Fleiri fréttir

Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 11% á síðasta ári

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 11% á síðasta ári. Það eru um 800 fleiri farþegar en árið 2004. Þá fjölgaði einnig farþegum sem minnilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið um 13%. Þessi fjölgun er í samræmi við farþegaspá sem breskt fyrirtæki gerði í upphafi ársins 2005. Sú spá gerir ráð fyrir að farþegafjöldi muni fara í 3,2 milljónir árið 2015. Flugstöðin verður stækkuð umtalsvert í nokkrum áföngum. Stækkunin er þegar hafin og gert er ráð fyrir að henni ljúki árið 2007.

Saka stjórnendur um launasukk

Flugmenn Icelandair hafa slitið samningaviðræðum við félagið um tilslakanir varðandi leiguflug félgagsins í útlöndum, vegna launasukks stjórnenda, eins og heimildarmaður úr röðum flugmanna orðaði það við NFS.

Kvarta undan fjúkandi jólatrjám

Vegfarendur í Reykjavík hafa væntanlega ekki farið varhluta af fjúkandi jólatrjám á götum borgarinnar að undanförnu. Töluvert hefur verið kvartað til lögreglu sem getur lítið gert í málinu enda er það ekki á hennar könnu.

Vill samkeppni um starfsfólk upp að vissu marki

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi vill samkeppni milli sveitarfélaganna um starfsfólk upp að vissu marki til þess að binda enda á það sem hann kallar láglaunastefnu í gegnum samninga Launanefndar sveitarfélaganna.

Vilja sambærileg kjör og í Reykjavík

Verkalýðsfélag Akraness hefur kallað eftir fundi með bæjarráði vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kjaramálum bæjarstarfsmanna eftir að Reykjavíkurborg samdi við sína starfsmenn.

Máli skiptir að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni að með dómi Hæstaréttar í gær hafi Baugsmálið komist á brautina til efnislegrar meðferðar hjá dómstólunum, en það hljóti að skipta mestu að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða.

Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi

Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í gærkvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Vel gekk að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri.

Fíkniefnasali handtekinn í Garðinum

Lögreglan í Keflavík handtók fíknifnasala í gærkvöldi og lagði hald á talsvert af fíkniefnum. Maðurinn var stöðvaður þegar hann var að aka um í Garðinum og fundust hundrað grömm af hassi og eitthvað af anfetamíni við leit í bílnum. Í framhaldi af henni var gerð húsleit heima hjá honum, en þar fanst ekkert.

Sterling segir upp 50 starfsmönnum

Sterling flugfélagið, sem er í eigu FL Group, hefur sagt upp 50 starfsmönnum sínum í Billund í Danmörku og verða þá aðeins 17 menn eftir í starfsstöð félagsins þar. Berlingske Tidende greinir frá þessu. Jótlandspósturinn greindi frá því í gær að Sterling ætlaði að flytja danska flugmenn búferlum til Noregs og Svíþjóðar til að vera sem næst áfangastöðum félagsins þar og hefur það mætt nokkurri andstöðu í röðum flugmanna.

Búið að slökkva eldinn í Lómasölum í Kópavogi

Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í kvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Það gekk hins vegar greiðalega að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri.

Vilja útrýma hugmyndinni um brjálaða vísindamanninn

Gera á út af við hugmyndina um brjálaða vísindamanninn og auka áhuga ungs fólks á raungreinanámi með nýju skemmti- og fræðasetri á sviði vísinda og tækni sem fyrirhugað er að setja á fót. Samningur um undirbúningsfélag fyrir verkefnið var undirritaður í dag.

Vantar skýr markmið í heilbrigðismálum

Skýr markmið og heilstæða stefnu í heilbrigðismálum vantar á Íslandi að mati Sigurbjargar Sigurðardóttur stjórnsýslufræðings. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir var gestur Fréttavaktarinnar fyrir hádegi á NFS. Hún sagði stefnu stjórnvalda hafa einkennst af tilviljunum og óráðsíu og að ríkisstjórnin hafi farið offari með sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík.

Frumburðurinn 300 þúsundasti landsmaðurinn

Íbúar Íslands urðu 300 þúsund í dag. Það var lítill drengur úr Reykjanesbæ sem sem rauf 300 þúsunda múrinn en hann var tekinn með keisaraskurði í morgun. Hann var fyrsta barn foreldra sinna.

Gunnsteinn vill 2. sætið

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri flokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Gunnsteinn skipaði 3. sæti á framboðslista flokksins fyrir fjórum árum en leggur nú til atlögu við Ármann Kr. Ólason sem þá skipaði 2. sætið.

Eldsvoði í íbúðablokk í Kópavogi

Eldur er í íbúð á 2 hæð í fjögurra hæða blokk í Lómasölum í Kópavogi. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er á staðnum og vinnur að slökkvistarfi.

Ólíklegt að Íslandsbanki sameinist öðrum

Hugmyndir um að Íslandsbanki sameinist öðrum banka hafa verið lagðar á hilluna með sölu á fjórðungshlut Straums-Burðaráss í gær, að mati stjórnarformanns bankans. Hann telur að meiri friður skapist nú um eignarhald í bankanum.

Álver á Norðurlandi fjórða í röðinni

Álver á Norðurlandi stefnir í að verða númer fjögur í röð framkvæmda við frekari álversuppbyggingu hérlendis. Nýtt álver í Helguvík og meiri stækkun í Straumsvík og á Grundartanga verður líklega ofar á listanum en álver á Norðurlandi.

Þáttaskil í Baugsmálinu

Staðfesting Hæstaréttar á að þeir átta ákæruliðir Baugsmálsins sem eftir standa séu tækir til efnislegrar meðferðar markar þáttaskil segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.

Unglingar mótmæltu stóriðjustefnu

Ég vil nauðga náttúrunni, ég vil vinna í álveri, ég vil menga umhverfið! Þessi slagorð og fleiri glumdu af vörum ungmenna sem söfnuðust saman síðdegis í dag í móttöku iðnaðarráðuneytisins til að mótmæla stefnu stjórnvalda í virkjunarmálum. Ungmennunum var heitt í hamsi og atgangurinn slíkur að ráðuneytið óskaði eftir aðstoð lögreglu.

Fazmofélagi kýldi Sveppa

Ofbeldismaður, sem oft hefur verið kærður fyrir líkamlegt ofbeldi, kýldi Sverri Þór Sverrisson úr Strákunum í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Á heimasíðunni tveir.is tekur hann á móti áskorunum eins og Strákarnir á Stöð 2. Þeir sem standa að síðunni eru úr fazmo-genginu svokallaða en á síðunni mæla þeir gegn ofbeldi.

Ekki hægt að lækka laun forseta

Allt bendir til þess að laun forseta Íslands hækki mest launa ráðamanna og æðstu embættismanna þjóðarinnar. Ástæðan er sú að stjórnarskráin heimilar ekki að laun forseta séu skert á kjörtímabili hans.

Vilja leggja Kjaradóm niður

Ungir jafnaðarmenn vilja að Kjaradómur verði lagður niður og að laun stjórnmálamanna og annarra þeirra sem Kjaradómur hefur ákveðið breytist hér eftir í takt við almenna launavísitölu.

Vilja hækka laun til samræmis við Reykavík

Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir fundi með bæjarráði Akraness til að ræða launamun hjá starfsmönnum Akranessbæjar annars vegar starfsmönnum Reykjavíkurborgar hins vegar. Í bréfi Verkalýðsfélagsins til bæjaryfirvalda segir að munað geti þrettán til sextán prósentum á launum manna eftir því hvort þeir vinni sömu vinnu í Reykjavík eða á Akranesi.

Bíll valt í Bakkaselsbrekku

Bíll valt í Bakkaselsbrekku í Öxnadal fyrir nokkrum mínútum. Lögregla er á leið á vettvang til að kanna aðstæður en ekki er talið að slys hafi orðið á fólki.

Átján ára sætir gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sextán ára pilti sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nema annan pilt á brott af vinnustað hans og neyða hann til að taka pening út úr hraðbanka til að greiða skuld við þá.

Þrettándabrennurnar verða annað kvöld

Engar þrettándabrennur eða skemmtanir verða haldnar á höfuðborgarsvæðinu í kvöld en annað kvöld verður ýmislegt um að vera. Þetta er samkvæmt ákvörðun ábyrgðarmanna brennanna, fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins, Veðurstofu, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og löreglunnar.

Víða hálka eða hálkublettir

Hálka, él og skafrenningur gerir vart við sig á nokkrum stöðum í kringum landið en færð er best á Norðaustur- og Suðausturlandi. Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Arnþór hættur hjá ÖBÍ

Arnþór Helgason hefur hætt störfum sem framkvæmdarstjóri Öryrkjabandalags Íslands. Engar skýringar hafa verið gefnar á uppsögn Arnþórs og hvorki hann né formaður Öryrkjabandalagins, Sigursteinn Másson vildu tjá sig um málið við fjölmiðla.

Verð Actavis hækkaði um fimm prósent

Hlutabréf í Actavis hafa hækkað um 5,06 prósent í dag en um miðjan dag var tilkynnt um rúmlega hundrað milljarða lántöku fyrirtækisins hjá sex erlendum bönkum. Alls hafa bréf í félaginu hækkað um 12,65 prósent frá áramótum.

Mótmæltu í iðnaðarráðuneytinu

Um fimmtán til tuttugu ungmenni tóku sér stöðu í iðnaðarráðuneytinu á fjórða tímanum til að mótmæla stóriðjustefnu stjórnvalda. Lögregla var kölluð til en þurfti ekki af hafa afskipti af unga fólkinu sem yfirgaf ráðuneytið þegar klukkan sló fjögur og dyrum þess var lokað.

Kröfu verjenda í Baugsmáli hafnað

Hæstiréttur hafnaði í dag beiðni verjenda í Baugsmálinu um að þeim átta ákæruliðum sem eftir standa í málinu yrði vísað frá dómi. Verjendur höfðu krafist þess að málinu yrði vísað frá þar sem enginn hæfur saksóknari hefði verið mættur í dómssal þegar það var tekið fyrir á síðasta ári.

Flosi gefur kost á sér í fjórða sætið í Kópavogi

Flosi Eiríksson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs til tveggja kjörtímabila, hyggst gefa kost á sér í fjórða sæti á lista flokksins í prófkjöri fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fer 4. febrúar næstkomandi. Flosi sagði í samtali við NFS að ástæðan fyrir því að hann gæfi kost á sér í fjórða sætið nú væri sú að Samfylkingin ætti nú þrjá menn í bæjarstjórn og hann vildi með þessu reyna að fjölga fullrúunum.

Engin viðbrögð hérlendis ákveðin

Engin viðbrögð af hálfu íslenskra heilbrigðisyfirvalda hafa verið ákveðin í ljósi nýjustu frétta af fugleflensuveirunni. Flensan breiðist út í Tyrklandi og gæti því tekið sig upp í Vestur-Evrópu á næstunni.

300 þúsundasti landsmaðurinn er piltur

Drengur sem fæddist á fæðingardeild Landspítala - Háskólasjúkrahúss á sjöunda tímanum í morgun varð 300 þúsundasti landsmaðurinn. Foreldrar hans eru Erla María Andrésdóttir og Haraldur Arnarson en þau búa í Reykjanesbæ.

Vill hætta við framkvæmdur við Þjórsárver

Samfylkingin vill að hætt verði við öll áform um orkuframkvæmdir á Þjórsárverasvæðinu og vill að friðland Þjórsárvera verði stækkað verulega. Þetta kemur fram í yfirlýsingu þingflokks Samfylkingar sem telur áætlanir um framkvæmdir við Norðlingaöldu og víðar í nágrenni Þjórsárvera komnar í öngstræti.

Tóku 100 milljarða að láni

Actavis hefur tekið lán upp á rúmlega 100 milljarða króna. Sex erlendir bankar veita lánið sem er tekið í bandarískum dollurum og að upphæð 1,27 milljarðar í þeim gjaldmiðli.

Mikill verðmunur á nikótínlyfjum

Algengur verðmunur á nikótínlyfjum er 25-30 prósent. Þetta kemur fram í verðkönnun neytendasamtakanna. Mestur var munurinn 45% á munnsogstöflumfrá Nicotinell. Hæsta verð var lang oftast hjá Lyfjum og heilsu eða í 22 tilvikum. Lægsta verð var oftast í Skipholtsapóteki eða í 16 tilvikum og hjá Lyfjaveri í 14 tilvikum.

Enn lýst eftir árásarmanni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir hugsanlegum vitnum að því þegar ráðist var á unga stúlku á Sogavegi á föstudagskvöld. Maðurinn var á rauðum, eða dökkrauðum fólksbíl, sem líkist Subarau Impresa, en gæti þó verið stærri bíll.

Níutíu kærðir fyrir smygl

Um níutíu kæruskýrslur voru gerðar hjá embætti sýslumannsins á Seyðisfirði um helgina, flestar vegna smygltilrauna. Óvenju mikil umferð var um Egilsstaðaflugvöll um helgina.

Andri Snær valinn á fyrirlestraröð í Columbiu-háskóla

Andri Snær Magnason rithöfundur hefur verið valinn einn af fimm fyrirlesurum til að ávarpa nemendur í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Fyrirlestraröð vorannar er undir yfirskriftinni „Orð og gjörðir" en aðrir fyrirlesarar verða m.a. George Bizos, lögfræðingur Nelsons Mandela. Columbiu-háskóli er einn virtasti háskóli í heimi.

Sterling vill flytja flugmenn nauðungarflutningum

Sterling-flugfélagið, sem er í eigu Íslendinga, vill flytja danska flugmenn nauðungarflutningum til annarra landa á Norðurlöndunum að sögn Jótlandspóstsins. Skýringin er sú að Sterling hefur nú starfsstöðvar í Osló, Stokkhólmi og Gautaborg og vill að hluti flugmannanna verði framvegis búsettur þar í sparnaðarskyni.

Nokkrir höfnuðu utan vegar á Hellisheiði

Nokkrir ökumenn misstu stjórn á bílum sínum sem höfnuðu utan vegar þegar óveður gerði á Hellisheiði í gærkvöldi. Enga í bílunum sakaði og heldur ekki í pallbíl sem valt þar út af veginum fyrr um kvöldið.

Verið er að hreinsa vegi á Vestfjörðum

Verið er að hreinsa vegi á sunnanverðum Vestfjörðum en flughált og snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir og hálkublettir eru sömuleiðis á Norðurlandi. Greiðfært er um Norðaustur-, Austur- og Suðausturlandi. Þá eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrenglsum en aðrar leiðir á Suðurlandi eru greiðfærar.

Sjá næstu 50 fréttir