Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alþingi kemur saman á morgun Alþingi kemur saman á morgun í fyrsta skipti eftir kosningar. Að venju hefst þingsetning með guðþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13.30 en að henni lokinni ganga alþingismenn fylktu liði ásamt forseta Íslands, biskupi og ráðherrum til þinghússins. Þar mun forseti svo setja 134. löggjafarþing Íslendinga. 30.5.2007 10:35
Íslensku menntaverðlaunin veitt í þriðja sinn Íslensku menntaverðlaunin verða afhent í kvöld í þriðja sinn. Það er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem það gerir við hátíðlega afhöfn í Ingunnarskóla. 30.5.2007 10:19
Stúdentar vilja skýr svör frá ríkisstjórninni Ríkisstjórnin þarf að svara því hvort hún hyggist taka upp skólagjöld við opinbera háskóla á kjörtímabilinu að mati stjórnar Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Stúdentaráði. Ráðið gagnrýni að ekki sé tekin afstaða gegn skólagjöldum í opinberum háskólum í stjórnarsáttmálanum og ekki sé minnst einu orði á jafnrétti til náms. 30.5.2007 10:04
Tveggja ára hætt komin í sundlaug Tveggja ára stúlkubarn var hætt komið í sundlaug Íþróttamiðstöðvarinnar að Lágafelli í Mosfellsbæ, í gærkvöldi. Stúlkan var þar ásamt móður sinni og eldri systur. Hún var að leika sér í vatnsrennibraut laugarinnar og kom ekki úr kafi eftir eina ferðina. 30.5.2007 10:00
Barist gegn ofbeldi og fíkniefnum í Reykjanesbæ Yfirvöld í Reykjanesbæ og forsvarsmenn skemmtistaða í bænum skrifuðu í dag undir samning um nýjar leiðir í vörnum gegn ofbeldi of fíkniefnanotkun í bæjarfélaginu. Frá þessu er greint á heimasíðu Víkurfrétta. Meðal fyrirhugaðra aðgerða er styttri opnunartími og beint samband á milli dyravarða og lögreglu. 29.5.2007 23:46
Jeppi ók aftan á fólksbíl og valt í kjölfarið Árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi nú fyrir stundu þegar jeppi og fólksbifreið skullu saman. Jeppinn virðist hafa ekið aftan á bílinn og oltið í kjölfarið. Óhappið átti sér stað við aðreinina inn á Kársnesbraut í Kópavogi. Sjúkralið kom óvenju fljótt á vettvang, því sjúkrabíll átti leið hjá rétt eftir að slysið hafði átt sér stað. 29.5.2007 21:38
Nordica verður hlekkur í Hilton keðjunni Icelandair Hotels, dótturfyrirtæki Icelandair Group og Hilton Hotels Corporation hafa gert með sér samning þess efnis að Nordica hótelið í Reykjavík verði hluti af Hilton hótelkeðjunni og heiti framvegis "Hilton Reykjavik Nordica". 29.5.2007 21:22
Impregilo vísar ásökunum á bug Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo sendi í kvöld frá sér ítarlega tilkynningu vegna meintra ásakana sem fyrirtækið segir að bornar hafi verið á það að undanförnu. Impregilo segir um rangfærslur að ræða. 29.5.2007 21:05
Mikill verðmunur á milli skólamötuneyta Neytendastofa hefur gert verðkönnun í skólamötuneytum um land allt. Í könnuninni kemur margt fróðlegt fram en sérstaklega var kannað hvort skýrir skilmálar væru í gildi í grunnskólum um verðmyndun og verðlagningu. Í ljós kom að algengt er að skilmálar séu óljósir um kostnaðarskiptinguna á milli hráefnis og annars kostnaðar við máltíðirnar. 29.5.2007 19:42
Portúgalski sendiherrann á leið til landsins Sendiherra Portúgals í Noregi hefur boðað komu sína til Íslands til að kanna aðstæður landa sinna á Kárahnjúkum. Fyrrverandi verkamenn þar líkja starfinu við þrælahald. Upplýsingafulltrúi Impregilo býður sendiherrann velkominn á Kárahnjúka. 29.5.2007 19:25
Prjónar og málar - einhent Hún er í sextíu prósent vinnu við að kenna geðfötluðum - án þess að þiggja laun. Hún málar og prjónar - með einni hendi. Catherine Ness er engin venjuleg kona. 29.5.2007 18:48
Stjórnarandstaðan gagnrýnir breytingatillögur ríkisstjórnarinnar Stjórnarandstaðan gagnrýnir hugmyndir ríkisstjórnarinnar um breytingar á nefndarskipan Alþingis til samræmis við breytingar á lögum um stjórnarráð Íslands. Þá telur formaður Framsóknarflokksins ekki skynsamlegt að færa landbúnaðarháskólana frá landbúnaðarráðuneyti yfir til menntamálaráðuneytisins. 29.5.2007 18:46
Ríkið hefur betur í þjóðlenduúrskurðum Óbyggðanefnd kvað upp úrskurði í fimm þjóðlendumálum á Norðausturlandi í dag. Stór hluti af kröfum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins, var tekinn til greina og eignarlandskröfum þar með að talsverðu leyti hafnað. 29.5.2007 18:45
Viðskiptaráðherra ekki mótfallinn kynjakvóta Nýr viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, vill skoða þann möguleika að beita lagasetningu til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja. Til að ná stórstígum framförum, segir hann, þarf stundum róttækar aðgerðir. 29.5.2007 18:45
Meiri hagsmunum fórnað fyrir minni með hvalveiðum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni með hvalveiðum Íslendinga. Hún segir að aðrir en hún hafi nestað sendinefnd Íslands á þing Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem nú stendur yfir. 29.5.2007 18:42
Sakar Kompás og Fréttastofu Stöðvar 2 um óvönduð vinnubrögð Framkvæmdastjóri Landssambands Íslenskra Útgerðarmanna skrifar í nýjasta tölublaði Fiskifrétta grein um það sem hann kallar óvönduð vinnubrögð starfsfólks Kompáss og fréttastofu Stöðvar 2. 29.5.2007 18:27
Ólga hjá eldri borgurum Mikil ólga er innan Landssambands eldri borgara og kemur til uppgjörs á landsþingi sambandsins um næstu helgi. Þar verður kosið á milli núverandi formanns og fromannsefnis uppstillinganefndar. Þung orð féllu á fundi framkvæmdastjórnar Landsambandsins í dag. 29.5.2007 18:19
Eimskip yfirtekur stórfyrirtæki Eimskip verður stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki í heiminum með yfirtöku á fyrirtækinu Versacold. Hjá Versacold starfa fjögurþúsund og fimmhundruð starfsmenn sem reka 180 frysti- og kæligeymslur í fimm heimsálfum. Velta Eimskips eykst um helming við yfirtökuna sem er uppá sextíu og sjö milljarða króna. . 29.5.2007 18:16
Nýr forstjóri Straums-Burðaráss William Fall, sem áður var forstjóri alþjóðasviðs Bank og America sem er annars stærsti banki heims, hefur verið ráðinn forstjóri Straums-Burðaráss. Stefnt er að því að Straumur verði stærsti fjárfestingarbanki norðurlanda og segir Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður félagsins að mikill fengur sé af því að fá þennan þungaviktarmann til starfa. 29.5.2007 18:02
Hverfisráð Árbæjar ánægt með breytingar á leiðakerfi Meirihluti Hverfisráðs Árbæjar fagnar aukinni þjónustu Strætó bs. við íbúa í Árbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hverfisráðinu en fulltrúar minnihlutans í borginni hafa látið bóka mótmæli vegna breytinganna. Í bókunni furða borgarfulltrúarnir sig á því að ekki skuli hafa verið haft samráð við hverfisráðið. 29.5.2007 17:25
Hringrás sýknuð af skaðabótakröfu slökkviliðsins Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag endurvinnslufyrirtækið Hringrás af kröfu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna mikils bruna sem varð á athafnasvæði Hringrásar í nóvember 2004. Slökkvilið krafði fyrirtækið um rúmar 25,6 milljónir króna. 29.5.2007 16:32
Skemmdir unnar á öryggisbúnaði í jarðgöngum Unnin hafa verið nokkur spellvirki á öryggisbúnaði jarðganganna um Breiðdals- og Botnsheiði undanfarna daga. Fimm slökkvitæki hafa verið tæmd og flutt til innan ganganna og þá hefur sóðaskapur í göngunum aukist umtalsvert. Frá þessu er greint á fréttavef Bæjarins besta. 29.5.2007 15:57
Vilja nýjar lausnir í þjófnaðarmálum Æskilegt er að hér á landi verði tekin upp svokölluð borgaraleg sátt þegar kemur að þjófnaði í verslunum að mati Samtaka verslunar og þjónustu. Samtökin telja að með því megi spara lögreglunni sporin en jafnframt að þetta leiði til aukinnar hagræðingar fyrir verslunarfyrirtæki. Samtökin hafa sent dómsmálaráðuneytinu bréf þar sem lagt er til að þessi leið verði skoðuð. 29.5.2007 15:23
HR og JPV semja um útgáfu fræðirita Háskólinn í Reykjavík og JPV útgáfa hafa samið um samstarf um útgáfu fræðirita starfsmanna Háskólans í Reykjavík. 29.5.2007 14:58
Strengdi kaðal þvert yfir götu sér til gamans Bifreið skemmdist illa á veginum um Syðridal í Bolungarvík á laugardaginn þegar ökumaður hennar keyrði á nælonkaðal sem búið var að strengja yfir götuna. Ungur drengur viðurkenndi seinna að hafa gert sér þetta að leik en ekki áttað sig á þeirri hættu sem þetta skapaði. 29.5.2007 14:42
Ögmundur áfram þingflokksformaður Vinstri - grænna Ögmundur Jónasson verður þingflokssformaður Vinstri grænna á komandi kjörtímabili en þingflokkurinn skipti í dag með sér verkum. Varaformaður þingflokksins verður Katrín Jakobsdóttir og ritari er Kolbrún Halldórsdóttir. 29.5.2007 14:40
Sektaður fyrir vörslu barnakláms Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt karlmannn til að greiða 250 þúsund krónur í sekt fyrir vörslu barnakláms. Efnið, alls 54 ljósmyndir og ein hreyfimynd, fannst í tölvu mannsins en lögregla gerði húsleit á heimili hans eftir að alþjóðalögreglan Interpol hafði tilkynnt henni um að maðurinn hefði sótt sér efnið. 29.5.2007 14:04
Metaðsókn á Listahátíð Reykjavíkur Talið er að yfir 180 þúsund manns hafi sótt viðburði á vegum Listahátíðar Reykjavíkur sem lauk um síðustu helgi samkvæmt tilkynningu frá Listahátíðinni. Munar þar mest um ferðir risessunar og risans um borgina en áætlað er að allt að 150 þúsund manns hafi séð til ferða feðginanna sem einnig var lokaviðburður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi Pas? Frá upphafi hafa aldrei jafn margir sótt viðburði Listahátíðarinnar. 29.5.2007 14:02
Mótmæla breytingum á leiðarkerfi S5 Þjónusta við íbúa Árbæjarhverfis mun skerðast verulega gangi boðaðar breytingar á leiðarkerfi hraðleiðar Strætó bs. númer S5 eftir. Þetta kemur fram í bókun sem fulltrúar Samfylkingar og Frjálslynda flokksins hafa lagt fram í borgarstjórn. Þeir segja einboðið að breytingarnar bitni fyrst og fremst á námsmönnum. 29.5.2007 13:33
Ásakanir Steingríms tilhæfulausar Ásakanir Steingríms Sævarrs Ólafssonar, umsjónarmanns Íslands í dag, um að Ríkisjónvarpið standi í hótunum við fólk eru tilhæfulausar og rangar að sögn Þórhalls Gunnarsson, ritstjóra Kastljóss. Hann segist ekki blanda saman störfum sínum sem ritstjóri Kastljóss og dagskrástjóri RÚV. Þorsteinn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, segir Ríkissjónvarpið ekki hafa beitt sig þrýstingi. 29.5.2007 12:51
Tannlæknar samþykkja samning við HTR Tannlæknafélag Íslands samþykkti í póstkosningu samning við samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis um tannlækningar tveggja aldurshópa. 29.5.2007 12:47
Kona flutt á slysadeild eftir bruna á Nesinu Kona á sextugsaldri var flutt á slysadeild eftir að eldur kom upp í íbúð við Eiðismýri á Seltjarnarnesi á tólfta tímanum í morgun. Að sögn slökkviliðs kviknaði eldurinn út frá feiti sem var á pönnu á eldavél og náði hann að læsa sig í eldhúsinnréttinguna. 29.5.2007 12:35
Tveggja enn leitað vegna líkamsárásar Eftir handtökur lögreglu í gær á nú aðeins eftir að hafa upp á tveimur meintum árásarmönnum eftir hrinu líkamsárása á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt. 29.5.2007 12:30
Jól og páskar hjá sjómönnum Sjómenn segja að nú séu jól og páskar í senn því bæði kolmunni og norsk-íslensk síld eru gengin inn í fiskveiðilögsöguna í veiðanlegu magni. 29.5.2007 12:23
Stjórn og stjórnarandstaða funda um sumarþing Forystumenn stjórnarflokkanna hitta forystumenn stjórnarandstöðunnar í dag til að ræða fyrirkomulag sumarþings sem kemur saman á fimmtudag. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram aðgerðaráætlun í málefnum barna og frumvarp til breytingar á lögum um ráðuneyti þar sem verkefni færast á milli. 29.5.2007 11:53
Sektaðir fyrir að standa fyrir drykkjukeppni Uppákoman „Brjáluð Skothelgi" sem haldin var á veitingastaðnum Bar-inn á Sauðárkróki í fyrravetur hlaut þann endi í Héraðsdómi Norðurlands vestra á Sauðárkróki í morgun að báðir veitngamennirnir voru dæmdir til fjársekta. 29.5.2007 11:49
Segir Ríkissjónvarpið hóta viðmælendum Ríkisjónvarpið beitir hótunum til að koma í veg fyrir að viðmælendur fari í viðtal í Íslandi í dag í stað Kastljóss. Þetta kemur fram á bloggsíðu Steingríms Sævarrs Ólafssonar, umsjónarmanns Íslands í dag. Hann segir Ríkissjónvarpið hafa hótað að hætta við að kaupa kvikmynd af manni sem var búinn að lofa að mæta í viðtal í Íslandi í dag. 29.5.2007 11:33
Stytta opnunartíma skemmtistaða til að draga úr ofbeldi Opnunartími skemmtistaða í Reykjanesbæ verður styttur og dyravarsla aukin samkvæmt nýju samkomulagi bæjaryfirvalda, lögreglunnar og eigenda skemmtistaða þar í bæ. Markmiðið er að draga úr ofbeldi og fíkniefnaneyslu á skemmtstöðum í bæjarfélaginu. Einstaklingar sem ítrekað eru til vandræða verður framvegis meinuð aðganga að veitingastöðum. 29.5.2007 11:12
Einar Karl verður aðstoðarmaður Össurar Össur Skarphéðinsson, nýr iðnaðarráðherra, hefur ráðið Einar Karl Haraldsson sem aðstoðarmann sinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. 29.5.2007 11:07
Útlensk fiskiskip hreinsa upp miðin Íslenskum línuskipum reynist erfitt að fóta sig á keilumiðunum fyrir sunnan land vegna erlendra fiskiskipa. Skipstjóri á línuskipinu Sighvati GK segir færeysk og norsk línuskip raða sér á kantana suður af landinu og hreinsa upp miðin áður en íslensku skipin koma á vettvang. 29.5.2007 10:26
Mikið um hraðakstur við Akranes í síðustu viku Lögreglan á Akranesi stöðvaði 67 ökuþóra í síðustu viku vegna hraðaksturs. Þeir sem óku hraðast mældust á allt að 133 kílómetra hraða á klukkustund. 29.5.2007 10:15
Sýknaðir af smygli á yfir 800 e-töflum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag tvo karlmenn af ákæru um smygla á ríflega 800 e-töflum til landsins frá Hollandi í nóvember í fyrra. 29.5.2007 10:12
Sekt fyrir að sigla óhaffærum bát Karlmaður var í Héraðsdómi Vestfjarðar í dag dæmdur til að greiða 20 þúsund krónur í sekt fyrir að sigla bát sem ekki hafði haffærisskírteini. Landhelgisgæslan stöðvaði bátinn við veiðar. 29.5.2007 10:05
Bíll við bíl á suðurleið Fólk streymir enn inn til borgarinnar og að sögn lögreglu í Borgarnesi hefur lítið dregið úr henni eftir því sem liðið hefur á daginn. Allt hefur þó gengið vel og engin óhöpp átt sér stað. 28.5.2007 20:49
Heimakærar lundapysjur Það er alkunna að sumir atburðir eru árstíðabundnari en aðrir. Einn slíkra atburða er koma lundapysjanna á haustin. Á þessu eru þó til undantekningar eins og Gísli Óskarsson, fréttaritari Stöðvar 2 í Vestmannaeyjum komst að þegar lundapysjum var sleppt nú á vordögum í Stórhöfða. 28.5.2007 18:46
Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Innlent