Fleiri fréttir

Ætlar að ganga í bæinn og mótmæla

Sturla Jónsson talsmaður vörubílstjóra undanfarinna vikna ætlar að mótmæla háu bensínverði, hvíldartíma og fleiru í dag. Sturla hefur verið öflugur í mótmælunum og hefur hingað til mótmælt á vörubílnum sínum. Nú hefur honum verið lagt og ætlar Sturla að labba í bæinn.

Aftur ráðist á öryggisvörð í Austurstræti

Ráðist var á öryggisvörð í verslun 10-11 í Austurstræti klukkan hálf sex í morgun. Öryggisvörðurinn sem var á sinni síðustu vakt hafði afskipti af tveimur ölvuðum karlmönnum á þrítugsaldri sem voru með skrílslæti inni í versluninni þegar annar þeirra kýldi hann í andlitið og braut í honum tönn.

Hvannadalshnjúkur í beinni útsendingu

Um áramótin síðustu var hafinn undirbúningur að ferð starfsmanna á Hvannadalshnjúk og var stefnt að því að gangan yrði farin helgina 25-26 apríl. Einn fremsti fjallamaður landsins, Haraldur Örn Ólafsson, var af þessu tilefni fenginn til liðs við hópinn bæði í undirbúningnum og í gönguna sjálfa.

Ástþór ætlar ekki í forsetaframboð

Ástþór Magnússon fyrrum forsetaframbjóðandi birtir mikla auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun. Þar fer hann yfir árangur af starfi fyrrum forsetaframboða sinna og ræðir síðan um komandi forsetakosningar í sumar. Ástþór ætlar ekki að taka þátt.

Glæsijeppi gjörónýtur í Grafarvogi

Eldur kom upp í VW Toureg glæsijeppa sem stóð við Naustabryggju í Grafarvogi laust fyrir miðnætti í gær. Bíllinn er gjörónýtur og var dreginn burtu af vettvangi.

Rotaður í Reykjanesbæ

Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Báðar áttu sér stað í miðbæ Reykjanesbæjar. Í öðru tilfellinu var maður sleginn niður utan við skemmtistað þannig að hann lá rotaður á eftir.

Ágúst: ,,Ég sá rautt"

Ágúst Fylkisson, sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand á fimmtudag, segist hafa misst stjórn á skapi sínu vegna þess að hann fékk ekki afhenta kylfu sem lögregla tók af honum á staðnum. Þetta kemur fram á heimasíðunni Samtaka.net þar sem Ágúst biðst afsökunar á framferði sínu.

Árni Johnsen: Persónulegt skítkast

Árni Johnsen alþingismaður segist hafa lítið um væntanlega kæru aðstoðarvegamálastjóra á sig að segja. Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, tilkynnti í dag að hann ætlaði að kæra Árna til lögreglu fyrir ummæli sem hann lét falla í grein í Morgunblaðinu í dag.

Erill hjá slökkviliðinu í dag

Töluvert hefur verið fyrir slökkviliðsmenn í borginni að gera í dag. Þrisvar þurftu þeir að sinna útköllum vegna sinubruna. Vel gekk að eiga við þá og tjón varð lítið sem ekkert. Slökkvilið var einnig kallað til vegna manns sem hafði farið upp á þak og neitaði að koma niður. Slökkviliðsmenn þurftu því ásamst lögreglu að ná honum niður á jörðina og gekk það áfallalaust fyrir sig.

Vorhreinsun í Reykjavík

Nú er kominn tími til að setja upp hanskana og munda skóflurnar, að minnsta kosti hjá Reykvíkingum, því það er komið að árvissri vorhreinsunarviku í Reykjavík.

Rúmlega hundrað hætta á Landspítala eftir fimm daga

Landspítalinn háskólasjúkrahús getur ekki starfað eftir neyðaráætlun í langan tíma segir sviðsstjóri hjúkrunar á spítalanum, en yfir hundrað hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar ganga út af spítalanum eftir fimm daga hafi ekki samist í deilunni.

Matti Vanhanen í opinbera heimsókn

Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, kemur í opinbera heimsókn til Íslands á mánudag. Þetta kemur fram á finnskri fréttasíðu. Vanhanen verður hér á landi í tvo daga og mun hann hitta Geir Haarde, forsætisráðherra og forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja með starfsemi í Finnlandi.

Skorað á samgönguráðherra

Félag Vinstri Grænna í Stykkishólmi skorar á Samgönguráðherra að ganga nú þegar til samninga við Sæferðir vegna ferða Breiðafjarðarferjunnar Baldurs yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Aðstoðarvegamálastjóri ætlar að kæra Árna Johnsen

Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, ætlar að kæra Árna Johnsen alþingismann til lögreglu fyrir ummæli sem Árni viðhefur í Morgunblaðinu í dag. Gunnar segir vegið að sér sem opinberum starfsmanni og lögfræðingi. Í greininni lætur Árni að því liggja að Gunnar hafi verið skipaður í nefnd um samgöngur til Vestmannaeyja með það að markmiði að fá fram vilja fyrrverandi samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar í málinu.

„Ég hélt að ég væri að missa sjónina“

Brennuvargur, einn eða fleiri, var á ferð í Árbænum í nótt þar sem kveikt var í blaðabunkum fyrir utan tvo stigaganga í Hraunbænum. Þetta er enginn fíflagangur, heldur glæpamennska, segir kona sem býr í öðrum stigaganginum.

Skáld í sundi

Nú á þriðja degi sumars í blíðskaparveðri er tilvalið að fara í Seltjarnarneslaug og hlýða á þjóðþekkt skáld lesa upp úr bókmenntaverkum sínum í lauginni í allan dag. Bókmenntadagskráin sem nefnist Lesið í lauginni er í tilefni af alþjóðlegri viku bókarinnar og er haldin á vegum Seltjarnarnessbæjar, Forlagsins og World Class.

Mannlaus mannréttindastofa

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar verður mannlaus eftir fimm daga. Þá hættir Þórhildur Líndal sem gegnt hefur starfi mannréttindastjóra í eitt og hálft ár.

Andrésar andar leikarnir í Hlíðarfjalli

716 börn renna sér á skíðum þessa dagana í Hlíðarfjalli en Andrésar andar leikarnir standa nú sem hæst. Sumir nota töfraáburð á skíðin sín til að ná sem bestum árangri.

Listræn feðgin sýna í ráðhúsinu

Feðginin Karl Austann, Jóhann Smári Karlsson og Sigrún Linda Karlsdóttir halda samsýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin opnar í dag klukkan tvö og stendur fram til ellefta maí.

Undrast verðmætamat meirihlutans

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík undrast verðmætamat meirihlutans í borginni. Hann bendir á að eitt glæsilegasta hús landsins, Fríkirkjuvegur 11, hafi verið selt fyrir litlu hærri upphæð en kostaði að greiða fyrir húsin á Laugavegi 4-6. Hann segir blasa við að meirihlutinn hafi notað almannafé til þess að „kaupa ónýt hús fyrir 580 milljónir og fjármagna þau kaup með sölu á einu glæsilegasta og virðulegasta húsi borgarinnar

Ísskápur sprakk í Vesturbænum

Innréttingar losnuðu af veggjum, hurðir fuku og sprungur mynduðust í vegg þegar 6 ára gamall Bloomberg ísskápur sprakk með látum í Vesturbænum í nótt.

Eldur í fjölbýlishúsi í Árbæ

Litlu mátti muna í Árbænum um klukkan fimm í morgun þegar kveikt var í dagblaðabunkum við útidyr í Hraunbæ 4 og 6. Eldurinn náði ekki að breiða sig út á númer 4 en í Hraunbæ 6 læsti hann sig í útidyrahurðina og náði inn í stigagang.

Vistvænn lífsstíll Reykvíkinga kannaður

Borgarráð fól í dag umhverfis- og samgönguráði að láta framkvæma könnun á viðhorfi borgarbúa til umhverfismála. „Við viljum kanna hvað Reykvíkingar vilja gera næst í umhverfismálum og hvað hver og einn vill leggja að mörkum,“ segir Gísli Marteinn

Ólafur: Aðkoma borgarbúa er svo sannarlega tryggð

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lagði fram bókun á fundi borgarráðs í dag en þar var samþykkt að ganga frá sölunni á Fríkirkjuvegi 11 til félags í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar.

Vill fjölga 30 km svæðum í borginni

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag þá tillögu borgarstjóra að fela umhverfis- og samgönguráði að gera tillögur um fjölgun 30 kílómetra svæða í íbúðarhverfum.

Samið við nokkur Persaflóaríki um fríverslunarsamning

Íslendingar hafa ásamt öðrum EFTA-ríkjum náð samkomulagi við samstarfsráð Persaflóaríkja um fríverslunarsamning. Innan samstarfsráðs Persaflóaríkja eru Barein, Katar, Kúveit, Óman, Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin

Lögreglan stuggaði við unglingum á Miklubraut

Unglingarnir sem mótmæltu háu bíómiðaverði í dag gripu til þess að stöðva umferð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Nokkuð lið lögreglu kom á staðinn og stuggaði við unglingunum sem flest létu sér segjast og hurfu á braut. Að sögn vaktstjóra lögreglunnar eru þó enn nokkrir krakkar á vappi um svæðið.

Lýst eftir klappara

Þegar Ágúst Fylkisson réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær mátti heyra karlmann öskra; "Já, já." og klappa ákaflega.

Hætt við mikla uppbyggingu að Keilugranda 1

Hugmyndum um mikla uppbygginu á lóðinni við Keilugranda 1 var hafnað á fundi borgarráðs í dag og var skipulagsstjóra falið að vinna með umsækjendum að nýjum hugmyndum í stað þeirra sem hafnað var

Ágúst biðst afsökunar: „Gerðist í hita leiksins“

Ágúst Fylkisson, maðurinn sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær, biðst afsökunar á hátterni sínu. Í samtali við Vísi segist hann sjá eftir atvikinu en bendir á að aðdragandinn að því að upp úr sauð hafi verið lengri en fram hafi komið í fréttum. Hann ætlar að senda frá sér tilkynningu um atvikið á morgun.

Öldungur í Kópavogi kærður fyrir kynferðislega misnotkun

75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að misnota stúlku kynferðislega á átta ára tímabili, frá því því að hún var tólf ára til tvítugs. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við Vísi að málið væri til rannsóknar.

Rafbyssur gætu komið í veg fyrir átök

„Lögreglan hefur engan áhuga á því að standa í slagsmálum við fólk sem er að mótmæla," segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landsambands lögreglumanna.

Mótmælaaldan breiðist út

Mótmæli vörubílstjóra undanfarið hafa ekki farið fram hjá nokkrum manni. Nokkrir ungir menn fylgdu fordæmi þeirra á Kringlumýrarbrautinni í dag þar sem þeir söfnuðust saman og mótmæltu verðinu á bíómiðanum sem þeim finnst allt of hátt.

Fundu 50 grömm af kókaíni við húsleit í miðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í fyrrinótt hald á allnokkurt magn af fíkniefnum í húsleit í miðborg Reykjavíkur. Talið er að um sé að ræða tæplega 50 grömm af kókaíni og lítilræði af marijúana.

Fráleitt að afsala sér forræði yfir Hallargarðinum

Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leikja um áratugi.

Sektaður fyrir hnefahögg í Austurstræti

Karlmaður á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt fyrir að hafa ráðist á annan mann og kýlt hann í andlitið þannig að hann féll í götuna og hlaut stóran opinn skurð á vör og í munnholi.

Sjá næstu 50 fréttir