Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ólíklegt að olíu verði dælt úr flutningaskipi í dag Eitthvað af hráolíu hefur lekið frá flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði úti fyrir Sandgerði í nótt og er útlit fyrir að ekki takist að dæla olíu úr skipinu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Keflavík. Þar segir að göt séu á skrokki skipsins og vinna fulltrúar frá Umhverfisstofnun og Olíudreifingu vinna að mengunarvörnum á slysstað. 19.12.2006 14:18
Vilja tryggja rekstur Konukots til 1. maí Fjármagn til reksturs Konukots og auknar niðurgreiðslur til dagforeldra og sjálfstætt rekinna leikskóla eru meðal breytinga sem meirihluti borgarstjórnar leggur til á frumvarpi að fjárhagsáætlun borgarinnar sem tekið verður til seinni umræðu í dag. 19.12.2006 14:04
Háskóli Íslands missir netsambandið aftur Háskóli Íslands er aftur orðinn sambandslaus við umheiminn. Starfsfólk og nemendur hafa þurft að glíma við afar slitrótta tengingu við Internetið vegna bilunar sem varð í CANTAT-3 strengnum um helgina. 19.12.2006 13:53
Háskóli Íslands brýtur jafnréttislög í annað sinn á árinu Kærunefnd jafnréttismála komst í gær að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands hefði brotið gegn jafnréttislögum þegar hann réð karlmann í stöðu sérfræðings við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar HÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmanni konunnar. 19.12.2006 13:36
Skipverjar fluttir með þyrlu - veður fer versnandi Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur nú flutt átta af tólf skipverjum á kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga í land og því eru aðeins fjórir skipverjar og stýrimaður frá Landhelgisgæslunni eftir í bátnum. 19.12.2006 13:25
Varnarviðræður við Norðmenn í dag Viðræður Norðmanna og Íslendinga um mögulegt varnarsamtarf þjóðanna hófust í utanríkisráðuneytinu í morgun og standa enn. Viðræðunefnd Norðmanna kom til landsins í gærkvöldi. Sendinefndin mun meðal annars skoða varnarsvæðið í Keflavík eftir hádegi. 19.12.2006 13:00
Framsóknarmenn kynna framboðslista sína í Reykjavík Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins í Reykjavík norður og suður hafa boðað til blaðamannafundar klukkan hálfsex í dag í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu þar sem framboðslistar flokksins í kjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar verða kynntir. 19.12.2006 12:40
Byrgið þarf að rannsaka Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum segir alveg ljóst að rannsaka þurfi mál þeirra kvenna sem saka forstöðumann Byrgisins um að hafa misnotað sér sjúkleika þeirra. 19.12.2006 12:31
Dómara dæmd laun í samræmi við úrskurð Kjaradóms Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri að greiða Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara rúmar sextíu þúsund krónur vegna þeirrar ákvörðunar alþingis að fella úr gildi ákvörðun Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna frá því seint á síðasta ári. 19.12.2006 11:53
Fangi á Litla-Hrauni dæmdur fyrir vörslu fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands dæmdi dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fangelsinu fyrr á árinu. Hass og amfetamín fannst í munnholi og í klefa fangans í júlí í sumar og tæpum tveimur vikum síðar fannst einnig hass og tóbaksblandað kannabisefni við klefaleit. 19.12.2006 11:16
Dæmdur fyrir vörslu nærri 260 barnaklámsmynda Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot með með því hafa haft nærri 260 ljósmyndir af barnaklámi í tölvu sinni sem margar hverjar voru mjög grófar. 19.12.2006 10:58
Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir tvö fíkniefnabrot fyrr á þessu ári. Í fyrra tilvikinu var hann handtekinn eftir að tvær e-pillur og rúm tvö grömm af hassi fundust á honum en í síðara tilvikinu fundust nærri 15 grömm af amfetamíni og tæp 80 grömm af hassi. 19.12.2006 10:49
Óskar vill rifta samningi við Faxaflóahafnir Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir gagnrýni á verktakasamning hans við Faxaflóahafnir ómaklega og af pólitískum rótum sprottna. Hann vill að sátt ríki um verkefnið og biður því um að verktakasamningi hans við Faxaflóahafnir verði rift. 19.12.2006 10:46
Vildu gista í bílum sínum á Breiðdalsheiði Björgunarsveitin Hérað var kölluð út fyrr í kvöld vegna tveggja bíla sem voru í vandræðum við Axarafleggjarann á Breiðdalsheiði. Björgunarsveitarmenn komu að bílnum um klukkan tíu. Fólkið í bílunum, sem var erlent, neitaði allri aðstoð og kvaðst ætla gista í bílunum í nótt. Björgunarsveitin hélt því aftur heim. 18.12.2006 23:50
Maður fastur uppi í mastri hjá Fjarðaráli Björgunarsveitarmenn vinna nú að því að ná niður manni sem fastur er uppi í mastri í lóð Fjarðaráls á Reyðarfirði. Björgunarsveitarmenn frá Héraði og Norðfirði aðstoða björgunarsveitina Ársól á Reyðarfirði við aðgerðirnar. Maðurinn er fastur í 20 til 30 metra hæð. 18.12.2006 23:25
Lögreglan í Vík heimsækir skotvopnaeigendur Lögreglan í Vík hefur síðustu vikur verið að heimsækja eigendur skotvopna um sýsluna sem eiga þrjú skotvopn eða fleiri. 18.12.2006 22:22
Blysför á Þorláksmessu í tuttugasta og sjöunda sinn Íslenskir friðarsinnar standa fyrir sinni árlegu blysför niður Laugarveginn á Þorláksmessu. Þetta er í tuttugasta og sjöunda sinn sem ganga er farin. 18.12.2006 22:00
Gæsluvarðhald yfir 18 ára síbrotamanni fellt úr gildi Hæstiréttur Íslands felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir átján ára gömlum pilti. Hann var fyrir viku dæmdur í gæsluvarðhald til 4. janúar í Héraðsdómi Reykjaness. Pilturinn er grunaður um ítrekaðan þjófnað en hann er í mikilli fíkniefnaneyslu og hefur fjármagnað neysluna með þjófnuðum. 18.12.2006 21:27
Umferðaróhöpp í hálkunni á Akureyri Átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Akureyri í dag. Þau mátti nær öll rekja til mikillar hálku á götunum en hálka er víðs vegar á götum bæjarins og í nágrenni. 18.12.2006 21:03
Vilja fella niður leikskólagjöld á námsmenn Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum hvetja bæjarfélögin á Suðurnesjum til að fella niður leikskólagjöld á námsmenn. Í ályktun sem þeir sendu frá sér er bent á að leikskólagjöld séu dýr baggi á námsmenn sem þurfa að treysta á námslán til þess að framfleyta sér. 18.12.2006 20:27
Jólagæsin uppseld Jólagæsina mun víða vanta á borð landsmanna í ár, þar sem hún er uppseld í verslunum. Neysluvenjur landsmanna á aðfangadagskvöld eru að taka miklum breytingum. 18.12.2006 20:15
Vinna liggur enn niðri í Kárahnjúkagöngum Vinna við steypusprautun í jarðgöngum í Kárahnjúkum liggur enn niðri eftir vinnuslys á laugardag en þá fyrirskipaði vinnueftirlit ríkisins úttekt á öryggismálum áður en framkvæmdir héldu áfram. Í dag fóru eftirlitsmenn stofnunarinnar á staðinn og tóku út verkferla, en allt öryggiskerfið á Kárahnjúkum er í endurskoðum. 18.12.2006 19:30
Viðræður um varnarsamstarf í fullum gangi Viðræður um varnarsamstarf Íslands og Danmerkur hófust í Kaupmannahöfn í morgun og verður fram haldið í Reykjavík í febrúar. Fundað verður um varnarsamstarf með Norðmönnum á morgun og á næsta ári síðan rætt við Breta og Kanadamenn. 18.12.2006 19:30
Leynd aflétt af svartri skýrslu um Byrgið Svört skýrsla um fjármál og rekstur Byrgisins sem unnin var fyrir utanríkisráðuneytið fyrir fimm árum, hefur aldrei komið formlega fyrir sjónir fjárlaganefndar Alþingis. 18.12.2006 19:24
Vilja heimild til að innheimta skólagjöld Rektor Háskólans á Akureyri vill fá heimild til að innheimta skólagjöld, samhliða hefðbundnum rekstri með fjárveitingum frá ríkinu. Um einsdæmi yrði að ræða í íslensku skólakerfi. 18.12.2006 19:15
Deilt um hvort úrskurður ógildi rannsókn Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að bæði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, væru vanhæfir og skyldu víkja sæti við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi. Lögmaður eins fimmmenninganna telur úrskurðurinn ónýta rannsóknina en því er dómurinn ekki sammála. 18.12.2006 18:45
Guðmundur í Byrginu látið af störfum Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, hefur látið af störfum meðan rannsókn fer fram á málefnum Byrgisins. Hann kærði fréttaskýringaþáttinn Kompás til lögreglu í dag. Ekkert opinbert eftirlit er með meðferðarheimilum og getur hver sem er stofnað þau. Guðmundur, og menn á hans vegum, hafa undanfarin misseri verið umsvifamiklir lóðakaupendur í Grímsnesi. 18.12.2006 18:43
Millilandaflug lamast ekki þrátt fyrir skort á flugumferðarstjórum Forstjóri Flugstoða segir að millilandaflug muni ekki lamast þótt um sextíu flugumferðarstjórar hafi ekki nýtt lokafrest til að ráða sig hjá fyrirtækinu, sem tekur til starfa um áramótin. Til greina kemur að ráða flugumferðarstjóra erlendis frá ef á þarf að halda. 18.12.2006 18:30
Snjóflóð féll á Ólafsfjarðarveg Verið er að hreinsa Ólafsfjarðarveg en snjóflóð féll fyrir stundu við Sauðanes. Engan sakaði. Lögreglan á Ólafsfirði segir rok og rigningu á staðnum en vegurinn verður lokaður næsta hálftímann meðan verið er að klára að hreinsa hann. 18.12.2006 18:12
1.900 milljónir í málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra Félagsmálaráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra - málefni fatlaðra (SSNV málefni fatlaðra) undirrita á morgun nýjan þjónustusamning. Samningurinn er til 6 ára. 18.12.2006 18:05
Fékk sautján mánaða skilorðsbundinn dóm Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í dag dæmdur í sautján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir vörslu á lítilræði af hassi. Dómurinn er skilorðsbundinn en með broti sínu rauf maðurinn fyrra skilorð. 18.12.2006 17:52
Sextán mánuði fyrir vörslu á fíkniefnum Karlmaður var í dag dæmdur í sextán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir vörslu á rúmlega 970 grömmum af amfetamíni og um ellefu kílóum af hassi, kannabislaufum og kannabisstönglum. Efnin voru ætluð til sölu. 18.12.2006 17:16
Byrgið ætlar í meiðyrðamál Forsvarsmenn meðferðarheimilisins Byrgisins ætla að höfða meiðyrðamál fyrir dómstólum gegn Stöð 2 vegna umfjöllunar sjónvarpsþáttarins Kompás í gærkvöldi um Guðmund Jónsson, forstöðumann heimilisins. Hilmar Baldursson, héraðsdómslögmaður, sagði í samtali við fréttastofuna í dag, að hann myndi væntanlega á morgun leggja fram kæru á stöðina fyrir hönd stjórnar Byrgisins. 18.12.2006 17:00
Sælla að gefa en þiggja Sælla er aðgefa en þiggja eru gömul sannindi og ný sem 11 ára börn í Kársnesskóla í Kópavogi ákváðu að fylgja í dag. Í stað þess að skiptast á gjöfum á litlu jólunum, ákáðu þau að gefa þeim sem minna mega sín jólagjafir í staðinn. Þau fóru í Kringluna með 70 jólapakka sem þau settu undir jólatré Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands. 18.12.2006 16:59
Starfsmannavelta fyrirtækja eykst Starfsmannavelta fyrirtækja hér á landi á árinu 2005 var 14,2% en það samsvarar því að sjöundi hver starfsmaður fyrirtækjanna hafi skipt um starf. Starfsmenn við vinnu hér á landi voru fjarverandi í tæplega 10 daga að meðaltali á árinu 2005 vegna veikinda eða slysa. 18.12.2006 16:44
Jón HB Snorrason og Haraldur Johannessen úrskurðaðir vanhæfir Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur tók varakröfu Baugsmanna til greina þegar hann úrskurðaði fyrir stuttu, að Jón HB Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, væru vanhæfir til að fara með rannsókn á meintum skattalagabrotum þeirra. Aðalkröfu Baugsmanna, sem var að rannsókninni yrði hætt þar sem hún væri ólögmæt, var hins vegar hafnað. 18.12.2006 15:52
Engar nýjar umsóknir frá flugumferðarstjórum fyrir kl. 14 Engar nýjar umsóknir um störf flugumferðarstjóra bárust nú fyrir klukkan tvö og því vantar enn 58 flugumferðarstjóra til starfa hjá Flugstoðum sem tekur við af Flugumferðarstjórn um áramót. 18.12.2006 15:21
Samtök eigenda sjávarjarða stefna íslenska ríkinu Samtök eigenda sjávarjarða hafa höfðað má á hendur íslenska ríkinu vegna deilna um eignar- og nýtingarrétt á jörðum. Um er að ræða jörðina Horn I í Hornafirði og er eigandi hennar, Ómar Antonsson, stefnandi í málinu en hann er jafnframt formaður Samtaka eigenda sjávarjarða. 18.12.2006 15:05
Vilja hefja frumhönnun á Öskjuhliðargöngum á næsta ári Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar vilja að frumhönnun á Öskjuhliðargöngum og stokkalausn á Miklubraut verði hafin samhliða umhverfismati á Sundagöngum á næsta ári og að fasteignaskattar og holræsagjald verði lækkað. 18.12.2006 14:31
Þiggur ekki fjórða sætið af feminískum ástæðum Varaþingmaður Vinstri - grænna í Norðausturkjördæmi ákvað í gær að þiggja ekki fjórða sætið á listanum. Hann segir ástæður þess af femínískum toga. 18.12.2006 13:19
Hugsanlegt að enginn vöxtur verði á einkaneyslu á fjórða ársfjórðungi Kreditkortavelta í nóvember síðastliðnum var tæplega 21 milljarður króna og jókst um 3,5 prósent milli ára samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans sem greint er frá í Morgunkorni Glitnis. 18.12.2006 13:05
Gáfu 70 jólapakka í söfnun Mæðrastyrksnefndar Það hefur verið til siðs á litlu jólum í flestum skólum að börn skiptist á jólagjöfum. Ellefu ára börnum í Kársnesskóla fannst þau hins vegar þau fá nóg af gjöfum um jólin og ákváðu að gefa frekar gjafir til þeirra sem minna mega sín. 18.12.2006 12:45
Netsamband á að haldast eðlilegt þrátt fyrir bilanir Vesturhluti CANTAT-þrjú,sæstrengsins á milli Íslands og Kanada bilaði aftur í morgun eftir bráðabirgðaviðgerð í gærkvöldi. Netsamband við útlönd á þó að haldast í nokkurn veginn eðlilegu horfi ef engar frekari bilanir verða. 18.12.2006 12:15
Umfjöllun Kompáss ekki næg ástæða til rannsóknar Umfjöllun Kompáss um Byrgið er ekki næg ástæða til sérstakrar rannsóknar segir sýslumaðurinn á Selfossi. Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir og læknir Byrgisins, segir þær ásakanir sem fram komu í þættinum í gær, vera reiðarslag. 18.12.2006 12:05
SVÞ vilja skýringu á samningi um öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli Samtök verslunar og þjónustu hafa farið fram á skriflega skýringu frá utanríkisráðherra á þeirri ákvörðun að fela sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli alla öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli, þar með talda skimun farþega og handfarangurs. 18.12.2006 11:50