Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vitundarvakning í málefnum geðfatlaðra Vitundarvakning er að verða í málefnum geðfatlaðra. Aukin þjónustu- og búsetuúrræði er meðal þess sem koma skal í málefnum geðfatlaðra á Íslandi. 30.4.2006 18:45
Keppir í kappakstri Gumball 3000, kappakstur ríka og fræga fólksins, hófst í London í dag. Jón Ásgeir Jóhannesson er meðal keppenda og fetar þar í fótspor ekki ómerkari kappa en Burt Reynolds, Hugh Hefners og fjölmargra stjarna. Kappaksturinn er þó ekki viðurkennd keppni svo keppendur geta auðveldlega komist í kast við lögin, virði þeir ekki hraðatakmarkanir á leið sinni. 30.4.2006 18:45
Húsið gjörónýtt Íbúðarhús brann til kaldra kola á Þórshöfn í nótt. Enginn var í húsinu. Eldsins varð fyrst vart laust eftir miðnætti þegar tveir menn áttu leið eftir Langanesveginum og sáu töluverðan reyk leggja frá húsinu og kölluðu þeir strax á hjálp. Illa gekk að ráða niðurlögum eldsins, einkum vegna byggingarlags hússins. Um er að ræða gamalt hús að sögn eiganda. Slökkviliðsmenn vöktuðu húsið allt til morguns en það stendur mjög nærri tveimur öðrum húsum. Að sögn lögreglu eru eldsupptök ókunn. 30.4.2006 15:20
Súðavíkurhreppur eykur hlut sinn í Aðlöðun Súðavíkurhreppur hefur veitt sveitastjóra heimild til að kaupa hlutafé í beitufyrirtækinu Aðlöðun fyrir allt af sjö milljónum króna. Á fréttavefnum Bæjarins besta er greint frá því að Súðavíkurhreppur eigi fyrir 28,03% í félaginu. Aðlöðun hefur boðað til hluthafafundar þann 12. maí en í boðun hluthafafundar er gert ráð fyrir hækkun hlutafjár í félaginu um allt að 25 milljónum króna á genginu 1,0. Núverandi hluthafar hafa forkaupsrétt á nýjum hlut í samræmi við hlutafjáreign sína, samkvæmt samþykkt félagsins. 30.4.2006 11:45
Hreinsunarátak við strendur landsins Samtökin Veraldarvinir eru að hefja stórátak til að hreinsa strandlengju landsins. Á fréttavefnum Bæjarins besta er greint frá því að stefnt sé að hreinsa alla strandlengju landsins á árunum 2006 til 2011. Strendur verða hreinsaðar á fjórum stöðum í sumar, við Tálknafjörð, Vík í Mýrdal, Fjarðarbyggð og Siglufjörð. Stefnt er að því að fjarlægja allt rusl, kortleggja stærri svæði og gera áætlanir um hvernig hægt sé að þrífa þau í framtíðinni. 30.4.2006 11:24
Á 149 km hraða Sautján ára gamall drengur var stöðvaður á Suðurlandsvegi rétt austan við Hvolsvöll í gærkvöld eftir að ökutæki hans var mælt á 149 km hraða. Bíllinn var fullur af farþegum. 30.4.2006 10:45
Fíkniefnamál í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi gerði upptækt lítilsháttar magn af kannabisefni og amfetamíni í nótt. Þrír voru handteknir vegna málsins en þeir voru allir gómaðir við venjubundið eftirlit. Allir voru þeir góðkunningjar lögreglunnar en eftir yfirheyrslur fengu mennirnir að fara til síns heima og telst málið upplýst. 30.4.2006 10:30
Maður sleginn í andlitið Maður á þrítugsaldri varð fyrir árás við Hverfisbarinn á Hverfisgötu um fimmleytið í morgun. 30.4.2006 09:57
Kona á pallbíl stingur lögguna af Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu um óeðlilegt aksturslag konu á pallbíl í Ártúnsbrekkunni rétt upp úr átta í gærkvöld. 30.4.2006 09:52
Vélsleðamaðurinn fundinn Maðurinn sem leitað var á Langjökli síðan klukkan níu í morgun fannst heill á húfi nú rétt áðan. Hann fannst vestan við Klakk, rakur og kaldur en á annað hundrað björgunarsveitarmenn leituðu hans í dag. 29.4.2006 18:34
Mældist á um 180 km hraða Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann sem mældist á um 180 kílómetra hraða í gær. Annar ökumaður reyndi að stinga lögreglunna af eftir að hann hafði mælst á um 160 kílómetra hraða. Sá hafnaði utan vegar og á yfir höfði sé háar sektir því hann reyndist einnig vera ölvaður. 29.4.2006 17:03
Setuverkfalli aflýst á Sunnuhlíð Ófaglært starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi samþykktu nýja kjarasmaninga og aflýsti setuverkfalli á fjórða tímanum í dag. Starfsemin er komin í eðlilegt horf. Samningar hafa því tekist á öllum dvalar- og hjúkrunarheimilunum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ófaglærðir hafa verið í kjarabaráttu síðustu vikurnar. 29.4.2006 16:34
Gagnrýnir ummæli Sveins Andra Hreinn Loftsson hæstarréttarlögfræðingur hefur gert athugasemd við ummæli Sveins Andra Sveinssonar hæstarréttarlögmanns í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Hreinn gagnrýnir Svein fyrir að tjá sig um hver hugsanleg niðurstaða yrði í málinu á hendur Jón Ásgeiri Jóhannessyni og fleiri aðilum. 29.4.2006 16:07
Silvía Nótt gefur út ljóðabók Silvía Nótt áritaði nýútkomna ljóðabók sína, Teardrops of wisdom, eða viskutár, í húsakynnum B&L í dag. Fjöldi manns var samankomin til að bera stórstjörnuna augum og eins og sönn stjarna mætti Silvía Nótt aðeins of seint. 29.4.2006 15:45
Hvarf úr sumarbústað í Lóni Óskað var eftir aðstoð Björgunarfélags Hornafjarðar og lögreglu við leit á tólf ára gömlum strák sem hvarf frá sumarhúsi í Gjádal í Lóni um klukkan eitt í dag. Liðsmenn björgunarfélagsins voru komnir á staðinn skömmu síðar og hófu strax leit. Drengurinn fannst um klukkan tvö en hann hafði þá farið úr sumarhúsinu í fússi og falið sig í nágrenninu. 29.4.2006 15:17
Eimskip kaupir tvö ný skip Eimskip, dótturfélag Avion Group, hefur skrifað undir samning um smíði á tveimur frystiskipum fyrir 3.120 milljónir íslenska króna. 29.4.2006 14:11
Setuverkfall enn á Sunnuhlíð Samningar náðust milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins síðdegis í gær. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja. 29.4.2006 12:59
Samningar náðust Samningar náðust milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins síðdegis í gær. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja. Álfheiður Bjarnadóttir, talskona ófaglærðra, segir að ófaglærðum hafi verið boðið 15-22% launahækkanir, eftir launaflokkum. Hún segist þá ánægð með að samningar hafi náðst en setuverkfalli lauk um leið og launahækkanir höfðu verið samþykktar. Setuverkfall er enn í gangi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Ófaglærðir munu funda með forstöðumönnum Sunnuhlíðar klukkan tvö í dag. 29.4.2006 12:20
Varnarmálin rædd Utanríkismálanefnd Alþingis situr nú á fundi þar sem Geir Haarde, utanríkisráðherra gerir henni grein fyrir útkomunni í viðræðulotunni um varnarmál við Bandaríkjamenn í fyrradag. 29.4.2006 12:07
Leitað að vélsleðamanni Fjölmennt lið björgunarsveita er að fara af stað til að leita að vélsleðamanni sem er týndur á Langjökli. Maðurinn var ásamt þremur félögum sínum á jöklinum, þegar þeir týndu honum og ekkert hefur til hans spurst síðan. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg eru björgunarmenn rétt í þessu að leggja af stað upp á jökulinn. 29.4.2006 12:04
Ástandið versnar ár frá ári Á síðasta ári létust 42 einstaklingar á Landspítalanum á meðan þeir biðu eftir hjúkrunarrými. Þetta kemur fram árskýrslu Landsspítalans. Lækningaforstjóri segir ástandið með öllu ólíðandi og að bregðast verði við strax. 29.4.2006 11:32
Veðurmet Veðurmet fyrir Kirkjubæjarklaustur í aprílmánuði er að líkindum fallið, en það er frá árinu 1962. Hitinn í aprílmánði komst þá í 15,7 gráður en klukkan 15 í gær komst hitinn á Klaustri í 17,9 gráður. 29.4.2006 10:52
Róleg nótt Þrátt fyrir mikinn mannfjölda í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld, fóru skemmtanahöld vel fram að mestu. Þó voru átta teknir fyrir ölvunarakstur en samkvæmt lögreglu var ekki um ofurölvun að ræða í neinu tilvikanna. Samkvæmt lögreglunni voru útköll óvenjufá þessa nóttina en veður var gott og því var búist við annasamri nótt. 29.4.2006 10:49
Harður árekstur Harður árekstur tveggja fólksbíla varð á mótum Vesturlandsvegar og Skeiðarvogs í Reykjavík rétt upp úr klukkan sjö í morgun. Einn var fluttur á slysadeild Landsspítalann til aðhlynningar en hann er ekki talinn vera alvarlega slasaður. Ökumaður keyrði í gegnum girðingu sem liggur á milli akgreina á miklubrautinni skammt vestan við skeiðavog um sjöleitið í morgun. Ökumaðurinn, sem grunaður er um ölvun við akstur, var með minnitáttar áverka en hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Hann var einn í bíl sínum. 29.4.2006 10:45
Lokað fyrir umferð um Dyrhólaey Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka fyrir almenna umferð um Dyrhólaey frá 1. maí næstkomandi og til með 25. júní. Umhverfistofnun mun jafnframt, í samráði við landeigendur og nytjaréttarhafa, fylgjast með varpi á eynni og skoða hvort opna eigi fyrr fyrir umferð á Háey. 29.4.2006 09:15
Kraflar hefur það gott í Húsdýragarðinum Höfðinginn mikli, Kraflar frá Miðsitju, hefur dvalið í góðu yfirlæti í Húsdýragarðinum í vetur. Klárinn lítur ótrúlega vel út og að sögn dýrahirða í garðinum er hann hvers manns hugljúfi. Kraflar er alltaf jafn unglegur og ef ekki væri fyrir gráu hárin í enni hans myndi maður alveg getað trúað því að þarna væri ungfoli á ferð. Feldurinn svartur og glansandi, byggingin létt og fasið unglegt. 29.4.2006 09:02
Vegurinn um Þrengslin lýstur upp Vonast er til að vegurinn um Þrengslin verði upplýstur í kringum næstu áramót. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir þá hafa boðið Vegagerðinni að taka þátt í að lýsa einnig upp Hellisheiðina. 28.4.2006 23:28
Sammála um að aðgerða þörf í málefnum aldraðra Oddvitar stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru sammála um að aðgerða sé þörf í málefnum aldraðra. Formaður Félags eldri borgara segir það kröfu félagsins að málefnin aldraðra verði alfarið færð til sveitafélaganna. 28.4.2006 23:00
Aðeins eftir að semja í Sunnuhlíð Samningar hafa tekist milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins. Eftir því sem fréttastofa NFS kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja. 28.4.2006 22:45
Kosningarnar framundan lita Gustsmálin Kosningarnar í vor hafa hugsanlega áhrif á deilurnar sem sprottnar eru upp um kaup á húsum á hinu svokallaða Gustssvæði, segir talsmaður viðræðunefndar Gusts. Forsvarsmenn félagsins sáu sig knúna til að kalla til fundar í kvöld til að skýra málin fyrir félagsmönnum. 28.4.2006 22:37
Vill að ráðherrar og þingmenn fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn Ögmundur Jónasson, þingmaður og formaður BSRB vill að ráðherrar og þingmenn fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn. Hann ætlar samt sem áður að styðja frumvarp um Kjararáð sem nú liggur fyrir. 28.4.2006 22:34
Umferðarteppa við Hvalfjarðargöngin Mikil umferð er nú við Hvalfjarðargöngin en þau eru ný opnuð eftir tuttugu mínútuna lokun. En loka þurfti göngunum eftir að vörubíll með of háan farm keyrði niður hæðarslá við norðurenda ganganna. Vörubíllinn var með gröfu á pallinum en eftir að hafa keyrt niður slána hélt hann áfram sína leið en það var vegfarandi sem keyrði á eftir honum sem lét vita af atvikinu. 28.4.2006 21:23
Verkmenntaskóli Austurlands 20 ára Það var mikið um fjör á Neskaupsstað í dag þegar Verkmenntaskóli Austurlands fagnaði tuttugu ára starfsafmæli sínu. Á Fréttavefnum Aussturlandið.is kemur fram að fjölmenni hafi verið á afmælishátíðinni og meðal gesta voru Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, Guðmundur Bjarnason. 28.4.2006 19:38
Prófessor segir Íslendingum bera að kanna aðra valkosti í varnarmálum Michael Corgan, prófessor við Boston-háskóla telur að Íslendingum beri skylda til að kanna aðra valkosti í varnarmálum, jafnvel á meðan viðræður standi yfir við Bandaríkjamenn. Frakkar séu greinilega reiðubúnir að draga fram hversu óáreiðanlegir Bandaríkjamenn séu sem bandamenn. 28.4.2006 19:30
Kvöldfréttir NFS sauma að kvöldfréttum RÚV Kvöldfréttir NFS sauma nú að kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í áhorfi samkvæmt nýrri áhorfskönnun IMG Gallup sem opinberuð var í dag. Samkvæmt henni mælist áhorf á kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins 40.4% miðað við 34.5% áhorf á kvöldfréttatíma NFS. 28.4.2006 19:15
Biðröð á bensínstöðvum vegna tímabundinna verðlækkana Það hljómaði eins og aprílgabb þegar tilkynnt var á útvarpsstöðinni Kiss FM í dag að eldsneytisverð yrði lækkað á bensínstöðvum Bensínorkunnar í höfuðborginni um nærri þriðjung miðað við almennt verð. Svo var þó ekki og því mynduðust langar biðraðir á stöðvunum á meðan tilboðið stóð enda hefur dropinn verið dýr undanfarnar vikur. 28.4.2006 19:00
Þurfa að kanna pólitíks tengsl viðskiptavina Bankar þurfa að kanna pólitísk tengsl viðskiptavina sinna, samkvæmt frumvarpi um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í áhættuhópi eru þeir sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu og eru búsettir utan Íslands, sem og nánasta fjölskylda þeirra. 28.4.2006 18:45
DV framvegis helgarblað Útgáfu DV verður hætt í núverandi mynd og kemur blaðið framvegis aðeins út um helgar. Tíu manns verður sagt upp störfum á ritstjórninni. Þetta kom fram á starfsmannafundi hjá blaðinu í dag. 28.4.2006 15:25
Sveitarfélag Ölfuss og OR semja um samstarf Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem felst meðal annars í lýsingu Þrengslavegar, samstarf við uppgræðslu og umhverfisvernd, framkvæmdir í sveitarfélaginu og ljósleiðaravæðingu í þar. 28.4.2006 14:15
Starfsfólk DV boðað til starfsmannafundar Starfsfólk DV hefur verið boðað til starfsmannafundar klukkan þrjú. Ritstjórar blaðsins hafa ekki gefið neitt upp um efni fundarins, en búast má við að hann fjalli um framtíð blaðsins. NFS fylgist með og segir fréttir af fundinum um leið og þær berast. 28.4.2006 14:08
Frumvarp um frjálst flæði vinnuafls samþykkt Frumvarp til laga um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga var samþykkt á Alþingi nú á öðrum tímanum með 46 greiddum atkvæðum. Frumvarpið snýr að réttindum ríkisborgara frá átta af tíu hinna nýju Evrópusambandsríkja. Þeir geta nú komið hingað til lands og ráðið sig í vinnu án atvinnuleyfis frá og með 1. maí. 28.4.2006 14:00
Vinnubrögð meirihlutans algjörlega óviðunandi Vinnubrögð meirihlutans í Kópavogi í málefnum Gustssvæðisins eru algjörlega óviðunandi að mati Samfylkingarmanna í bænum. Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til viðræðna við stjórnarmenn Gusts um að taka yfir kauptilboð þeirra á hesthúsum á svæðinu.Forsaga málsins er sú að í ágúst í fyrra hófu fjárfestar að kaupa upp hesthús á Gustssvæðinu sem svo er kallað og fyrr en varði áttu þeir um 40 prósent húsanna. 28.4.2006 13:46
Setuverkfall á Hrafnistu í Reykjavík en ekki Hafnarfirði Ófaglærðir starfsmenn á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík ákváðu á fundi nú í hádeginu að halda til streitu steuverkfalli sínu. Starfsmenn á Hrafnistu í Hafnarfirði ákváðu hins vegar að hætta aðgerðum og ganga að tilboði Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. 28.4.2006 13:36
Dagsbrún telur RÚV-frumvarp brjóta í bága við EES-samninginn Dagsbrún telur að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið hf. brjóti í bága við ákvæði EES-samningsins um ríkisaðstoð. Í tilkynningu frá félaginu segir að það að með því að undanskilja Ríkisútvarpið reglum um eignarhald er óhjákvæmilega verið að lögfesta mismunun á grundvelli þjóðernis sem EES-reglur banni. 28.4.2006 13:26
Frumvarp til laga um frjálsa för verkafólks rætt á þingi Nú stendur yfir á þingi önnur umræða um frumvarp um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturrétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin eiga að taka gildi 1. maí og því liggur á að samþykkja þau. 28.4.2006 12:45