Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frumherji íhugar að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins Sú ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að ógilda samruna bílaskoðunarfyrirtækjanna Frumherja og Aðalskoðunar veldur vonbrigðum að sögn framkvæmdastjóra Frumherja. Hann segir fyrirtækið muni meta það á næstu dögum hvort úrskurðinum verði áfrýjað. 22.5.2007 16:39
Teymishópur ræðir atvinnumál á Vestfjörðum á morgun Teymishópur sveitarfélaga á norðanverðurm Vestfjörðum sem skipaður hefur verið í kjölfar uppsagna hjá útgerðafyrirtækinu Kambi á Flateyri kemur saman í fyrsta sinn í hádeginu á morgun og ræðir hugsanlegar aðgerðir í atvinnumálum á svæðinu. 22.5.2007 16:37
Tónlist.is staðið skil á stefgjöldum Eigendur vefsíðunnar Tónlist.is hafa staðið skil á öllum stefgjöldum til Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF). Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra STEFs. 22.5.2007 16:04
Byggja 4 þúsund fermetra gagnageymslu á gamla varnarsvæðinu Stefnt er að því að byggja 4 þúsund fermetra húsnæði fyrir gagnageymslu og gagnaþjónustu á gamla varnarsvæðinu við Sandgerðisbæ. Það er Data Íslandia sem stendur fyrir verkefninu en fyrirtækið skrifaði undir viljayfirlýsingu við Sandgerðisbæ í dag vegna framkvæmdarinnar. Gert er ráð fyrir því að um 20 manns vinni við gagnageymsluna til að byrja með. 22.5.2007 15:38
Geir fundar með einstökum þingmönnum fram undir kvöldmat Búist er við því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, verði fram undir kvöldmat að ræða við þingmenn flokksins og kynna þeim nýgerða stefnuyfirlýsingu flokksins og Samfylkingarinnar. 22.5.2007 15:21
Ísland til fyrirmyndar varðandi fæðingarorlof Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið er góð fyrirmynd fyrir önnur Evrópuríki að mati Ursulu von der Leyen, félagsmálaráðherra Þýskalands. Þetta kom fram á máli hennar á blaðamannafundi í tengslum við ráðstefnu félags- og jafnréttismálaráðherra í Evrópu sem haldin var í síðustu viku. 22.5.2007 15:20
Jafnræði kynja í ríkisstjórninni af hálfu Samfylkingarinnar „Já, við erum að tala við þingmennina og svo verður þingflokksfundur hjá okkur klukkan sjö og flokksstjórnarfundur klukkan átta þannig að það er tíðinda að vænta," sagði Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 nú eftir hádegið 22.5.2007 15:09
Mega sækja felld hreindýr á vélknúnum tækjum utan vega Leiðsögumenn með hreindýraveiðum hafa fengið heimild til að sækja bráðina á léttum vélknúnum ökutækjum ef leiðsögumaður metur það svo að ekki sé hætta á náttúruspjöllum. Í ákvörðun Umhverfisráðuneytisins um þetta segir að ökutækin verði þó að vera minnst sex hjóla. 22.5.2007 14:39
Ríkið dæmt til að greiða yfir 2 milljónir vegna ólögmætrar uppsagnar Íslenska ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag gert að greiða fyrrum starfsmanni á varnarsvæðinu á Miðnesheiði rúmar 2 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar. Manninum var sagt upp vegna trúnaðarbrests. 22.5.2007 14:27
Á yfir 170 kílómetra hraða á Miklubraut Þrír menn hafa verið gripnir á síðustu fjórum dögum á yfir 140 kílómetra hraða á höfuðborgarsvæðinu. Þannig var tæplega þrítugur maður tekinn á 142 kílómetra hraða á Hringbraut á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardagsins var 17 ára piltur gripinn eftir að hafa ekið á 171 kílómetra hraða á Miklubraut. 22.5.2007 13:52
Fékk skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela jakka Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela jakka úr verslun á Akureyri. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. 22.5.2007 13:44
Aðalmeðferð í klórgasmáli á Austurlandi Aðalmeðferð hófst í dag í Héraðsdómi Austurlands í máli á hendur tveimur starfsmönnum Olís vegna klórgasslyssins á Eskifirði í fyrrasumar 22.5.2007 13:40
Siv boðar harða stjórnarandstöðu Framsóknar Siv Friðleifsdóttir, fráfarandi heilbrigðisráðherra, var kjörin þingflokksformaður Framsóknarflokksins á fundi þingflokksins í morgun. Hún boðar harða stjórnarandstöðu Framsóknarflokks gegn því sem hún kallar frjálshyggjustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. 22.5.2007 12:54
Öryrkjar kæra auglýsingar með Lalla Johns Öryrkjabandalag Íslands hefur ákveðið að kæra auglýsingar Öryggismiðstöðvar Íslands með Lalla Johns til siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa. Telur Öryrkjabandalagið að Öryggismiðstöðin sé að misnota aðstöðu Lalla og ala á ótta almennings gagnvart heimilislausu fólki. 22.5.2007 12:54
Kaupa ekki fisk frá hvalatengdum fyrirtækjum Sjö leiðandi matvöruverslanakeðjur í Bretlandi hafa heitið því að kaupa ekki fisk frá fyrirtækjum sem tengjast hvalveiðum. Hvalur er stór hluthafi í Granda, sem er stærsta útgerðarfélag hér á landi. Keðjurnar eru Waitrose, Tesco, Sainhsbury´s, Marks og Spencer, Co-up og Iceland, sem er að hluta til í eigu Baugs. 22.5.2007 12:45
Þingmenn Samfylkingar funda með Ingibjörgu Sólrúnu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er nú að kalla til sín þingmenn flokksins einn af öðrum. Fréttastofa Stöðvar 2 náði tali af Steinunni Valdís Óskarsdóttur, nýjum þingmanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra þegar hún var að koma af fundi með Ingibjörgu Sólrúnu. 22.5.2007 12:26
Kvenkyns stjórnarformönnum fækkar á milli ára Kvenkyns stjórnarformönnum í hundrað stærstu fyrirtækjum landsins hefur fækkað á milli ára og sömuleiðis hefur konum í stjórnum þeirra fækkað. 22.5.2007 12:15
Peningamálastefna stjórnvalda gengur að sjávarútvegi dauðum Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum, segir nauðsynlegt að horfið verði frá núverandi peningamálastefnu stjórnvalda og vextir lækkaðir. Núgildandi stefna sé að ganga frá sjávarútveginum dauðum og ný ríkisstjórn hljóti að breyta stefnunni. 22.5.2007 11:59
Ný ríkisstjórn tekur við á morgun Samkomulag hefur tekist um myndun ríkisstjórnar milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar og er fastlega búist við að ríkisstjórnarskipti verði á Íslandi á morgun. Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar liggur fyrir og formennirnir kynna hann nú þingmönnum sínum. 22.5.2007 11:56
Á annað þúsund ökutæki kolefnisjafna útblástur sinn Á annað þúsund ökutæki á vegum fyrirtækja og einstaklinga hafa kolefnisjafnað útblástur sinn. Rúmlega sextíu þúsund tré verða gróðursett á Geitasandi sem er fyrsta skógtæktarland fyrir kolviðaskóga hér á landi. Ef kolefnisjafna ætti alla bíla á Íslandi þyrfti að gróðursetja um sjö milljónir trjáa á ári. 22.5.2007 11:52
Stjórnvöld og Ísafjarðarbær grípi strax til aðgerða Vinstri græn á Ísafirði vilja að stjórnvöld og Ísafjarðarbær grípi strax til aðgerða til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búsetuflótta frá Flateyri eftir lokun fiskvinnslufyrirtækisins Kambs í bænum. 22.5.2007 11:42
Sofnaði á rauðu ljósi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu glímdi við heldur óvenjulegt mál á einum af fjölförnustu gatnamótum borgarinnar aðfaranótt sunnudags. Tilkynnt hafði verið um kyrrstæða bifreið á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar en þar var ökumaður í fastasvefni í bifreið sinni. 22.5.2007 11:25
„Hélt að þeir myndu drepa vin minn“ Sjálfboðaliði á vegum Félagsins Ísland-Palestína varð fyrir árás hóps ísraelskra ungmenna á götum borgarinnar Hebron í Ísrael í fyrradag. Spörkuðu þeir meðal annars í maga sjálfboðaliðans og köstuðu grjóthnullungi í höfuðið á öðrum grískum sjálfboðaliða. 22.5.2007 11:17
Sýknaður af óspektum vegna breytts tíðaranda Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað karlmann af ákæru um að hafa verið ölvaður og valdið óspektum, hættu og hneykslan á almannafæri á þeim grundvelli að viðhorf til drykkjskapar og óspekta sé allt annað nú en það var þegar lögreglusamþykkt sem snýr að málinu var gerð. 22.5.2007 11:00
Sumarið kemur seinna Það er í alvörunni 22. maí. Samkvæmt dagatalinu allavega Þeim sem þurftu að skafa af bílum sínum í morgun væri þó fyrirgefið að halda að þeir hafi tekið feil á dagsetningunni. 22.5.2007 10:38
Fresta atvinnuviðtölum vegna mögulegrar vanhæfni Fresta þarf atvinnuviðtölum við 72 umsækjendur um starf markaðsstjóra Ferðamálastofu í Bandaríkjunum sökum þess að ferðamálstjóri telur sig mögulega vanhæfan til að fjalla um ráðninguna. Einn af umsækjendunum er skyldur starfsmanni Ferðamálastofu. 22.5.2007 10:30
Valt með átján tonn af fiski Stór fiskflutningabíll ásamt tengivagni ultu á hliðina í gær þegar vegkantur á Þverfjallsvegi í Skagafirði gaf sig undan þunga þeirra. Ökumaður slapp ómeiddur. 22.5.2007 10:23
Jón vísar fregnum af afsögn á bug Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, vísar því á bug að hann hyggist segja af sér. Þetta kom fram í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins. Í Íslandi í dag fyrr í kvöld var sagt frá því að Jón hefði tilkynnt samstarfsmönnum sínum að hann ætli að segja af sér. 21.5.2007 22:27
Slökkviliðsstjórinn á Suðurnesjum hvetur til umbóta Slökkviliðsstjórinn á Suðurnesjum segir í pistli á vefsíðu Brunavarna Suðurnesja að breytingar og stækkun á samfélaginu á Suðurnesjum hvetji kalli á ábyrgari þjónustu. Aðeins fjórir eru á vakt auk stjórnenda bakvaktar á hverjum tíma. 21.5.2007 20:25
Vinnuálag getur leitt til sýklalyfjaónæmis barna Vinnuálag foreldra kallar á skyndilausnir við eyrnarbólgum barna og afleiðingin getur orðið sýklalyfjaónæmi, segir heilsugæsluæknir í Hafnarfirði. Þrátt fyrir umræðu um ofnotkun sýklalyfja hefur salan á þeim aukist. 21.5.2007 19:02
Hjólhýsasprengja Sprenging hefur orðið í sölu hjólhýsa á undanförnum árum. Nýskráningar hjólhýsa hafa næstum þrítugfaldast á fimm árum. 21.5.2007 18:59
Jón Sigurðsson ætlar að segja af sér Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins hefur tilkynnt nánustu samstarfsmönnum sínum að hann ætli að segja af sér. Þetta kom fram í Íslandi í dag nú rétt áðan. 21.5.2007 18:58
Konur í Grímsey byggja upp ferðaþjónustu Ellefu konur í Grímsey hafa með uppbyggingu ferðaþjónustu aukið fjölbreytni í atvinnulífi eyjarinnar. Þær reka nú saman gistiheimili, kaffihús og gallerí. 21.5.2007 18:41
Kambur þegar selt hluta aflaheimildanna Eigandi Kambs á Flateyri er þegar búinn að selja stóran hlut aflaheimilda sinna út af Vestfjarðasvæðinu. Bæjarstjórinn á Ísafirði reynir nú að stuðla að því að nokkrir útgerðaraðilar á norðanverðum Vestfjörðum kaupi það sem eftir er af heimildunum. 21.5.2007 18:30
Reynt að ná saman um stóru málin Leiðtogar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar eiga enn eftir að ná saman um tvo málaflokka en hlé var gert á stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna klukkan fjögur í dag. Ætla má að leiðtogunum reynist erfiðast að ná saman um stóriðjumál og Evrópumál og að jafnvel verði þeim erfitt að ná lendingu varðandi lándbúnaðinn. 21.5.2007 18:30
Hlé á viðræðum um myndun stjórnar meðan ákveðnum málum er lent Formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar tilkynntu á tröppum Ráðherrabústaðarins nú síðdegis að þeir hefðu gert hlé á viðræðum um ríkisstjórnarmyndun. Ekki er ákveðið hvenær næsti fundur verður. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir hléð gert vegna þess að ákveðnum málum þurfi að lenda. 21.5.2007 18:29
Norðanflug á loft í júní Norðanflug ehf., félag um fraktflug frá Akureyri til meginlands Evrópu, hefur hafið starfsemi. Fyrsta flugferðin verður farin 3. júní og áfangastaðurinn er Oostende í Belgíu. 21.5.2007 17:28
Fluttur á slysadeild eftir aftanákeyrslu við Grímsbæ Bústaðarvegur var lokaður á milli Réttarholtsvegar og Grensásvegar um tíma í kringum fjögurleytið vegna aftanákeyrslu til móts við Grímsbæ. Ökumaður bílsins sem ekið var á á var fluttur á sjúkrahús þar sem hann kvartaði undan eymslum en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg. 21.5.2007 16:50
Þóra Sigríður nýr forstöðumaður Blindrabókasafnsins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur skipað Þóru Sigríði Ingólfsdóttur í embætti forstöðumanns Blindrabókasafns Íslands til fimm ára, frá 1. júlí næstkomandi. 21.5.2007 16:30
Samherji kaupir erlenda útgerð Sjólaskipa Samherji hf. hefur fest kaup á nánast allri starfsemi úgerðarinnar Sjólaskip hf. á erlendri grund. Þetta kemur fram í frétt Interseafood á Íslandi. Um eitt þúsund manns af ýmsum þjóðernum starfa við útgerð Sjólaskipa í Máritaníu og Marokkó. 21.5.2007 16:29
Landsbjörg og Gæslan semja um samvinnu í þyrluútköllum Slysavarnafélagið Landsbjörg og Landhelgisgæsla Íslands skrifuðu um helgina undir samkomulag um samvinnu í þyrluútköllum vegna leitar og björgunar á landi. 21.5.2007 16:21
Viðræður í eðlilegum farvegi Formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar segja viðræður flokkanna um myndun nýrrar ríkisstjórnar í eðlilegum farvegi. Formennirnir voru brosmildir þegar þeir ræddu stuttlega við fréttamenn fyrir framan Ráðherrabústaðinn fyrir skemmstu. Hlé hefur verið gert á viðræðum þangað til á morgun. 21.5.2007 16:09
Hluta Bústaðavegar lokað eftir árekstur við Grímsbæ Búið er að loka Bústaðavegi á milli Réttarholtsvegar og Grensásvegar vegna umferðarslyss sem þar varð fyrir stundu til móts við Grímsbæ. Litlar upplýsingar er að hafa að svo stöddu en bæði lögregla og sjúkrabílar hafa verið send á vettvang. 21.5.2007 16:08
Fundað í ráðherrabústaðnum í dag Formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og varaformenn flokkanna, þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson, hafa fundað í Ráðherrabústaðnum frá því í hádeginu um nýjan stjórnarsáttmála. 21.5.2007 15:53
Sól kaupir Emmessís af Auðhumlu Sól mun kaupa Emmessís af Auðhumlu, móðurfélagi Mjólkursamsölunnar, samkvæmt samkomulagi sem félögin hafa undirritað. Það er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. 21.5.2007 15:48