Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skipan fjölmiðlanefndar í uppnámi Menntamálaráðherra getur ekki skipað fulltrúa allra þingflokka í nýja fjölmiðlanefnd, sem á að semja drög að fjölmiðlalögum. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur sent ráðherra bréf, þar sem þess er krafist að málefni Ríkisútvarpsins verði rædd í nefndinni, en að öðrum kosti hyggst stjórnarandstaðan ekki tilnefna fulltrúa í hana. 10.1.2006 21:45
Ók á ljósastaur Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur á Hafnavegi, nálægt aðalhliðinu hjá Varnarliðinu á Miðnesheiði snemma kvölds. Lítil sem engin meiðsl urðu á fólki. 10.1.2006 21:44
Kveikt í þrettándabrennum í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. 10.1.2006 21:24
Smygluðu milljónum sígarettna Þrír norskir skipstjórar og einn íslenskur hafa játað smygl á nærri tveimur milljónum sígarettna og fleiri þúsundum lítra af áfengi til Noregs. Smyglvarninginn keyptu skipstjórarnir, sem starfa á tveimur norskum fragtskipum, í Hollandi og Þýskalandi. 10.1.2006 21:21
Fékk heillaskeyti frá forsætisráðherra 300 þúsundasti landsmaðurinn kom í heiminn í gær en það var drengur sem á ættir sínar að rekja til Reykjanesbæjar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu foreldrana og drenginn á fæðingardeild Landsspítalans klukkan eitt í dag og afhentu þeim heillaóskaskeyti í beinni útsendingu á NFS. 10.1.2006 20:45
Úthlutað fyrir lok umsóknarfrests Umhverfisráðherra hefur úthlutað Náttúrufræðistofnun 6,6 milljónum króna úr veiðikortasjóði þrátt fyrir að umsóknafrestur um styrki úr sjóðnum sé ekki runninn út. 10.1.2006 20:14
300 milljóna borhola skilar engu Tvær borholur Reykjanesvirkjunar virðast ekki ætla að skila neinni orku en sú dýrari kostaði yfir þrjúhundruð milljónir króna. Engu að síður stefnir í að virkjunin verði gangsett á fullu afli þann 1. maí næstkomandi. 10.1.2006 20:03
Álagningarprósentan lækkar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðahúsnæði um 20 prósent, eða úr 0,335 prósentum í 0,27 prósent. Lóðarleiga og vatnsgjald lækka einnig. Þetta verður þó ekki til að álögur lækka heldur hækka þær ekki meira en sem nemur verðlagsþróun. 10.1.2006 19:26
Starfslokasamningur stöðvaði kjarasamning Starfslokasamningur forstjóra FL-group varð til þess að Félag íslenskra atvinnuflugmanna sleit samningaviðræðum við Icelandair um að lækka áhafnakostnað vegna leiguflugs. Flugmönnum þótti í ljósi kringumstæðna ekki við hæfi að halda áfram viðræðum. 10.1.2006 19:12
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn áður en sá fyrri var rekinn Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins gekk frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra í síðustu viku - áður en Arnþóri Helgasyni var sagt upp störfum í gær. Arnþór var varaður við að tjá sig um málið við fjölmiðla og hótað með því að slíkt hefði neikvæð áhrif á starfslokasamning hans. 10.1.2006 18:54
Ker vill selja Esso Ker ætlar að selja Olíufélagið hf. Helstu ástæður þessa eru að sögn Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Olíufélagsins, að efnahagsástandið sé hagstætt og margir hafi getu til að kaupa félagið, en ekki síður að eigendur Kers hafi hug á að auka fjárfestingar sínar erlendis. 10.1.2006 18:44
Græddi 25 milljónir á sólarhring Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, keypti í gær hlutabréf í bankanum fyrir tæpan milljarð króna. Bjarni keypti bréfin í gær á genginu 18,6 en nú síðdegis var skráð gengi þeirra 19,1. Það þýðir að bara á þessum eina skammti hefur Bjarni hagnast um 25 milljónir króna á einum sólarhring. 10.1.2006 18:39
Svipti sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. 10.1.2006 18:30
Gestkvæmt hjá nýbura Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri voru ekki einu ráðamennirnir sem heimsóttu son Erlu Maríu Andrésdóttur og Haraldar Arnarsonar sem varð 300 þúsundasti landsmaðurinn í dag. Það gerði líka Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ - heimabæ drengsins, og hann kom færandi gjafir. 10.1.2006 17:45
Ók á 132 kílómetra hraða Tveir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjanesbæ í morgun. Sá sem hraðar ók var á 132 kílómetra hraða þar sem er 90 kílómetra hámarkshraði en hinn á 116 kílómetra hraða, einnig á vegi þar sem má hraðast aka á 90 kílómetra hraða. 10.1.2006 17:43
Svipti sig lífi eftir umfjöllun DV Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann. Nánar verður sagt frá þessu í fréttum NFS klukkan hálf sjö. 10.1.2006 17:34
Átján umferðaróhöpp í dag Fjórtán umferðaróhöpp og eitt umferðarslys hafa verið tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík frá því á hádegi í dag og alls átján frá því í morgun. Meiðslin í eina umferðarslysinu voru minniháttar en annars hefur þetta verið meiðslalaust. 10.1.2006 17:24
Bjarni eykur hlut sinn Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, hefur keypt 50 milljón hluti í Íslandsbanka. Verð hlutabréfanna er 930 milljónir króna. Hlutur Bjarna í félaginu er nú um 0,93%. 10.1.2006 16:55
Framleiða snjó á fullu Starfsmenn skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli hafa unnið að því hörðum höndum í dag að undirbúa opnun svæðisins á morgun. Snjóframleiðsluvélar hafa verið í notkun með hléum frá því um helgina og blása nú allar úr sér snjó. 10.1.2006 16:51
Herjólfur sigldi á í höfninni Vestmannaeyjaferjan Herjólfur sigldi á landgönguranann í Þorlákshöfn þegar hún kom að landi eftir siglingu frá Vestmannaeyjum í dag. Raninn skemmdust nokkuð en litlar sem engar skemmdir urðu á skipinu. 10.1.2006 16:32
Handtekinn eftir bruna í Lómasölum Eigandi íbúðarinnar við Lómasali í Kópavogi, þar sem eldur kom upp í gær, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa sett eld að íbúðinni. 10.1.2006 15:58
Framleiðslumet á Dalvík Landvinnsla Samherja á Dalvík framleiddi meiri sjávarafurðir á síðasta ári en nokkru sinni fyrr á þeim sex árum sem liðin eru síðan Samherji yfirtók starfsemina. Um 10.600 tonn voru unnin í landvinnslunni í fyrra og er það níu prósenta aukning frá árinu áður þegar framleiðslan nam 9.600 tonnum. 10.1.2006 15:50
Vilja fjármagna Sundabraut með öðrum Hafnarstjórn Faxaflóahafna vill hefja viðræður við ríkið um að taka þátt í fjármögnun Sundabrautar og stækkun Hvalfjarðarganga. Stjórnin hefur falið Árna Þór Sigurðssyni, formanni hennar, og Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að óska eftir viðræðum við stjórnvöld. 10.1.2006 15:30
Ákvörðun um matsmenn frestað Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði nú síðdegis ákvörðun um hvort hlutlausir matsmenn verði kallaðir til í Baugsmálinu. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, óskaði eftir að hlutlausir sérfræðingar yrðu fengnir til að leggja mat á gögnin sem lögð hafa verið fram. 10.1.2006 15:20
Þrjár brennur á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex Kveikt verður í þremur þrettándabrennum á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex í dag, en eins og kunnugt er þurfti að fresta öllum brennum á svæðinu á föstudaginn var vegna veðurs. Kveikt verður í brennum á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi, á bökkunum við Gestshús á Álftanesi og við Reynisvatn á móts við Sæmundarsel. 10.1.2006 15:10
Tveir viðurkenna fíkniefnasölu Lögreglan á Ísafirði hefur sleppt tveimur mönnum úr haldi sem grunaðir eru um hasssölu. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald síðasta föstudag sem átti að renna út síðdegis í dag en málið telst nú upplýst. Öðrum manninum var sleppt í gærkvöldi en hinum í morgun. Þeir hafa játað að dreifa kannabisefnum á norðanverðum Vestfjörðum. 10.1.2006 14:52
Vatnsleysustrandarhreppur verður Sveitarfélagið Vogar Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun hreppsnefndar Vatnsleysustrandarhrepps um breytingu á nafni sveitarfélagsins í Sveitarfélagið Vogar. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. 10.1.2006 14:47
Framsóknarmenn heimsækja starfsfólk Starfsmenn fjölda fyrirtækja, stofnana og samtaka á höfuðborgarsvæðinu mega eiga von á heimsókn þingmanna Framsóknarflokksins í vikunni. Tilgangur heimsóknanna er að kynna sér starfsemi fyrirtækjanna og heyra skoðanir stjórnenda og starfsfólks á stjórnmálalífinu. 10.1.2006 14:44
Höllin farin á hausinn Félagið, sem á og rekur veislu- og ráðstefnuhúsið Höllina í Vestmannaeyjum,er gjaldþrota og nemur þrotið að minnstakosti hundrað milljónum króna. 10.1.2006 13:45
Foreldrum 300 þúsundasta Íslendingsins afhent heillaóskaskeyti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu 300 þúsundasta Íslendinginn, dreng sem á ættir sínar að rekja til Reykjanesbæjar, og foreldra hans á fæðingardeild Landsspítala - Háskólasjúkrahúss klukkan eitt í dag og afhentu þeim heillaóskaskeyti í beinni útsendingu á NFS. 10.1.2006 13:38
Lætur kanna réttarstöðu sína Formaður Öryrkjabandalagsins segir það hafa legið fyrir frá því hann tók við starfinu að skipulagsbreytingar væru fyrirhugaðar innan bandalagsins. Samkvæmt heimildum NFS ætlar framkvæmdastjórinn sem sagt var upp í gær, að ræða stöðu sína við lögfræðing. 10.1.2006 13:19
Segir loðnustofninn jafnvel hruninn Áhöfnin á hafrannsóknaskipinu Ána Friðrikssyni finnur enn enga loðnu, þrátt fyrir ítarlega leit, og loðnuskipin, sem tóku þátt í henni, eru löngu hætt og farin í land. 10.1.2006 12:49
Esso til sölu Stjórn Kers hf í forystu Ólafs Ólafssonar hefur ákveðið að selja allt hlutabréf sitt í Olíufélaginu ehf. Var þetta tilkynnt á fundi með starfsmönnum í morgun. Olíufélagið ehf. er lang stærsta olíufélagið hér á landi og hefur hátt í helming markaðarins á móti Olís og Skeljungi. 10.1.2006 12:02
Skora á bæjarstjórn að hækka laun VG á Akureyri fagna kjarabótum ófaglærðra starfsmanna á leikskólum í Reykjavík og skora á stjórnendur Akureyrarbæjar að semja um mannsæmandi laun við leikskólakennara og leiðbeinendur. 10.1.2006 10:50
Nám í kínverskum fræðum hefst í lok janúar Nám í kínverskum fræðum hefst hjá Símennt Háskólans á Akureyri í lok janúar. Námið er nýlunda hér á landi en stefnt er að því að bjóða upp á B.A. nám í Austur-Asíufræðum en námið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands. 10.1.2006 10:28
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 11% á síðasta ári Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 11% á síðasta ári. Það eru um 800 fleiri farþegar en árið 2004. Þá fjölgaði einnig farþegum sem minnilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið um 13%. Þessi fjölgun er í samræmi við farþegaspá sem breskt fyrirtæki gerði í upphafi ársins 2005. Sú spá gerir ráð fyrir að farþegafjöldi muni fara í 3,2 milljónir árið 2015. Flugstöðin verður stækkuð umtalsvert í nokkrum áföngum. Stækkunin er þegar hafin og gert er ráð fyrir að henni ljúki árið 2007. 10.1.2006 09:03
Saka stjórnendur um launasukk Flugmenn Icelandair hafa slitið samningaviðræðum við félagið um tilslakanir varðandi leiguflug félgagsins í útlöndum, vegna launasukks stjórnenda, eins og heimildarmaður úr röðum flugmanna orðaði það við NFS. 10.1.2006 08:08
Kvarta undan fjúkandi jólatrjám Vegfarendur í Reykjavík hafa væntanlega ekki farið varhluta af fjúkandi jólatrjám á götum borgarinnar að undanförnu. Töluvert hefur verið kvartað til lögreglu sem getur lítið gert í málinu enda er það ekki á hennar könnu. 10.1.2006 08:00
Vill samkeppni um starfsfólk upp að vissu marki Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi vill samkeppni milli sveitarfélaganna um starfsfólk upp að vissu marki til þess að binda enda á það sem hann kallar láglaunastefnu í gegnum samninga Launanefndar sveitarfélaganna. 10.1.2006 07:30
Vilja sambærileg kjör og í Reykjavík Verkalýðsfélag Akraness hefur kallað eftir fundi með bæjarráði vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kjaramálum bæjarstarfsmanna eftir að Reykjavíkurborg samdi við sína starfsmenn. 10.1.2006 07:21
Máli skiptir að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni að með dómi Hæstaréttar í gær hafi Baugsmálið komist á brautina til efnislegrar meðferðar hjá dómstólunum, en það hljóti að skipta mestu að dómstólar taki afstöðu til ákæruatriða. 10.1.2006 07:15
Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í gærkvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Vel gekk að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri. 10.1.2006 07:13
Fíkniefnasali handtekinn í Garðinum Lögreglan í Keflavík handtók fíknifnasala í gærkvöldi og lagði hald á talsvert af fíkniefnum. Maðurinn var stöðvaður þegar hann var að aka um í Garðinum og fundust hundrað grömm af hassi og eitthvað af anfetamíni við leit í bílnum. Í framhaldi af henni var gerð húsleit heima hjá honum, en þar fanst ekkert. 10.1.2006 07:11
Sterling segir upp 50 starfsmönnum Sterling flugfélagið, sem er í eigu FL Group, hefur sagt upp 50 starfsmönnum sínum í Billund í Danmörku og verða þá aðeins 17 menn eftir í starfsstöð félagsins þar. Berlingske Tidende greinir frá þessu. Jótlandspósturinn greindi frá því í gær að Sterling ætlaði að flytja danska flugmenn búferlum til Noregs og Svíþjóðar til að vera sem næst áfangastöðum félagsins þar og hefur það mætt nokkurri andstöðu í röðum flugmanna. 10.1.2006 07:03
Búið að slökkva eldinn í Lómasölum í Kópavogi Eldur kom upp í fjögurra hæða íbúðarblokk í Lómasölum í Kópavogi á tíunda tímanum í kvöld. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang. Það gekk hins vegar greiðalega að slökkva eldinn og að sögn slökkviliðsins var enginn í íbúðinni þegar hann kviknaði, en í fyrstu var talið að svo væri. 9.1.2006 22:01