Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verður að loka torrent.is Sýslumaðurinn í Hafnarfirði hefur fallist á lögbannsbeiðni á starfsemi skráardeilingarsíðunnar torrent.is sem nokkur höfundarréttarsamtök lögðu fram fyrr í dag. 19.11.2007 15:25
Prúðustu ungmennin búa á Álftanesi Álftanes er með einna lægstu tíðni afbrota miðað við íbúafjölda og eru afbrot, svo sem innbrot og þjófnaðir, afar fátíð þar miðað við önnur svæði í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram á fundi sem lögreglan átti með lykilfólki frá Áfltanesi síðastliðinn miðvikudag. 19.11.2007 15:19
Óheimilt að fara í fermingafræðsluferðir á skólatíma Grunnskólar geta ekki skipulagt ferðir í tengslum við fermingarfræðslu á skólatíma. „Slíkt samræmist ekki aðalnámskrá eða grunnskólalögum," segir Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu. 19.11.2007 15:04
Þóttist vera eldri Pólverji Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur höfðað opinbert mál á hendur Pavel Janas fyrir að þykjast vera annar en hann er. 19.11.2007 14:22
Hvetur OR og Ölfus til að endurskoða áform um Bitruvirkjun Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar leggst alfarið gegn áformum Orkuveitunnar um að reisa Bitruvirkjun og hvetur fyrirtækið og nágrannasveitarfélagið Ölfus til þess að endurskoða áform sín um framkvæmdir á og við Ölkelduháls og Bitru. 19.11.2007 14:01
RKÍ leggur fram þrjár milljónir vegna hamfara í Bangladess Rauði kross Íslands sendi í dag þriggja milljóna króna framlag til neyðaraðstoðar í Bangladess vegna fellibyljarins Sidr sem gekk yfir landið á fimmtudag. 19.11.2007 13:29
Söfnuðu 400 þúsund krónum í zumba-dansi Fjögur hundruð þúsund krónur söfnuðust í hópdansi Hreyfingar í Valsheimilinu fyrir um tveimur vikum en þar dönsuðu gestir zumba til styrktar UNIFEM á Íslandi. 19.11.2007 13:01
Skila inn athugasemdum vegna rannsóknar á nemendafjölda Menntamálaráðuneytið hefur fengið athugasemdir frá framhaldsskólunum fimm sem eru til skoðunar vegna skila á upplýsingum um fjölda nemenda sem lokið hafa tilteknum prófum á árunum 2005 og 2006. 19.11.2007 12:48
Offita að verða stórt heilbrigðisvandamál „Offita er að verða eitt stærsta heilbrigðisvandamál á næstu árum, " segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Hún hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að heilbrigðisráðherra beiti sér fyrir því að þeir sem eru á auglýsingamarkaði beini ekki auglýsingum um óholla matvöru að börnum. Ásta Ragnheiður var í hádegisviðtalinu hjá Lillý Valgerði Pétursdóttur á Stöð 2 í dag. 19.11.2007 12:45
Fara fram á lögbann á torrent.is Samtök myndréttarhafa á Íslandi, Samtök tónlistarrétthafa og Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðenda hafa farið fram á tímabundið lögbann á starfsemi skráardeilningarsíðunnar torrent.is vegna gruns um höfundarréttarbrot. 19.11.2007 12:27
Fékk tundurdufl með vel virkt sprengiefni í veiðarfæri Togskipið Þorvarður Lárusson frá Grundarfirði fékk stórt tundurdufl í veiðarfæri sín á laugardag og reyndist sprengiefnið í því vel virkt. 19.11.2007 11:40
Hraðahindrun skemmd í annað sinn í Þorlákshöfn Óprúttnir aðilar eða aðili skemmdi um helgina hraðahindrun í Biskupabúðum í Þorlákshöfn 19.11.2007 11:31
Vilja fresta flutningi ferðamála til iðnaðarráðuneytisins Ferðamálasamtök Íslands vilja að Alþingi fresti því um ár að flytja málefni ferðamála frá samgönguráðuneytinu til iðnaðarráðuneytisins. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna í síðustu viku. 19.11.2007 11:19
Fimm í haldi vegna hnífstunguárásar Fimm manns eru nú í haldi lögreglunnar á Selfossi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á hnífstunguárás við Hellisheiðarvirkjun á laugardagskvöld. 19.11.2007 11:07
Forsprakki torrent.is færður til yfirheyrslu til lögreglu Rétt í þessu var Svavar Lúthersson, eigandi torrent.is, færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Hann var vakinn upp í morgun af fulltrúum Sýslumanns í Hafnarfirði, lögreglumönnum og Hróbjarti Jónatanssyni, lögmanni SMÁÍS, samtaka myndrétthafa. 19.11.2007 11:06
Er miður sín yfir að hafa misst snákinn sinn Kristófer Leifsson, eigandi snáksins sem lögreglan á Egilsstöðum gerði upptækan um helginA, segir að hann sé miður sín yfir að hafa misst þetta gæludýr sitt. 19.11.2007 10:59
Svandísarmáli formlega lokið Gengið var frá sátt í máli Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa Vinstri - grænna, á hendur Orkuveitu Reykjavíkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 19.11.2007 10:43
Braust inn í Ferstiklu í Hvalfirði Lögreglan í Borgarnesi handtók í nótt karlmann sem braust inn í veitingastaðinn að Ferstiklu í Hvalfirði upp úr miðnætti. 19.11.2007 09:53
Aflaverðmæti eyskt um rúm 10 prósent milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam nærri 58 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins samkvæmt samantekt Hagstofunnar 19.11.2007 09:46
Ellefu sækjast eftir prestsembætti í Grafarvogi Ellefu sóttu um embætti prests í Grafarvogsprestakalli. Þar af eru átta konur. 19.11.2007 09:35
Boeing þjónusti ekki Loftleiðir vegna Kúbuflugs Bandarísk stjórnvöld hafa óskað eftir því við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar að þær þjónusti ekki þær Boeing-vélar sem Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, nota til Kúbuflugs vegna viðskiptabanns Bandaríkjanna á Kúbu. 19.11.2007 09:29
Fundu snák á Egilsstöðum Við húsleit lögreglunnar í íbúð á Egilsstöðum um helgina fannst m.a. svokallaður Cornsnákur. Snákurinn, sem var í glerbúri í opnu rými í íbúiðinni, var haldlagður og færður í trygga geymslu á varðstofu lögreglunnar. Var snákurinn síðan aflífaður og mun fulltrúi heilbrigðiseftirlits annast eyðingu á hræinu, segir í dagbók lögreglunnar. 19.11.2007 09:10
Yfirheyrslur yfir hnífstungumanninum í dag Yfirheyrslur hefjast í dag á Selfossi yfir erlendum verkamanni, sem veitti vinnufélaga sínum áverka með hnífi í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í fyrrinótt. 19.11.2007 07:55
Fjórir játa stuld á skotvopnum Fjórir ungir menn á aldrinum 16 til 20 ára játuðu við yfirheyrslur hjá lögreglunni í Borgarnesi í gær, að hafa í fyrrinótt brotist inn í flugskýli við Húsafell og meðal annars stolið þaðan skotvopnum. 19.11.2007 07:35
Foreldrar sóttu ræningjana til lögreglu Foreldrar ræningjanna fjögurra, sem frömdu vopnað rán í Sunnubúð við Lönguhlíð í Reykjavík í gærmorgun, sóttu syni sína á lögreglustöðina í Reykjavík í gærkvöldi að loknum yfirheyrslum yfir þeim. 19.11.2007 07:33
Öryggisverðir náðu þjóf á flótta Brotist var inn í apótek á Akureyri í nótt og þaðan stolið lyfjum. Öryggisverðir urðu varir við innbortið, hlupu þjófinn uppi og héldu honum þartil lögregla kom á vettvang og handtók hann. 19.11.2007 07:30
Telur fleiri tengjast hnífsstungumáli Lögreglan á Selfossi telur að fleiri aðilar en meintur gerandi og þolandi í hnífstungumáli í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöld hafi tekið þátt í átökunum sem leiddu til áverkanna 18.11.2007 22:58
Fjölskyldan í sjokki eftir vopnað rán "Vonandi lendi ég aldrei aftur í svona," segir Þórður Björnsson, kaupmaður í Sunnubúð, en þrír vopnaðir og grímuklæddir menn rændu verslun hans í morgun. 18.11.2007 16:27
Tvö hundruð milljóna króna tjón í fjósbruna 200 milljóna króna tjón varð þegar eitt fullkomnasta fjós landsins brann til ösku í gærkvöld ásamt 200 nautgripum. Bruninn er einn sá skelfilegasti sem slökkviðismenn hafa glímt við. 18.11.2007 23:19
Slasaðist töluvert á fjórhjóli á Suðurstrandarvegi Ökumaður fjórhjóls slasaðist töluvert þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Suðurstrandarvegi norðan við Íshólfsskála um þrjúleytið í dag. 18.11.2007 23:07
Kjör stjórnarmanna ekki rædd á hluthafafundi REI Engar breytingar voru gerðar á launakjörum stjórnarmana í REI og nýjir menn voru ekki kosnir í stjórn á hluthafafundi sem lauk í dag. Þessum dagskrárliðum var frestað og verða kláraðir á framhaldshluthafafundi næsta föstudag. 18.11.2007 19:48
Ræningjarnir í Sunnubúð aðeins 16 ára gamlir Fjórir voru handteknir um klukkan fjögur í dag grunaðir um að hafa framið rán í Sunnubúð við Mávahlið fyrir hádegi í dag. Þeir eru allir fæddir 1991 og eru því aðeins 16 ára gamlir. 18.11.2007 18:28
Hnífamaður handtekinn Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn eftir hádegi í dag grunaður um að hafa lagt til vinnufélaga síns með hnífi í gærkvöld. Maðurinn, sem er af erlendum uppruna, er starfsmaður við Hellisheiðarvirkjun. 18.11.2007 14:58
Mývetningar felldu sameiningu Mývetningar felldu sameiningu þriggja dreifbýlissveitarfélaga í Suður-Þingeyjarsýslu í gær. Íbúar Þingeyjarsveitar og Aðaldælahrepps samþykktu hins vegar og geta því sameinast. 18.11.2007 14:07
Einn versti skaði á sveitabæ hérlendis Um tvöhundruð nautgripir drápust þegar nýuppgert fjós brann á bænum Stærri-Árskógi í Dalvíkurbyggð í Eyjafirði í gærkvöldi. 18.11.2007 14:05
Eiginkona og dóttir urðu vitni að slysinu Maðurinn sem lést í umferðarslysinu á Suðurlandsvegi við Rauðhóla í fyrrakvöld hét Kristinn Guðbjartur Óskarsson, til heimilis að Álfhólsvegi 151 í Kópavogi. 18.11.2007 13:59
Fórnarlamba umferðarslysa minnst Í dag, 18. nóvember er minnst fórnarlamba umferðarslysa um allan heim. Af því tilefni sendi biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, prestum Þjóðkirkjunnar bréf og bað þá að minnast þessa í messum sunnudagsins. Í bréfi biskups segir meðal annars: 18.11.2007 13:53
Vopnað rán í Sunnubúð Þrír menn réðust inn í Sunnubúð við Mávahlíð rétt fyrir klukkan 11:20 í dag. Þeir voru vopnaðir kylfu og exi. Mennirnir ógnuðu starfsmanni sem var í búðinni og höfðu með sér á brott peninga úr sjóðsvél og tóbak. Skýrslutökur standa nú yfir og er ræningjanna leitað. 18.11.2007 13:46
Þúsundir nota Vefþuluna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði á föstudag nýja íslenska vefþjónustu sem fengið hefur nafnið Vefþula. Vefþulan er ætluð lesblindum námsmönnum og gerir þeim kleift að fá lesinn hvaða texta sem er á netinu, auk þess sem þeir geta sjálfir skrifað texta og fengið hann lesinn fyrir sig. 18.11.2007 13:09
Nágranni þakkar fyrir að ekki fór verr í bruna í Fannarfelli "Lögreglan sparkaði gat í hurðina hjá mér og kom svo öskrandi inn," segir Gunnar Sverrrisson öryrki og íbúi í Fannarfelli í Breiðholti. Eldur kom upp íbúð fyrir ofan hann í morgun. 18.11.2007 11:37
Brúðkaup aldarinnar Tvær af ríkustu fjölskyldum landsins tengdust saman í dag þegar Jón Ásgeir Jóhannesson, sonur Jóhannesar í Bónus og Ingibjörg Pálmadóttir, dóttir Pálma í Hagkaupi, gengu í það heilaga. 17.11.2007 18:49
Eldur í verslun á Laugarvegi Eldur kom upp á Laugarvegi 12 nú á níunda tímanum í kvöld, en í þessu húsi rekur Rauði krossinn nytjaverslun. Að sögn lögreglunnar var um minniháttar atvik að ræða og er búið slökkva eldinn. 17.11.2007 20:44
Óveður veldur tjóni við Selfoss Bíll fór út af Skeiðarvegi norðan við Flúðir rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Ökumaður slasaðist ekki alvarlega, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Þá fauk bíll, sem var með tóma hestakerru, út af veginum undir Ingólfsfjalli um þrjúleytið í dag. Mikið hvassviðri er á Selfossi þessa stundina og stendur lögregla í ströngu við að bjarga ýmsum lausamunum sem fjúka um bæinn og geta skapað tjón. 17.11.2007 20:57
Eftirlýstur maður gaf sig fram Maðurinn sem lýst var eftir í gær, grunaður um kynferðisbrot, gaf sig fram við lögreglu seint í gærkvöld. Að sögn lögreglu var ekki talin ástæða til að halda manninum og var hann því látinn laus að lokinni skýrslutöku. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.11.2007 19:23
Óttast um afdrif 200 nautgripa Mikill eldur kom upp í fjósi við Stærri-Árskóga í Eyjafirði rétt fyrir klukkan fimm í dag. Vegna mikilst hvassviðris gengur erfiðlega að slökkva eldinn og hefur hann nú læst sig í hlöðu sem er tengd fjósinu. Lögreglan á Akureyri segir að um 200 nautgripir hafi verið í fjósinu og óttast er að þeir hafi allir orðið eldinum að bráð. Bæði Slökkvilið Akureyrar og Slökkviliðið á Dalvík eru á vettvangi. 17.11.2007 17:56