Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hópur fólks úr atvinnulífinu setur fram Nóvemberáskorunina Hópur fólks úr ólíkum kimum atvinnulífsins og með ólíkan bakgrunn í stjórnmálum hefur sent áskorun til íslenskra stjórnvalda þar sem krafist er brýnna aðgerða í efnahagsmálum og utanríkismálum í ljósi þeirrar afar erfiðu stöðu sem komin er upp í íslensku samfélagi. 6.11.2008 17:40
Ólíklegt að Bretar og Hollendingar geti stöðvað umsókn Íslands Ólíklegt verður að teljast að Bretar og Hollendingar geti stöðva umsókn Íslendinga um lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að mati Ólafs Ísleifssonar hagfræðings og fyrrverandi aðalfulltrúi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 6.11.2008 17:32
Átta mánaða dómur fyrir skjalafals Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir að hafa selt Landsbankanum tryggingarbréf og víxil að upphæð samtals fjórar milljónir króna en hann hafði falsað undirskrift konu á þau. 6.11.2008 17:29
Bið eftir viðbótarfjármögnun tefur IMF umsóknina Geir Haarde forsætisráðherra segir ástæðuna fyrir því að dregist hafi að taka ákvörðun í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lán til Íslendinga sé sú að ekki sé búið að klára þá viðbótarfjármögnun sem talað hefur verið um. „Þá erum við fyrst og fremst að tala um fjármögnun frá Norðulöndunum sem getur verið í formi lána eða gjaldeyrisskiptasamninga. Þetta er ástæðan fyrir því að þetta er að dragast hjá IMF,“ segir Geir í samtali við Vísi. Hann segir þó ljóst að ákveðnar þjóðir vilji tengja Icesave málið við umsókn Íslendinga. 6.11.2008 17:00
Krafa um launaleiðréttingu Lofts aftur í hérað Hæstiréttur hefur vísað heim í hérað til endurmeðferðar máli Lofts Jóhannssonar, formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra, á hendur ríkinu vegna leiðréttingar á launum. 6.11.2008 16:59
Vísaði frá máli jarðeiganda vegna Urriðafossvirkjunar Hæstiréttur hefur staðfest frávísun Hérasdóms Reykjavíkur á þrautaþrautavarakröfu jarðeiganda við Þjórsá sem vildi að staðfest yrði með dómi að eignarréttur ríkisins á vatnsréttindum í Þjórsá í landi Skálmsholtshrauns væri niðurfallinn. 6.11.2008 16:54
Austurrískur gleraugnasali setur Brown út í glugga ,Ég er algjörlega á móti því hvernig Brown hefur hagað sér gagnvart Íslendingum og mér fannst orðið tímabært að eitthvað sýnilegt væri gert," segir Markus Klinger gleraugnasali sem rekur verslunina Sjón á Laugavegi og í Glæsibæ. 6.11.2008 16:44
Sýknaður af ákæru um nauðgun Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm yfir karlmanni vegna ákæru um kynferðisbrot gegn konu. 6.11.2008 16:43
Björk: Kreppan engin afsökun Björk Guðmundsdóttir sagði á blaðamannafundi í Brussel í dag að efnahagskreppan mætti ekki verða Íslendingum skálkaskjól til að auka losun gróðurhúsalofttegunda. 6.11.2008 15:55
Enginn ómálefnalegur launamunur á milli kynja hjá borginni Enginn ómálefnalegur launamunur á milli kynja reyndist í dagvinnulaunum starfsmanna Reykjavíkurborgar í fyrra samkvæmt nýrri úttekt á launamun kynjanna sem kynnt var í borgarráði í dag. 6.11.2008 15:54
Hafa staðið sig vel í halda yfirgefnum húsum lokuðum Eigendur auðra bygginga í miðborg Reykjavíkur hafa staðið sig vel í að halda þeim lokuðum frá því að slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hóf sérstakt átak í að fylgjast með þeim. 6.11.2008 15:41
Birgir ráðinn fjármálastjóri borgarinnar Birgir Björn Sigurjónsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn fjármálastjóri Reykjavíkurborgar. Ráðning hans var samþykkt einróma á fundi borgarráðs í morgun. 6.11.2008 15:38
Miklar hækkanir á matarkörfunni á milli mánaða Miklar hækkanir voru á vörukörfu ASÍ á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í september og október. 6.11.2008 15:15
Aðildarviðræður gætu tekið innan við hálft ár Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, telur að aðildarviðræður við Evrópusambandið gætu tekið nokkra mánuði. Þetta kom fram á hádegisfundi Framsóknarflokksins um þjóðaratkvæðagreiðslur og stjórnarskrána en þar var Eiríkur með framsögu. 6.11.2008 15:05
Fullyrðingar AP fréttastofunnar rangar Fullyrðingar AP fréttastofunnar um að búið sé að afgreiða lánsumsókn Íslendinga um 2,1 milljarð bandaríkjadala eru ekki réttar, að sögn Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarmanns Geirs Haarde. 6.11.2008 15:03
Fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera á varðbergi og láta vita um grunsamlegar mannaferðir, ekki síst í íbúðahverfum. 6.11.2008 15:01
AP segir IMF-lánið í höfn Fullyrt er af fréttastofunni AP að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi samþykkt í gær að lána íslendingum 2,1 millarð dollara. Þetta er þvert á ummæli Geirs H. Haarde sem féllu á Alþingi í dag en þar sagði hann að ákvörðun sjóðsins hefði verið frestað fram á mánudag í næstu viku. 6.11.2008 14:41
Fyrirmunað að skilja hvers vegna bankarnir geti ekki farið leið ÍLS Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir mikilvægt að gefa fólki kost á því að flytja fasteignalán sín úr bönkunum í Íbúðalánasjóð en segir ekki liggja fyrir hvenær slíkt verði hægt. Hún segir jafnframt að sér sé fyrirmunað að skilja hvers vegna ríkisbankarnir geti ekki farið sömu leiðir og Íbúðalánasjóður gagnvart þeim sem eiga í erfiðleikum með sín íbúðalán. 6.11.2008 14:37
Stálu skjávörpum úr Grandaskóla Óprúttnir menn brutust inn í Grandaskóla í Reykjavík fyrr í vikunni og stálu þaðan tveimur skjávörpum. „Þeir hafa ekki fundist, ekki mér vitanlega,” segir Inga Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri í Grandaskóla. 6.11.2008 14:08
Vg leggur fram frumvarp um breytingar á eftirlaunalögum Þingflokkur Vinstri- grænna hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að afnema sérréttindi æðstu embættismanna sem kveðið er á um í hinum umdeildu eftirlaunalögum. 6.11.2008 13:49
Áfengisverð - hið sanna lögmál Fréttir af 5,25 prósenta meðaltalshækkun á vörum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins um nýliðin mánaðamót segja ef til vill takmarkaða sögu. Einhverjir höfðu haft spurnir af allt að 25 prósenta hækkun og til að hafa vaðið fyrir neðan sig drifu menn sig í ríkið á föstudaginn og þegar upp var staðið slagaði velta dagsins hátt í 400 milljónir króna. 6.11.2008 13:47
Sektaður fyrir að skalla annan mann Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sektað karlmann um 60 þúsund krónur fyrir aðhafa skallað annan mann í andlitið á skemmistaðnum Græna hattinum á Akureyri í september í fyrra. 6.11.2008 13:23
Borgarstjóri heimsótti Réttarholtsskóla á forvarnardeginum Forvarnardagurinn er nú haldinn í þriðja sinn, undir kjörorðinu „Taktu þátt! Hvert ár skiptir máli“. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri heimsótti Réttarholtsskóla í morgun, 6.11.2008 13:17
Obama byrjaður að velja í stjórn Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, er þegar byrjaður að velja í stjórn og starfslið sitt. Hann hefur boðið Rahm Emanuel, fulltrúadeildarþingmanni og fyrrverandi ráðgjafa Bills Clintons, að verða starfsmannastjóri sinn. Búist er við að Obama vilji skipa nýjan fjármálaráðherra hið fyrsta en að hann biðji Robert Gates að gegna áfram embætti varnarmálaráðherra. 6.11.2008 12:53
Sækist eftir að stýra Kaupþingi aftur Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, segist munu sækjast eftir því að vera áfram í starfinu, en formaður fjárlaganefndar Alþingis telur að bankastjórar nýju ríkisbankanna hljóti að vera ráðnir tímabundið þar sem störfin hafi ekki verið auglýst enn. 6.11.2008 12:46
Ríkisstjórnin krafin svara á Alþingi - Unnið gegn atvinnuleysi, segir ráðherra Ríkisstjórnin var spurð á því á Alþingi í dag hvað hún ætlaði að geta til að koma í veg fyrir að fólk lenti í greiðsluerfiðleikum og missti jafnvel heimili sín. Forsætisráðherra sagði megináherslu lagða á að koma í veg fyrir mikið og langvarandi atvinnuleysi. 6.11.2008 12:29
Ákvörðun IMF frestað fram á mánudag Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eða IMF, mun fresta því fram á mánudag að taka fyrir beiðni Íslands um 2 milljarða dala lán frá sjóðnum. Þetta sagði Geir Haarde forsætisráðherra í ræðu sinni á Alþingi fyrir stundu. 6.11.2008 12:05
Gera ráð fyrir helmingslækkun húsnæðisverðs Á þriðja fjórðungi ársins lækkaði húsnæðisverð á milli ára að nafnvirði í fyrsta skipti frá árinu 1997. Seðlabankinn spáir því að húsnæðisverð haldi áfram að lækka í kjölfar þess að eftirspurn eftir húsnæði dalar vegna fjármálakreppunnar, kaupmáttur rýrnar, framboð lánsfjár dregst saman og erlendir starfsmenn flytja af landi brott. 6.11.2008 11:52
Neyðarstjórn býður þingmönnum á námskeið Hópur sem kallar sig Neyðarstjórn kvenna hefur boðið öllum þingmönnum og fulltrúum í Jafnréttisráði á námskeið í samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða. 6.11.2008 11:28
Seðlabankinn gerir ráð fyrir 10% atvinnuleysi í lok næsta árs Reiknað er með að verðbólga fari í 20% í byrjun næsta árs, en hún mældist 15,9% í október. Þetta segir í Peningamálum Seðlabankans, sem kom út í dag. 6.11.2008 11:09
Fundu fíkniefni á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók í gærkvöldi tvo karlmenn á þrítugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli og reyndust þeir hafa smáræði af kannabisefni í fórum sínum. 6.11.2008 11:06
Löggan vill endurskinsmerki Nú þegar svartasta skammdegið er að skella á þykir lögreglunni rétt að minna á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. 6.11.2008 11:04
Stúlkurnar eru fundnar Stúlkurnar sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í morgun, þær Natalía Rós Jósepsdóttir og Sigurbjörg Júlía Stefánsdóttir, eru fundnar. Að sögn lögreglu eru þær í Mosfellsbæ. 6.11.2008 11:04
Hugsanlegt að Icesave-deila hafi áhrif á niðurstöðu IMF Hugsanlegt er að deilan við Breta og Hollendinga um Icesave-reikninga Landsbankans hafi áhrif á niðurstöðu stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lán til Íslendinga. Þetta sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. 6.11.2008 10:53
Afskriftir á Kaupþingslánum - Fráleitt að tala um refsiverð brot Það er óviðeigandi að yfirmaður ákæruvalds sé að velta því fyrir sér opinberlega hvort hinir eða þessir séu sekir um eitthvað. Þetta segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður um viðtal við Helga Magnús Gunnarsson í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. 6.11.2008 10:53
Gagnrýnir verðhækkanir ríkisins á mjólk og áfengi ,,Ríkið fer ekki undan með fordæmi. Það er alveg á hreinu," segir Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri Hagkaupa þegar hann gagnrýnir nýlegar verðhækkanir ríkisins á mjólkurvörum og áfengi. 6.11.2008 10:52
Sænsku kjötbollurnar hækka ekki Verð á sænskum kjötbollum, kryddbökuðum laxi, morgunrúnnstykkjum, grænmetisbuffum og fleira gotteríi í veitingastað IKEA hækkar ekki að sinni, þó vöruverð í versluninni hækki um 25% að meðaltali á næstu dögum. 6.11.2008 10:49
Ikea hækkar um 25% Frá og með deginum í dag hækkar verð í IKEA um 25% að meðaltali. Þetta er í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins sem fallið er frá þeirri reglu að vöruverð sé ekki hækkað á gildistíma IKEA-bæklingsins, það er frá 1. september til 15. ágúst ár hvert. 6.11.2008 09:44
Tuttugu milljónir úr neyðarsjóði til að aðstoða fólk fyrir jólin Stjórn Rauða kross Íslands hefur samþykkt að veita 20 milljónir króna úr neyðarsjóði félagsins til að aðstoða einstaklinga hér á landi í desember. 6.11.2008 09:13
Óbreyttir stýrivextir hjá Seðlabankanum Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 18 prósentum en hefðbundinn vaxtaákvörðunardagur er í dag. 6.11.2008 09:00
Sagði niðurfellinguna í Kaupþingi standast lög Helgi Sigurðsson, aðallögmaður og ritari stjórnar Gamla Kaupþings, gaf stjórnarmönnum það lögfræðilega álit á stjórnarfundi 25. september síðastliðinn, að það stæðist lög að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna bankans vegna lána, sem þeir tóku til að kaupa hlutafé í bankanum. 6.11.2008 07:19
Tekinn á yfir 200 kílómetra hraða Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann, eftir að hann hafði mælst á yfir 200 kílómetra hraða á Eyrarbakkavegi í gær, í kappakstri við annan. 6.11.2008 07:15
Gripnir við innbrot í gáma Lögreglumenn stóðu tvo menn að verki í Miðhrauni í Hafnarfirði í nótt, þar sem þeir voru búnir að brjótast inn í fjóra gáma og voru í óða önn að selflytja varning úr þeim yfir í sendiferðabíl, sem þeir voru á. 6.11.2008 07:13
ASÍ vill rannsókn kaupréttarsamninga Alþýðusamband Íslands leggur þunga áherslu á að kaupréttarsamningar æðstu stjórnenda í bönkum og fjármálastofnunum verði rannsakaðir ofan í kjölinn og hið sanna dregið fram í dagsljósið. 6.11.2008 07:09
Sex síldveiðiskip á miðum út af Stykkishólmi Sex síldveiðiskip eru nú komin á miðin út af Stykkishólmi og fleiri á leiðinni eftir brælu, sem verið hefur á svæðinu. 6.11.2008 07:06