Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Malarbíll valt á Krýsuvíkurvegi Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl þegar malarbíll valt á Krýsuvíkurvegi um níuleytið á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurfti að senda tækjabíl á vettvang til að hreinsa upp olíu sem lak úr bílnum. 9.8.2007 10:41
Utanríkismálanefnd fundar um nýtt varnarsamkomulag Utanríkismálanefnd Alþingis fundar nú um nýtt varnarsamkomulag við NATÓ og fyrirhugaðar heræfingar hér á landi. Það var Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í nefndinni, sem óskaði eftir fundinum. 9.8.2007 10:32
Bíll gereyðilagðist í eldi Eldur kviknaði í bíl af gerðinni Ford Transit við Urriðakvísl í Reykjavík, rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn kyrrstæður og enginn í honum þegar atvikið varð. Bíllinn er gerónýtur. 9.8.2007 10:29
Bílainnbrotahrina í Hafnarfirði Brotist hefur verið inn í sex bíla við miðbæ Hafnarfjarðar síðustu þrjár nætur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að þetta sé óvenjumikið á svo skömmum tíma. Þó sé algengt að innbrotum fjölgi þegar rökkva tekur á haustin. 9.8.2007 10:00
Treg laxveiði truflar ekki eftirspurn næsta sumars Hin trega laxveiði í ám landsins það sem af er sumri hefur ekki haft áhirf á eftirspurn eftir veiðileyfum fyrir næsta sumar. Bjarni Júlíusson formaður SVFR segir ennfremur að ekki sé merkjanlegur munur á að menn falli frá veiðileyfum sínum í ár miðað við fyrri ár. "Það er að vísu ívíð meir um slikt nú miðað við fyrri ár en vart merkjanlegur munur," segir Bjarni. 9.8.2007 09:52
Stígamót hljóta styrk í kjölfar tónleika Hundrað þúsund krónur söfnuðust á tónleikum sem haldnir voru þann fyrsta ágúst síðastliðinn þar sem kynbundnu ofbeldi var mótmælt. Fjölmargir listamenn komu fram en gestir voru hvattir til að veita frjáls framlög til Stígamóta. 8.8.2007 23:29
Yfirvöld á Akureyri hvött til afsagnar Hafin er undirskriftasöfnun á meðal bæjarbúa á Akureyri þar sem Bæjarstjórinn, Sigríður Björk Jakobsdóttir, er hvött til að segja af sér. Einnig er skorað á meirihlutann eins og hann leggur sig að gera slíkt hið sama. Undirskriftalistanum er ýtt úr vör í kjölfar umdeildrar ákvörðunar bæjaryfirvalda að banna ungmennum á aldrinum 18 til 23 ára að tjalda í bænum yfir verslunarmannahelgina. 8.8.2007 20:16
Náttúran gegn Tourette Sonur Heiðu Bjarkar Sturludóttur greindist með touretteheilkenni fyrir einu og hálfu ári síðan og var bent á að ekkert væri hægt að gera nema að láta drenginn á lyf ef einkennin versnuðu. 8.8.2007 20:04
Hugmynd Björns ekki framkvæmanleg Ívar Agnarsson, rekstrarstjóri veitingastaðarins Sólon í Bankastræti, gefur ekki mikið fyrir þá hugmynd Björns Bjarnasonar ráðherra að taka sér aðgerðir Akureyringa um verslunarmannahelgina til fyrirmyndar í viðleitni við að draga úr óreglu og ólátum í miðborginni um helgar eins og hann orðar það á heimasíðu sinni. 8.8.2007 19:53
Hundrað ára saga samkynhneigðra í gönguferð um Reykjavík Hundrað ára saga samkynhneigðra í Reykjavík er meðal þess sem má kynna sér á Hinsegin dögum, sem hefjast á morgun. 8.8.2007 19:29
Séríslenskur sjúkdómur nýtist til rannsókna á Alzheimers og Parkinson Rannsóknir á arfgengri heilablæðingu, sem er séríslenskur sjúkdómur, nýtast til rannsókna á Alzheimers og Parkinson sjúkdómunum. Heilablæðingin er einn sjaldgæfasti sjúkdómur í heimi. Doktor í sameindalíffræði segir að aðeins séu um 20 arfberar enn á lífi með genið. 8.8.2007 19:25
Bið til jóla eftir úthlutuðum leikskólaplássum í Reykjavík Foreldrar sem hafa fengið pláss fyrir börn sín á leikskólum Reykjavíkur nú í haust gætu sumir þurft að bíða til jóla eftir því að börnin komist að vegna manneklu. Um tvö hundruð manns vantar í störf á leikskólum borgarinnar. Skortur er líka á grunnskólakennurum og starfsmönnum skólavistunar. 8.8.2007 19:19
Leikskólinn Völlur opnar á Vellinum Mikið líf og fjör er á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli þessa dagana, en innan tveggja vikna verða íbúarnir orðnir um sjöhundruð. Í dag var skrifað undir samninga við Hjallastefnuna um rekstur leik og grunnskóla. Leikskólinn fær nafnið Völlur. 8.8.2007 19:13
Úr sér gengið atvinnuhúsnæði víkur fyrir íbúðum á Kársnesi Nýtt deiliskipulag fyrir reit á Kársnesi var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs í dag. Um er að ræða skipulag fyrir reit sem hefur að geyma úr sér gengið atvinnuhúsnæði en á reitnum á nýtt íbúðarhúsnæði að rísa. 8.8.2007 19:09
Þarf að ýta konunni í hjólastól á götunum því bílarnir teppa gangstéttarnar í Kópavogi Íbúi við Kársnesbraut í Kópavogi segist leggja sig og fatlaða eiginkonu sína í mikla lífshættu í hvert sinn sem þau fari úr húsi. Bílum er lagt upp á gangstéttar á Kársnesi og hann þarf að keppa við bílana og nota fjölfarnar göturnar þegar hann ýtir konunni á undan sér í hjólastól. 8.8.2007 19:03
Illa gengur að manna störf í Dalabyggð og Reykhólasveit Á sama tíma og atvinnuástand fer versnandi víða í sjávarplássum vegna skerðingar á þorskkvóta vantar sárlega starfsfólk í Dalabyggð og Reykhólasveit. Ljóst er að þessar byggðir keppa við höfuðborgarsvæðið um fólk í sömu störf. 8.8.2007 19:02
23 ára aldurstakmark í miðborginni um helgar? Í pistli sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ritaði á heimasíðu sinni í gær veltir hann fyrir sér samstarfi mótshaldara og lögreglu um verslunarmannahelgina. Hann segir að reynsluna af því samstarfi og þeim ákvörðunum sem teknar voru, meðal annars á Akureyri, eigi að nýta þegar hugað sé að leiðum til að draga úr óreglu og ólátum í miðborg Reykjavíkur. 8.8.2007 19:00
Mál og menning kaupir Eddu Mál og menning hefur keypt útgáfuhluta Eddu af Björgólfi Guðmundssyni. Starfsfólk heldur störfum sínum. Formaður Máls og menningar, Þröstur Ólafsson, segir sameiningu Máls og menningar og Vöku-Helgafells á sínum tíma í einn útgáfurisa hafa mistekist. 8.8.2007 18:53
Mikil og góð berjaspretta fyrir vestan Berjaspretta er með besta móti á Vestfjörðum og eru krækiber og bláber víða orðin þroskuð og safarík þótt lítið hafi rignt fyrir vestan í sumar. Góð berjaspretta fyrir vestan er reyndar ekkert einsdæmi því hún er góð víða um land enda hefur verið hlýtt í veðri, þó sérstaklega á sunnan- og vestanverðu landinu. 8.8.2007 18:53
Tugir barna notið hágæslu Börn sem notið hafa hágæslu á Barnaspítala Hringsins skipta tugum, segir yfirlæknir á vökudeild spítalans. 8.8.2007 18:43
Samkeppnin ekki grimm Framkvæmdastjóri FÍB blæs á þá skýringu að grimm samkeppni skýri lakari afkomu olíufélaganna. Hann segir álagningu olíufélaganna á eldsneyti hafa hækkað síðastliðin tvö ár, og snarhækkað á dísilolíu. 8.8.2007 18:40
Vinsældir Vísis aukast verulega Heimsóknir á fréttavefinn Vísi aukist verulega, eða um 7% á milli kannana, samkvæmt niðurstöðu fjölmiðlakönnunar Capacent Gallup fyrir maí til júlí 2007. 8.8.2007 16:24
Kalli Bjarni edrú og laus úr fangelsi Idolstjarnan Karl Bjarni Guðmundsson, betur þekktur sem Kalli Bjarni, er laus úr gæsluvarðhaldi sem hann hefur setið í frá því að hann var gripinn með tvö kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli í byrjun júní. Að sögn móður hans Sveinbjargar Karlsdóttur er Kalli Bjarni edrú. 8.8.2007 15:25
Myndir úr safni Björgólfsfeðga til sýnis Listasafn Reykjavíkur undirbýr sýningu á verkum Eggerts Péturssonar listmálara sem verður á Kjarvalsstöðum og hefst 31. ágúst næstkomandi. Soffía Karlsdóttir, deildarstjóri markaðs- og kynningarmála Listasafnsins, segir að um tímamótasýningu sé að ræða. Sýningin spanni allan feril Eggerts og sýnd verði verk sem hafi ekki sést áður. Þar af eru mörg verk í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thor Björgólfssonar. 8.8.2007 15:05
Landlæknir sáttur við náttúrulækningar Matthías Halldórsson landlæknir segir að ekki sé hægt að gera athugasemdir við náttúrulækningar svo framarlega sem þær séu skaðlausar, ekki sé verið að plokka peninga af bágstöddu fólki eða ættingum þeirra og ekki sé verið að beina fólki frá hefðibundinni meðferð sem sé læknandi. 8.8.2007 14:17
Ráðherra lítur eineltið alvarlegum augum Þórunn Sveinbjarnadóttir umhverfisráðherra lítur eineltið innan Veðurstofunnar alvarlegum augum en vill ekki blanda sér í starfsmannamál einstakra stofnana sem heyra undir embætti hennar. Þetta kom fram í samtali vísir.is við aðstoðarkonu ráðherrans, Önnu Kristínu Ólafsdóttur. Tveir veðurfræðingar á Veðurstofunni tjáðu sig um málið í Kastljósinu í gærkvöldi. 8.8.2007 13:50
Bændur á Hornafirði stefna Vegagerðinni Hópur bænda og annarra landeigenda á Nesjum í Hornafirði hefur stefnt Vegagerðinni og íslenska ríkinu og krefst þess að úrskurður umhverfisráðherra frá 11. maí um matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót verði felldur úr gildi. 8.8.2007 13:43
Umhverfislýsing um íslenskar fiskveiðar undirrituð Umhverfislýsingu um íslenskar fiskveiðar er ætlað að mæta kröfum erlendra kaupenda um gæðavottun íslenskra fiskafurða. Íslendingar velja að fara þessa leið í stað þess að taka þátt í fjölþjóðlegu samstarfi um gæðavottun, sem íslenskur sjávarútvegur telur ekki fullnægjandi. 8.8.2007 13:32
Google auglýsir í Danmörku fyrir Ásbjörn Ólafsson Svo virðist sem Google leitarvélin sé farin að auglýsa Prins Póló í Danmörku fyrir Ásbjörn Ólafsson ehf. Neðarlega á forsíðu danska blaðsins BT má sjá nafn fyrirtækisins. Þegar smellt er á það kemur upp auglýsing frá Ásbirni Ólafssyni sem hægt er að lesa bæði á Íslensku og ensku. Þar eru ýmsar vörur sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Svosem Knorr, Sonax og auðvitað Prinsinn. 8.8.2007 13:15
Lögregluaðstoð veitt í 40 prósentum tilfella Lögregluaðstoð var veitt í rúmum fjörutíu prósenta tilfella þegar hringt var til Neyðarlínunnar í júní mánuði. Um tuttugu prósent símtalanna var ekki hægt að greina þar sem fólk hringdi óvart úr farsímum, eða sleit sjálft símtalinu. 8.8.2007 12:59
Hnúfubakur leikur listir sínar á Faxaflóa Hnúfubakur eða hnúfubakar hafa leikið listir sínar fyrir gesti í hvalaskoðunarskipum Hvalaskoðunar Reykjavíkur undanfarna daga. Þetta er í þriðja sinn á innan við viku sem hnúfubakur hefur komið stökkvandi upp úr sjónum skammt frá hvalaskoðunarbát úti á Faxaflóa en það er afar fágætt að sögn Evu Maríu Þórarinsdóttur, markaðsstjóra Hvalaskoðunar Reykjavíkur. 8.8.2007 12:45
Þrýsti á vitlausan hnapp Einn rofi, sem var óvart þrýst á, olli rafmagnsleysinu í gær þegar ríflega helmingi af rafmagni landsins sló út í einu vetfangi. Guðmundur Ingi Ásmundsson, framkvæmdastjóri kerfisstjórnar hjá Landsneti, staðfesti það í morgun að mistökin hefðu orðið hjá starfsmönnum. 8.8.2007 12:16
Hinsegin dagar hefjast á morgun Páll Óskar muni syngja nokkur lög úr söngbók söng- og leikkonunnar Judy Garland, en upphaf hinsegin hátíða megi rekja til uppþota sem urðu við Stonewall barinn í New York á útfarardegi hennar 27. júní 1967. 8.8.2007 11:57
Lýst eftir vitnum að alvarlegri líkamsárás Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir vitnum að alvarlegri líkamsárás sem átti sér stað upp úr klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags fyrir framan skemmtistaðinn Trix í Reykjanesbæ. 8.8.2007 11:51
Ekkert bendir til þess að bilun hafi orðið í flugvél Ekkert bendir til þess að bilun hafi orðið í flugvélinni sem hlekktist á í flugtaki í Nýjadal á Sprengisandsleið á sunnudag. Fjórir erlendir menn voru í vélinni, sem er tíu sæta Cessna-vél skráð í Bandaríkjunum, og meiddust þeir ekki alvarlega í slysinu. 8.8.2007 11:42
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi í kókaínmáli Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi yfir tveimur mönnum sem ákærðir voru fyrir innflutning á fjórum kílóum af kókaíni í lok síðasta árs. Mennirnir voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 12. júlí síðastliðinn. 8.8.2007 11:26
Tourette-einkenni hurfu eftir náttúrulækningar Þegar sonur Heiðu Bjarkar Sturludóttur greindist með Tourette heilkenni, leist henni illa á þá hugmynd að setja son sinn á lyf. Hún taldi að strákurinn myndi fitna í kjölfarið og finna fyrir þunglyndiseinkennum. Heiða setti sig því í samband við homopata og ákvað að beita aðferðum náttúrulækninga við að fást við vandann. 8.8.2007 10:26
Kveikt í á Klambratúni Kveikt var í afklippum af trjám á Klambratúni nú fyrr í kvöld. Að sögn vakstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um að ræða haug af trjágreinum sem borgarstarfsmenn höfðu safnað saman af svæðinu. 7.8.2007 22:51
Fjölskylda frá Monakó slapp ómeidd úr bílveltu Mildi þykir að ekki fór verr þegar jeppabifreið frá bílaleigu valt á Landsvegi síðdegis í dag. Fimm manna fjölskylda frá Mónakó var um borð í bílnum, hjón með þrjá unglinga og sluppu þau öll með minniháttar skrámur. Jeppinn er hins vegar mikið skemmdur og jafnvel talinn ónýtur. 7.8.2007 22:29
Erill hjá Landsbjörgu um helgina Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í átta verkefni um verslunarmannahelgina og voru mörg hundruð liðsmanna sveitanna að störfum. Í fjögur skipti var um að ræða leit að einstaklingum og í þrjú skipti þurftu björgunarsveitamenn að koma slösuðum til hjálpar. 7.8.2007 22:02
Forvarnir virka Svo virðist sem öflugt forvarnastarf karlahóps femínistafélagsins sé að skila sér um verslunarmannahelgar því engar nauðganir voru tilkynntar til neyðarmóttöku þetta árið. 7.8.2007 21:12
Iðnaðarráðherra vill breyta lögum um FIT-kostnað Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir nauðsynlegt að endurskoða lög fjármálastofnana um innheimtu svokallaðs FIT-kosnaðar rækilega. Bankar innheimta FIT-kostnað þegar fólk fer yfir á reikningum. Björgvin telur núverandi lög byggð á veikum grunni og því sé nauðsynlegt að breyta þeim. 7.8.2007 20:06
Ekki hafa allir sem vilja fengið bílastæðaskífur Eigendur vistvænna bíla hafa margir hverjir lent í vandræðum með að fá bílastæðaskífur sem veita þeim rétt til að leggja ókeypis í Reykjavík. Aðeins voru útbúnar tvö hundruð skífur en alls eru fjórtán hundruð vistvænir bílar á götum landsins. 7.8.2007 19:34
Feðgar báru sjálfir út póst úr týndri pósttösku Feðgar í Reykjavík báru sjálfir út póst í hverfinu sínu, eftir að hafa beðið í tvo daga eftir því að Íslandspóstur næði í pósttösku sem lá á glámbekk í götunni. Íslandspóstur segir að bréfberum sé heimilt að skilja pósttöskur eftir á svokölluðum „öruggum svæðum“, en atvikið sýni að endurskoða þurfi þær reglur. 7.8.2007 19:11
Maður ósáttur við að Neyðarlínan brást ekki við símtali hans Maður sem hringdi á Neyðarlínuna þegar ókunnugur maður gekk inní svefnherbergi hans um miðja nótt, gagnrýnir að Neyðarlínan hafi ekki komið honum til hjálpar. Maðurinn hringdi tvisvar í Neyðarlínuna, en þagði til að fæla ekki hinn óboðna gest. Samkvæmt verklagsreglum Neyðarlínunnar greina neyðarverðir slík símtöl, til að meta hvort raunveruleg þörf sé á aðstoð. 7.8.2007 19:06