Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Halldór tilkynnir ákvörðun sína klukkan níu Halldór Ásgrímsson hefur boðað til blaðamannafundar í bústað forsætisráðherra á Þingvöllum klukkan níu í kvöld. Álitið er að á fundinum muni hann tilkynna ákvörðun um pólitíska framtíð sína. Sýnt verður beint frá fundinum á NFS klukkan níu. 5.6.2006 20:14
Eftirlit með utanvegaakstri úr lofti Þeir sem stunda utanvegaakstur geta átt von á eftirliti úr lofti en lögreglan og Landhelgisgæslan hafa tekið höndum saman um að stemma stigu við slíkum akstri. Nokkrir brotlegir voru bókaðir af lögreglunni um helgina og geta átt von á sektum. 5.6.2006 20:14
Dveljast á Íslandi mánuðum saman án þess að fá skólavist Dæmi eru um að börn frá Austur-Evrópu dveljist hér mánuðum saman án þess að fá skólavist, þó að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði á um skýlausan rétt þeirra til að ganga í skóla. Enn hefur ekki reynt á hvort börnum, sem hér dveljast án lögheimilis, yrði synjað um skólavist. 5.6.2006 20:00
Tískusýning á pokakjólum Hvenær sáuð þið síðast kjóla úr kartöflupokum, bónuspokum eða ruslapokum? Þetta er meðal þess sem getur að líta á tískusýningu í Gúttó í Hafnarfirði klukkan átta annað kvöld. 5.6.2006 19:34
Stakk lögregluna af á sundi í Rangá Bóndi nokkur um fimmtugt reyndi allverulega á krafta lögreglunnar í Rangárþingi um helgina. Hann hafði verið við gleðskap á skemmtistað á Hellu en þanngað hafði hann komið akandi á dráttarvél. Eftir að hafa setið þar nokkra stund að sumbli ákvað hann að halda heim á bæ sinn milli Hellu og Hvolsvallar en á miðri ferð sinni hitti hann fyrir lögreglumenn sem grunuðu hann um ölvun. Lögreglan gaf manninum merki um að stöðva faratæki sitt en hann hélt nú ekki heldur lagði til árásar með ámoksturstækjunum á traktornum. Bóndinn hljóp svo út úr dráttarvélinni og bárust leikar hans og lögreglu um mela og móa sveitarinnar. Þegar komið var að bökkum Rangár skipti svo engum togum að lagði maðurinn til sunds og misstu laganna verðir þar augun af honum. Þeir fóru fljótlega óttast um hann og kölluðu út björgunarsveitarmenn sem komu samstundis og fínkembdu svæðið en án árangurs. Seinnihluta nætur gaf sá grunaði sig þó fram við lögreglu og var tekin blóðprufa úr honum. 5.6.2006 19:02
Efnahagshorfurnar neikvæðar Matsfyrirtækið Standard og Poor´s hefur breytt mati á efnahagshorfum á Íslandi úr stöðugum í neikvæðar. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir þetta staðfestingu á því að ríkisstjórnin verði að ganga í lið með Seðlabankanum í baráttunni við verðbólgudrauginn. 5.6.2006 18:54
Framsókn fundar um forystu í flokknum Landsstjórn og þingflokkur Framsóknarmanna hittast í kvöld til að freista þess að ná sáttum um forystu í flokknum. Að minnsta kosti fjögur framsóknarfélög hafa skorað á Guðna Ágústsson, varaformann flokksins, að taka við formannssætinu við brotthvarf Halldórs Ásgrímssonar. Talið er hins vegar líklegt að Halldór Ásgrímsson endurskoði ákvörðun sína um að hætta hverfi Guðni ekki af sviðinu á sama tíma og hann. 5.6.2006 18:45
Fjársvelti Hafró veldur ónógum rannsóknum á loðnunni Veita þarf meira fjármagni til Hafrannsóknastofnunar til þess að betur megi standa að rannsóknum á loðnustofninum. Bágt ástand þorskstofnsins er ekki eingöngu tilkomið vegna ofveiði á þorski, heldur er ein ástæðan ofveiði á loðnunni. Þetta segja þingmenn stjórnarandstöðu sem sitja í sjávarútvegsnefnd. 5.6.2006 18:44
Mikil bið á barna- og unglingageðdeild Börn sem þurfa að komast á barna- og unglingageðdeild mega sætta sig við að bíða í heilt ár. Um eitt hundrað börn eru á biðlista eftir að komast á göngudeild. 5.6.2006 15:53
Einkaframkvæmd ekki hagkvæmari við Sundabraut Ríkisendurskoðun segir engin sérstök rök mæla með því að einkaaðilar, frekar en ríki, taki að sér vegaframkvæmdir á borð við Sundabraut, þar sem lítil óvissa er um verkið sjálft eða kostnað. Ríkisendurskoðun telur ekki hægt að skilgreina Hvalfjarðargöngin sem hreina einkafamkvæmd, enda hafi opinberir aðilar staðið að baki hlutafélaginu Speli og telur stofnunin heldur ekki að einkaframkvæmd hefði skilað betri árangri. 5.6.2006 15:40
Ráðist inn í sjónvarpsstöð í Palestínu Byssumenn Hamas samtakanna ruddust í dag inn í sjónvarpsstöð Palestíinu manna, á Gaza svæðinu, og brutu þar allt og brömluðu. Talið er að um fimmtán manns hafi verið í innrásarliðinu. Þegar þeir spörkuðu starfsfólkinu út öskruðu þeir þeið eru svikarar , þið eruð hlutdræg, þið eruð óþverrar. 5.6.2006 15:00
Af og frá að lækka aflahlutfallið fyrir næsta fiskveiðiár Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir af og frá að aflahlutfallið verði lækkað fyrir næsta fiskveiðiár. Hann afskrifar þó ekki breytingar á aflareglunni en segir að ekki megi rasa um ráð fram, slíkar breytingar taki tíma þar sem um gríðarmikla hagsmuni sé að ræða fyrir íslensku þjóðina. 5.6.2006 12:24
Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar áfram við völd Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabilið 2006-2010. Á kjörtímabilinu verður lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara, umhverfismál, fjölskylduvænt samfélag, markaðssetningu sveitarfélagsins, atvinnumál, ábyrga fjármálastjórn, ferða- og samgöngumál. 5.6.2006 12:23
Sparisjóður Siglufjarðar tekur yfir reksturinn Glitnir hefur ákveðið að hjætta rekstri útibús á Siglufirði og hefur tekist samkomulag um að Sparisjóður Siglufjarðar kaupi og taki yfir rekstur útibúsins. Markmiðiði er að tryggja viðskiptavinum á Siglufirði áframhaldandi þjónustu í heimabæ en Glitnir telur ljóst að ekki sé rekstrarlegur grundvöllur fyrir tvær fjármálastofnanir í bænum. 5.6.2006 11:57
Íhuga málaferli Aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Reykjavík Trópík íhuga höfða mál á hendur þeim sem ábyrgir eru en ekki fékkst skemmtanaleyfi fyrir tónleikana sem vera áttu í kvöld. Hátíðin hefur verið færð á skemmtistaðinn Nasa við Austurvöll þar sem tónleikar munu fara fram í kvöld. 4.6.2006 18:53
Hvítasunnan haldin hátíðleg víða um land Kristnir menn halda Hvítasunnuna hátíðlega í dag og voru bekkir víða þéttsetnir í kirkjum landsins í dag. Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar og með henni lýkur pásktatímanum. 4.6.2006 18:51
Skerðing kvóta ekki lausnin heldur strangara eftirlit Framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna segir að besta ráðið til að byggja upp þorskstofninn sé ekki að skerða aflaheimildir heldur að hafa meira eftirlit með veiðunum. 4.6.2006 18:00
Hvalfjarðargöngin enn lokuð, óvíst hvenær opnar á ný Hvalfjarðargöngin eru enn lokuð vegna þriggja bíla áreksturs niðri í göngunum rétt um klukkan hálffimm. Níu manns voru í bílunum og voru allir fluttir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss til rannsókna en slys á fólki eru ekki talin alvarleg. Bílarnir eru töluvert skemmdir og þarf að fjarlægja þá með kranabíl. Þetta gæti tekið nokkurn tíma og því óvíst hvenær göngin verða opnuð á ný. 4.6.2006 17:57
Hvalfjarðargöng lokuð vegna áreksturs þriggja bíla Þrír bílar lentu saman í Hvalfjarðargöngum nú rétt í þessu. Göngin eru lokuð um óákveðinn tíma og er fólki bent á að aka Hvalfjörðinn í staðinn. Lögreglan er á leiðinni á staðinn og hefur ekki frekari upplýsingar um slys á fólki né annað en við flytjum frekari fréttir um leið og þær berast. 4.6.2006 16:35
Keflavík "óhreinn" flugvöllur Evrópusambandið skilgreinir Keflavíkurflugvöll sem "óhreinan" flugvöll. Flugvélar sem fara héðan eru á tveimur evrópskum flugvöllum afgreiddar eins og þær séu að koma í fyrsta sinn inná Schengen svæðið. 4.6.2006 16:00
Skíðalandsliðið við æfingar fram í júní Skíðalandslið Íslands í alpagreinum er nú við æfingar á skíðasvæðinu í Tindastóli við fyrirtaks snjóaðstæður og blíðskaparveður. Þetta er í fyrsta skipti sem opið er í Tindastóli í maí og júní en gera má ráð fyrir að nú sé skíðatíðin nú á enda eftir langa og góða skíðavertíð en alls var opið 120 daga á skíðasvæðinu. 4.6.2006 14:45
Stakk lögguna af á sundi Lögreglumenn frá Hvolsvelli lentu í óvenjulegri eftirför þegar þeir vildu ná tali af manni sem var á ferð á dráttarvél eftir Oddavegi og virtist vera undir áhrifum áfengis. Hann tók á rás yfir mýrar og móa og löggan á eftir og þegar kom að Ytri-Rangá, til móts við bæinn Bjólu, óð maðurinn út í og synti niður eftir ánni þegar lögreglumenn óðu á eftir honum. 4.6.2006 14:30
Samskip sameinast dótturfélögum sínum Í haust verður öll flutningastarfsemi Samskipa sameinuð undir nafni Samskipa. Þetta var tilkynnt í Rotterdam þegar félagið veitti viðtöku tveimur spánýjum sérsmíðuðum flutningaskipum. 4.6.2006 14:00
Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju Kristnir menn halda Hvítasunnuna hátíðlega í dag. Sr.Sigurður Pálsson predikaði í hátíðarmessu í Hallgrímskirkju í morgun. Sr. Sigurður mun brátt láta af störfum sem sóknarprestur og í hans stað kemur sr. Jón Dalbú. Þá söng mótettukórinn söng undir stjórn Harðar Áskelssonar organista. Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar og með henni lýkur pástatímanum. Koma heilags anda í kirkju Krists er minnst en dagurinn er stofndagur kirkjunnar. 4.6.2006 13:30
Brutust inn í gufuna á Laugarvatni Tveir piltar brutust inn í gufubaðið á Laugarvatni í fyrrinótt og stálu þaðan peningum og brutust síðan inn í garðverkfærageymslu Menntaskólans og höfðu á brott með sér eitthvað af verkfærum. Náðist til strákanna í gær og telst málið nú að fullu upplýst. 4.6.2006 12:45
Fjöltyngd söngkeppni í Hafnarfirði Það er ekki hver sem er sem hættir sér í að syngja á öðru tungumálinu en móðurmálinu - og ekki á ensku. Á Cantare, söngkeppni hinna mörgu tungumála, var þetta hins vegar ófrávíkjanleg regla. Söngkeppnin var haldin í Hafnarfjarðarleikhúsinu í gærkvöld. 4.6.2006 12:30
Guðni þarf að segja af sér eigi Finnur að verða formaður. Framsóknarmenn geta ekki gengið framhjá Guðna Ágússtssyni varaformanni flokksins, -og gert Finn Ingólfsson að formanni næsta föstudag, -nema Guðni segi af sér varaformennsku. Finnur útilokar ekki endurkomu í stjórnmálin, -verði til hans leitað, en Guðni segir stöðu sína hins vegar sterka. 4.6.2006 12:21
Utanvegaökumenn sektaðir eftir þyrlueftirlit Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlitsflug yfir hálendinu til að fylgjast með hugsanlegum utanvegaakstri á Hengilssvæði, Hellisheiði og hálendinu upp af Árnessýslu. Átta ökumenn mótorkrosshjóla voru í kjölfarið sektaðir fyrir að aka utan vega á Hengilssvæðinu og tveir jeppar voru stöðvaðir utan vega við Hagavatn. 4.6.2006 10:01
Reykjavík Trópík flutt á Nasa í kvöld Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Reykjavík Trópík í dag verður flutt á Nasa vegna þess að ekki fékkst skemmtanaleyfi fyrir Hvítasunnudaginn í risatjaldinu á háskólaplaninu. Hljómsveitin Sleater Kinney sem spila átti á Nasa hefur af þeim sökum verið innlimuð í tónleikadagskrá Trópík en miðar á þá tónleika gilda eftir sem áður. 4.6.2006 09:20
Guðni útilokar ekki afsögn Guðni Ágústsson segir það koma í ljós í næstu viku hvort hann haldi áfram sem varaformaður Framsóknarflokksins. ,,Við skulum sjá hvað gerist,'' segir hann aðspurður um hvort breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni. 3.6.2006 20:33
Metfjöldi á Hvannadalshnjúk Metfjöldi fjallgöngumanna mun hafa náð hæsta tindi Íslands í dag. Að mati Ferðafélags Íslands hafa alls um 300 manns horft yfir Öræfasveitina og Vatnajökulinn ofan af Hvannadalshnjúknum í dag. Þar af voru 132 í för með Ferðafélaginu sem eru mun fleiri en í fyrra. 3.6.2006 20:29
Manneskjubókasafn í Hafnarfirðinum Kynlífsfíkill, ungur stjórnmálamaður, múslimi og innflytjandi voru meðal þeirra einstaklingar sem hægt var að fá lánaða í Gamla bókasafninu í Hafnarfirði í dag. Tilgangur útleigunnar er að upplýsa fólk og koma í veg fyrir fordóma. 3.6.2006 18:51
Sumarblíða í borginni Veðrið hefur leikið við borgarbúa í dag sem kunna svo sannarlega að njóta góða veðursins. Á meðan sumir dilliðu sér við ljúfan djass, fengu sér aðrir pólskar pylsur eða sýndu breikdans við mikinn fögnuð áhorfenda. 3.6.2006 18:48
Steingrímur J. Sigfússon ræðumaður Alþingis Liðsmenn samtakanna JCI, Junior Chamber International, kusu í dag Steingrím J. Sigfússon besta ræðumann eldhúsdags Alþingis. Flokksbróðir hans í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði, Ögmundur Jónasson, hafnaði í öðru sæti. Þetta er í þriðja sinn sem félagar í JCI kjósa ræðumann Alþingis, til að vekja athygli á mikilvægi þess að geta komið máli sínu vel til skila. 3.6.2006 17:20
Þurfum að draga úr þorskveiðum Hafrannsóknastofnun lagði til í dag að þorskkvóti fyrir næsta fiskveiðiár verði 11 þúsund tonnum minni en nú í ár, eða 187 þúsund tonn. Aflahlutfallið þarf að skerðast enn frekar til að byggja upp hrygningarstofninn, að mati Hafró. 3.6.2006 17:13
Maður vankaðist í fótboltaleik Maður á þrítugsaldri vankaðist í fótboltaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag. Þar fór fram leikur í utandeild þar sem lið Kónganna og FC-Pump tókustu á. Sjúkrabíll kom á staðinn skömmu síðar en þá var maðurinn með meðvitund og því var neyðarbíll afturkallaður. Maðurinn var síðan fluttur á slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss til frekari rannsóknar. 3.6.2006 15:45
Metfjöldi göngufólks á Hvanndalshnjúki Metfjöldi fjallgöngumanna mun hafa náð hæsta tindi Íslands í dag. Að mati Ferðafélags Íslands eru það alls um 300 manns sem horfa ofan af Hvannadalsnjúknum í dag. Þar af eru 132 í för með Ferðafélaginu sem eru mun fleiri en í fyrra. Þá eru Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Einar í Hofsnesi með skipulagðar ferðir, auk þess sem erfitt er að slá tölu á alla þá sem leggja á Hnjúkinn á eigin vegum. 3.6.2006 13:45
Hegningarhúsið tekur lit Hegningarhúsið gamla við Skólavörðustíg er nú að varpa af sér grámanum og taka lit í sólinni, að minnsta kosti á einni hliðinni. Málaranemar við Iðnskólann í Reykjavík eru nú að leggja lokahönd á málverk sitt á austurvegg Hegningarhússins, sem snýr að Sparisjóðshúsinu við Skólavörðustíginn. 3.6.2006 13:00
Sjálfstæðismenn og Samherjar mynda meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál. 3.6.2006 12:15
Segja Finn ekki vera lausn fyrir Framsókn Það væri heimskulegt fyrir Framsóknarflokkinn að gera Finn Ingólfsson að formanni, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna segir slíkan leik vondan fyrir Framsókn sem þegar hafi orð á sér fyrir að vera hagsmunaklíka, en ekki stjórnmálaflokkur. 3.6.2006 12:00
Dæmdur til að greiða 200.000 vegna náttúruspjalla Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann til að greiða 200.000 króna sekt fyrir að hafa rutt slóða í þeim tilgangi að gera reiðveg utan vega ofan Hveragerðis, alls tæpa fjóra kílómetra. Maðurinn hafði ekki aflað framkvæmdaleyfis sveitastjórnar líkt og lög kveða á um, né fengið samþykki landeiganda. 3.6.2006 11:14
Vilja endurskoða lög um vaxtabætur Stjórnarandstaðan krafðist þess á þingi fyrir stundu að lög um vaxtabætur vegna fasteignakaupa yrðu endurskoðuð strax. Þúsundir lágtekjufjölskyldna stæðu frammi fyrir mikilli skerðingu ella. 3.6.2006 10:30
Björgunarsveitarmenn mótmæla kílómetragjaldi á Alþingi Björgunarsveitarmenn safnast saman upp úr tíu í bílum sínum fyrir framan Alþingishúsið til að mótmæla frumvarpi um olíugjald, sem nú liggur fyrir þinginu til samþykktar í dag. Samkvæmt frumvarpinu þurfa björgunarsveitir að borga kílómetragjald af bílum sínum í hvert skipti sem farið er úr húsi til að bjarga nauðstöddum. 3.6.2006 10:10
Sjálfboðaliðar á Suðureyri Hópur sjálfboðaliða á vegum samtakanna Seeds Iceland hefur dvalið á Suðureyri undanfarna daga. Á fréttavefinum Bæjarins besta kemur fram að sjálfboðaliðarnir hafa unnið að almennum umhverfismálum í bænum, gróðursetningu og við að mála. Alls eru 14 einstaklingar í hópnum frá hinum ýmsu löndum, svo sem Slóvakíu, Póllandi, Tékklandi og Spáni. Sjálfboðaliðarnir bera sjálfir allan kostnað af komu sinni til Suðureyrar en fá frítt fæði og húsnæði á meðan á verkefninu stendur. 3.6.2006 10:00
Tvö minniháttar fíkniefnamál á Akureyri Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt. Lögregla fann fíkniefni í fórum tveggja einstaklinga, en þeir höfðu ætlað efnið til eigin neyslu. Málin teljast upplýst. Þá var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur en hann hafði keyrt á. 3.6.2006 09:28