Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ökukennarar ætla að fjalla um mál kærðs kollega Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Íslands, segir að stjórn félagsins muni fjalla um mál ökukennara sem sex nemendur hafa kært fyrir kynferðislega misnotkun. 18.3.2008 16:09
Kona á sjötugsaldri tekin fyrir lyfjaakstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ellefu ökumenn úr umferð fyrir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Sjö voru stöðvaðir á laugardag og fjórir á sunnudag en þetta voru tíu karlar á aldrinum 19-51 árs og ein kona, 18 ára. 18.3.2008 15:48
Sex drengir hafa kært ökukennara fyrir kynferðislega misnotkun Ökukennari í Reykjavík er grunaður um að hafa misnotað kynferðislega sex nemendur sína. Nemendurnir hafa allir kært ökukennarann til lögreglunnar. 18.3.2008 15:35
Gagnrýna aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar Fulltrúar Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins í efnahags- og skattanefnd gagnrýna að ríkisstjórnin hyggist ekkert aðhafast til þess að takast á við það ástand sem skapast hefur í efnahagslífinu. Þeir benda á að auka þurfi gjaldeyrisforða Seðlabankans. 18.3.2008 15:30
Stimpilgjöld fyrstu fasteignakaupa af í árslok Búast má við að frumvarp til laga, sem fjalla um afnám stimpilgjalda af lánum vegna fyrstu húsnæðiskaupa, verði lagt fyrir Alþingi á vormánuðum en frumvarpið er nú á undirbúningsstigi. 18.3.2008 15:29
Lúkasarmálið látið mæta afgangi Lúkasarmálið svokallaða er enn til rannsóknar á hjá Sýslumanninum á Akureyri. Lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar, sem varð fyrir aðkasti á Netinu í kjölfarið á því að hann var grunaður um að hafa drepið hundinn Lúkas á Akureyri, lagði fram kæru gegn hundrað manns. Fulltrúi sýslumanns á Akureyri segir að málið sé ekki í forgangi . Að stórum hluta er um að ræða ærumeiðingar sem ekkert erindi eiga inn á borð til sýslumanns að hans sögn. Lögmaður Helga sagðist í samtali við Vísi vera undrandi á því hve langan tíma málið hafi tekið. 18.3.2008 14:51
16 mánaða fangelsisdómur Malakauskas staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir Litháanum Tomasi Malakauskas. Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann með því að koma hingað til lands. 18.3.2008 14:49
Réðst á starfsmann veitingastaðar og braut einnig rúðu Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir skemmtanahald um síðustu helgi. 18.3.2008 14:12
Þrír teknir á dag fyrir fíkniefnaakstur Níutíu og sex manns voru gripnir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í febrúar síðastliðnum og hafa ekki verið fleiri frá því í ágúst í fyrra. 18.3.2008 13:35
Framtíð peningamála verði rædd eftir að erfiðleikar eru yfirstaðnir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir óvarlegt að gagnrýna Seðlabankann í þeirri stöðu sem nú er uppi í efnahagslífinu. Hann vill að menn komist í gegnum þann öldudal sem efnahagslífið er í nú og ræði síðan framtíð peningamála í landinu. 18.3.2008 13:02
Beðið eftir tillögum frá eldsneytisnefnd ráðherra Bensínlítrinn er kominn upp í tæpar 148 krónur í sjálfsafgreislu hjá stóru olíufélögunum eftir enn eina hækkunina í gær. Fjármálaráðherra hefur ekki enn gert grein fyrir tillögum nefndar um tímabundna lækkun opinberra gjalda á olíu og bensín. 18.3.2008 12:03
Ráðuneytið segir Gunnstein vanhæfan Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað fyrrverandi formann Íþrótta – og tómstundaráðs í Kópavogi, Gunnstein Sigurðsson, vanhæfan til að fjalla um ráðningu í stöðu verkefnisstjóra æskulýðs- og tómstundarmála í Kópavogi. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar kærðu ákvörðun ÍTK til ráðuneytisins á sínum tíma því þau töldu óeðlilegt að Gunnsteinn tæki þátt í ráðningaferlinu vegna tengsla sinna við einn umsækjandann. 18.3.2008 11:58
Ekki tímabært að segja til um hvort gripið verði til aðgerða Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ekki sé tímabært segja til um hvort ríkisstjórnin grípi til einhverra aðgerða vegna þróunar í efnahagslífinu. 18.3.2008 11:46
Lögregla stöðvaði bílþjóf við Kringluna Eftirför lögreglu sem elti mann á stolnum bíl lauk á göngustíg við Kringluna. Talið er að tveir hafi verið í bílnum og náðist annar en hins er leitað. Bílnum var stolið fyrir nokkru síðan og hófst eftirförin fyrir stundu þegar sást til hans. Ekki er vitað á þessari stundu hvort tjón hafi hlotist af á bílnum eða tækjum lögreglu. 18.3.2008 11:38
Geir svarar spurningum blaðamanna Geir H. Haarde forsætisráðherra mun ræða við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi sem nú stendur stendur yfir í Stjórnarráðinu. 18.3.2008 10:40
Friðarsúlan tendruð í viku í kringum páska Friðarsúla Yoko Ono í Viðey verður tendruð á miðvikudag og mun hún loga í eina viku. 18.3.2008 10:11
Vélsleðamenn hvattir til að fara varlega um páskana Það sem af er þessu ári hafa 35 vélsleðaslys orðið hér á landi og eru þau alls 385 síðustu tíu ár. Þetta kemur fram í samantekt Sjóvar Forvarnahúss sem hvetur ökumenn vélsleða til þess að fara varlega nú um páskana. 18.3.2008 09:32
Yfir 4500 börn fæddust hér á landi í fyrra 4560 börn fæddust hér á landi í fyrra samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birtir í dag. Þar kemur fram að um hafi verið að ræða tæplega 2360 drengi og um 2200 stúlkur. Börnunum fjölgaði eilítið frá árinu áður þegar þau reyndust 4415. 18.3.2008 09:14
Foreldrafærni til að fyrirbyggja líkamlegar refsingar Það er tímabært að marka nýja stefnu í velferðarmálum barna með því að efla hæfni foreldra í stað þess að einblína á börn og vanda þeirra, að sögn Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu. 18.3.2008 09:00
Kaldranalegt að bætur kennarans séu háðar tryggingum foreldris Það er kaldranalegt að bætur vegna skaða sem grunnskólabörn kunna að valda starfsmönnum skóla séu háðar því að foreldrar séu með heimilistryggingar, að mati Braga Guðbrandssonar, fostjóra Barnaverndarstofu. 17.3.2008 22:02
Tjáir sig ekki efnislega um upplýsingamál RÚV Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vill ekki tjá sig efnislega um upplýsingamál RÚV. 17.3.2008 20:40
Ávinningur kjarasamninga horfinn og gott betur Peningamálastefna stjórnvalda hefur beðið afhroð og kjaraskerðing er orðin staðreynd hjá almenningi að mati framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Þá segir hann íslensku krónuna einungis brúklega í Matador. 17.3.2008 21:50
Skattamál Jóns Ólafs í 6 ár til rannsóknar Ákvörðun verður tekin um það á næstu vikum hvort ákæra verði gefin út gegn Jóni Ólafssyni athafnamanni, vegna meintra skattsvika. Skattamál Jóns hafa verið í rannsókn hjá Ríkisskattstjóra og Ríkislögreglustjóra í á sjötta ár, 17.3.2008 19:00
Loðna við Snæfellsnes Allur loðnuveiðiflotinn var ræstur út í dag vegna loðnu sem fannst við Snæfellsnes. Talið er að um sé að ræða hrygnur sem búnar séu að hrygna og hafrannsóknarmönnum hafi yfirsést. Þetta þykir tíðindum sæta því að loðnuveiðimenn töldu í gær að veiðitímabilið væri úti. 17.3.2008 19:33
Mál Jónínu Ben fyrir mannréttindadómstól Evrópu Mannréttindadómstóll Evrópu hefur samþykkt að taka upp kæru Jónínu Benediktsdóttur á hendur íslenska ríkinu vegna brota á mannréttindasáttmálanum. 17.3.2008 18:37
Laganemar aðstoða nýbúa við gerð skattframtala Næsta miðvikudag verður „skattadagur" í Alþjóðahúsinu. Þá munu laganemar Háskólans í Reykjavík ásamt sérfræðingum frá Deloitte aðstoða við gerð skattframtala á efstu hæð Alþjóðahússins frá klukkan níu að morgni til níu um kvöld. 17.3.2008 18:12
Lamdi mann eftir tap í sjómann Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en nær allar voru þær minniháttar. 17.3.2008 17:32
Sterkari grunur í dag en í gær um íkveikju í Hrafnhólum Sterkur grunur er um að kveikt hafi verið í íbúð í fjölbýlishúsi að Hrafnhólum 6-8 í gær. 17.3.2008 17:07
Al Gore kemur til Íslands í apríl Al Gore, handhafi friðarverðlauna Nóbels og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur þegið boð forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar um að koma í heimsókn til Íslands dagana 7.-8. apríl næstkomandi. 17.3.2008 17:04
Fimm mánaða fangelsi fyrir að stela Magga mörgæs og Mikka mús Karlmaður var í héraðsdómi Reykjaness dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir innbrot í hús í Höfnum í Reykjanesbæ. Stal hann meðal annars fartölvu, myndavélum og tveimur sparibaukum, þeim Magga mörgæs og Mikka mús. Maðurinn var á skilorði en hann hefur hlotið fjölmarga refsidóma frá árinu 1979. 17.3.2008 16:39
Dyravörður sýknaður af líkamsárás Dyravörður á skemmtistaðnum Casino í Keflavík var í Héraðsdómi Reykjaness í dag sýknaður af ákærum um að hann hefði kýlt einn gest skemmtistaðarins með þeim afleiðingum að hann rotaðist og marðist víða um líkamann. 17.3.2008 16:34
Tvö hundruð þúsund króna sekt fyrir að ráðast á tvær konur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til að greiða 200 þúsund króna sekt fyrir líkamsárás gegn tveimur konum í september í fyrra. 17.3.2008 16:32
Leigjandi fær ekki að flytja aftur inn í brunaíbúð Forsvarsmenn Félagsbústaða hafa ekki tekið ákvörðun um það hvort íbúð í fjölbýlishúsi að Hrafnhólum 6-8 þar sem eldur kom upp í gær verði seld. Formaður húsfélagsins hefur hins vegar fengið þau skilaboð frá félagsmálayfirvöldum borgarinnar að konan sem bjó í íbúðinni flytji ekki þangað aftur. 17.3.2008 15:22
Spurt hvort hið opinbera eigi að ábyrgðartryggja börn í skólastarfi Stjórn Heimilis og skóla hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna hins svokallaða Mýrarhúsaskólamáls, þar sem móðir var dæmd til að greiða kennara tæpar tíu milljónir króna í bætur vegna örorku sem hlaust af þegar dóttir hennar skellti hurð á kennarann. Í yfirlýsingunni segir að stjórn samtakanna hafi almennt ekki tjáð sig efnislega um einstök mál og að haldið verði í þá reglu í þessu máli. Öll umræða sé hins vegar af hinu góða og segir í yfirlýsingunni að áleitnar spurningar hafi vaknað í kjölfar dómsins. 17.3.2008 15:20
Sakar fjölmiðla um að draga upp svarta mynd af fasteignamarkaðnum Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, telur umfjöllun fjölmiðla um ástandið á fasteignamarkaði undanfarið ekki forsvaranlega. Verið sé að draga upp óeðlilega svarta mynd af ástandinu og tína til dæmi sem séu algjörar undantekningar, t.d. þegar greint var frá því að verð eigna væri í sumum tilfellum komið niður fyrir upphæð áhvílandi lána. 17.3.2008 15:09
Mýrarhúsaskólamáli líklega áfrýjað Konan sem í síðustu viku var dæmd til að greiða kennara við Mýrarhúsaskóla tæpar tíu milljónir króna í bætur ætlar líklega að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Lögfræðingur konunnar segir að hvernig sem málið fari muni tryggingafélag konunnar greiða bæturnar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konuna til að greiða bæturnar í kjölfar þess að ellefu ára gömul dóttir hennar skellti hurð á kennarann. 17.3.2008 14:27
Fundu fíkniefni hjá tveimur föngum á Litla-Hrauni Tvö fíkniefnamál komu upp á Litla-Hrauni í liðinni viku. Þar fundu fangaverðir lítilræði af fíkniefnum við klefaleit. 17.3.2008 14:24
Réttindalaus talinn hafa valdið umferðarslysi undir áhrifum fíkniefna Réttindalaus ökumaður fólksbíls, sem grunaður er um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna, er talinn hafa verið valdur af alvarlegu umferðarslysi á gatnamótum Selvogs- og Óseyrarbrautar í Þorlákshöfn í gær. 17.3.2008 14:13
Afleysingamenn í umdeildri handtöku „Við áttum fund um þetta mál í morgun og erum að safna gögnum til þess að glöggva okkur betur á öllum hliðum þess,“ segir Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri á suðurnesjum. Ungur drengur var handtekinn þegar umsátursástand ríkti á heimili í Keflavík á fimmtudagskvöldið en þar hafði karlmaður læst sig inni á klósetti með haglabyssu. 17.3.2008 14:07
Bensínlítrinn aldrei hærri hér á landi N1 hækkaði bensínið hjá sér rétt fyrir hádegi í dag. Nam hækkunin 3,60 kr og er lítrinn í sjálfsafgreiðslu kominn í 147,90 krónur. Eldsneystisverð hefur aldrei verið hærra hér á landi. 17.3.2008 13:38
Ögmundur vill að RÚV greini frá launakostnaði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG segir að sú staðreynd að Ríkisútvarpið neiti að láta Vísi í té upplýsingar um laun æðstu stjórnenda sé dæmi um það sem flokkur hans hafi varað við þegar stofnunin var gerð að opinberu hlutafélagi. Hann segist þeirrar skoðunar að launamál RÚV vera aðgengileg almenningi, enda sé stofnunin rekin fyrir skattfé. 17.3.2008 13:13
Ljósabekkir og flugvélar til sölu á heimasíðu Glitnis fjármögnunar Hljóðfæri, ljósabekkir, myndavélar og jafnvel flugvélar er meðal þess sem auglýst er til sölu á heimasíðu Glitnis fjármögnunar. Með þessu er verið að koma eignum bankans í verð að sögn upplýsingafulltrúa bankans. 17.3.2008 12:05
Jöklar á Íslandi hopa sem aldrei fyrr Jöklar á Íslandi hopa sem aldrei fyrr og hefur þróunin í þá átt verið sérstaklega ör á undanförnum áratug. Sem dæmi má nefna að á þeim tíma hefur Vatnajökull rýrnað um þrjú prósent og Langjökull um átta prósent. 17.3.2008 11:09
Smásöluverð lyfja oftast hæst hér í samanburði á Norðurlöndum Smásöluverð á lyfjum reyndist hæst á Íslandi í 15 tilvikum 33 í samanburði Lyfjagreiðslunefndar á lyfjaverði í fjórum norrænum ríkjum í marsmánuði. 17.3.2008 10:56
Handtekin vegna fíkniefnamisferlis á Akureyri Lögreglan á Akureyri lagði hald á rúmlega 30 grömm af kannabisefnum og þrjú grömm af amfetamíni í húsleit í bænum í nótt. 17.3.2008 10:11