Fleiri fréttir

Þrír kenndir við stýri - tveir við sama stýrið

Lögregla á Seyðisfirði átti nokkra góða spretti í síðustu viku ef marka má frásögn á fréttavef lögreglunnar. Nokkuð var um umferðarlagabrot ýmiss konar og bar þar hæst ölvunarakstur þriggja ökumanna en þar af voru tveir teknir á sama ökutækinu, þó ekki á sama tíma.

Guðbjartur þingmaður ræður sér aðstoðarkonu

Guðrún Vala Elísdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar þingmanns. Guðrún Vala er búsett í Borgarnesi en ólst upp í Dölunum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1987, BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 1995, Bed próf frá Kennaraháskóla Íslands 1996, Diploma Ed í stjórnun 2001 og Diploma Ed í sérkennslufræðum 2004 frá framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands.

Boruðu dýpstu holu landsins

Menn á vegum Jarðborana slógu á dögunum aðeins þriggja mánaða gamalt met við borun á Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiði. Holan sem boruð var reyndist 3.322 metrar og var þar með 211 metrum dýpri en fyrri methola sem lokið var við í febrúar.

Áskilja sér allan rétt verði af Bitruvirkjun

Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti aukafundi í morgun harðorða bókun gegn Bitruvirkjun sem rísa á í nágrenni bæjarins. Þar áskilja forsvarsmenn bæjarins sér allan rétt til aðgerða verði af virkjuninni.

Dæmdur fyrir ölvun í björgunaraðgerðum

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til þess að greiða 160 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum áfengis.

Vilja strætó milli Borgarness og Reykjavíkur

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt samhljóða að óska eftir sérleyfi fyrir akstursleiðina á milli Borgarness og Reykjavíkur þegar leyfið losnar um áramót.

Minnkandi vinningslíkur í Lottóinu

Möguleikar á að fá fyrsta vinning í Lottóinu minnka úr einum á móti 500 þúsundum niður i einn á móti 650 þúsund, eftir að Lottótölunum var fjölgað um tvær eða upp í fjörutíu.

Ekið á gangandi vegfaranda í miðbænum

Ekið var á gangandi vegfaranda á Skothúsvegi í miðbænum fyrir stundu. Lögregla og slökkvilið eru á vettvangi en frekari upplýsingar er ekki að fá um málið að svo stöddu.

Ekkert því til fyrirstöðu að afgreiða frumvarp Valgerðar

Ekkert er því til fyrirstöðu að afgreiða frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur um afnám eftirlaunalaganna sem setið hefur fast í allsherjarnefnd Alþingis síðan í haust, segja þingflokksformenn Framsóknarflokksins og Vinstri - grænna.

Skýrslutökur í TR-máli

Skýrslutökur fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir sakborningum í fjársvikamáli tengdu Tryggingastofnun ríkisins.

Saksóknari í Byrgismáli segir niðurstöðuna ásættanlega

Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sem sótti hið svokallaða Byrgismál fyrir ákæruvaldið segist nokkuð sátt með niðurstöðu héraðsdóms frá því á föstudag. Þá fékk Guðmundur Jónsson gjarnan kenndur við Byrgið þriggja ára fangelsisdóm. Guðmundur var dæmdur í öllum ákæruliðunum.

Sendi Kínverjum samúðarkveðju vegna hamfara

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag forseta Kína, Hu Jintao, samúðarkveðju vegna þeirra hörmunga sem orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Kína.

Harður árekstur á Vesturlandsvegi í morgun

Þrennt var flutt á sjúkrahús á Akranesi eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla við Skorholt, rétt við Hafnarfjall, á Vesturlandsvegi um áttaleytið í morgun.

Metaðsókn að skíðasvæðum landsins

Um 170 þúsund manns sóttu skíðasvæðin á Íslandi á liðnum vetri og er það mesta aðsókn síðan talningar hófust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skíðasvæðunum en forsvarsmenn þeirr héldu ársfund sinn fyrir helgi á skíðsvæðinu í Oddskarði.

Svartolía lak úr flutningaskipi í Sundahöfn

Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu voru fram undir miðnætti að hreinsa upp svartolíu , sem lak úr flutningaskipinu Medemborg, þar sem það lá við Vogabakka í Sundahöfn.

Slökkvilið að ganga frá eftir olíuleka

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lokið við að dæla upp olíu sem fór í sjóinn þegar óhapp varð um borð í flutningaskipinu Medemborg fyrir hádegið.

Eldsneytisverð hækkar hjá N1

Eldsneytisverð hjá N1 var hækkað fyrir stundu og kostar lítri af bensíni þar nú 158,9 krónur en díselolíu 171,9 krónur miðað við sjálfsafgreiðslu. Ekki hafði verð hækkað hjá Skeljungi og Olís þegar grennslast var fyrir hjá þjónustustöðvum fyrirtækjanna klukkan 17:10 í dag.

Nýja Kópavogslaugin kostaði milljarð

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut við hátíðlega athöfn í gær.

Falsaði kvittun fyrir rotþró

Rotþró var á dögunum stolið þar sem hún stóð við sumarbústað í Ásgarðslandi í Grímsnesi. Lögreglunni á Selfossi bárust upplýsingar um að líklega væri hana að finna niðurgrafna við sumarbústað ekki langt þar frá.

Fritzl vakti óhug í Hallgrímskirkju

Myndlistarnemendur við Listaháskóla Íslands standa nú fyrir ljósmyndasýningunni „Biblían – bók bókanna“ í forkirkju Hallgrímskirkju. Er sýningin haldin í tilefni af nýju biblíuþýðingunni.

Olíuleki í Sundahöfn

Töluverð olía lak úr flutningaskipinu Medemborg þegar mistök urðu við að dæla olíu á skipið rétt fyrir hádegi. Skipið liggur í Sundahöfn og fór olían í sjóinn.

Opnar heimili sitt til varnar Ölkelduhálsi

Á morgun eru síðustu forvöð að senda inn athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Bitruvirkjunar við Ölkelduháls. Lára Hanna Einarsdóttir, leiðsögumaður og þýðandi

Sjaldgæf andategund á Djúpavogi

Sjaldgæfur fugl, hvítönd, sást á Fýluvogi við Djúpavog um hvítasunnuna. Það var Stefán Guðmundsson hafnarvörður sem tilkynnti um öndina og náði Andrés Skúlason fuglaáhugamaður ágætum myndum af henni.

Bifreið brann í Heiðmörk

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út klukkan hálfeitt í nótt vegna bifreiðar sem stóð í ljósum logum í Heiðmörk, rétt við Vífilsstaðaveg.

Próflaus á ofsahraða klyfjaður fíkniefnum

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gær ökumann á suðurleið er leið átti um umdæmið. Var tilefni afskiptanna of hraður akstur en bifreiðin mældist á 112 kílómetra hraða í Víðidal.

Tekjur lækna ákveðnar með samningum við ríkið

Sjálfstætt starfandi læknum, sem ríkið er með samning við, verður óheimilt að innheimta hærra gjald fyrir læknisþjónustu en það sem samið er um við nýja Sjúkratryggingastofnun, nái nýtt frumvarp um Sjúkratryggingar fram að ganga.

Segir ömurlegt að horfa upp á eyðileggingu

Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur segir ömurlegt að horfa upp á þá eyðileggingu sem framkvæmdir á Hólmsheiði hafa haft í för með sér. Hann óttast frekari eyðileggingu á næstu árum og segir að græni trefillinn sé byrjaður að rakna upp.

Greiðslukortasvikarar ganga enn lausir

Enn hefur enginn verið handtekinn vegna þjófnaðar úr hraðbönkum í höfuðborginni um helgina, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Greiðslukortafyrirtækin hafa fylgst mjög grannt með og skoðað hverja einustu færslu.

Dýpsta borhola á Íslandi

Nýtt met hefur verið sett á Íslandi í dýpt borholu. Áhöfnin á jarðbornum Geysi frá Jarðborunum á nýja metið en það tók hana fimm vikur að bora dýpstu holu landsins niður á 3.322 metra dýpi.

Menntamálaráðherra opnar ný mannvirki við Kópavogslaug

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut í dag. Hátíðardagskrá hefst klukkan þrjú með því að Skólahljómsveit Kópavogs leikur.

Rækjustofninn að koma til

Bílddælingar telja sig sjá merki þess að rækjustofninn í Arnarfirði sé að koma til eftir lélegt ástand mörg undanfarin ár.

Obama með fleiri ofurkjörmenn

Barack Obama hefur nú tryggt sér fleiri ofurkjörmenn en Hillary Clinton í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn í allri kosningabaráttunni sem Obama hefur forskot í fjölda ofurkjörmannna, en hann hefur umtalsvert forskot í fjölda kjörinna þingmanna.

Sjá næstu 50 fréttir