Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrstu skrefin að tvöföldun Hvalfjarðarganga Fulltrúar Spalar og Vegagerðarinnar hafa undirritað samkomulag sem kallað er á heimasíðu Spalar fyrsta formlega skrefið að því marki að tvöfalda þjóðveginn um Kjalarnes og gera ný göng undir Hvalfjörð. 15.1.2007 13:11
Tekist á um skiptingu norsk-íslenska síldarstofnsins Enn ein samningalotan um skiptingu norsk-íslenska síldarstofnsins hófst í Osló í gærkvöldi en veiðarnar eru orðnar stjórnlausar og eru taldar stefna stofninum í hættu. 15.1.2007 12:30
Málflutningur í Baugsmáli hafinn í Hæstarétti Málflutningur vegna sex ákæruliða í fyrra Baugsmálinu stendur nú yfir í Hæstarétti. Er þetta í fyrsta skipti sem ákæruliðirnir fá efnislega meðferð í Hæstarétti en síðast var þeim vísað aftur heim í hérað. 15.1.2007 12:20
Svört skýrsla um Byrgið Skýrsla Ríkisendurskoðunar um rekstur meðferðarheimilisins Byrgisins verður birt nú eftir hádegi. Búast má við svartri skýrslu ef miðað er við að Ríkisendurskoðandi þótti ástæða til að stöðva greiðslur til Byrgisins áður en rannsókn lauk. 15.1.2007 12:04
Bilun í símstöð veldur fjarskiptatruflunum Bilun er í símstöð sem veldur truflunum á síma, neti og farsímaþjónustu hjá Vodafone í Grafarholti, Grafarvogi, Borgarholti og Mosfellsbæ. Unnið er að viðgerð. 15.1.2007 11:52
Kútter Sigurfari verður sjófær á ný Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja 60 milljónum króna á næstu 5 árum til endurgerðar og varðveislu kútters Sigurfara, sem staðið hefur við Byggðasafn Akraness undanfarin ríflega 30 ár, með það fyrir augum að gera skipið sjófært á ný. 15.1.2007 11:45
Stutt kosningaþing hefst í dag Alþingi kemur saman á ný í dag eftir fimm vikna jólahlé. Búast má við snarpri törn næstu tvo mánuði en gert er ráð fyrir að þinginu verði slitið óvenju snemma í ár, eða 15. mars, vegna alþingiskosninganna í vor. 15.1.2007 11:37
Ökumaður og farþegar undir áhrifum kókaíns Ökumaður bifreiðar sem ók utan í vegrið í Svínahraun á laugardagsmorgun er grunaður um að hafa verið undir áhrifum kókaíns. Tveir aðrir karlmenn voru í bílnum og er einnig talið að þeir hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Mennirnir eru á þrítugsaldri. 15.1.2007 11:35
Ísraelar stækka stærstu landnemabyggðina á Vesturbakkanum Ísraelar hafa tilkynnt um stækkun landnemabyggðar á Vestubakkanum á sama tíma og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á ferð um Miðausturlönd til þess að reyna að koma á friði milli Ísraela og Palestínumanna. 15.1.2007 11:27
Varúð: Grýlukerti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum, sem er víða að finna þessa dagana, og segir ljóst er að af þeim getur stafað nokkur hætta. Full ástæða sé því til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát. Lögreglan biður eigendur og umráðamenn húsa að bregðast við, og vísar til skyldu þeirra í þessum efnum. 15.1.2007 11:21
Jóhann Helgason bæjarlistamaður Seltjarnarness Tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason hefur verið valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness 2007. Í fréttatilkynningu sem bærinn sendi frá sér segir að Jóhann sé einn fremsti lagahöfundur og flytjandi landsins. 15.1.2007 11:17
Tilbúinn í stríð við flokksbróður vegna Suðurlandsvegar Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og samflokksmaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra, segist tilbúinn í stríð við samgönguráðherra verði vegurinn á milli Selfoss og Reykjavíkur ekki tvöfaldaður og aðgreindur í náinni framtíð. 15.1.2007 10:57
Heimilislausir flýja Byrgið og lenda í hrakningum Forstöðumaður Gistiskýlisins, athvarfs fyrir heimilislausa karlmenn í Reykjavík, segist finna verulega fyrir vandræðum Byrgisins. Mönnum sem leita á náðir Gistiskýlisins hefur fjölgað frá því málefni Byrgisins komust í hámæli og nokkrum sinnum hefur heimilislausum mönnum verið vísað á götuna að undanförnu. 14.1.2007 19:15
Leysum ekki vandamál með því að taka upp evruna, segir forstjóri Glitnis Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir bankann ekki hafa í hyggju að gera upp í evrum líkt og Straumur Fjárfestingabanki geri og getgátur hafi verið uppi um að Kaupþing sé að íhuga. Hann segir að ekki megi gleyma kostum íslensku krónunnar og vísar frekar til ábyrgðar hins opinbera. 14.1.2007 19:00
Víða vond færð Það er hálka og éljagangur á Reykjanesbraut og sömuleiðis á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er hálka og skafrenningur og víða þæfingur í uppsveitum. 14.1.2007 10:46
Skíðasvæði lokuð fyrir sunnan opin annarsstaðar Þrátt fyrir að snjó hafi kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga verður lokað í Bláfjöllum og Skálafelli í dag. Grétar Hallur Þórisson forstöðumaður skíðasvæðanna sagði í samtali við fréttastofu í morgun að snjórinn væri svo þurr og léttur að grjót stæði upp úr um leið og hann hreyfði vind. 14.1.2007 10:38
Segir Sjálfstæðisflokkinn vilja sópa evrutali út af borðinu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir að íslenska krónan sé ákveðið vandamál og vill skoða hvaða leiðir séu færar aðrar en að ganga í Evrópubandalagið. Hún segir einnig að óskapleg viðkvæmni ríki hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu máli og þau vilji helst sópa öllu evrutali út af borðinu. 13.1.2007 22:45
Heyrnleysingjaskólinn - helvíti á jörð Skóli heyrnarlausra var helvíti á jörð, segir rúmlega fertugur heyrnarskertur maður sem var ítrekað misnotaður af samnemendum sínum. 13.1.2007 18:51
Íslenskir neytendur tilbúnir til að borga hátt verð fyrir brauð Formaður Landsambands bakarameistara segir að launakostnaður sé farinn úr böndunum og bakarar leggi því ekki óeðlilega mikið á brauðmeti þótt það sé dýrt. Íslenskir neytendur séu tilbúnir til að borga hátt verð fyrir brauð. Bakarameistarar ætla þó ekki að víkjast undan ábyrgð sinni þegar kemur að lækkun matarverðs í byrjun mars. 13.1.2007 18:45
Ekki kosið um álver í Helguvík Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ segir að ekki verði kosið um fyrirhugað álver í Helguvík, eins og samtökin Sól á Suðurnesjum hefur krafist. Árni segir í samtali við Morgunblaðið að tvær skoðanakannanir hafi verið gerðar á síðasta ári, sem sýni 77 prósent stuðning við álverið. 13.1.2007 17:52
Valgerður vann í Mývatnssveit Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra fékk örugga kosningu í fyrsta sætið á aukakjördæmisráðsþingi flokksins í Mývatnssveit. Tuttugu og tveir gáfu kost á sér í tíu fyrstu sætin. Tveir þingmenn, Dagný Jónsdóttir og Jón Kristjánsson gáfu ekki kost á sér. 13.1.2007 17:10
Biðröð af sendiferðabílum á útsölu Það var nóg að gera hjá sendiferðabílstjórum í dag, enda voru stórútsölur hjá nokkrum húsgagnaverslunum, svosem Húsgagnahöllinni og ÍKEA, þar sem boðinn var allt að áttatíu prósenta afsláttur. 13.1.2007 17:02
Metár í fíkniefnaupptöku Tollgæsla á landinu lagði árið 2006 hald á mesta magn fíkniefna sem fundist hefur á einu ári við landamæraeftirlit. Fundust 43,5 kg af amfetamíni, 8,3 kg af kókaíni og 21,6 kg af kannabisefnum auk lítils magns heróíns en það efni hefur ekki fundist áður við fíkniefnaeftirlit tollgæslu hérlendis. 13.1.2007 16:42
Olíubílum fækkar á Reykjanesbraut Ferðum olíuflutningabíla um Reykjanesbraut fækkar um fimmtán á sólarhring, með því að flugvélaeldsneyti er nú sett á tanka í Helguvík, en ekki Reykjavík. Fyrsta eldsneytisflutningaskipið kom til Helguvíkur í gær, með um tuttugu þúsund tonn af eldsneyti sem notað verður á 13.1.2007 14:04
Síldargengd í Grundarfirði kemur sérfræðingum ekki á óvart Þorsteinn Sigurðsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun segir síldargegndina í Grundarfirði ekki koma sérstaklega á óvart. Síldarstofninn hafi verið að styrkjast fyrir vestan land síðustu þrjú til fögur ár og 85% síldarstofnsins hafi mælst á þessum slóðum í febrúar í fyrra. 13.1.2007 13:30
Konu bjargað úr eldsvoða á Vopnafirði í nótt Slökkvilið Vopnafjarðar var kallað út vegna bruna rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Efri hæð 2 hæða einbýlishúss stóð í ljósum logum og var kona sem tilkynnti sjálf um eldinn innikróuð í húsinu. 13.1.2007 13:15
Landspítalinn lifir ekki af biðina eftir nýju húsi Læknar efast um að Landspítalinn lifi af biðina eftir nýju sjúkrahúsi nema fundið verði bráðabirgðahúsnæði. Þeir vilja að ríkið kaupi eða leigi gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Aðstaðan núna, sé sjúklingum ekki boðleg. 13.1.2007 12:00
Háskólinn stefnir hátt Háskóli Íslands er á þröskuldi þess að komast á lista yfir 500 bestu háskóla í heimi og verður kominn þangað innan fárra ára. Miklu lengra er þar til skólinn mun eiga möguleika á að komast í hóp þeirra hundrað bestu, eins og rektor hefur gert að markmiði sínu. 12.1.2007 23:36
HA sakar menntamálaráðherra um mismunun Formaður félags háskólakennara á Akureyri sakar menntamálaráðherra um mismunun. Á Akureyri búi skólinn við hundruð milljarða króna halla meðan smjör drjúpi af hverju strái hjá Háskóla Íslands. 12.1.2007 21:30
Ekkert ferðaveður Færð er nú slæm um allt land og á Öxnadalsheiði er snjóþekja og stórhríð og ekkert ferðaveður. Á Reykjanesbraut og öllum Suðurnesjunum er hálka og skafrenningur, sem og á Hellisheiði og Þrengslum en þar er líka éljagangur. 12.1.2007 20:57
Blindbylur á Holtavörðuheiði Blindbylur er á Holtavörðuheiði og tveir bílar hafa farið útaf veginum. Björgunarsveitir frá Hvammstanga og Borðeyri eru á leið uppá heiði að aðstoða ökumenn. 12.1.2007 18:52
Rúv frumvarp úr nefnd Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf, var afgreitt úr menntamálanefnd Alþingis, eftir lítilsháttar breytingar í dag og verður væntanlega á dagskrá þingsins á mánudag. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi sendu forseta þingsins bréf í gær og báðu um að fundi menntamálanefndar yrði frestað, þar sem ný gögn frá ESA hefðu verið lögð fram, en því var hafnað 12.1.2007 18:50
Tilkynnt um viðbrögð á næstu dögum Félagsmálaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til þeirra aðgerða sem heyrnarlausir telja þörf á, í kjölfar könnunar á kynferðislegu ofbeldi innan samfélags heyrnarlausra. 12.1.2007 18:42
Steingeld byggð á Slippsvæðinu Fyrirhuguð byggð á Slippsvæðinu er steingeld með háum, stórum og ljótum húsum, segir formaður Íbúasamtaka Vesturbæjar sem vill kollvarpa hugmyndum um uppbyggingu við Mýrargötuna. Formaður skipulagsráðs segir þetta gott skipulag sem muni styrkja Vesturbæinn. 12.1.2007 18:39
Harður árekstur við Munaðarnes Harður árekstur varð norðan við Munaðarnes við bæinn Grafarkot rétt fyrir klukkan fjögur í dag þegar jeppi og flutningabifreið skullu saman. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanni jeppans, sem var einn á ferð, út úr bifreiðinni. 12.1.2007 18:30
Grundarfjörður fullur af síld Grundarfjörður er fullur af síld og náði Krossey frá Hornafirði að fylla skipið í tveimur köstum þar í dag en síld hefur ekki verið veidd í firðinum í tugi ára. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar rannsaka hvort það var þetta mikla magn síldar sem varð til þess að tuttugu tonn af eldisþorski drapst í firðinum. 12.1.2007 18:30
Tröllasögur um hátt leiguverð skaða markaðinn Tröllasögur um hátt leiguverð skaða leigumarkaðinn segir formaður Húseigendafélagsins. 12.1.2007 18:30
Dæmdur fyrir skattsvik Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag mann fyrir skattsvik og þarf hann að greiða rúmar átta milljónir í sekt til ríkissjóðs. Hann var einnig dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundins fangelsis. Maðurinn var sakfelldur fyrir að skila virðisaukaskattskýrslum og staðgreiðsluskilagreinum of seint og einnig fyrir vanskil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda. 12.1.2007 17:58
Laug til um nauðgun og fer í fangelsi Tuttugu og eins árs kona var í dag dæmd í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í dag, þar af sjö mánuði skilorðsbundið, fyrir að hafa kært mann fyrir nauðgun sem aldrei átti sér stað. 12.1.2007 17:35
Gæsluvarðhald yfir síbrotamanni fellt úr gildi Hæstiréttur Íslands felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni. Maðurinn var um miðjan desember dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir nytjastuld, skjalafals, þjófnaði og fleira. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var felldur úr gildi vegna tæknilegra atriða. 12.1.2007 17:18
Stóru símafélögin hafa samið við RHnet vegna truflunar á netsambandi RHnet hefur samið við Símann um netsamband um Farice sæstrenginn á meðan á viðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum stendur. Um er að ræða 100 mb/s. Fyrr í dag var sagt frá því að RHnet hefði samið við Vodafone um netsamband um sæstrenginn á meðan á viðgerð á strengnum stendur. 12.1.2007 17:03
Lega álvers í Helguvík ákveðin Sveitarfélögin Reykjanesbær og Garður hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau segja frá því að sátt hafi náðst um legu lóðar fyrirhugaðs álvers í Helguvík. 12.1.2007 17:00
Maður grunaður um líkamsárás á Kárahnjúkasvæðinu úrskurðaður í farbann Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag farbann yfir kínverskum ríkisborgara sem grunaður er um að hafa stungið mann í vinnubúðum á Kárahnjúkasvæðinu á nýársdag. 12.1.2007 16:36
Fyrsta barn ársins á Ísafirði fæddist í dag Fyrsta barn ársins á Ísafirði fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði á ellefta tímanum í dag. Fréttavefur Bæjarins besta segir það hafa verið stóra og myndarlega stúlku en hún var sautján og hálf mörk og fimmtíu og einn sentimetri. 12.1.2007 16:25
Þrír árekstrar á Hellisheiði í dag Lögreglan á Selfossi hefur í dag aðstoðað fasta ökumenn á Hellisheiði rétt ofan við Hveradalina. Leiðinlegt skyggni er á heiðinni og hafa ökumenn verið að festa sig. Þrír árekstra hafa orðið á Hellisheiði í dag og má rekja þá alla til slæmrar færðar. 12.1.2007 15:51