Innlent

Lamdi mann eftir tap í sjómann

Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en nær allar voru þær minniháttar. Nokkrir þurftu þó að leita sér aðhlynningar á slysadeild en fáeinir árásarþolar sátu eftir með skurð á höfði. Einn þeirra hafði farið í sjómann við ónefndan aðila á krá í miðborginni og haft betur. Sá sem tapaði tók því illa og svaraði fyrir sig með fyrrgreindum afleiðingum. Þrjár af þeim árásum sem voru tilkynntar áttu sér stað utan miðborgarinnar, þar af ein í heimahúsi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×