Ásakanir Steingríms tilhæfulausar Höskuldur Kári Schram skrifar 29. maí 2007 12:51 Þórhallur Gunnarsson, ristjóri Kastljóssins. MYND/365
Ásakanir Steingríms Sævarrs Ólafssonar, umsjónarmanns Íslands í dag, um að Ríkisjónvarpið standi í hótunum við fólk eru tilhæfulausar og rangar að sögn Þórhalls Gunnarsson, ritstjóra Kastljóss. Hann segist ekki blanda saman störfum sínum sem ritstjóri Kastljóss og dagskrástjóri RÚV. Þorsteinn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, segir Ríkissjónvarpið ekki hafa beitt sig þrýstingi. „Ég hef ekki hótað neinum manni og ásakanir Steingríms eru því alrangar," sagði Þórhallur Gunnarsson, ristjóri Kastljóss, í samtali við Vísi. „Ég er fyrir löngu búinn að gera samning um kaup á þessari mynd og blanda ekki saman störfum mínum sem ritstjóri Kastljóss og dagskrástjóri RÚV." Steingrímur Sævarr Ólafsson, umsjónarmaður Íslands í dag, gagnrýnir vinnubrögð starfsmanna Kastljóssins harðlega á bloggsíðu sinni í dag. Segir hann starfsmenn Kastljóss hóta viðmælendum til þess að koma í veg fyrir að þeir mæti í viðtal í Íslandi í dag. Nefnir hann sérstaklega eitt dæmi í tengslum við fyrirhugað viðtal við Þorstein Jónsson, kvikmyndagerðarmann. Að sögn Steingríms á Ríkissjónvarpið að hafa hótað því leynt og ljóst að falla frá kaupum á kvikmynd Þorsteins eftir að hann ákvað að mæta frekar í viðtal í Íslandi í dag heldur en í Kastljósið. Þorsteinn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, sagði í samtali í Vísi ekki rétt að honum hafi verið hótað af hálfu Ríkissjónvarpsins. Hann segir málið byggjast á misskilningi. Upphaflega hafi hann ætlað sér að mæta í viðtal í Íslandi í dag en hætt við eftir að Kastljósið bauð honum líka. „Steingrímur hefur kannski misskilið þetta sem svo að mér hafi verið hótað. Báðar stöðvarnar vildu fá mig í viðtal. Ég kaus hins vegar Kastljósið og það sem réð úrslitum var að Ríkissjónvarpið hefur keypt myndina mína. Engum var hótað. Það var einfaldlega bara mitt val að fara frekar í Kastljósið," sagði Þorsteinn í samtali við Vísi.
Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Erlent Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Innlent Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erlent Áfall fyrir RIFF Innlent Fleiri fréttir Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi 83% fallinna almennir borgarar: „Allt sem er að gerast þarna ber einkenni þjóðarmorðs“ Næsti fasi í yfirtöku á Gasaströnd og Njálugleði Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Sjá meira