Fleiri fréttir

Leggur áherslu á nýtingu jarðhita

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra lagði áherslu á aðkomu alþjóðlegra fjármálastofnana að nýtingu jarðhita á fundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í New York í gær. Í ræðu sinni sagði ráðherra að fólk væri almennt ekki nógu meðvitað um möguleika jarðhita sem orkugjafa.

KB banki bakhjarl Listahátíðar

KB banki undirritaði í dag samstarfssamning við Listahátíð í Reykjavík til næstu þriggja ára. Í samningnum felst að bankinn verður fjárhagslegur bakhjarl hátíðarinnar. Samningurinn er í raun framlenging á samstarfi Listahátíðar og KB banka, þar sem bankinn hefur verið bakhjarl hátíðarinnar um nokkurra ára skeið.

Slökkvistarfi lokið við Hvaleyrarvatn

Ræktarland Lækjarskóla við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði er illa farið eftir sinubruna sem kom upp á ræktunarsvæði Skógræktar Hafnarfjarðar fyrr í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um brunann klukkan eitt í dag og barðist við eldinn í um klukkustund en hann hafði læst sig í tré á svæðinu.

Mikill sinubruni við Hvaleyrarvatn

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst þessa stundina við mikinn sinueld við Hvaleyrarvatn. Allt titækt lið er á staðnum og logar mikið. Samkvæmt heimildum NFS er trjágróður í hættu. Ekki er vitað um tildrög þess að eldurinn kviknaði. Við segjum nánar frá þessu eftir því sem upplýsingar berast.

Í mótmælahug eftir lestur Draumalandsins

Tveir ungir starfsmenn Landspítalans urðu svo heillaðir við lestur bókarinnar Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnason að þeir ákváðu að standa fyrir mótmælum á Austurvelli. Þeir hafa sent skilaboð á fjölda fólks og vilja að fólk sýni innihaldi bókarinnar viðbrögð í verki.

Stór sinueldur við Hvaleyrarvatn

Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins var kallað út um eitt leitið vegna sinubruna við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliðinu er hér um stór bruna að ræða, en nánari upplýsingar verða birtar á Vísir og NFS um leið og þær berst.

Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi

Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi hefur lokið háskólanámi í samanburði við önnur hátekjulönd að því er lesa má úr niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar á frumkvöðlastarfsemi sem kynntar voru í morgun. Þá eru karlar tvöfalt líklegri en konur til að stunda slíka starfsemi.

Góður gangur í viðræðum SFR og svæðisskrifstofa

Góður gangur er í viðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra. Jafnvel er búist við að samningar náist um helgina og þannig verði hægt að afstýra setuverkföllum á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða.

Órökstuddar dylgjur landlæknis

Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir landlæknir tengsl milli helstu lyfjainnflytjenda á landinu og tveggja keðja í smásölu lyfja vera ástæðu fyrir háu lyfjaverði hér á landi. Þessi fullyrðing er alfarið röng segir í tilkynningu frá Frumtaki - samtökum framleiðenda frumlyfja.

Viðbúnaðarstig lækkað í Svíþjóð

Engin fuglaflensa reyndist í hænsnabúi í Orsa í Svíþjóð, þar sem grunur lék á að hún hefði komið upp í alifuglum. Yfirvöld í Svíþjóð hyggjast nú að draga úr viðbúnaði vegna fuglaflensu þannig að alifuglar megi aftur dvelja utandyra.

Boeing 757 á Reykjavíkurflugvelli í morgun

Heldur óalgeng sjón var á Reykjavíkurflugvelli í morgun en þar var á ferðinni þota af gerðinni Boeing 757. Vélinni var ætlað að flytja gesti Landsvirkjunar austur á land þar sem þeir verða viðstaddir þegar hornsteinn verður lagður að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar

Landsflug efni ekki gefin loforð

Lúðvík Bergvinsson forseti bæjarstjórnar í Vestamannaeyjum sagði á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi að Landsflug ætlaði ekki að efna gefin loforð um að taka í notkun 32. sæta Dornier til Eyja þann 15. maí næstkomandi.

ÖBÍ segir úrskurð stórsigur þrátt fyrir frávísun aðalkröfu

Öryrkjabandalagið segir að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur vegna samkomulags við öryrkja fyrir þremur árum sé stórsigur fyrir bandalagið. Dómurinn vísar frá aðalkröfu öryrkja en samþykkir varakröfuna, um að dómurinn muni úrskurða um greiðsluskyldu stjórnvalda vegna samkomulagsins.

Samfylkingin í Kópavogi svarar Gusturum

Samfylkingin í Kópavog hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna athugasemdar Hestamannafélagsins Gusts sem birtist í fjölmiðlum í morgun. Vegna samþykktar sem gerð var á félagsfundi Hestamannafélagsins Gusts 11. maí síðastliðinn er nauðsynlegt að ítreka eftirfarandi.

Gott uppgjör hjá Actavis

Actavis skilaði góðu uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi sem var talsvert yfir væntingum en hagnaður eftir skatta til hluthafa Actavis nam 31,3 m.evrum en spá KB Banka var upp á 25 m. evrur og spár annarra fjármálafyrirtækja hljóðuðu upp á 19-20 m. evrur.

Allir með fleiri en eitt hlutverk

Pönk, dans, list og leikur mætast með nýstárlegum hætti í sýningunni Við erum Öll Marlene Dietrich FOR. Sýningin hefur fengið góðar viðtökur erlendis en í tilefni listahátíðar verða sýndar þrjár sýningar hér á landi.

Gustarar samþykkja flutningana

Á fjölmennum félagsfundi hestamannafélagsins Gusts í gærkveldi samþykktu félagsmenn samninga þá er gerðir hafa verið við Kópavogsbæ um flutning hesthúsahverfis félagsins frá Glaðheimum á Kjóavelli.

Talsverður erill hjá lögreglu vegna ölvunar

Talsverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar fólks vítt og breytt um borgina. Hins vegar var rólegt á ölstofunum í miðborginni. Lögregla varð að taka nokkra ólátaseggi úr umferð og gista þeir nú fangageymslur.

Listahátíð sett í dag

Listahátíð Reykjavíkur verður sett í dag við stóra athöfn í Borgarleikhúsinu. Á setningarhátíðinni kemur fram margt stærstu listamanna sem þátt taka í listahátíð þessu sinni. Hátíðin stendur til annars júní.

Grunur um fuglaflensu í hænum í Svíþjóð

Grunur leikur á að hænur í Svíþjóð séu smitaðar af fuglaflensu. Búið er að einangra bú nærri Orsa í Svíþjóð og hafa fuglar sem sýnt hafa flensueinkenni verið aflífaðir. Sýni hafa verið send til greiningar hjá embætti yfirdýralæknis. Þetta er í fyrsta sinn sem grunur leikur á að alifuglar hafi sýkst af fuglaflensu í Svíþjóð.

Segir norræn fyrirtæki þjónusta sjóræningjatogara

Færeyskur skipstjóri á frystitogara, sem er að karfaveiðum á Reykjaneshrygg, segir í viðtali við færeyska blaðið Sosialurinn, að íslensk, norsk og færeysk fyrirtæki þjónusti svonefnda sjóræningjatogara á svæðinu, sem stundi þar veiðar án veiðiheimilda og rýri þannig afkomu þeirra sem fari að fjölþjóðlegum samþykktum um veiðarnar.

Tvö og hálft ár fyrir fíkniefnabrot og frelsissviptingu

Axel Karl Gíslason var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot og að nema sautján ára pilt af vinnustað sínum. Þann pilt neyddi Axel Karl til að taka pening út úr hraðbanka og láta sig hafa.

Hundrað lóðum úthlutað

Um eitt hundrað lóðum fyrir atvinnuhúsnæði var úthlutað í Hafnarfirðinum í dag. Hafnarfjörður stækkar nú óðum. Lóðirnar eru á nýjum svæðum, Hellnahrauni, Selhrauni og á miðsvæði Valla.

Ásatrúarmenn yfir þúsund talsins

Ásatrúarmenn eru í fyrsta sinn síðan í heiðnum sið orðnir fleiri en þúsund talsins á Íslandi. Félagafjöldinn í Ásatrúarfélaginu hefur tífaldast síðustu fimmtán árin.

Sautján ára í tveggja og hálfs árs fangelsi

Atli Karl Gíslason var í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot og að nema sautján ára pilt af vinnustað sínum. Þann pilt neyddi Atli Karl til að taka pening út úr hraðbanka og láta sig hafa.

Fornleifar og nýjasta tækni

Landnámssýningin Reykjvík 871 +/- 2 verður opnuð formlega á morgun í tilefni Listahátíðar Reykjavíkur. Óhætt er að segja að á sýningunni mætist tímarnir tvennir en fornleifum frá víkingaöld er teflt saman við nýjustu margmiðlunartæknina með góðum árangri.

Virkjun formælt í hornsteininum

Skilaboð frá andstæðingum Kárahnjúkavirkjunar verða í hornsteininum sem lagður verður að stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Landsvirkjun ákvað þetta eftir að forseti Íslands hafði milligöngu um að koma beiðni andstæðinga virkjunarinnar á framfæri.

Dorrit Moussaieff tvívegis í vandræðum í Ísrael á einum mánuði.

Dorrit Moussaieff forsetafrú ætlar að sækja um íslenskan ríkisborgararétt eftir fáeina daga. Hún hefur tvívegis á einum mánuði lent í vandræðum hjá starfsmönnum ísraelska innflytjendaeftirlitsins og segist ekki viss um hvort hún vilji fara þangað aftur.

Fasteignir halda ekki í við verðbólgu segir KB

Fasteignaverð í Reykjavík er nú það áttunda hæsta meðal evrópskra höfuðborga, samkvæmt nýrri skýrslu KB-banka. Sérfræðingur bankans telur víst að að fasteignaverð muni lækka að raunvirði á næstunni.

Ekki kosið um álver í Hafnarfirði

Ekki verður af atkvæðagreiðslu meðal Hafnfirðinga um stækkun álversins í Straumsvík, -samhliða bæjarstjórnarkosningunum eftir hálfan mánuð, -eins og talað hefur verið um. Þetta kom fram í máli Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra á Fréttavaktinni eftir hádegi á NFS í dag.

Þjónustan muni ekki batna

Læknar við Landspítalann óttast að nýtt hátæknisjúkrahús muni alls ekki skila sjúklingum betri þjónustu en nú. Húsakynni og stjórn spítalans verði stærri, en þjónustan batni ekki.

Fangelsi verður að gera fanga að betri mönnum

Fangelsismálastjóri segir óforsvaranlegt annað en að fangelsin skili föngum út í þjóðfélagið sem betri mönnum. Talsmaður fanga á Litla Hrauni segir aðstöðuna góða, en hún miðist við ástand sem feli í sér mikla inniveru.

Alcan fær orku frá Hellisheiðarvirkjun

Alcan og Orkuveita Reykjavíkur skrifuðu í morgun undir sextíu milljarða króna samning sem tryggir stækkuðu álveri í Straumsvík 200 megawött á ári, -sem er tæplega helmingur þeirrar orku sem til þarf.

Háskólinn þarf 4,9 milljarða til að verða meðal þeirra bestu

Heildartekjur Háskóla Íslands þurfa að aukast um tæpa fimm milljarða til að skólinn geti náð í hóp hundrað bestu skóla í heimi. Fjármagnið yrði notað til eflingar doktorsnáms og rannsóknavinnu við skólann. Leiðin í hóp hinna bestu var mörkuð í háskólanum í dag.

Sýknað af fimm milljóna bótakröfu

Hæstiréttur sýknaði Olíufélagið í dag af skaðabótakröfu fyrrum starfsmanns vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Olíufélagið til að greiða starfsmanninum tæpar fimm milljónir króna í bætur.

Fimmtán mánuðir fyrir nauðgun

Hæstiréttur dæmdi karlmann í dag til fimmtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir nauðgun. Dómurinn er nokkuð mildari en dómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi manninn í eins og hálfs árs fangelsi.

Kópavogur tilnefnir heiðurslistamann

Erna Ómarsdóttir dansari og danshöfundur var nú rétt í þessu útnefnd heiðurslistamaður Kópavogs. Erna er yngsti listamaðurinn sem hlotið hefur þennan heiður í Kópavogi, en hún þykir hafa náð langt í listsköpun sinni og verið landi og þjóð til sóma.

Vinstri grænir í Hveragerði kæra úrskurð kjörstjórnar

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Hveragerði hefur kært úrskurð kjörstjórnar í bænum fyrir að hafna Kolbrúnu Ósk Guðmundsdóttur á lista og leggjast gegn því að nýr frambjóðandi yrði tilnefndur í hennar stað.

Verðbólgan hefur þrefaldast á einu ári

Verðbólga mælist nú þrefalt meiri en hún var á sama tíma í fyrra og hefur ekki mælst hærri síðan í mars 2002. Útlit er fyrir að verðbólga hækki enn og spá greiningardeildir bankanna því að hún verði sjö til níu prósent yfir árið.

Hraðamyndavélum fjölgað í Reykjavík

Borgarráð samþykkti í dag að setja upp hraðamyndavélar á helstu hraðakstursstöðum í Reykjavík. Lögreglan segir myndavélar hjálpa mikið við að stöðva þá sem liggur lífið á. Hraðamyndavélarnar verða staðsettar við helstu umferðaræðar borgarinnar, svo sem Sæbraut, Breiðholtsbraut og Ártúnsbrekku þar sem ökumenn hafa ítrekað virt hraðatakmarkanir að vettugi.

Hreinar fjörur í Hafnarfirði

Í sumar verða allar fjörur í eldri hluta Hafnarfjarðarbæjar hreinar. Í dag var tekin í notkun dælustöðin við Norðurgarð en með því lauk fyrri hluta áfanga stórframkvæmda Fráveitu Hafnarfjarðar.

Kristín Guðmundsdóttir er elsti íbúi Hafnarfjarðar

Kristín Guðmundsdóttir er elsti íbúi Hafnarfjarðar en hún varð 104 ára í dag. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar heimsótti afmælisbarnið í tilefni dagsins og færði henni blóm. Kristín hefur alla tíð verið heilsuhraust, heyrn er þó farin að daprast en hún hefur enn mjög góða sjón.

208% aukning í sölu á MP3 hringitónum

Sala á MP3 hringitónum hjá Og Vodafone hefur aukist um 208% á fyrsta ársfjórðungi ársins 2006 samanborið við fjórða ársfjórðung 2005. Ein helsta ástæðan fyrir aukinni sölu er að nú geta viðskiptavinir einnig sótt sér MP3 hringitóna í gegnum Vodafone live! farsíma.

Sjá næstu 50 fréttir