Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sálfræðingur vill þingsæti Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins býður sig fram í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kolbrún hefur verið löggildur sálfræðingur frá 1992 og hlaut sérfræðileyfi Landlæknisembættisins í klínískri sálfræði 2008. 26.2.2009 14:37
Gaf hundi hnéspark og réðist á tollvörð Vítisengilinn og Fáfnismaðurinn Ólafur Vilberg Sveinsson var dæmdur fyrir að keyra öxl sína í bringu tollvarðar þegar leitað var að fíkniefnum í farangri hans á Leifsstöð í febrúar á síðasta ári. Áður rak hann hné sitt í kvið fíkniefnahunds sem stökk á hann og gaf til kynna að hann væri hugsanlega með fíkniefni í fórum sínum. 26.2.2009 14:12
Þingvallastjórnin þegir Vísir leitaði svara við ummælum Davíðs Oddsonar í frægu viðtali í Kastljósi Sjónvarpsins í vikunni. Tölvupóstur var sendur á alla ráðherra hinnar svokölluðu Þingvallastjórnar. Ekki hefur borist svar frá neinum meðlimum fyrrverandi ríkisstjórnar. Geir H. Haarde hefur reyndar tjáð sig í fjölmiðlum um ummæli Davíðs og það hefur Össur Skarphéðinsson einnig gert. 26.2.2009 13:44
Kanna stöðu Ingibjargar - þingmenn vilja að hún hætti Nánir samstarfsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, kanna nú stöðu hennar innan flokksins. Þingmenn eru meðal þeirra sem telja eðlilegt að hún stígi til hliðar. 26.2.2009 13:37
Frjálshyggjumenn tapa skaðabótamáli Frjálshyggjumaðurinn Hlynur Jónsson tapaði skaðabótamáli gegn ríkinu vegna meintrar ólögmætrar handtöku. Hlynur var handtekinn árið 2006 þegar hann, ásamt öðrum meðlimum Ungra Frjálshyggjumanna, hugðust mótmæla ríkiseinkasölu á áfengi. 26.2.2009 13:07
Vill opinbera rannsókn á hagsmunatengslum Óskars Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, hyggst leggja fram á næsta borgarstjórnarfundi tillögu um að fram fari opinber rannsókn á hagsmunatengslum Óskars Bergssonar, formanns borgarráðs, við byggingarverktaka í borginni. 26.2.2009 12:46
Áhyggjur af námsmönnum Menntamálaráðherra segir eðlilegt að hafa áhyggjur af því þegar tugir þúsunda námsmanna koma á vinnumarkaðinn í vor, í því mikla atvinnuleysi sem nú er í þjóðfélaginu. 26.2.2009 12:45
Nýtt framboð í burðarliðnum Nýtt framboð gegn aðild að Evrópusambandinu og flokksræði er í burðarliðnum og fara þeir Bjarni Harðarson fyrrverandi Framsóknarþingmaður og séra Þórhallur Heimisson fyrir hópnum. Stefnt er að framboði á landsvísu. 26.2.2009 12:20
Lausn deilunnar um Icesave ein af forsendum endurreisnar Að mati núverandi ríkisstjórnarinnar er lausn Icesave-deilunnar með aðstoð alþjóðasamfélagsins og þeirra ríkja sem næst okkur standa ein af forsendum endurreisnar íslensks efnahagslífs. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, og birt var á Alþingi í dag. 26.2.2009 12:14
Sjómenn með áhyggjur af Landhelgisgæslunni Farmanna- og fiskimannasamband Íslands lýsir þungum áhyggjum af þeim niðurskurði sem Landhelgisgæsla Íslands má þola. Í tilkynningu frá sambandinu segir að það ætti að vera stjórnvöldum á hverjum tíma kappsmál að Landhelgisgæslunni sé tryggt það fjármagn sem hún þarf til að sinna hlutverki sínu til leitar og björgunar. 26.2.2009 11:58
Eyþór ætlar ekki í framboð Eyþór Arnalds stefndi að því að bjóða sig fram til Alþingis í komandi kosningum en hefur nú hætt við framboð. Hann segist frekar ætla að einbeita sér að sveitastjórnarmálum í Árborg þar sem hann hefur verið oddviti. 26.2.2009 11:53
Andlát í Reykjavík: Dánarorsök enn óljós Andlát hinna tuttugu og fjögurra ára gömlu Geraldine Atkinsson hefur vakið furðu en enginn tilhlýðileg skýring hefur fundist á dauða hennar. Geraldine fannst látinn á gistiheimili í Laugardalnum í byrjun febrúar en hún var í fríi hér á landi. Hún var við nám í læknisfræði í St. Michael´s Church of England Primary School og þótti góður og efnilegur námsmaður. 26.2.2009 11:43
Seðlabankamálið á seinustu metrunum í þinginu Þriðja og síðasta umræðan um seðlabankafrumvarpið hófst rétt eftir klukkan ellefu á Alþingi þegar að Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar, fór yfir vinnu og tillögur nefndarinnar. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði að lögum síðar í dag. 26.2.2009 11:22
Stjórnmálafræðingar vilja endurheimta stolnar fartölvur Brotist var inn í húsnæði Háskóla Íslands í nótt og voru tvær fartölvur teknar ófrjálsri hendi. Eigandi annarrar tölvunnar var til að mynda nýbúinn að setja inn jólamyndir af börnum og fjölskyldu þegar tölvunni var stolið. 26.2.2009 11:16
Árni Matt hættur - neitaði því í morgun Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum og gefa ekki kost á sér í framboði til Alþingis í komandi kosningu. Í yfirlýsingu sem hann sendir flokkssystkynum sínum í Suðurkjördæmi segir hann að á ferðum sínum um kjördæmið undanfarið hafi berlega komið í ljós að vilji sé til breytinga innan Sjálfstæðisflokksins. Árni vildi ekkert kannast við það í morgun að hann væri að hætta. 26.2.2009 10:44
Gasmaður enn á gjörgæslu Maðurinn sem slasaðist í húsabruna á Akureyri, þar sem tuttugu og fimm gaskútar fundust, er enn í öndunarvél á gjörgæslu Borgarspítalans. Maðurinn brenndist illa eftir að einn kútanna lak og orsakaði sprengingu fyrir um tveimur vikum síðan. Við slökkvistarf uppgvötaðist að maðurinn geymdi tuttugu og fimm gaskúta á heimilinu sínu og olli gríðarlegri hættu með athæfinu. 26.2.2009 10:37
Hættur í Frjálslynda flokknum - tveir eftir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður hefur sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins. Þetta kom fram í bréfi sem hann sendi forseta Alþingis og var lesið upp við setningu þingfundar fyrir stundu. 26.2.2009 10:34
Báðar konurnar úr Þykkvabæ á batavegi Önnur konan sem lenti í vinnuslysi í Kartöfluverksmiðjunni í Þykkvabæ, er kominn á almenna deild og er á batavegi samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæslu Borgarspítalanum. 26.2.2009 10:28
Sjálfstæðisflokkurinn er óstjórntækur Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé óstjórntækur flokkur. Flokkurinn kunni ekki að vera í stjórnarandstöðu og þurfi lengri tíma til að aðlagast nýjum vinnubrögðum. Hann segir að það hafi beinlínis verði undarlegt að fylgjast með upphlaupum sjálfstæðismanna í þinginu undanfarið. 26.2.2009 10:05
Funduðu með ráðherra um eignir auðmanna Talsmenn Radda fólksins, sem staðið hafa fyrir vikulegum mótmælafundum á Austurvelli í vetur, áttu fund með Rögnu Árnadóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra, í gær en tilefni fundarins var að kynna fyrir henni kröfu hreyfingarinnar um kyrrsetningu eigna auðmanna. 26.2.2009 09:29
Hittast í Lækningalind Bláa Lónsins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs og formaður norska verkamannaflokksins munu funda í dag kl. 16.30 í húsakynnum Bláa Lónsins, nánar tiltekið í hinni svokölluðu Lækningalind. 26.2.2009 09:09
Kaupendur fasteigna geta setið eftir með milljónatjón Mögulegt er að kaupendur nýrra fasteigna sitji eftir með tjón sem nemur hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum króna fari byggingarfyrirtæki á hausinn. Þetta segir Haukur Örn Birgisson, stundakennari í lögfræði við viðskiptadeild HÍ og lögmaður hjá ERGO lögmönnum. 26.2.2009 09:00
Enn veiðist gulldeplan Gulldepla er aftur farin að veiðast, en um tíma var óttast að hún væri gengin út úr íslensku fiskveiðilögsögunni til suðurs. Hún fannst aftur um það bil 130 sjómílur suður af Vestmannaeyjum og eru nú átta skip að veiðum. 26.2.2009 07:07
Allt á huldu um næsta bankastjóra Allar líkur eru á því að Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason seðlabankastjórar láti af störfum á morgun þegar að breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands verða samþykktar. Þá mun nýr bankastjóri taka við til bráðabirgða þangað til búið verður að skipa nýjan bankastjóra eftir auglýsingu. 25.2.2009 22:17
Seðlabankafrumvarp afgreitt úr nefnd Frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um breytingar á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands var afgreitt frá viðskiptanefnd Alþingis í kvöld með einni breytingartillögu, sem fulltrúar Samfylkingar, VG og Framsóknarflokks í nefndinni standa að. Þriðja og síðasta umræða um frumvarpið fer fram á Alþingi á morgun og verður þá frumvarpið afgreitt sem lög. 25.2.2009 19:52
Seðlabankafrumvarpið endar í klúðri Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis, segir að meðferð seðlabankafrumvarpsins hafi endað í algjöru klúðri líkt. Á fundi viðskiptanefndar í kvöld var frumvarpið samþykkt úr nefnd og verður að öllum líkindum að lögum á morgun. 25.2.2009 20:43
Endurskoðun kjarasamninga frestað fram í lok júní Á fimmta tímanum í dag skrifuðu forystumenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins undir samkomulag um frestun á endurskoðun kjarasamninga til loka júnímánaðar. 25.2.2009 17:31
Biðlaun gætu numið 37 milljónum króna Kostnaður ríkisins vegna biðlauna þeirra ráðherra og aðstoðarmanna sem létu af störfum við síðustu ríkisstjórnarskipti gæti numið 37 milljónum króna. Þetta kemur fram í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. 25.2.2009 17:22
Opinberar bókhald sitt Sigríður Andersen, sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu kosningar hefur ákveðið að birta yfirlit yfir eignir og skuldir sínar og eiginmanns síns á heimasíðu sinni. 25.2.2009 23:14
Catalina enn í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur vísað frá máli Catalinu Mikue Ncogo, sem kærði gæsluvarðhaldúrskurð yfir henni. Catalina er grunuð um aðild að fíkniefnamáli og að hafa haft tekjur af vændi ungra kvenna, sem hún hafi flutt mansali hingað til lands. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald til 27. febrúar. Málinu var vísað frá dómi og því stendur gæsluvarðhaldið. 25.2.2009 19:05
Tilboði Óskars í Morgunblaðið tekið Íslandsbanki gekk í dag að tilboði Óskars Magnússonar lögmanns og viðskiptafélaga hans, í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. 25.2.2009 18:29
Sveitastjóra sagt upp störfum Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gekk fyrirvaralaust frá starfslokum Sigurðar Jónssonar, sveitarstjóra, í gær. Í Sunnlenska fréttablaðinu kemur fram að blogg sveitarstjórans og ofreiknuð laun höfðu áhrif á brotthvarfið. 25.2.2009 18:12
Geðspekivefur HÍ opnaður í dag Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, opnaði sérstakan vef um geðrækt við Háskóla Íslands á Háskólatorgi í dag. 25.2.2009 17:11
Jón Baldvin gefur kost á sér í forvali Samfylkingarinnar Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og ráðherra, gefur kost á sér í eitt af átta efstu sætum á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir þingkosningar vorið 2009. Í fréttatilkynningu frá Jóni kemur fram að framboðið sé sett fram án vísunar til tiltekins sætis með fyrirvara um og í trausti þess að boðað stjórnarfrumvarp um breytingar á kosningalögum, er feli í sér rétt kjósenda til persónukjörs, nái fram að ganga þannig að væntanlegir alþingismenn öðlist ótvrírætt umboð kjósenda. 25.2.2009 17:06
Öskudagur á Dvergasteini Það var líf og fjör á leikskólanum Dvergasteini í dag þar sem öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í dag eins og vera ber. Alls kyns kynjaverur voru á ferli á leikskólanum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum en á þeim má meðal annars sjá sjóræningja, ljón og þá félaga Karíus og Baktus. Á meðal þess sem krakkarnir gerðu sér til gamans var að slá köttinn úr tunnunni. 25.2.2009 16:59
Býður Helgu Sigrúnu velkomna í kjördæmið Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, er hvergi bangin og metur stöðu sína í kjördæminu góða. Hún býður Helgu Sigrúnu Harðardóttur, oddvita flokksins í Suðurkjördæmi, velkomna í kjördæmið. 25.2.2009 16:57
Peningaverðlaun fyrir þá sem hjálpuðu við að finna fjórhjólin Jakob Sigurðsson rekur fyrirtækið Fjórhjólaævintýri ásamt föður sínum og bróður. Fyrir helgi var fimm fjórhjólum stolið frá fyrirtækinu sem metin eru á rúmlega ellefu milljónir króna. Feðgarnir auglýstu þegar í stað eftir hjólunum sem nú eru komin í leitirnar en lögregla handtók sex aðila í tengslum við málið. Jakob segir feðgunum létt og þeir ætli að hafa samband við þá sem hjálpuðu við að upplýsa málið. Feðgarnir höfðu nefnilega lofað peningaverðlaunum fyrir vísbendingar sem hjálpuðu við leitina. 25.2.2009 16:41
Rúmlega átta þúsund börn eiga atvinnulausa foreldra Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra ávarpaði í dag málþing nemenda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands um áhrif efnahagsþrenginga á fjölskylduna. Í máli hennar kom meðal annars fram að rúmlega átta þúsund börn eigi foreldra án atvinnu. Í lok október var þessi tala tæplega þrjú þúsund. 25.2.2009 16:30
Ingibjörg ákveður sig í vikunni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, mun síðar í vikunni greina frá áformum sínum um eigin aðkomu að íslenskum stjórnmálum í nánustu framtíð. Ingibjörg hefur verið í leyfi síðustu þrjár vikur til að jafna sig eftir veikindi undanfarinna mánaða. Óvíst hefur verið hvort að hún hafi hug á að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Samfylkingarinnar og sem þingmaður. 25.2.2009 16:28
Ríkið kannar áfram málsvörn gegn Bretum Núverandi ríkisstjórn hefur ekki breytt ákvörðun seinustu ríkisstjórnar um stuðning stjórnvalda við hugsanlega málshöfðun skilanefnda Landsbankans og Kaupþings á hendur breska ríkinu og að hugsanlega verði farið með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. 25.2.2009 15:33
Gæslan þarf að skera niður eins og aðrar stofnanir Þremur þyrluflugmönnum hefur verið sagt upp hjá Landhelgisgæslunni. Félag atvinnuflugmanna gagnrýnir uppsagnirnar og segir þær skerða þjónustu m.a. við sjófarendur. Félagið segir forsendu þess að hægt sé að fara í björgunarflug út á opið haf sé að hafa tvær vaktir sem nú verði erfitt að manna. Georg Lárusson forstjóri segir hinsvegar að uppsagnirnar taki ekki gildi fyrr en í haust, en telur að þrátt fyrir þær verði hægt að manna tvær vaktir. Hann segir á bilinu 20-30 manns missa vinnuna hjá gæslunni sem þurfi að skera niður eins og aðrar stofnanir. 25.2.2009 15:32
ESB skýrslan kemur seðlabankafrumvarpi ekki við Í minnisblaði sem dreift var í viðskiptanefnd fyrr í dag um leið og nefndarmenn fengu hina umtöluðu Larosiere skýrslu í hendur, segir að skýrslan snúi ekki með beinum hætti að því frumvarpi um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sem nú er til umfjöllunar í viðskiptanefnd. 25.2.2009 15:00
Helga Sigrún hjólar í Siv Helga Sigrún Harðardóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti flokksins í Suðvesturkjördæmi. Siv Friðleifsdóttir situr í því sæti og sækist eftir endurkjöri. Prófkjör um efstu sæti á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu fer fram laugardaginn 7. mars. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, sækist einnig eftir fyrsta sætinu. 25.2.2009 14:51
Skattabreytingar ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir skattabreytingar ekki vera á dagskrá ríkisstjórnarinnar af augljósum ástæðum. Ríkisstjórnin sitji í skamman tíma og fjárlög verði samþykkt í haust. 25.2.2009 14:29
Seðlabankamálið tekið fyrir í viðskiptanefnd í kvöld Boðað hefur verið til fundar í viðskiptanefnd klukkan 18:15 í kvöld. Þar verður rætt um frumvarp um Seðlabanka Íslands og verður málið væntanlega afgreitt úr nefndinni í kvöld nái vilji stjórnarflokkanna fram að ganga. 25.2.2009 14:23