíll fauk af veginum

Flutningabíll frá Eimskip fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli nú fyrir stundu. Mikill vindur er á Suðurlandi og ræður lögreglan ökumönnum með dráttarkerrur eindregið frá því að vera á ferðinni.

Lyfjastuldur í Þorlákshöfn

Lyfjum var stolið úr apóteki Lyfja og heilsu í Þorlákshöfn í nótt. Þjófarnir notuðu bíltjakk til að brjóta þar rúðu til að komast inn, og hafa meiðst við það, því blóð var á vettvangi þegar lögregla kom, á staðinn laust fyrir klukkan sex í morgun. Þá voru þjófarnir á bak og burt, en vitni sáu svartan Volkswagen Golf aka af vettvangi. Ekki liggur fyrir hversu miklu eða hverskonar lyfjum var stolið, nema hvað lífshættulegra lyfja er ekki saknað.-

Utanríkisnefnd fundar um Icesave - Geir Haarde á fundinum

Fundur utanríkisnefndar um málefni Icesave var að hefjast rétt í þessu. Það var Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknaflokksins, sem óskaði eftir fundinum. Ræða á trúnaðargögn sem varða samskipti íslenskra stjórnvalda og þeirra bresku vegna Icesave-deilunnar. Um er að ræða samskipti sem áttu sér stað frá 3 október til þess sjötta.

Þorskkvóti í Barentshafi aukinn um 50.000 tonn

Samkeppni um sölu á þorskafurðum á erlendum mörkuðum mun fara harðnandi strax á næsta ári, því allt stefnir í að þorskkvótinn í Barentshafi verði aukinn um 50 þúsund tonn og enn meira á þarnæsta ári.

Innbrot í Lyf og heilsu á Þorlákshöfn

Brotist var inn í verslun Lyfja og heilsu í Þorlákshöfn í nótt. Tilkynning um innbrotið barst á sjötta tímanum í morgun og er lögreglan á Selfossi á vettvangi að rannsaka málið. Ekki liggur enn fyrir hvort eða hverju var stolið, en þjófarnir komust undan.

Sveitarfélaginu sagt mismunað

Bæjaryfirvöld á Álftanesi segja sveitarfélagið bera hlutfallslega miklu meiri kostnað af fræðslu- og uppeldismálum og æskulýðs- og íþróttamálum en algengast sé meðal sveitarfélaga landsins.

Formenn bjartsýnir fyrir kosningarnar

Formenn framboðanna til Alþingis eru allir bjartsýnir á gott gengi í komandi kosningum þrátt fyrir mismunandi útkomu í könnun Fréttablaðsins á fylgi flokkanna á landsvísu.

Upplýsir ekki um styrki sína

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill hvorki játa né neita því að hann hafi fengið háa styrki frá FL-Group og Baugi. Hann segir vel koma til greina að setja reglur um að upplýsingar verði gefnar um styrki, en í þeim efnum verði eitt yfir alla að ganga.

Gagnrýna leynd um verðmat bankaeigna

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýna að þeir og almenningur hafi ekki fengið að sjá upplýsingar um verðmat þeirra eigna sem fluttar voru úr þrotabúum gömlu bankanna til að mynda efnahag þeirra nýju. Sigmundur segir að upplýsingum um raunverulegt ástand mála í þjóðfélaginu sé haldið frá almenningi.

Formaður Framsóknar inni

Samfylking er stærsti flokkurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 33,0 prósent styðja flokkinn í kjördæminu og fengi flokkurinn því þrjá kjördæmakjörna þingmenn. Flokkurinn fékk 29,2 prósent atkvæða í kosningunum 2007.

Hesthúsabyggð endurskoðuð

Endurskoða á nýsamþykkt deiliskipulag sem gerði ráð fyrir nýrri hesthúsabyggð nærri Elliðaánum. Skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti þetta á þriðjudag í framhaldi af fundum formanns skipulagsráðs, Júlíusar Vífils Ingvarssonar og embættismanna með formanni Hestamannafélagsins Fáks, framkvæmdastjóra og formanni Stangaveiðifélags Reykjavíkur og veiðimálastjóra ásamt sérfræðingum Veiðimálastofnunar. „Voru það opinskáir og hreinskiptir fundir. Frumkvæði Hestamannafélagsins Fáks í framhaldi af þessu er þakkarvert“ segir í tillögu Júlíusar um að reyna eigi að ná sátt um nýtingu svæðisins. - gar

Zuma verður næsti forseti

Nánast öruggt var talið að Afríska þjóðarráðið færi með sigur af hólmi í þingkosningum í Suður-Afríku þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær.

Greitt fyrir umferð með fjölda aðgerða

Borgarstjórinn í Reykjavík og vegamálastjóri undirrituðu fyrr í mánuðinum samkomulag um vegbætur í Reykjavík. Samkvæmt því á að fara í fjölda aðgerða sem munu auka umferðarflæði og bæta umferðaröryggi. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir samkomulagið dæmi um það hve hægt er að áorka miklu án þess að fara í stórar framkvæmdir.

Fengu ekki að greiða atkvæði

„Þetta er frekar spælandi þegar maður ætlar að taka þátt í sennilega mikilvægustu kosningum lífs síns,“ segir Hrefna Kap Gunnarsdóttir, sem í gær var vísað frá kjörstað á ræðismannsskrifstofu Íslands í Árósum í Danmörku.

Ekki til að hafa áhyggjur af

Vatnsstaðan í Blöndulóni er nú í sögulegu lágmarki. Að sögn Guðmundar Ólafssonar hjá Blönduvirkjun stafar þessi óvenjulega staða af bilun sem varð í Sultartangavirkjun í fyrra og olli því að keyra þurfti Blöndustöðina meira en vanalega. „En þetta er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt og á eftir að jafna sig,“ segir Guðmundur. Ómögulegt sé að svara því hvort þetta muni seinka því að Blanda fari á yfirfall í sumar. „Veiðimenn spyrja mikið um þetta en það eru svo margir þættir sem geta haft áhrif og vatnsstaðan breyst fljótt.“ - gar

Unnið gegn bótasvikum

Á fundi eftirlitsdeilda tryggingastofnana á Norðurlöndum, sem haldinn var fyrr í mánuðinum, var lögð áhersla á að unnið yrði gegn bótasvikum. Svikin geti numið háum fjárhæðum svo eftir miklu sé að slægjast. Bótasvik felast sérstaklega í rangri skráningu á búsetu og hjúskap og rangri upplýsingagjöf sem leiðir til of hárra bótagreiðslna. Á undanförnum árum hafa norrænu þjóðirnar lagt aukna áherslu á eftirlit með slíkum svikum. Á fundinum var lögð áhersla á að vekja stjórnmálamenn til umhugsunar um málið. Ekki væri vanþörf á í kreppunni.- kóp

Jóhanna og Bjarni ósammála um styrki til frambjóðenda

Formenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort opna skuli prófkjörsbókhald frambjóðenda. Forsætisráðherra vill að almenningur fái upplýsingar um styrki til frambjóðenda. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir það hins vegar undir einstaklingum komið hvort þeir upplýsi um slíka styrki.

Getum sagt skilið við ESB mislíki okkur

Ef við göngum í Evrópusambandið og mislíkar, getum við gengið út strax. Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, segir að ákvörðunin myndi þó verða okkur dýrkeypt.

Ákvarðanafælni í borgarstjórn

Borgarstjórn þorir ekki að taka ákvarðanir og þess vegna er allt stopp segja verktakar sem vilja framkvæma. Þeir þora þó ekki að koma fram af hræðslu við að lenda á svörtum lista hjá borginni.

Útstrikanir geta haft áhrif á röð þingmanna

Útstrikanir á kjörseðlum í komandi kosningum geta haft nokkur áhrif á röð þingmanna. Á kjörseðlinum sem við fáum í hendurnar á laugardaginn eru kassar fyrir fram hvern bókstaf til að sýna okkur hvar við eigum að setja x-ið okkar. En það er hægt að gera meira í kjörklefanum.

Árásarmaðurinn fundinn

Karlmaður sem stakk annan mann með hnífi í lærið og handlegg fyrir utan verslun Krónunnar í Jafnaseli í Seljahverfi í dag hefur verið handtekinn. Árásarmaðurinn var handsamaður skömmu eftir árásina í bifreið sinni í Holtaseli. Hann var einn í bifreiðinni.

Nyrsti kosningafundurinn í dag

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hélt kosningafund í Grímsey í morgun. Fram kemur í tilkynningu að alls hafi 23 atkvæðisbærir íbúar mætt á fundinn sem er nærri helmingur kosningabærra Grímseyinga.

Maður stunginn með hnífi

Karlmaður var stunginn með hnífi í lærið fyrir utan verslun Krónunnar í Jafnaseli í Seljahverfi á fimmta tímanum í dag. Hann var fluttur á slysadeild en er ekki talinn mikið slasaður, að sögn lögreglu.

Veðrið gæti hjálpað sjálfstæðismönnum

Veðrið á kjördag gæti hjálpað sjálfstæðismönnum en unnið gegn framsóknarmönnum. Þetta segir Sigurður Ragnarsson, veðurfræðingur á Stöð 2, oft kallaður Siggi Stormur eða Stormurinn. Hann telur að vinstriflokkarnir nái sætum sigri.

Ekkert greitt fyrir menntun Íslendinga á Norðurlöndunum

Norrænu menntamálaráðherrarnir undirrituðu samkomulag í dag sem tryggir námsmönnum á Norðurlöndunum aðgang að æðri menntun í öllum aðildarríkjum Norrænu ráðherranefndarinnar. Ísland fær undanþágu frá samkomulagi sem gert er um greiðslur milli landa og greiðr ekki neitt, en tekur þátt í samstarfinu á jafnræðisgrundvelli.

Sérkennilegt að Kolbrún sé leiðrétt af Vinstri grænum

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir sérkennilegt að Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra sé leiðrétt af samflokksmönnum sínum og talin svíkja grænar áherslur með því að lýsa yfir efasemdum og andstöðu við tilraunaboranir eftir olíu á Drekasvæðinu. Þetta kemur fram í bréfi sem Árni sendi Vinstrihreyfingunni grænu framboði í morgun.

Hjörleifur hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin

Íslensku þýðingaverðlaunin árið 2009 voru afhent á Gljúfrasteini í fimmta sinn í dag. Að þessu sinni hlaut Hjörleifur Sveinbjörnsson verðlaunin fyrir þýðingu sína sýnisbók kínverskrar frásagnarlistar frá fyrri öldum, Apakóngur á Silkiveginum.

Hægt að hlusta á Laxness lesa Atómstöðina

Landsmönnum hefur verið gert kleift að hala niður án endurgjalds lestri Halldórs Laxness á Atómstöðinni á vef Forlagsins. Eftir hádegi munu erfingjar Halldórs undirrita nýjan samning við Vöku-Helgafell um útgáfu verka skáldsins á komandi árum. Samningurinn verður undirritaður á Gljúfrasteini en í dag er er fæðingardagur Halldórs.

Víðavangshlaup ÍR þreytt í 94. sinn

Hið árlega Víðavangshlaup ÍR hófst að klukkan 12 við Ráðhús Reykjavíkur. Keppendur hlaupa 5 kílómetra langa vegalengd. Þetta er 94. sinn sem Víðavangshlaup ÍR fer fram.

Skátarnir áberandi í hátíðarhöldum dagsins

Skátar, skrúðgöngur, lúðrablástur, vöfflur og rjómi. Sumardagurinn fyrsti er runninn upp og fraus saman við síðasta vetrardag, mörgum hjátrúuðum landsmönnum áreiðanlega til mikillar gleði.

Gylfi: Þjóðarbúið rambar ekki á barmi gjaldþrots

Það er fullkominn misskilningur að þjóðarbúið hér rambi á barmi gjaldþrots, þvert á móti er útlit fyrir að hreinar skuldir íslenska ríkisins verði jafnvel minni en margra nágrannaríkja þegar um hægist, þetta segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, í grein þar sem hann reynir að stappa stálinu í þjóðina.

Össur: Sjálfstæðismenn tvöfaldir í roðinu

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að sjálfstæðismenn séu tvöfaldir í roðinu þegar kemur að umræðu um skattahækkanir. Í pistli á heimasíðu sinni segir ráðherrann að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haldið því að ríkisstjórnarflokkarnir ætli að hækka skatta úr öllu hófi eftir kosningar. Össur segir hins vegar athyglisvert að að skoða orð og gjörðir sjálfstæðismanna í skattamálum mitt í kreppunni.

Suðurnesjamenn slá skjaldborg um álver

Suðurnesjamenn ætla að slá svokallaðri skjaldborg um álver og atvinnuuppbyggingu í dag. Ætlunin er að fá fólk til að fjölmenna í Helguvík til að lýsa stuðningi við álversframkvæmdirnar þar. Aðstandendur vilja með þessu vekja athygli á mikilvægi stóriðjuframkvæmda og atvinnuuppbyggingar en þeir hafa áhyggjur af ósætti í ríkistjórnarflokkunum um málið.

Ræningjarnir þrír á hátíð sjálfstæðismanna

Sjálfstæðisflokkurinn efnir til fjölskylduhátíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík í dag, sumardaginn fyrsta. Ræningjarnir í Kardimommubænum, þeir Kasper, Jesper og Jónatan, verða meðal skemmtiatriða.

Meira en 1100 ósammála

Opnuð hefur verið vefsíðsan ósammála.is en aðstandendur síðunnar eru ósammála þeim málflutningi að innganga í Evrópusambandið sé leiðin til þess að koma efnahagsmálum Íslands aftur í réttan farveg. Yfir 1100 manns hafa skráð nafn sitt á síðuna.

Fyrsta degi sumars víða fagnað

Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land verður þessum fyrsta degi sumars fagnað með skrúðgöngum og öðrum hátíðahöldum. Fjölskylduhátíðir verða í helstu hverfum Reykjavíkur í dag.

Tæpum milljarði úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2009. Samtals úthlutar ráðherra 952 milljónum króna til uppbyggingar hjúkrunarrýma, fækkunar fjölbýla á hjúkrunarheimilum, til endurbóta vegna öryggis- og aðgengismála, viðhalds á húsnæði og endurnýjun búnaðar og til uppbyggingar á félagsaðstöðu fyrir aldraða.

Hálkublettir á Reykjanesbraut

Á Reykjanesbraut og víða á höfuðborgarsvæðinu eru hálkublettir. Einnig eru hálkublettir á Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. Hálka er á Sandskeiði og á Hellisheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Sjá næstu 50 fréttir