Innlent

Mýrarhúsaskólamáli líklega áfrýjað

Konan sem í síðustu viku var dæmd til að greiða kennara við Mýrarhúsaskóla tæpar tíu milljónir króna í bætur ætlar líklega að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Lögfræðingur konunnar segir að hvernig sem málið fari muni tryggingafélag konunnar greiða bæturnar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konuna til að greiða bæturnar í kjölfar þess að ellefu ára gömul dóttir hennar skellti hurð á kennarann.

Lögfræðingurinn segir í samtali við Vísi að málinu verði að öllum líkindum áfrýjað en að sú ákvörðun verði þó ekki tekin fyrr en eftir páska. Dómurinn komst að því að konan þyrfti að greiða kennaranum bæturnar en skólinn var hins vegar sýknaður. Lögfræðingur hennar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart., annars vegar að seltjarnarnesbær skuli ekki vera gerður ábyrgur í málinu og hins vegar að stúlkan skuli hafa verið dæmd til að greiða bæturnar.

Kennarinn stefndi móðurinni fyrir hönd dótturinnar og Seltjarnarnesbæ vegna atburðarins sem átti sér stað árið 2005. Kennarinn hlaut af slysinu 25 prósenta varanlega örorku en að sögn móðurinnar var stúlkan að fela sig fyrir samnemendum sínum í vinnurými kennara. Þegar kennarinn kom í gættina skellti stúlkan rennihurð á kennarann með fyrrgreindum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×