Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Háskólinn á Akureyri innritar ekki nemendur í tölvunarfræði í ár Ekki verða innritaðir nemendur á fyrsta ár í tölvunarfræði við skólann í ár, veturinn 2008 til 2009. Verður öllum sex kennurum við tölvunarfræði sagt upp störfum. Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti þetta á fundi sínum í gær. 22.8.2008 13:04
Björn Ingi og Vilhjálmur hefðu átt að greiða skatt af veiðiferðinni Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefðu átt að greiða skatt vegna veiðiferðarinnar sem þeir fóru ásamt Hauki Leóssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni í ágúst í fyrra. Þetta er mat skattalögfræðings sem Vísir ræddi við. 22.8.2008 12:36
Umferðarþungi stendur í stað milli ára Umferðarþungi í Reykjavík eykst ekki milli ára ólíkt því sem tíðkast hefur undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg og má lesa um í tölum Bjargar Helgadóttur sem hefur umsjón með umferðarmælingunum og hefur borið saman annatíma í umferðinni sumarið 2008 og sumarið 2007. 22.8.2008 11:52
Mjög ánægð að fá Paul Ramses aftur Rosemary Athieno, kona Paul Ramses er mjög ánægð að taka eigi umsókn eiginmanns hennar aftur fyrir á Íslandi. „ Ég er mjög, mjög glöð," segir Rosemary sem var nýbúin að heyra fréttirnar frá Katrínu Theódórsdóttur, lögmanni Ramses. Hún var hins vegar ekki enn búin að heyra frá eiginmanni sínum. 22.8.2008 11:47
Krimmi á flótta festist í gaddavír Karl á fertugsaldri var handtekinn í Háaleitishverfi í gærkvöld en sá var með ýmsar tegundir af fíkniefnum í fórum sínum. Maðurinn reyndi að komast undan þegar lögreglan kom á vettvang og tók til fótanna en var hlaupinn uppi af fótfráum laganna vörðum. 22.8.2008 11:47
Sjónarmið mannúðar og réttlætis fá að njóta sín Katrín Theódórsdóttir, lögmaður Paul Ramses, segir fulla ástæðu til að þakka dómsmálaráðherra og öðrum íslenskum stjórnvöldum fyrir að hafa tekið jákvæða ákvörðun í máli flóttamannsins Ramsesar. Hún segir að í meginatriðum sé niðurstaða dómsmálaráðherra í samræmi við óskir sínar þannig að beiðni hans um hæli verður tekin fyrir að nýju. 22.8.2008 11:30
Forsetinn hitti kollega sinn í Kína Ólafur Ragnar Grímsson, forseti í Íslands, fundaði í morgun með kínverska kollega sínum, Hu Jintao. Í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni segie að fundurinn hafi verið árangursríkur en Jintao þakkaði meðal annars Íslendingum auðsýnda samúð þegar jarðkjálftar riðu yfir á dögunum með skelfilegum afleiðingum. 22.8.2008 10:10
Mál Ramses skoðað á ný Umsókn Pauls Ramses Odour um hæli hér á landi verður tekin til umfjöllunar samkvæmt úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Ramses var vísað úr landi í júlí síðastliðnum. Þá kærði hann þá ákvörðun Útlendingastofnunar að hafna því að taka til meðferðar beiðni hans um hæli. 22.8.2008 10:05
Þyrla notuð við hálendiseftirlit Lögreglan á Hvolsvelli ætlar að halda uppi öflugu hálendiseftirliti um helgina með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Sérstaklega verður fylgst með utanvegaakstri, sem nokkuð hefur borið á í sumar, en jafnframt verður fylgst með gæsaveiðimönnum og ástandi ökumanna almennt. 22.8.2008 08:49
Milljónatjón í Korngörðum Talið er að tjónið sem varð í eldi í Korngörðum við Sundahöfn í Reykjavík í gærkvöldi, nemi mörgum milljónum króna. Eldsins varð vart um klukkan hálf sex og var slökkvistarfi ekki lokið fyrr en um klukkan átta. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá loftpressum. Aðstæður til slökkvistarfs voru hættulegar, en allt fór á besta veg. 22.8.2008 08:45
Skólasetning í dag Skólahald í grunnskólum Reykjavíkur hefst í dag með því að börnin mæta í skólana og fá stundartöflur. Eiginlegt skólastarf hefst svo eftir helgi. Um fjögur þúsund börn á landinu öllu hefja nú skólagöngu í fyrsta sinn. 22.8.2008 08:31
Stúlkur sluppu vel þegar bíll fór í sjóinn Þrjár stúlkur sluppu nær ómeiddar þegar bíll þeirra rann út af veginum í Skutulsfirði í Ísafjarðarkaupstað í gærkvöldi, fór tvær veltur og hafnaði á hjólunum út í sjó. Þær komust út úr bílnum og óðu í land, en var illa brugðið. 22.8.2008 07:55
Óttast ráðningar hjá Orkuveitunni Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, telur óeðlilegt að ekki sé gefið upp hvaða 18 einstaklingar sóttu um stöðu forstjóra Orkuveitunnar. ,,Ég óttast mjög ráðningarferlið í höndum nýs meirihluta en það eru öfl í þessum flokkum sem virkjast á hinn versta veg þegar þeir ná saman í meirihluta. Fólk þarf að vera vel á verði núna." 21.8.2008 22:00
Haukur fékk bónuskjör á veiðileyfum frá Baugi Haukur Leósson greiddi Baugi 480 þúsund krónur úr eigin vasa fyrir veiðiferðina í Miðfjarðará sem Vísir hefur fjallað um síðan í gær. 21.8.2008 18:27
Vonbrigði að nýr meirihluti vilji Bitruvirkjun Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að það séu vonbrigði að nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur ætli að hefja rannsóknir að nýju við Bitruvirkjun. 21.8.2008 20:45
Hafna úreltum hugmyndum um orkuflutninga Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði telja ekki annað koma til greina en að leggja nýja háspennulínu yfir héraðið í jörð og setja spurningamerki við umfang framkvæmdanna. Þetta kemur fram í tilkynningu. 21.8.2008 21:38
Ólafur hefur ekki fengið vilyrði fyrir neinni stöðu hjá frjálslyndum Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur ekki sent beiðni um inntöku í Frjálslynda flokkinn og formaður flokksins hefur ekki gefið honum vilyrði fyrir neinni stöðu innan hans. Þetta segir Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, á heimasíðu sinni í dag. 21.8.2008 21:28
Mönnunum var sagt að fara ekki í rörið Mönnunum tveimur sem létust í aðveituröri í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi, hafði verið sagt að fara ekki inn í rörið. Þeir fundust látnir um metra frá opinu sem þeir gerðu. 21.8.2008 21:21
Björgvin: Staða sparisjóða verður betri Viðskiptaráðherra segir að markmiðið með frumvarpi um lagaumhverfi sparisjóða sé að bæta stöðu sparisjóðanna gagnvart öðrum fjármálafyrirtækjum. Verði frumvarpið að lögum tekur það gildi 1. október næst komandi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 21.8.2008 20:39
Stjórnmálamenn eiga ekki að þiggja gjafir og boð fyrirtækja Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýkjörin borgarstjóri, segir að að stjórnmálmenn eigi ekki að þiggja gjafir og boð frá fyrirtækjum. 21.8.2008 19:48
Hálendiseftirlit með aðstoð Landhelgisgæslunnar Lögreglan á Hvolsvelli verður með hálendiseftirlit í umdæminu um næstu helgi með aðstoð Landhelgisgæslunnar. Fylgst verður sérstaklega með utanvegaakstri sem hefur verið mikill undanfarið. Einnig verður kannað með réttindi skotveiðimanna en gæsaveiðitíminn hófst 20. ágúst. Ástand ökumanna verður einnig kannað. 21.8.2008 19:40
Breyttar áherslur með nýjum málefnasamningi Það hillir undir Bitruvirkjun og ákvörðun um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar, samkvæmt málefnasamningi meirihlutans sem tók við Reykjavíkurborg í dag. Ekkert bendir til að kapp verði lagt á að varðveita nítjándu aldar götumynd Laugavegarins. 21.8.2008 19:15
Valnefnd um forstjóra LSH skilar fljótlega af sér Valnefnd vegna ráðningar nýs forstjóra Landspítala háskólasjúkrahúss skilar heilbrigðisráðherra ráðleggingum sínum í byrjun næstu viku. Nýr forstjóri á að taka til starfa eftir ellefu daga. 21.8.2008 18:45
Svandís: Einkavinavæðing Óskars Borgarfulltrúar minnihlutans furða sig á ákvörðun meirihlutans að skipa Guðlaug G. Sverrisson sem stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur. Enn eitt dæmið um einkavinavæðingu Framsóknarflokksins segir oddviti Vinstri grænna. 21.8.2008 18:38
Eldur í húsnæði Fóðurblöndunnar Eldur kviknaði loftpressu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Kornagörðum 12 rétt fyrir klukkan sex í dag. Að sögn slökkviliðsins var mikill viðbúnaður enda mikið um eldsmat í húsinu. Slökkvilið er enn að störfum. 21.8.2008 18:20
Sextíu teknir fyrir hraðakstur á þremur dögum Lögreglan á Hvolsvelli hefur á síðustu þremur dögum stöðvað 60 ökumenn fyrir hraðakstur í umdæmi hennar. 21.8.2008 17:23
Magnús Þór aðstoðar Hönnu Birnu Magnús Þór Gylfason, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. 21.8.2008 17:04
Telur námið ekki hindra sig í störfum varaforseta „Það var samdóma álit mitt og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að ég gæti gegnt störfum 2. varaforseta þrátt fyrir að ég væri í námi erlendis," segir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi. 21.8.2008 17:04
7500 skráðir í Reykjavíkurmaraþon Sjö þúsund og fimm hundruð manns höfðu skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis þegar netskráningu lauk klukkan átta í morgun. 21.8.2008 16:59
Fær ekki aðgang að framburði fórnarlambs í nauðgunarmáli Hæstiréttur hefur synjað verjanda manns sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á heimili sínu á Skagaströnd fyrr í mánuðinum um aðgang að framburðarskýrslu konunnar. 21.8.2008 16:43
Konur í meirihluta í fagráðum borgarinnar Konur eru sex fleiri en karlar sem aðalmenn í tíu helstu fagráðum borgarinnar en kosið var til þeirra við meirihlutaskipti í dag. 21.8.2008 16:17
Hanna Birna tekur við lyklavöldum í Ráðhúsinu Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri tók við lyklunum að skrifstofu borgarstjóra úr höndum Ólafs F. Magnússonar, fráfarandi borgarstjóra, skömmu eftir hádegi í dag. 21.8.2008 15:25
Gísli Marteinn fær 108 þúsund krónur fyrir setu í forsætisnefnd Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að sæti í forsætisnefnd borgarinnar sé aldeilis ekki ein af minni nefndum borgarinnar, eins og Gísli Marteinn gefi til kynna. 21.8.2008 15:23
Óskar: Guðlaugur af sama sauðahúsi og ég Guðlaugur Sverrisson er vanur að takast á við krefjandi verkefni og skila þeim af sér með sóma, að sögn Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Óskar segir að ef menn skoði þann lista sem hann hafi lagt fram yfir menn í nefndir borgarinnar komi í ljós að það sé að langstærstu leyti harðasti kjarninn í Framsóknarflokknum. 21.8.2008 15:18
Grýtti glerglasi í andlit annars manns Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á fertugsaldri fyrir að hafa grýtt annan karlmann með glerglasi fyrir utan Kaffibarinn í desember í fyrra. 21.8.2008 15:11
Innbrot upplýst með samvinnu lögregluumdæma Brotist var inn hjá þremur fyrirtækjum í Búðardal aðfaranótt miðvikudagsins 20. ágúst síðastliðinn. Stolið var bæði peningum og verkfærum. Í kjölfarið hófst vinna lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum við að upplýsa innbrotin og taldi lögreglan á Snæfellsnesi möguleika á því að aðilar í umdæmi hennar tengdust innbrotunum. Hófst þá samvinna lögregluliðanna við að upplýsa innbrotin. 21.8.2008 15:05
Veiðiferðin í Miðfjarðará hugsanlega rædd í borgarstjórn Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, útilokar ekki að hann muni spyrjast fyrir um laxveiðiferðir Hauks Leóssonar, Björns Inga Hrafnssonar, Guðlaugs Þ. Þórðarsonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á vettvangi borgarráðs eða borgarstjórnar. 21.8.2008 14:55
Fangar mjög ósáttir með túlkun á hegðunarreglum Fangelsismálstofnun tilkynnti fyrir stuttu um aukið vægi hegðunar fanga við afgreiðslu reynslulausna. Glöddust fjölmargir fangar yfir þeim tíðindum en töldu flestir um að ræða eðlilegan þátt í betrun fanga. 21.8.2008 14:49
Ákærður fyrir að brjóta glerflösku á höfði manns Tuttugu og þriggja ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir að ráðast gegn öðrum manni í miðborg Reykjavíkur í júní í fyrra. Samkvæmt ákæru á hann að hafa slegið fórnarlambið í andlitið með krepptum hnefa og tvisvar með glerflösku þannig að flaskan brotnaði. 21.8.2008 14:25
Óskar fékk besta vin sinn til að stjórna OR „Það er stórfrétt að Óskar Bergsson skuli velja besta vin sinn í stjórnarformennsku hjá Orkuveitu Reykjavíkur," segir Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. 21.8.2008 13:28
Lögregla varar við umferðartöfum á laugardag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir á að tveir stórir atburðir eru helgina, Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt. Búast má við miklum mannfjölda í miðbæ Reykjavíkur af þessu tilefni. 21.8.2008 13:09
Höfðu ekki unnið lengi á Íslandi Tveir menn létust vegna súrefnisskorts þegar þeir fóru inn í veiturör við Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi. Rörið var tæmt af vatni og gufu á þriðjudag og viðhaldsvinna átti að hefjast við það í dag. 21.8.2008 12:57
Gísli Marteinn: „Alltaf legið fyrir að ég sæti í minni nefndum“ Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, segist vona að það hafi komið nægilega skýrt fram, að þrátt fyrir að hann sé hættur í nefndum og ráðum á vegum borgarinnar, taki hann enn þátt í vinnuhópum og „minni nefndum". Á borgarstjórnarfundi í dag var Gísli Marteinn kosinn 2. varaforseti borgarstjórnar en þeirri vegtyllu fylgir seta í svokallaðri forsætisnefnd. Björk Vilhelmsdóttir gagnrýnir kosninguna og segir hana greinilega hugsaða til að hækka laun hans. 21.8.2008 12:41
Framsókn fékk stjórn OR - nefndir og ráð Guðlaugur Sverrisson, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, verður nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. 21.8.2008 12:16
Meirihluti endurkrafna á tjónvalda í umferðinni vegna ölvunaraksturs Samtals bárust endurkröfunarnefnd 88 ný mál til úrskurðar á árinu 2007 á hendur þeim sem tjóni ollu af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Langflestar kröfunnar voru vegna ölvunaraksturs. 21.8.2008 12:01