Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lýsing svarar fyrir sig Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem ásökunum viðskiptavina þeirra er svarað. Í morgun hittu forsvarsmenn Lýsingar nokkra vörubílstjóra á fundi sem vildu mótmæla innheimtuaðgerðum fyrirtækisins. 8.12.2008 16:25
Ingibjörg vill lögbann á Club 101 „Við erum ekkert hræddir við Ingibjörgu Pálma,“ segir Anton Þórarinsson einn eigenda skemmtistaðarins Club 101. Lögmenn 101 hótels hafa sent aðstandendum staðarins bréf þar sem farið er fram á að þeir breyti merki sínu. Það segir Anton ekki koma til greina. 8.12.2008 16:10
Sjö handteknir - átökum lokið Lögregla hefur komið fólkinu út úr Alþingishúsinu sem efndi þar til mótmæla klukkan þrjú. Að minnsta kosti sjö hafa verið handteknir en öðrum sem höfðust við inni í anddyri hússins hefur verið sleppt. Einn mótmælendanna var borinn út af lögreglumönnum í hlekkjum og öskraði hann „fasistar!“ áður en hann var lokaður inni í lögreglubíl. 8.12.2008 15:54
Átök í þinghúsinu: „Drullið ykkur út!“ Þingfundi sem hófst nú klukkan þrjú var frestað þegar skammt var liðið á fundinn þegar mótmælendur á þingpöllum upphófu háreysti. Þegar Siv Friðleifsdóttir alþingismaður var að bera upp fyrirspurn til fjármálaráðherra heyrðist kallað ofan af þingpöllum: „Út, út, drullið ykkur út!“ Síðan upphófust slagsmál á milli um 20 til 30 grímuklæddra manna og þingvarða. 8.12.2008 15:10
Fyrrum sveitarstjóri dæmdur í 18 mánaða fangelsi Brynjólfur Árnason fyrrverandi sveitarstjóri í Grímseyjarhreppi var í dag dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik og fjárdrátt. Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi hann einnig til að greiða Grímseyjarhreppi 13,7 milljónir króna í bætur auk 460 þúsund króna í sakarkostnað. 8.12.2008 15:03
Hagkaup innkallar gölluð kerti Hagkaup hefur innkallað, vegna galla, kertalínu sem fengist hefur í verslunum fyrirtækisins frá því í október 2008. Um er að ræða sex gerðir kerta í þremur litum; gyllt, silfruð og rauð. Yfirborð kertanna er eins og alsett litlum kúlum með glimmer-áferð. 8.12.2008 14:48
Eldur í húsi á Reyðarfirði Slökkvilið Fjarðabyggðar var kallað að parhúsi við Stekkjargrund á Reyðarfirði um klukkan hálf fimm í nótt. Í tilkynningu frá slökkviliði segir að nágrannar hafi orðið varir við eld í íbúð og kallað til slökkvilið. 8.12.2008 14:41
Hækkun efnisliða í byggingarvísitölu ekki meiri í 18 ár Hækkun á efnisliðum í vísitölu byggingarkostnaðar hækkaði um 41,4 prósent og hefur hækkun á þeim liðum vísitölunnar ekki verið jafn mikil síðan á árunum 1989 til 1990. Þetta kemur fram í Hagtíðindum hagstofunnar. 8.12.2008 14:18
Borgarfulltrúar VG kalla oftast inn varamenn Borgarfulltrúar Vinstri grænna hafa oftast kallað inn varamenn fyrir sig á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári ef miðað er við fjölda þeirra í borgarstjórn. 8.12.2008 14:09
Slökkvilið kallað að húsi á Njálsgötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú að störfum á Njálsgötu þar sem tilkynnt var um reyk í íbúð. Enginn eldur er í húsinu og liggur ekki fyrir að svo stöddu hvort tekist hafi að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á staðinn eða hvort aðeins hafi verið um reyk að ræða. 8.12.2008 13:19
Klukkan á Lækjartorgi snýr aftur Klukkan á Lækjartorgi er eitt af þekktari kennileitum Reykjavíkur. Hún var tekin niður í byrjun nóvember og sett í viðgerð eftir að ekið var á klukkuna í sumar með þeim afleiðingum að hún stöðvaðist. 8.12.2008 12:31
Helmingur telur mótmælafundi endurspegla afstöðu þjóðarinnar Rúmlega helmingur þjóðarinnar telur að mótmæla- og borgarafundir endurspegli viðhorf hennar. Alls telja 55,4% svarenda í skoðanakönnun MMR að boðskapur mótmæla- og borgarafunda undanfarinna vikna endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar. 8.12.2008 12:09
Hanna Birna mætir best en Sigrún Elsa verst Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur mætt verst allra borgarfulltrúa á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári. 8.12.2008 12:00
Vilja aðskilja veiðar og vinnslu Sjómannasamband Íslands krefst þess að sett verði lög um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu svo útvegsfyrirtæki geti ekki í krafit einokunar, ráðið fiskverði til sjómanna. 8.12.2008 11:56
Öll olíufélögin búin að lækka verð Olíufélögin hafa öll lækkað verð hjá sér í dag. N-1 reið á vaðið og lækkaði bensínlítrann um tvær krónur og dísillítrann um þrjár krónur. Þetta er fjórða lækkunin hjá félaginu á einni viku og hefur bensínlítrinn lækkað um 41 krónu og dísillítrinn um 36 krónur frá því í byrjun október, þegar verðið var í hámarki. 8.12.2008 11:46
Grunur um salmonellu í kjúklingum Grunur leikur á að salmonellusmit sé komið upp í ferskum kjúklingum frá Matfugli ehf, og hefur dreifing á vörunni verið stöðvuð. Þá er innköllunn vörunar úr verslunum þegar hafin. Um er að ræða kjúklinga með rekjanleikanúmerinu 011-08-44-533. 8.12.2008 11:45
Enn ein eldsneytislækkunin Eldsneytisverð á Íslandi hefur farið hríðlækkandi síðustu vikur og í morgun lækkaði N1 verð hjá sér. Lítri af bensíni lækkar um 2 krónur og lítri af dísilolíu lækkar um 3 krónur. 8.12.2008 11:07
Allir vilja keyra strætó Tugir bílstjóra eru nú að biðlista eftir að fá að aka strætó, en ekki þarf að fara lengra aftur en til síðastliðins sumars, að það var með naumindum að hægt væri að halda uppi akstri á öllum leiðum vegna mannekklu. 8.12.2008 11:03
Vörubílstjórar óánægðir með vinnubrögð Lýsingar Nokkrir Vörubílstjórar sitja nú á fundi með forstjóra Lýsingar en þeir eru óánægðir með aðferðir fyrirtækisins þegar kemur að því að meta verð á bíl eða vinnutæki sem menn eru að gefast upp á að borga af. 8.12.2008 10:38
Lá dáinn í margar vikur Einstæður karlmaður á sextugsaldri fannst látinn á heimili sínu í Gaukshólum í Breiðholti í síðustu viku. Maðurinn hafði þá legið dáinn í margar vikur. DV greinir frá málinu í dag. 8.12.2008 09:58
Mótmælendur hittust á Arnarhóli í morgun Hópur mótmælenda kom saman eldsnemma á Arnarhóli í morgun. Að sögn lögreglu var fylgst með hópnum en engin afskipti af honum höfð enda ekki ljóst hvað þeim gekk til. Lögregla segir að um 20 til 30 manns hafi verið að ræða og var hann á ferðinni um miðbæinn í einhvern tíma. 8.12.2008 09:51
Eldur í mannlausu raðhúsi á Reyðarfirði Nýlegt raðhús á Reyðarfirði, sem ekki er búið í, skemmdist talsvert í eldi sem kviknaði þar um klukkan fjögur í nótt. Reykskynjari gerði nágrönnum viðvart, sem kölluðu á slökkvilið. 8.12.2008 07:17
Ölvaður á göngugrind Roskinn Akureyringur saknar sárt göngugrindar sinnar, sem hann týndi einhvers staðar í Lundahverfinu nýverið. Þegar lögregla kom honum til aðstoðar fannst grindin hvergi og hann rak ekki minni til hvar hann hafði glatað henni, enda vel við skál. 8.12.2008 07:13
Eldur í íbúð við Stigahlíð Maður var fluttur á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í íbúð hans í fjölbýlishúsi við Stigahlíð í Reykjavík laust fyrir miðnætti. Hann var einn í íbúðinni og mun vera á batavegi. 8.12.2008 07:11
Innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur Brotist var inn í fyrirtæki í Hafnarfirði í nótt og fór þjófavarnakerfi í gang. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að þjófurinn var búinn að tína saman talsvert af verkfærum og öðrum verðmætum, en hann var hvergi að sjá. 8.12.2008 07:06
Eldur í Stigahlíð - 1 á slysadeild Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kviknaði í íbúð í Stigahlíð 26 í Reykjavík á tólfta tímanum í kvöld. Innan við tíu mínútur tók að slökkva eldinn, sem var ekki mikill að sögn slökkviliðsins. Einhverjar skemmdir urðu á íbúðinni vegna reyks. 7.12.2008 23:53
Segist sjálfur hafa lagt fram bókunina gegn Davíð Össur Skarphéðinsson upplýsti í fyrsta skipti að hann sjálfur hefði lagt fram bókun á Ríkisstjórnarfundi sem snéri að því að Davíð Oddsson starfaði ekki í umboði Samfylkingarinnar. Þetta sagði hann í Mannamáli á Stöð 2 í kvöld. Hann sagði einnig að Samfylkingin hefði komið í veg fyrir að Davíð yrði í forystu nokkurskonar neyðarráðs sem átti að halda utan um björgunaraðgerðirnar í efnahagslífinu. 7.12.2008 19:42
Borgarafundur í Háskólabíó annað kvöld Aðstandandendur Borgarafundanna svokölluðu skora á forystumenn verkalýðsfélaga og lífeyrissjóða, Viðskiptaráðherra og Félagsmálaráðherra til að mæta og svara spurningum milliliðalaust. Auk þess er skorað á alla ráðherra og þingmenn að mæta og hluta á sitt fólk. 7.12.2008 20:46
Ótti getur skýrt gott fylgi Vg Doktor í sálfræði segir að ótti geti haft áhrif á hvaða stjórnmálaflokk fólk styður. Fólk kýs frekar íhaldssama flokka þegar það er hrætt og það geti mögulega útskýrt gott fylgi Vinstri grænna um þessar mundir. 7.12.2008 19:00
Biskup vígði Guðríðarkirkju í Grafarholti Altaristafla hinna nýju Guðríðarkirkju, sem biskup Íslands vígði í Grafarholti í Reykjavík í dag, er ekki inni í kirkjunni heldur utanhúss og virða kirkjugestir hana fyrir sér í gegnum risastóran glugga. 7.12.2008 19:00
Vill hefja hvalveiðar að nýju Við eigum að hefja hvalveiðar að nýju, segir sjávarútvegsráðherra. Óeining er meðal stjórnarflokkanna um málið. 7.12.2008 18:35
MIsnotkun á lýðræðinu að boða ekki til kosninga Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði á aukaflokksráðsfundi í dag að það væri misnotkun á lýðræðinu að boða ekki til kosninga. 7.12.2008 18:32
Fékk viðurkenningu frá Junior Chamber Þrír ungir Íslendingar voru heiðraðir af Junior Chamber hreyfingunni á íslandi í gærkvöldi fyrir framúrskarandi störf og árangur í móttöku sem haldin var þeim til heiðurs í Kópavogi. 7.12.2008 17:07
Ekki enn búin að ákveða sig Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins segist ánægð með að komnir séu fram kandídatar sem gefa kost á sér til forystu í flokknum. Hún segir flokksþing þó ekki vera fyrr en í janúar og hún muni tilkynna um sína ákvörðun þegar fram líða stundir. 7.12.2008 15:41
Öryggi vegfarenda um fáfarna þjóðvegi batnar Öryggi vegfarenda um fáfarna þjóðvegi á sunnanverðu Vestfjörðum batnaði til muna í dag þegar lokið var við að tengja GSM senda Vodafone á Klettshálsi, Kleifaheiði og Hjallahálsi. Þetta kemur fram á fréttavef Patreksfirðinga. Einnig var kveikt á Tetra sendum á Klettshálsi og Kleifaheiði sem mun styrkja samband á dauðum svæðum á þessum vegarköflum. 7.12.2008 15:00
Rektor Hí ræðir við kínversk skólayfirvöld Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur þegið boð kínverskra stjórnvalda sem fara með málefni Konfúsíusarstofnana víða um heim, um að sækja alþjóðlega ráðstefnu Konfúsíusarstofnana í Beijing í vikunni. Kristín, sem hélt utan nú um helgina, 7.12.2008 14:28
Ítreka andstöðu sína við aðild að Evrópusambandinu Vinstri grænir ítreka andstöðu sína við aðild Íslands að Evrópusambandinu og telja hagsmunum landsins best borgið utan sambandsins. 7.12.2008 13:59
Týndur páfagaukur í Breiðholti Sóley Baldursdóttir, ung stúlka í Rituhólum í Reykjavík hafði samband við Vísi fyrir stundu. Sóley fann páfagauk fyrir utan hjá sér um kvöldmatarleytið í gærkvöldi og leitar nú eigandans. Um er að ræða bláan og hvítan gára sem er með dökkbláabletti sitthvorum megin við gogginn. 7.12.2008 13:53
Skylmast með kústsköftum í Dýrafirði Æfingar í skylmingum og almennu vopnaskaki eru hafnar í reiðhöll á Söndum í Dýrafirði, skammt utan við Þingeyri. 7.12.2008 13:22
Menn skilja ekki hugtakið pólitísk ábyrgð Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur var gestur í Silfir Egils í dag. Þar talaði hann um pólitíska ábyrgð og hélt því fram að menn myndu ekki skilja hugtakið. Hann sagði bankamálaráðherra bera ábyrgð á hruni bankakerfisins. 7.12.2008 13:20
Sala á hvalkjöti í Japan breytir ekki afstöðu umhverfisráðherra Sala á hvalkjöti í Japan breytir ekki afstöðu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um að með hvalveiðum væru Íslendingar að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. 7.12.2008 10:15
Ófært á Vestfjörðum Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum líkt og víðast hvar á Suður- og Vesturlandi. Á Vestfjörðum eru Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði ófærar en hálka eða snjóþekja á öðrum leiðum. 7.12.2008 10:05
Tekinn með fíkniefni og þýfi í Borgarnesi Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann sem var á ferðinni í nótt. Maðurinn var grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna og við nánari athugun kom í ljós að hann hafði einnig fíkniefni undir höndum og ætlað þýfi. 7.12.2008 09:56
Opin skíðasvæði og fínt veður Skíðasvæðið í Tindastól og Siglufirði verða opin til klukkan 17:00 í dag. Á báðum stöðum er fínt veður og gott færi. 7.12.2008 09:40
6 gistu fangageymslur í nótt Það var rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 6 gistu þó fangageymslur sem er álíka mikið og í miðri viku að sögn lögreglu. Ástandið var fínt í miðbænum þó eitthvað hafi verið um minniháttar pústra. 7.12.2008 09:37