Innlent

Lagði til manns með hnífi

Til slagsmála kom á milli tveggja manna á Skagaströnd rétt fyrir klukkan sex í morgun. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi höfðu mennirnir verið að skemmta sér saman en sinnaðist síðan. Þeir slógust um stund þangað til að annar maðurinn dró upp hníf og lagði til hins. Að sögn lögreglu voru meiðsl mannsins minniháttar og leitaði hann sjálfur aðstoðar læknis. Árásarmaðurinn var handtekinn af lögreglu. Hann var ölvaður og verður yfirheyrður þegar áfengisvíman rennur af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×