Innlent

Staðan óbreytt eftir þriðju talningu

MYND/NFS
Staðan átta efstu manna er óbreytt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar um 3200 af um 4800 atkvæði hafa verið talin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, virðist hafa hlotið örugga kosningu í fyrsta sætið, Össur Skarphéðinsson er í öðru sæti og Jóhanna Sigurðardóttir í því þriðja.

Varaformaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson er fjórði, Helgi Hjörvar fimmti or Mörður Árnason sjöundi. Kristrún Heimisdóttir er níunda og Valgerður Bjarnadóttir tíunda. Hins vegar virðist Guðrún Ögmundsdóttir þingkona á útleið því hún er ekki meðal tíu efstu frambjóðenda.

Atkvæði skiptasta annars svona:

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 2348 atkv. í fyrsta sæti

Össur Skarphéðinssson 2012 atkv. í 1.- 2. sæti

Jóhanna Sigurðardóttir 1739 atkv. í 1.-3. sæti

Ágúst Ólafur Ágústsson 1259 atkv. í 1.-4. sæti

Helgi Hjörvar 1474 atkv. í 1.-5. sæti

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir 1231 atkv. í 1.-6. sæti

Mörður Árnason 1503 atkv. í 1.-7. sæti

Steinunn Valdís Óskarsdóttir 1718 atkv. í 1.-8. sæti

Kristrún Heimisdóttir 1654 atkv. í 1.-9. sæti

Valgerður Bjarnadóttir 1636 atkvæði í 1.-10. sæti



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×