Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stefna að því að stækka miðborgina Til stendur að stækka miðborg Reykjavíkur svo um munar með því að byggja upp á svokölluðu Höfðatorgi sem liggur á milli Borgartúns, Skúlatúns, Skúlagötu og Höfðatúns. 26.4.2007 15:38
Landsvirkjun greiðir hálfan milljarð í arð til ríkisins Samþykkt var á aðalfundi Landsvirkjunar að greiða hálfan milljarð í arð til eiganda fyrirtækisins, íslenska ríkisins. Á fundinum urðu einnig þær breytingar á stjórn að Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogsm tók við af Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni sem stjórnarformaður Landsvirkjunar en aðrir í stjórn voru endurkjörnir. 26.4.2007 15:21
Verslingar í morgunmat hjá framsókn Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur í Verzlunarskóla Íslands í dag og var mikið um dýrðir. Um 300 nemendur eru að ljúka verslunarprófi eftir tveggja ára nám og við það tilefni klæða þeir sig upp og gera sér glaðan dag. Nemendur hófu daginn á því að gæða sér á morgunverði í Ýmishúsinu í boði Framsóknarflokksins. 26.4.2007 15:17
Fann nokkuð af fíkniefnum við húsleit í Breiðholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann nokkuð magn fíkniefna við húsleit í Breiðholti í gær. Þar á meðal voru um 100 grömm af hassi, amfetamín og marijúana. 26.4.2007 14:51
Magnús Oddson heiðraður Ferðamálaráð Evrópu heldur í dag aðalfund sinn á Nordica hóteli í dag. Þetta er í annað sinn í 59 ára sögu samtakanna sem aðalfundur þeirra er haldinn hér á landi. Magnúsi Oddsyni, ferðamálastjóra Íslands, var veitt viðurkenning fyrir „úrvalsþjónustu við Ferðamálasamtök Evrópu í yfir 15 ár,”. 26.4.2007 14:42
Tímabært samkomulag þótt herinn hefði verið áfram Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samningana við Norðmenn og Dani í varnar- og öryggismálum tímabæra jafnvel þótt Bandaríkjaher hefði verið hér enn á landi. Geir sagðist ánægður með samkomulagið og að það væri í grunninn pólitísk yfirlýsing um samvinnu milli landanna. 26.4.2007 14:39
Mannekla og ófullnægjandi húsakostur hamlar starfsemi Landspítalans Mannekla og og ófullnægjandi húsakostur hefur hamlað starfsemi Landspítalans háskólasjúkrahúss að sögn Birnu Kr. Svavarsdóttur, formanns stjórnarnefndar Landspítalans háskólasjúkrahúss. Þetta kom fram í ræðu hennar á ársfundi spítalans sem haldinn er í dag. Hún segir nauðsynlegt í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu að skoða fleiri möguleika við fjármögnun og framkvæmd heilbrigðisþjónustunnar. 26.4.2007 14:15
Bein útsending frá blaðamannafundi um varnarmál Bein útsending er að hafin frá Stjórnarráðinu þar sem Geir H. Haarde forsætisráðherra fjallar um nýgert samkomulag við Norðmenn í varnarmálum og viljayfirlýsingu sama efnis sem gerð var við Dani. 26.4.2007 13:48
Samkrull borgaralegra og hernaðarlegra þátta varhugavert Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd, gerir alvarlegar athugasemdir við öll vilyrði í nýgerðu samkomulagi Íslendinga við Norðmenn og samstarfsyfirlýsingu við Dani um öryggismál sem gefin eru af hálfu Íslendinga um aukinn kostnað sem fellur á Íslendinga. 26.4.2007 13:31
Malarflutningabíll valt við Þorlákshöfn Malarflutningabíll valt á hliðina við hringtorg í Þorlákshöfn í hádeginu. Eftir því lögregla á Selfossi segir var ökumaður flutningabílsins í belti og tókst honum að komast að sjálfsdáðum út úr bílnum. 26.4.2007 13:24
Slys í Kópavogslaug Fimmtán ára gamall unglingspiltur fannst meðvitundarlaus í Kópavogslaug klukkan tíu í morgun. Drengurinn var í skólasundi þegar atvikið átti sér stað. Þegar lögregla og sjúkralið kom á staðinn höfðu lífgunartilraunir þegar verið hafnar og var hann fluttur í skyndi á bráðamóttöku. 26.4.2007 13:06
Alvarlegustu umferðarslysin á þjóðvegum í dreifbýli Alvarlegustu bílslysin hér á landi eiga sér stað á þjóðvegum í dreifbýli og nær 75% banaslysa í umferðinni eru fyrir utan borgarmörkin. Þjóðvegir landsins eru hættulegir og laga þarf umhverfi þeirra til að draga úr alvarlegum bílslysum vegna útafaksturs segir deildarstjóri hjá Vegagerðinni. 26.4.2007 12:45
Geta fengið borguð laun í evrum Frá og með næstu mánaðamótum gefst starfsmönnum Straums-Burðaráss kostur á að fá borguð laun í evrum. Þetta er fyrsta fyrirtækið hér á landi sem borgar starfsmönnum sínum laun í evrum. Hagnaður bankans á fyrsta ársfjórðungi var rétt rúmir sex milljarðar króna. 26.4.2007 12:30
Út í hött að byggja upp samgöngumiðstöð áður en framtíð flugvallar ræðst Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir út í hött að ráðast í gerð samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli áður en búið verður að ákveða framtíð flugvallarins. Hún gengur þar með gegn stefnumörkun samgönguráðherra og nýsamþykktri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. 26.4.2007 12:20
CANTAT-3 kominn í lag Áhöfn kapalskipsins Pacific Guardian hefur lokið fullnaðarviðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum sem bilaði milli Íslands og Kanada 16. desember s.l. Unnið er að því að setja fjarskiptaumferð á strenginn að nýju og er búist við að umferð verði komin í eðlilegt horf fyrir lok vikunnar. 26.4.2007 12:11
Fékk enga skýringu á því hvers vegna hann var settur af Jóhannes Geir Sigurgeirsson kveðst enga skýringu hafa fengið á því hvers vegna hann er látinn hætta sem stjórnarformaður Landsvirkjunar. Jóhannes verður settur af á aðalfundi sem hefst klukkan eitt, gegn vilja sínum. 26.4.2007 12:10
Íslendingar bera kostnað af veru norskra hermanna hér Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, undirrituðu nú fyrir stundu samkomulag um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Samkvæmt því bera Íslendingar kostnað af staðsetningu norskra liðsmanna hér. 26.4.2007 12:00
Danskur ríkisborgari í haldi Bandaríkjamanna í Írak Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur, gagnrýndi í dag bandarísk yfirvöld fyrir að greina dönsku ríkisstjórninni ekki frá því að danskur ríkisborgari af íröksku bergi brotinn hefði verið í haldi Bandaríkjahers í Írak í marga mánuði. 26.4.2007 11:48
Iðjuþjálfun ekki í boði fyrir nýinnritaða á geðdeild Iðjuþjálfun á geðdeild LSH við Hringbraut mun 1.maí n.k. leggja niður alla þjónustu við nýinnritaða sjúklinga móttökudeilda og göngudeildar, segir Sylviane Pétursson-Lecoultre, yfiriðjuþjálfi. Þjónusta iðjuþjálfa mun því skerðast verulega frá og með 1. maí 2007. 26.4.2007 11:38
Gefur ekki upp orkuverð til Norðuráls vegna Helguvíkurálvers Hitaveita Suðurnesja gefur ekki upp opinberlega á hvaða verði hún mun selja raforku til Norðuráls vegna hugsanlegs álvers í Helguvík. 26.4.2007 11:15
„Við erum alveg að komast upp að vegg,“ segir forstjóri Landspítalans Halli á rekstri Landspítalans háskólasjúkrahúss nam 290 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi spítalans sem kynntur var nú í morgun. Á sama tíma og fleiri leita til spítalans eftir þjónustu hefur raunfjárveiting staðið í stað eða minnkað. Forstjóri Landspítalans segir nauðsynlegt að ríkið auki fjárveitingar. 26.4.2007 10:41
Herréttur hafinn í morðmálinu í Keflavíkurstöðinni Réttarhöld yfir meintum morðingja flugliðans Ashley Turner, sem myrt var í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, eru hafin. Verjandi segir að yfirvöld hafi verið of fljót á sér í málinu og að þeim hafi láðst að rannsaka annan mann sem hafði ástæðu til að vinna Turner mein. Íslensk kærasta mannsins neitar að mæta fyrir réttinn. 26.4.2007 10:30
Útsending Stöðvar 2+ liggur niðri Útsending Stöðvar 2+ á Digital Ísland hefur legið niðri frá því í gærkvöld en það má rekja til bilunar í töluvkerfi. Verið er að vinna að viðgerð og er vonast til að útsendingin verði komin í lag síðar í dag. 26.4.2007 10:27
Forsætisráðherra tjáir sig um varnarsamninga Bein útsending verður á Vísi í dag frá blaðamannafundi klukkan 14 í Stjórnarráðinu en þar svarar Geir H. Haarde forsætisráðherra spurningum blaðamanna um samstarf Íslendinga annars vegar og Norðmanna og Dana hins vegar í varnar- og öryggismálum. 26.4.2007 10:07
Verið Vísindagarðar tekur til starfa á Sauðárkróki Fyrirtækið Verið Vísindagarðar ehf. hefur verið stofnað á Sauðárkróki og fyrr í dag var haldinn opinn kynningarfundur um starfssemina. Eitt af markmiðum Versins er að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, efla rannsóknir og námsframboð og auka verðmætasköpun í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu. 26.4.2007 09:48
Landsmenn taki fréttum af mótmælendum með gagnrýnum huga Lögreglan á Seyðisfirði biður landsmenn að taka fréttum á komandi sumri af samskiptum lögreglunnar og mótmælenda með gagnrýnum huga en þeir hafa boðað uppsetningu mótmælendabúða frá og með 6. júlí 2007. 26.4.2007 09:28
Umhverfisspjöllum vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík mótmælt Samtökin Sól á Suðurnesjum hvetja íbúa í Vogum til að hafna uppbyggingu háspennulína um svæðið ef kemur til að álver rísi í Helguvík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Þau telja línurnar muni rýra gildi svæðisins. 26.4.2007 09:25
Varðliðar umhverfisins skipaðir og Kuðungurinn afhentur Um hundrað manns komu saman í Kjarvalsstöðum í hádeginu í dag af tilefni Dags umhverfisins. Varðliðar umhverfisins voru útnefndir og verktaktafyrirtækið Bechtel hlaut umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins. 25.4.2007 23:12
Biskup segir að menn verði að fara sér hægt Biskup íslands telur ekki tímabært að prestar innan þjóðkirkjunnar fái heimild til að gefa saman í hjónaband samkynhneigð pör. Tillaga þess efnis var felld á Prestastefnu á Húsavík í dag. Hópur presta lagði fram tillögu um að þjóðkirkjan fari þess á leit við Alþingi að lögum verði breytt á þann veg að prestar fái að gefa saman samkynhneigð pör. 25.4.2007 19:45
Flest brunaslysin vegna heits vatns á baðherbergjum Nær 75 % brunaslysa vegna heits vatns eiga sér stað inn á baðherbergi. Börnum undir fimm ára aldri er hættast við brunum og hljóta þau alvarlegustu áverkana samkvæmt nýrri rannsókn. Herferð gegn slíkum slysum er nú hafin. 25.4.2007 19:14
VG vill lækka lyfjaverð og komugjöld á spítala Taka þarf á mannekluvandanum á spítölunum og lækka þarf lyfjaverð og komugjöld á heilsugæslustöðvar og spítala hér á landi. Þetta lögðu frambjóðendur Vinstri grænna áherslu á í vinnustaðaheimsókn sinni á Landspítalanum í dag. 25.4.2007 18:57
Alveg eins hægt að stilla upp símastaurum í bæjarstjórn Helsti eðalkrati landsins, sá sem á einkanúmerið "krati", hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Árni Hjörleifsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði, lýsir andúð á skoðanaleysi bæjarfulltrúa flokksins í álverskosningunni og segir alveg eins hægt að stilla upp símastaurum í bæjarstjórn. 25.4.2007 18:45
Tvö hundruð þúsund tonn af forskautum Tæplega tvöhundruð þúsund tonn af forskautum falla til á hverju ári í álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði. Endingartími hvers forskauts er tuttugu og átta dagar. 25.4.2007 18:30
Tillaga um val presta vísað til biskups og kenningarnefndar Tillaga sem fram kom á fundi prestastefnu um að þeir prestar sem það kjósi verði vígslumenn samkynheigðra var vísað til biskups og kenningarnefndar Þjóðkirkjunnar. Prestastefna stendur nú yfir á Húsavík 25.4.2007 16:44
Yfir 20 stiga hiti í kortunum Mjög hlýtt loft sækir nú að landinu og eru horfur á að hiti fari um og eftir helgi í yfir 20 stig til landsins á norðanverðu landinu. 25.4.2007 16:37
Framsókn tapar miklu í NA-kjördæmi Fylgi Framsóknarflokksins hrynur í Norðausturkjördæmi en Vinstri - grænir og Sjálfstæðisflokkurinn auka fylgi sitt verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. 25.4.2007 16:34
Peningaverðlaun í boði í Reykjavíkurmaraþoni Hundrað þúsund krónur verða veittar þeim sem sigrar í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem fram fer 24. ágúst næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem peningaverðlaun eru í boði í hlaupinu en þau ná til þriggja fyrstu í heilu maraþoni, hálfu maraþoni og 10 kílómetra hlaupi auk brautarmeta í heilu og hálfu maraþoni. 25.4.2007 16:16
Vænir hákarlar á land í Húsavík Þrír myndarlegir hákarlar voru hífðir á land í Húsavíkurhöfn í dag en þeir veiddust á hákarlalínu sem legið hafði út í Skjálfanda síðustu daga. Það var Aðalsteinn Karlsson á bátnum Kalla á höfða sem veiddi hákarlana þrjá en hann er sjómaður og stundar hákarlaveiðar sem aukabúgrein. 25.4.2007 16:04
Tillaga um vígslu samkynhneigðra í hjónaband felld Fulltrúar á prestastefnu sem fram fer á Húsavík felldu tillögu hóps presta og guðfræðinga á stefnunni um að farið yrði fram á það við Alþingi að breyta lögum þannig að prestar fengju heimild til vígja samkynhneigð pör í hjónaband. 25.4.2007 15:44
Þrjú fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur fíkniefnamálum í gær. Kona á þrítugsaldri var handtekin í austurborginni þegar hún framvísaði fölsuðum lyfseðli. Kalmaður á fertugsaldri sem tengdist málinu var síðan færður á lögreglustöð. Í íbúð hans fundust ætluð fíkniefni. 25.4.2007 15:37
Tveir karlmenn í vinnuslysum í Kópavog Tveir karlmenn á þrítugsaldri lentu í vinnuslysum í Kópavogi í gær. Annar var að taka steypumót utan af veggjum þegar hann féll aftur fyrir sig. Fallið var ekki mjög hátt en maðurinn fann fyrir eymslum í baki. 25.4.2007 15:22
Silfur í hópi heitustu staða heims Veitingastaðurinn Silfur á Hótel borg er hópi heitustu veitingastaða heims samkvæmt tímaritinu Condé Nast Traveler. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá eigendum veitingastaðarins sendi blaðið fulltrúa sína til 30 landa til að leita nýrra veitingastaða sem standast ýtrustu gæðakröfur. 25.4.2007 15:16
Friðland í Þjórsárverum verði stækkað strax Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stækka þegar í stað friðlandið í Þjórsárverum í samræmi við tillögu Umhverfisstofnunar við undirbúning Náttúruverndaráætlunar. 25.4.2007 14:34
Skemmdir unnar á skiltum Framsóknar Skemmdir voru unnar á auglýsingaskiltum Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi á Egilsstöðum í nótt og eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá flokknum er þetta í annað skiptið á örfáum dögum sem þetta er gert. 25.4.2007 14:21
Sorpbrennslustöð á Húsavík skemmdist í bruna Sorpbrennslustöðin á Húsavík skemmdist töluvert í bruna í gærkvöld og verður ekki hægt að brenna sorp þar á næstunni. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var tilkynnt um eldinn korter í tíu í gærkvöld og var þá allt tiltækt slökkvilið hvatt á vettvang. 25.4.2007 14:09