Fleiri fréttir

Traktorar á mótmælum á Akureyri

Mótmæli fara fram á Akureyri klukkan 15 á Akureyri. Gengið verður frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg. Krafa mótmælenda er skýr, ríkisstjórnin á að fara frá. Akureyringar og nærsveitamenn eru hvattir til að fjölla á torgið í tilkyningu. Bændur eru hvattir til að mæta á dráttarvélum.

Landsfundi Samfylkingar flýtt

Landsfundi Samfylkingarinnar verður að öllum líkindum flýtt og haldinn í mars eða apríl. Ráðgert var að halda fundinn næstkomandi haust. Sjálfstæðisflokkurinn hugðist halda landsfund sinn um næstu helgi en nú lítur allt út fyrir að kosið verði til Alþingis 9. maí. Miðstjórn flokksins ákvað í gærdag að fresta fundinum fram til 26. til 29 mars. Þá var ákveðið á stjórnarfundi Vinstri grænna í gær að boða til landsfundar þriðju helgina í mars.

Skemmdarverk á vefsíðu Nýs lýðveldis

Skemmdarverk hafa verið unnið á nýstofnaðri síðu Nýs lýðveldis, www.nyttlydveldi.is þar sem skorað er á forseta og Alþingi að hlutast til um myndun utanþingsstjórnar og boðun stjórnlagaþings, að fram kemur í tilkynningu frá Ólínu Þorvarðardóttur sem einn af forsvarsmönnum Nýs lýðveldis. Aðstandendur síðunnar hugleiða nú stöðuna og munu snúa sér með málið til lögreglu.

Nýtt lýðveldi kom fyrir hvítum borðum

Hvítum borðum var komið fyrir á ljósastaurum um alla borg í nótt. Hópur sem kallar sig Nýtt lýðveldi stóð fyrir þessu en hóurinn berst fyrir því að ný stjórnarskrá verði skrifuð og að nýtt lýðveldi verði stofnað á grundvelli hennar.

Ökumaðurinn í haldi lögreglu

Maður sem grunaður er um að hafa hafa ekið á ungan mann í nótt og stundið af er í haldi lögreglu. Maðurinn sem fyrir bílnum varð hlaut höfuðáverka og var fluttur lífhættulega slasaður á slysadeild.

Geir: Ekki rétt að mynda þjóðstjórn

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að mynda þrátt fyrir veikindi sín og formanns Samfylkingarinnar. Geir sagði í þættinum Vikulokin í morgun að engan annan kost betri en núverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks eða Samfylkingar. Hvort sem um er að ræða minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með hlutleysi Framsóknarflokks, utanþingsstjórn eða þjóðstjórn.

Mótmælt á Austurvelli

Safnast verður saman á Austurvelli í dag, 16. helgina i röð, á mótmælafundi Radda fólksins. ,,Þrátt fyrir áfangasigur með yfirlýsingu um kosningar 9. maí nk. má ekki slaka á. Þjóðin getur ekki búið við vanhæfa ríkisstjórn deginum lengur. Sömu stjórnirnar sitja sem fastast í Seðlabanka og Fjármálaeftirliti og útrásarvíkingarnir leika lausum hala. Sameinumst um að reka endahnút á siðleysi og spillingu – hefjum vorhreingerningar í íslenska stjórnkerfinu," segir á vef samtakanna.

Ingibjörg og Geir funda á eftir

Formenn stjórnarflokkanna hittast síðdegis til að ræða um stjórnarsamstarfið. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vonast til að ríkisstjórnarsamstarfið haldi fram að kosningum í vor.

Ríkisstjórnin hefur glatað trausti þjóðarinnar

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að ríkisstjórnin hafi glatað trausti sínu meðal þjóðarinnar. Hann viðurkennir að nýlegar skoðanakannanir séu flokknum áfall. ,,Okkur bíður mikil vinna við að endurvekja traust almennings ef við ætlum að halda áfram að starfa í núverandi ríkisstjórn."

Ísland reist við í Mývatnssveit í dag

Mótmælafundur verður haldin í annað sinn í Mývatnssveit í dag og beinast mótmælin að sömu atriðum og á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Austurvelli, að fram kemur i tilkynningu. Krafist er afsagnar ríkisstjórnar, bankastjóra Seðlabankans og forstjóra Fjármálaeftirlitsins. ,,Fjöldi mótmælenda eða stærð byggðarlags skiptir hér ekki máli. Raddir fólksins þurfa að heyrast sem víðast."

Frjálslyndir hafna aðildarviðræðum í póstkönnun

Frjálslyndi flokkurinn vill ekki að Ísland leiti eftir aðild að Evrópusambandinu. Á miðstjórnarfundi flokksins sem hófst í morgun var kynnt niðurstaða úr skoðanakönnun sem gerð var meðal flokksmanna. 34,8% flokkamanna eru fylgjandi aðildarviðræður en 51,6 eru á móti. Tæplega 10% flokksmanna eru óákveðnir.

Birkir Jón: Ætlum að standa undir væntingum fólks

,,Þetta eru viðbrögð almennings að Framsókn er að svara því kalli að breytinga er þörf í íslenskum stjórnmálum," segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, um gott gengi flokksins í skoðanakönnunum.

Fámennt við þinghúsið í gær

Fámennur hópur mótmælenda kom saman við Alþingishúsið um kvöldmatarleytið í gær. Fólkið barði trommur og potta. Allt var með friði og spekt. Margir klæddust appelsínugulum flíkum til marks um að mótmælin væru friðsamleg.

Hálka víða um land

Vegagerðin varar ökumenn við hálku á þjóðvegum víða um land, einkum á fáfarnari leiðum og á fjallvegum. Þannig er flughált í kringum Þingvallavatn og á Bláfjalla- og Krýsuvíkurleið. Sömuleiðis er flughált á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vatnsskarði eystra.

Opið í Hlíðarfjalli og Siglufirði

Skíðasvæðið á Siglufirði verðu opið í dag á milli klukkan 12 og 17. Að sögn Egils Rögnvaldssonar, umsjónarmanns svæðisins, er skíðafæri gott og nægur snjór. ,,Við höfum verið að fá 150 til 200 manns á góðum dögum. Aðkomufólk er mjög duglegt að heimsækja okkur sem er mjög ánægjulegt," segir Egill.

Rólegt hjá lögreglu víðs vegar um landið

Nóttin var víðast hvar tíðindalítil, að sögn lögreglu. Talsverður erill var þó hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og voru þrír teknir grunaðir um ölvunarakstur og aðrir þrír grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá hafði lögreglan í Borgarnesi afskipti af tveimur ökumönnum vegna fíkniefnaaksturs.

Stakk af eftir að hafa ekið á vegfaranda

Lögreglan leitar manns sem ók á ungan mann á mótum Laugavegar og Smiðjustígs um klukkan hálf fjögur í nótt. Maðurinn var fluttur með höfuðáverka á slysadeild og sögn lögreglu er hann lífshættulega slasaður.

Fáir styðja núverandi stjórn

Núverandi ríkisstjórn er mjög óvinsæl, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Bæði er það að ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking, eru að tapa fylgi hvort sem litið er til síðustu könnunar eða síðustu alþingiskosninga. Hins vegar segjast einungis 20,3 prósent styðja núverandi ríkisstjórn, en stuðningur við ríkisstjórnina var 71,9 prósent í febrúar fyrir tæpu ári.

AGS styður stefnu en ekki flokka

„Mörg ríki hafa farið í gegnum kosningar og sum hafa jafnvel skipt um ríkisstjórn á meðan unnið er eftir áætlun Sjóðsins, án þess að áætlunin truflist mikið,“ segir Mark Flanagan, yfirmaður áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi, í tölvupósti til Fréttablaðsins, aðspurður hvort kosningar eða breytt ríkisstjórn myndi hafa áhrif á samstarfið við sjóðinn.

Samstarfið í óvissu

Tillaga Sjálfstæðisflokksins um kosningar í maí dugar ekki ein og sér til að halda stjórnarsamstarfinu áfram. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ótímabært að fullyrða nokkuð um samstarfið fyrr en hún hefur hitt Geir H. Haarde. Þau munu ræða saman í dag og fara yfir stöðuna.

Pálína kann vel við sig á Gasasvæðinu

„Yfirleitt líður mér óskaplega vel inni á Gasa og fólkið þar er gott,“ segir Pálína Ásgeirsdóttir, sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins í Palestínu. Mikil samkennd sé meðal Gasabúa, sem taki erlendum hjálparstarfsmönnum fagnandi.

Fjögurra flokka stjórn erfið

Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að í ljósi allra aðstæðna hafi frestun landsfundar og tillaga um kosningar 9. maí verið það eina rétta.

Stjórnarslit voru tíð

„Það var mun eðlilegra áður fyrr að stjórnir sætu ekki út kjörtímabilið. Fyrir 1988 er það eiginlega bara Viðreisnarstjórnin sem svo gerir," segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur.

Fylgi Samfylkingar hrynur

Fylgi Samfylkingar hrynur í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Einungis 19,2 prósent segjast styðja flokkinn og hefur fylgið ekki verið minna í tvö ár.

Þrjú hundruð verið tilnefnd

Hátt í þrjú hundruð tilnefningar hafa borist vegna samfélagsverðlauna Fréttablaðsins sem veitt verða þann 5. mars.

Ný slökkvistöð sé í Seljahverfi

Hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er nú til skoðunar ný lóð fyrir slökkvistöð í stað umdeildrar staðsetningar við Stekkjarbakka í Elliðaárdal. Stekkjarbakki er talinn ákjósanlegur fyrir byggingu nýrrar slökkvistöðvar en þessari hugmynd mótmæla þó bæði íbúar í næsta nágrenni og aðrir unnendur útvistarsvæðisins í Elliðaárdal.

Spyr um þinghald

„Ég tel þörf á því að forystumenn allra flokka verði nú kallaðir saman hið fyrsta,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. „Það þarf að ákveða hvaða mál á að fara með í gegnum þingið áður en því verður slitið og menn hefja sína kosningabaráttu.

Kosningar geta lengt kreppuna um tvö ár

Eins og öðrum var Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins, brugðið eftir tíðindin sem Geir H. Haarde færði samflokksmönnum sínum í Valhöll í gær. „Ég er slegin yfir þessum tíðindum og get ekki hugsað um annað að svo stöddu,“ sagði Þorgerður við fréttamenn í Valhöll í gær.

Systkini skölluðu og bitu varðstjóra

Systkini voru dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í gær fyrir að hafa ráðist á varðstjóra lögreglu á lögreglustöð. Fólkið skallaði og beit lögregluþjóninn.

Mörg mál eru enn ókláruð

„Kosningar voru svo sem komnar á sjónarsviðið með einum eða öðrum hætti. Aðalatriðið er að út úr því ferli öllu komi einhver vilji og geta til að taka framtíðar-ákvarðanir, sem skila þjóðinni áfram en ekki aftur á bak,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Ingólfur köttur enn ófundinn

„Við höfum ekki enn fundið Ingólf, en höfum fengið fjöldann allan af vísbendingum frá fólki sem telur sig hafa séð hann,“ segir Phillip Krah, eigandi kattarins Ingólfs sem týndist þegar íbúð sem Phillip bjó í ásamt unnustu sinni og vini varð eldi að bráð í byrjun mánaðarins.

Þriðjungur að eyða fóstri á ný

Þriðjungur þeirra kvenna á Íslandi sem fór í fóstureyðingu á árinu 2007 hafði áður látið eyða fóstri. Þetta kemur fram í tölum frá Landlæknisembættinu.

Vilja fresta endurskoðun

Formenn aðildarfélaga ASÍ ræddu á fundi í gær að fresta endurskoðun kjarasamninga fram á vor. Vinnuveitendur vilja segja upp samningnum eða fresta hækkunum fram undir lok samningstímabilsins. Ákvörðun verður tekin í febrúar.

Þyrla sækir slasaða konu

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld til þess að sækja slasaða konu í sumarbústað austan við Gunnarsholt á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum mun konan hafa hrasað með þeim afleiðingum að hún brotnaði á öxl og handlegg. Útkallið barst um klukkan hálfníu og er búist við þyrlunni til baka fyrir klukkan hálfellefu.

Enn mótmælt á Austurvelli en á friðsamlegum nótum

Um 40 manns eru nú saman komin á Austurvelli þar sem trommur og pottar eru barðir taktfast og kallað er eftir því að ríkisstjórnin fari frá. Allt er með friði og spekt og lögregla er hvergi sjáanleg. Skilaboð forystumanna ríkisstjórnar um að boða skuli til kosninga hafa því ekki dregið tennurnar úr mótmælendum sem ætla ekki að láta deigann síga og tromma sem aldrei fyrr við Alþingishúsið.

Aldrei fleiri á skólabekk í HÍ

Aldrei hafa fleiri nemendur verið við nám í Háskóla Íslands en nú um áramótin settust 1,410 nýir nemendur á skólabekk í hinum ýmsu deildum Háskólans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HÍ þar en 650 nemendur hefja grunnám og 760 hefja framhaldsnám. Allir þessir nemendur hafa staðfest nám sitt með greiðslu skráningargjalds.

Raddir fólksins þagna ekki

Raddir fólksins, sem staðið hafa fyrir mótmælum undanfarna laugardaga á Austurvelli láta ekki deigan síga þrátt fyrir að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi boðað kosningar í vor. Sextándi mótmælafundur Radda fólksins verður haldinn á Austurvelli laugardaginn 24. janúar næstkomandi og hefst hann klukkan þrjú.

Ferill Geirs H. Haarde

Geir H. Haarde er tuttugasti og sjötti maðurinn sem gengt hefur embætti forsætisráðherra og hefur setið í embætti í þrjátíu og einn mánuð.

Fjórir stjórnmálaforingjar með krabbamein

Það má heita furðuleg tilviljun að þeir stjórnmálaforingjar, sem mynduðu og leiddu tvær síðustu ríkisstjórnir, hafa allir greinst með æxli, ýmist góðkynja eða illkynja.

Fimmtán tilfelli á ári

Um fimmtán tilfelli greinast árlega hérlendis af krabbameini í vélinda en Geir Haarde tilkynnti í dag að hann væri með mein af því tagi.

Mótmælin auka ekki ferðamannastraum til Íslands

Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins bendir á að á síðustu sex árum hafa fjórir formenn stjórnmálaflokka á Íslandi greinst með krabbamein. Það eru þau Halldór Ásgrímsson, Davíð Oddsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde. Þetta kemur fram á bloggsíða Gísla sem segir þetta ótrúlega háa hlutfall segja sína sögu um álagið sem þetta fólk er undir.

Þorgerður harmi slegin

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, var harmi sleginn þegar að fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis náði tali af henni eftir fund miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokksins í dag. Hún sagðist vera slegin yfir tíðindum af veikindum Geirs og að hugur hennar væri hjá honum þessa stundinda. Aðspurð sagðist hún ekki útiloka framboð til formanns flokksins á landsfundi í mars.

Sjá næstu 50 fréttir