Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Staðan óbreytt í Suðvesturkjördæmi - styttist í lokatölur Staðan í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi er óbreytt frá síðustu tölum en von er á lokatölum innan hálftíma. Ragnheiður Ríkharðsdóttir er í fjórða sæti, nafna hennar Ragnheiður Elín Árnadóttir í því fimmta og Jón Gunnarsson í því sjötta. Búið er að telja 5900 atkvæði. 11.11.2006 22:38
Alvarlegt umferðarslys við IKEA í Garðabæ Einn er alvarlega slasaður eftir umferðarslys skammt frá nýrri verslun IKEA í Garðabæ fyrr í kvöld. Að sögn slökkviliðs virðist sem fólksbíl, sem í voru þrír, hafi verið ekið á einhvers konar stólpa sem komið hafði verið fyrir á staðnum vegna framkvæmda og fór bíllinn út af veginum og valt. 11.11.2006 22:33
Ragnheiður Ríkharðsdóttir aftur komin upp í fjórða sæti Röð manna í sætum fjögur til sex í Suðvesturkjördæmi hefur enn einu sinni breyst og nú er Ragnheiður Ríkharðsdóttir aftur komin upp í fjórða sætið, nafna hennar Ragnheiður Elín Árnadóttir er í því fimmta og Jón Gunnarsson í því sjötta. Búið er að telja 5400 atkvæði. 11.11.2006 22:15
Árnarnir tveir í efstu sætunum - Guðjón og Gunnar á leið út Árni Mathiesen fjármálaráðherra er í fyrsta sæti eftir að 1800 af um fimm þúsund atkvæðum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi höfðu verið talin nú klukkan 22. Í öðru sæti er Árni Johnsen, Kjartan Ólafsson í þriðja sæti, Drífa Hjartardóttir í því fjórða, Unnur Brá Konráðsdóttir í fimmta og Björk Guðjónsdóttir í því sjötta. 11.11.2006 22:09
Sigurstranglegur listi að skapast í kvöld Þetta er sterkur listi, öflugur og samheldinn hópur sem er að skapast hér í kvöld og mjög sigurstranglegur fyrir okkur sjálfstæðismenn í kosningunum 12. maí. Það er mikil nýliðun, gott kynjahlutfalla og þetta er allt til fyrirmyndar hér," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og verðandi oddviti hans í Suðvesturkjördæmi eftir að aðrar tölur höfðu borist frá kjörstjórn í prófkjöri sjálfstæðismanna í kjördæminu. 11.11.2006 21:57
Það er fínt líf eftir pólitík „Mér líður bara mjög vel," sagði Guðrún Ögmundsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, þegar hún var innt eftir því hvernig hún hefði það eftir að fyrstu tölur sýndu að hún væri ekki meðal átta efstu frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hún er það heldur ekki þegar aðeins á eftir að telja um 300 atkvæði. 11.11.2006 21:34
Sterkur listi með öflugum frambjóðendum „Þetta er sterkur listi sem er að koma þarna og jafnræði milli kynja," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, eftir að fyrstu tölur í prófkjöri flokksins í Reykjavík höfðu verið tilkynntar. 11.11.2006 21:28
Staðan óbreytt í Suðvesturkjördæmi við fimmtu tölur Staðan í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi er óbreytt eftir að fimmtu tölur bárust nú klukkan níu. Búið er að telja 4900 atkvæði. Þorgerður Katrín Gunnarsdótti, menntamálaráðherra og varaformaður flokksins, er sem fyrr í fyrsta sæti, Bjarni Benediktsson í öðru sæti, Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, er í þriðja sæti. 11.11.2006 21:07
Steinunn Valdís tryggir sér áttunda sætið Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, virðist hafa tryggt sér áttunda sætið á lista Samfylkingarinnar, en búið er að telja 4538 atkvæði af 4842. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er í sjötta sæti eins og þegar síðustu tölur voru birtar en Guðrún Ögmundsdóttir er á leið út af þingi. 11.11.2006 20:46
Ragnheiður Ríkharðsdóttir dotttin niður í sjötta sæti Staðan í sætum 4-6 er fljót að breytast í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi því nú er Jón Gunnarsson einn í fjórða sæti, Ragnheiður Elín Árnadóttir í því fimmta og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, er komin niður í sjötta sæti, en hún var í fjórða sæti eftir fyrstu tölur. Búið er að telja 4300 atkvæði. 11.11.2006 20:33
Kjörstöðum hjá sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi lokað Talning atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi hófst klukkan fimm en flestum kjörstöðum í kjördæminu var lokað nú klukkan átta. Talning fer fram í Tryggvaskála á Selfossi og þar verða fyrstu tölur lesnar upp klukkan tíu. Til stendur að fljúga með atkvæði frá Vestmannaeyjun nú á níunda tímanum en ekki ef verður fært í lofti verða atkvæðin flutt sjóleiðina. 11.11.2006 20:17
Samgöngurráðherra vill skoða styttingu vegar á þremur stöðum Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vill skoða styttingu þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur á þremur stöðum, samtals um allt að tuttugu kílómetra, samkvæmt svari við fyrirspurn Halldórs Blöndals, fyrrverandi samgönguráðherra. Halldór segir hugmyndir Sturlu óraunhæfar, vegur um Stórasand sé miklu vænlegri leið tl styttingar. 11.11.2006 20:09
Jón og Ragnheiður jöfn í 4.-5. sæti Jón Gunnarsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir eru jöfn í 4.-5. sæti þegar 3200 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturtkjördæmi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er í fyrsta sæti, Bjarni Benediktsson í öðru sæti, Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, er í þriðja sæti. 11.11.2006 19:16
Staðan óbreytt eftir þriðju talningu Staðan átta efstu manna er óbreytt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar um 3200 af um 4800 atkvæðum hafa verið talin. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, virðist hafa hlotið örugga kosningu í fyrsta sætið, Össur Skarphéðinsson er í öðru sæti og Jóhanna Sigurðardóttir í því þriðja. 11.11.2006 19:06
Halldór hættir sem framkvæmdastjóri VISA Halldór Guðbjarnason hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri VISA Ísland og hefur Höskuldur H. Ólafsson verið ráðinn í staðinn. Halldór segir starfslok sín í fullri sátt við fyrirtækið. 11.11.2006 18:57
Ragnheiður og Jón hafa sætaskipti Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur haft sætaskipti við Jón Gunnarsson og fer í sjötta sætið samkvæmt nýjustu tölum úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, en talin hafa verið 2300 atkvæði. Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, er í þriðja sæti og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, í fjórða sæti. 11.11.2006 18:42
Ásta Ragnheiður í sjötta og Steinunn í áttunda Mikil tíðindi hafa orðið samkvæmt öðrum tölum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ásta Ragnheiður Jóhannessdóttir er komin í sjötta sætið og Steinun Valdís Óskarsdóttir í áttunda sætið en Kristrún Heimisdóttir í níunda sæti en var samkvæmt fyrstu tölum í sjötta. 11.11.2006 18:40
Össur í öðru og Jóhanna í þriðja - Ágúst Ólafur í fjórða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, virðist hafa hlotið örugga kosningu í fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur þegar 2200 atkvæði af 4800 hafa verið talin. Össur Skarphéðinsson er í öðru sæti og Jóhanna Sigurðardóttir í því þriðja. 11.11.2006 18:16
Þorgerður og Bjarni efst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson alþingismaður skipa tvö efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmis, samkvæmt fyrstu tölum. 11.11.2006 18:10
Rafmagnslaust á Reykjanesi Rafmagnslaust varð á Reykjanesi eftir að eldingu sló niður í Suðurnesjalínu nú á sjötta tímanum. Rafmagn fór af í byggðum og af báðum virkjununum á Reykjanesi, Reykjanesvirkjun og virkjuninni í Svartsengi. 11.11.2006 18:09
Rúmlega 4300 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingar kl. 17 4342 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík nú klukkan fim samkvæmt tilkynningu frá flokknum, þar af 1087 utan kjörfundar. Þá var aðeins um klukkustund þar til kjörstaðnum í Þróttarheimilinu yrði lokað. 11.11.2006 17:37
Heildarafli dregst saman um 355 þúsund tonn Heildarafli í lok október var ríflega 1,1 milljón tonna en það er 355 þúsund tonnum minni afli en á sama tíma í fyrra þegar aflinn var tæplega ein og hálf milljón tonna. Þetta kemur fram í tölum Fiskistofu. Samdráttur í afla milli ára stafar af minni loðnuafla í ár. 11.11.2006 16:52
Eimskip fær nýtt frystiskip Eimskip tók í dag við nýju frystiskipi sem hljóta mun nafnið Storfoss á morgun. Þetta er annað nýja frystiskipið sem félagið fær afhent á einu ári. 11.11.2006 16:39
Borgarráð samþykkir samning um sölu á hlut borgar í Landsvirkjun Borgarráð samþykkti á fundi sínum á þriðja tímanum í dag söluna á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun til ríkisins, en samningar þar að lútandi voru undirritaðir 1. nóvember síðastliðinn. Þetta þýðir að borgarstjórn á nú aðeins eftir að leggja blessun sína yfir samninginn. 11.11.2006 16:27
Kjörsókn í prófkjöri Samfylkingarinnar meiri en síðast Liðlega 3750 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík laust fyrir klukann fjögur, þar af 1087 utan kjörfundar. Kjörsóknin er þegar orðin betri en í prófkjöri flokksins fyrir síðustu þingkosningar en þá kusu alls, 3605. 11.11.2006 16:06
Slasaðist við vinnu við helluslípivél Lögregla og slökkvilið voru kölluð að húsnæði BM Vallár á Bíldshöfða rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna vinnuslyss. Þar hafði maður slasast á brjóstkassa þegar hann klemmdist í svokallaðri helluslípivél. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans en við rannsókn kom í ljós að meiðsli hans voru ekki mikil. 11.11.2006 15:55
Tvennt slapp vel í bílveltu við Kúagerði Tvennt slapp án teljandi meiðsla þegar bíll valt á Reykjanesbraut til móts við Kúagerði laust fyrir klukkan þrjú í dag. Ekki er ljóst hvers vegna bíllinn valt en báðir farþegar voru komnir út úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Bíllinn mun hins vegar vera nokkuð skemmdur. 11.11.2006 15:49
Vill leggja niður mannanafnanefnd Björn Ingi Hrafnsson varaþingmaður hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að mannanafnanefnd verði lögð niður og að lögboðið hlutverk nefndarinnar verði flutt til dómsmálaráðherra sem skera úr álitamálum sem upp kunni að koma í tengslum við nafngiftir og nafnritun. 11.11.2006 15:10
Ríflega 3100 hafa kosið hjá Samfylkingu í Reykjavík Klukkan 14.45 höfðu 3118 kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þar af eru 1087 utankjörfundaratkvæði. Sem fyrr segir er kosið í félagsheimili Þróttar í Laugardal og lýkur kjörfundi klukkan 18 og þá verða fyrstu tölur birtar. 11.11.2006 15:00
Um 20 prósenta kjörsókn hjá sjálfstæðismönnum í Suðvesturkjördæmi Um tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi höfðu neytt atkvæðsréttar síns nú um klukkan þrjú, en á bilinu 11-12 þúsund manns eru á kjörskrá. 11.11.2006 14:57
Jeppar fuku út af Suðurlandsvegi Lögreglan í Vík varar ökumenn við hálku og sterkum vindhviðum á Suðurlandsvegi austan við Kirkjubæjarklaustur. Tvö umferðaróhöpp áttu sér stað í morgun á þessum slóðum þar sem að jeppabifreiðar fuku af veginum og skemmdust talsvert en engin slys urðu á fólki. 11.11.2006 14:47
Um 20 prósenta kjörsókn í Suðurkjördæmi á hádegi Kjörsókn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var um 20 prósent upp úr hádegi en um 6000 manns eru á kjörkskrá. Töluvert er um nýskráningar í flokkinn en þar berjast 13 manns um sæti á lista flokksins fyrir komandi þingkosningar. 11.11.2006 14:31
Ríflega 2500 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar kl. 13.30 2502 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík klukkan hálftvö, þar af 1087 utan kjörfundar. Prófkjörið fer fram í dag og er kosið í félagsheimili Þróttar í Laugardal. Kjörfundur hófst klukkan tíu og stendur til sex og er búist við fyrstu tölum fljótlega eftir það. 11.11.2006 14:06
RKÍ fagnar auknu fé til íslenskukennslu fyrir útlendinga Þeir innflytjendur sem ekki tala íslensku standa einna verst að vígi í þjóðfélaginu samkvæmt könnun sem Rauði krossinn stóð að. Vegna þessa fagnar félagið þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í gær, að verja 100 milljónum króna á næsta ári til íselnskukennslu fyrir útlendinga. 11.11.2006 13:30
Hannes sýknaður af kröfum vegna brota á höfundarlögum Hannes Hólmsteinn Gissurarson var sýknaður í Héraðsdómi í gær af öllum kröfum Auðar Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Laxness, vegna brota á höfundarlögum. Dómari taldi þrátt fyrir það að Hannes væri brotlegur. 11.11.2006 13:15
Engar breytingar á heimsókn sendiherra þrátt fyrir árásir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir að engar breytingar verði á heimsókn sendiherra Ísraels hingað til lands í næstu viku. Stjórnvöld muni þó koma því á framfæri að þau fordæmi árásirnar á óbreytta borgara í bænum Beit Hanoun á Gaza sem kostuðu átján, þar af tíu börn, lífið. 11.11.2006 12:45
Leita þarf samkomulags við landeigendur vegna þjóðgarðs Töluverður hluti af því landssvæði sem áætlað er að falli innan Vatnajökulsþjóðgarðs er í einkaeign og verður ekki hluti af þjóðgarðinum nema til komi samkomulag við landeigendur. 11.11.2006 12:15
Ekkert ferðaveður víða á Norðaustur- og Austurlandi Ekkert ferðaveður er víða á Norðaustur- og Austurlandi allt frá Öxarfirði suður að Hornafirði samkvæmt Vegagerðinni og því fólki ráðið frá því að vera þar á ferðinni. Á Norðausturlandi er víðast hvar hálka og skafrenningur en óveður austan Öxarfjarðar og eins yfir Möðrudalsöræfi. Á Austurlandi er víða mjög hvasst og Öxi er þungfær. 11.11.2006 12:01
Tekist á um fjórðung líklegra þingsæta í dag Nokkrir sitjandi þingmenn, bæði Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, eru taldir í verulegri fallhættu í prófkjörum sem fram fara í dag. Þá má telja nokkuð víst að prófkjörin skili nýliðum inn í örugg sæti á framboðslistum, en alls er tekist á um fjórðung líklegra þingsæta á næsta Alþingi Íslendinga. 11.11.2006 12:00
1850 hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Nýjustu tölur um kjörsókn í prófkjörum dagsins eru þær að í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum höfðu 1850 manns kosið nú rétt fyrir klukkan tólf. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi höfðu um 700 manns kosið nú skömmu fyrir hádegi. 11.11.2006 11:57
Stormviðvörun frá Veðurstofu Íslands Veðurstofa Íslands sendi frá sér viðvörun í kvöld vegna væntanlegs storms á norður- og austurlandi í kvöld og nótt. Á vindurinn að snúast í hvassa norðan- og norðvestanátt með snjókomu eða éljum í kvöld og nótt og þá einkum norðanlands. 10.11.2006 23:21
Friðarviðræður að hefjast á ný í Sómalíu Sómalskir uppreisnarmenn og meðlimir í bráðabirgðastjórn Sómalíu náðu í dag samkomulagi um að hefja aftur friðarviðræður undi handleiðslu Félags arabískra þjóða og Súdan. 10.11.2006 21:16
Misskilningur hjá Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar Upplýsingafulltrúi skrifstofu borgarstjóra sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem er sagt að fréttir um að Reykjavíkurborg fái minna en stóð til fyrir hlut sinn í Landsvirkjun séu rangar. 10.11.2006 20:58
1087 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 1087 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Prófkjörið fer fram á morgun laugardag og er kosið í félagsheimili Þróttar, Engjavegi 7, Laugardal (norðan Laugardalshallar). 10.11.2006 20:49
Mikil ófærð á vegum Þæfingur og óveður er á Öxnadalsheiði og þar er ekkert ferðarveður. Búið er að opna Óshlíð en fólki er bent á að vera ekki á ferðinni að ástæðalausu. 10.11.2006 20:41