Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Biskup vill bíða með að samþykkja breytingar á hjúskaparlögum Biskupinn yfir Íslandi, Karl Sigurbjörnsson, vill að Alþingi bíði með að samþykkja breytingar á hjúskaparlögum á þá leið að trúfélögum verði heimilt að gefa saman samkynhneigða. 1.1.2006 17:47
Skemmdarverk á skóla á Akranesi Þrjár rúður voru brotnar og hluti af klæðningu sprengd með flugeldum á Brekkubæjarskóla á Akranesi í nótt. Lögreglu var gert viðvart og hafði hún hendur í hári þeirra sem ábyrgð báru á verknaðinum. Það voru skólapiltar sem höfðu eitthvað farið fram úr sér í nýársgleðinni. Málið telst að fullu upplýst. 1.1.2006 17:17
Tólf fá fálkaorðu Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum sæmdi forseti Íslands í dag, 1. janúar 2006 tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. 1.1.2006 15:13
Forseti Íslands hvetur fólk til að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld Í nýársræðu sinni hvatti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Íslendinga til að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. "Á æskuskeiði hinna eldri hafði þjóðin um aldir búið við þröngan kost, heimastjórn og fullveldi voru nýlega í höfn en heimskreppan á næsta leiti. Þúsundir heimila áttu erfitt með að ná endum saman og óvissa ríkti um framtíðina." 1.1.2006 14:42
Maður á fimmtugsaldri úrskurðaður í sjö daga gæsluvarðhald Að morgni gamlársdags voru þrjár konur og einn karl handtekin vegna meintra fíkniefnabrota, fannst á þeim lítilræði af fíkniefnum. Manninum var sleppt eftir yfirheyrslur, en ekkert fannst í fórum hans. Við leit á heimilum kvennanna og í bifreið fannst töluvert magn til viðbótar. Í kjölfar yfirheyrsla var maður á fimmtugsaldri handtekinn. 1.1.2006 14:23
Lögreglan á Ísafirði leggur hald á fíkniefni Þann 30. desember síðast liðinn stsöðvaði lögreglan á Ísafirði bifreið sem var að koma frá Reykjavík. Í bifreiðinni voru þrír menn og fannst á þeim 12 grömm af amfetamíni og 2 grömm af hassi. Mennirnir voru allir færðir til yfirheyrslu og í framhaldinu framkvæmd húsleit þar sem fundust áhöld til fíkniefnaneyslu. Mönnunum var síðan sleppt að yfirheyrslunni lokinni. 1.1.2006 13:42
Fyrsta barn ársins Þrjátíu og fjórum mínútum eftir að nýja árið gekk í garð kom fyrsta barn ársins í heiminn. Barnið, sem er drengur, var sextán merkur og fimmtíu og tveir sentimetrar og gekk fæðingin vel. 1.1.2006 12:31
Íbúar New York fögnuðu nýju ári á Times Square eins og svo oft áður Íbúar New York fögnuðu nýju ári á hefðbundinn hátt en hundruð þúsunda söfnuðust saman á Times square í gærkvöldi til að kveðja gamalt ár og fagna nýju. 1.1.2006 12:27
Nýtt ár hófst með róstum í Írak Nýtt ár hófst með róstum í Írak í morgun. Tvær bílsprengjuárásir voru gerðar í Bagdad en til allrar lukku varð ekkert mannfall. 1.1.2006 12:25
Áramótin gengu að mestu slysalaust fyrir sig. Áramótin gengu að mestu slysalaust fyrir sig þetta árið og víðast um land segir lögregla áramótin óvenjugóð þetta árið. Maður situr í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík vegna gruns um nauðgun á skemmtistað í Austurborginni. Ungur drengur var fluttur með sjúkraflugi frá Patreksfirði til Reykjavíkur vegna áverka í andliti eftir flugeldaskot. 1.1.2006 12:20
Mikill eldur gaus upp í flugeldasölu í Hveragerði á Gamlársdag Mikill eldur gaus upp í flugeldasölu í Hveragerði á gamlársdag. Tjón björgunarsveitarinnar á staðnum er gríðarlegt, en húsið er ónýtt og allur búnaður hjálparsveitarinnar. Þrír fengu snert af reykeitrun og einn brákaðast á fæti þegar hann braut sér og börnum sínum leið út úr húsinu. 1.1.2006 12:16
Fyrsta barn ársins í Reykjavík Þrjátíu og fjórum mínútum eftir að nýja árið gekk í garð kom fyrsta barn ársins í heiminn. Barnið, sem er drengur, var sextán merkur og fimmtíu og tveir sentimetrar og gekk fæðingin vel. 1.1.2006 12:00
Matvælaverð óviðunandi hærra að mati forsætisráðherra Forsætisráðherra telur óviðunandi að matvælaverð hér á landi sé hærra en í nágrannalöndunum. Hann tilkynnti þjóðinni í gærkvöld að gerðar yrðu ráðstafanir til að leiðrétta það. Þá boðar forsætisráðherra að átak verði gert í málefnum öryrkja. 1.1.2006 11:20
Búnaður björgunarsveitarinnar nær ónýtur Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í flugeldum í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Hveragerði í dag. Um tíu manns voru inni í húsinu að versla flugelda fyrir kvöldið þegar slysið varð. 31.12.2005 15:00
Um 53% þjóðarinnar styður ríkisstjórnina Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings tæplega 42% kjósenda samkvæmt könnun Gallups í desember. Samfylkingin nýtur stuðnings 27% landsmanna, Vinstri hreyfingin Grænt framboð hefur tæplega 18% fylgi og um 11% styðja Framsóknarflokkinn. Þá styður um 2% þjóðarinnar Frjálslynda flokkinn. Ríkisstjórnina styðja því um 53% þjóðarinnar samkvæmt könnuninni. Íslendingar eru bjartsýnir hvað varðar atvinnuástand í landinu á komandi ári, en þó eru þeir heldur svartsýnni á efnahagshorfur en þeir voru í fyrra. 31.12.2005 14:41
Vel gengur að ráða niðurlögum eldsins Vel gengur að ráða niðurlögum eldsins í Hveragerði en lögreglan á Selfossi segir þó að enn sé mikil sprengihætta og að erfitt sé að segja til um hvenær hættan sé liðin hjá. Svæðið hefur verið girt af en lögreglan biður þó fólk um að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Samkvæmt lögreglunni kviknaði í þegar verið var að undirbúa flugeldasýningu en hvaða liður það var sem fór úrskeiðis sé of snemmt að segja til um. 31.12.2005 14:16
Að minnsta kosti einn slasaður Eldur kviknaði í flugeldasölu í í húsnæði björgunarsveitarinnar í Hveragerði í dag. Einn maður er slasaður en lítið var af fólki á staðnum þegar eldurinn kom upp. Talsverður eldur er í byggingunni en Slökkvilið í Hveragerði og á Selfossi er á staðnum. Þá var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sett í viðbragðsstöðu. Lögreglan hefur girt svæðið af vegna sprengihættu en eldurinn mun hafa kviknað eftir að sprenging varð í byggingunni. 31.12.2005 13:33
Svipað veður fram á þorra Félagar í Veðurklúbbi Dalbæjar telja að veður verði svipað og það er nú fram á þorra. Þeir segja að það gæti kólnað dálítið frá 20. janúar og jörð hvítnað eitthvað en telja ekki ástæðu til að búast við vonskuveðri. 30.12.2005 23:45
Freyðivín fyrir börn selst vel Freyðivín fyrir börnin rokselst í verslunum Hagkaupa fyrir áramótin. Framkvæmdastjóri Hagkaupa segir freyðivínið á boðstólum til gamans svo börnin geti skálað með fullorðnum og fagnað nýju ári. Taka skal fram að freyðivínið er óáfengt. 30.12.2005 22:00
Afli íslenskra skipa hefur ekki verið minni í tíu ár. Afli íslenskra skipa hefur ekki verið minni í tíu ár. Aflinn er áætlaður 1.667 þúsund lestir en svo lítill hefur hann ekki verið síðan 1995 þegar hann var 1.605 þúsund lestir. Mestur var aflinn árið 1997 eða 2.199 þúsund lestir 30.12.2005 22:00
40 manns sem fengu meðferð á Vogi létust á árinu Fjörutíu manns sem fengu meðferð á Vogi á árinu létust fyrir aldur fram á fyrstu átta mánuðum ársins vegna ofneyslu vímuefna. Þar af létust níu fyrir fertugt. Margt þessa fólks hlaut voveiflegan dauðdaga að sögn yfirlæknis á Vogi. Þá bendir hann á að því fjölgi nú ört fullorðnu fólki, komið yfir þrítugt, sem leiti sér hjálpar vegna dagdrykkju. 30.12.2005 21:22
Fer enn í reglulegar lýtaaðgerðir Piltur sem slasaðist í andliti þegar flugeldur sprakk framan í hann fyrir þremur árum fer enn reglulega í augnaðgerðir til þess að laga lýti í kringum augun. Hann var svo heppinn að halda sjóninni og vill hann minna fólk á að fara varlega því allir geti lent í slysi sem þessu. 30.12.2005 21:19
Kaldur vetur blasir við Úkraínumönnum Kaldur vetur blasir við Úkraínumönnum ef svo fer sem horfir og skrúfað verður fyrir gas sem þeim berst með leiðslum frá Rússlandi. Þá er einnig óvíst um sölu á gasi til Evrópusambandslanda, því leiðslurnar frá Rússlandi fara um Úkraínu og í dag boðaði Evrópusambandið til neyðarfundar vegna þess 30.12.2005 21:15
Niðurstaða komin í leikskólakennaradeiluna Kjaradeila leikskólakennara og borgaryfirvalda tók á sig nýja mynd í dag á fundi deilenda í Ráðhúsinu. Niðurstaðan varð sú að deilendur fá þriggja vikna andrými til að leysa deiluna og móta hugmyndir um kjör leikskólakennara sem lagðar verði fyrir Launamálaráðstefnu sveitarfélaga þann 20. janúar næstkomandi. 30.12.2005 20:53
Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina hafa farið illa með tímann Laun embættismanna hækka um tvö og hálft prósent eftir mánuð, en fram að því gildir úrskurður Kjaradóms. Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina hafa farið illa með tímann og leysa hefði mátt málið fyrir áramót. Forseti ASÍ fagnar niðurstöðunni en skilur ekki hvers vegna beðið er með að láta hana taka gildi. 30.12.2005 20:48
ALCAN svarar ásökunum starfsmanna Forsvarsmenn Alcan hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þeir mótmæla fullyrðingum og ásökunum starfsmanna í garð fyrirtækisins og segja þær einfaldlega rangar. 30.12.2005 20:30
Einkaaðilar í flugeldasölu reyna að líkja eftir sölustöðum Landsbjargar Fjöldi einkaaðila sem selja flugelda eykst árlega. Sumir fara þá leið að líkja eftir skiltum og auglýsingaaðferðum Landsbjargar og Hjálparsveita Skáta. 30.12.2005 20:28
Tvöfalda stærri hluta Reykjanesbrautar Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar en verkið er unnið í samráði við bæjaryfirvöld í Kópavogi og Garðabæ. 30.12.2005 19:35
Má heita Súla og Þrastar en ekki Arnsted Súla og Beníta eru tvö nýjustu nöfnin í mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd ákvað á síðasta fundi sínum að nöfnin tvö uppfylltu skilyrði laga um mannanöfn þar sem þau fallbeygjast og bætti þeim því í mannanafnaskrá. 30.12.2005 18:45
Sex yfir þúsund tonnin Sex krókaaflamarksbátar veiddu meira en þúsund tonn á árinu samkvæmt upplýsingum á vef Landssambands smábátaeigenda. Guðmundur Einarsson ÍS veiddi mest, alls 1.360 tonn, en næstur kom Hrólfur Einarsson ÍS með 1.346 tonn. 30.12.2005 18:30
Keyptu fasteignir fyrir 300 milljarða Landsmenn keyptu og seldu fasteignir fyrir um 300 milljarða króna á árinu sem nú er að líða að mati Fasteignamats ríkisins. Veltan í ár er sú mesta sem hefur nokkru sinni verið skráð hjá Fasteignamati ríkisins á einu ári. Í fyrra seldust fasteignir fyrir 226 milljarða króna en aukningin milli ára nemur 76 milljörðum eða þriðjungi heildarsölunnar í fyrra. 30.12.2005 17:44
Sveitarfélög í fyrsta sinn færri en hundrað Sveitarfélögum landsins fækkar um þrjú á nýársdag þegar sameining fjögurra sveitarfélaga undir nafni Húnavatnshrepps tekur gildi. 30.12.2005 16:58
Erill hjá slökkviliði Erill hefur verið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag. Dælubílar hafa fimm sinnum verið kallaðir út, slökkva hefur þurft eld í tveimur blaðagámum og bíl í Kirkjuteigi auk þess sem eldur kom upp í íbúð við Kambsveg en íbúa tókst að slökkva hann áður en slökkviliðið kom á staðinn. 30.12.2005 16:43
Ríkisstjórnin klúðraði málinu Klúður er orðið sem stjórnarandstæðingar nota yfir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við úrskurði kjaradóms. Þeir eru afar ósáttir við að forystumenn ríkisstjórnarinnar vildu ekki kalla þing saman til að fresta gildistöku launahækkunar þingmanna og ráðherra. 30.12.2005 16:32
Nýr kjarasamningur Vélstjórafélagsins, LÍÚ og SA Vélstjórafélag Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins gerðu í dag nýjan kjarasamning um kjör vélstjóra á fiskiskipum. Kjarasamningurinn kemur í stað samnings aðilanna frá 2001 sem rennur út þann 31. desember 2005. Gildistími er til 31. maí 2008. 30.12.2005 16:27
Fimmtán gefa kost á sér Prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi vegna framboðslista flokksins við bæjarstjórnarkosningar á komandi vori, verður haldið 21. janúar næstkomandi. Fimmtán manns gefa kost á sér í prófkjörinu. 30.12.2005 16:19
Nýtt útgáfufélag tekur við Vikudegi Hildingur ehf. sem er dótturfélag KEA, Kristján Kristjánsson, Birgir Guðmundsson og Ásprent Stíll hafa stofnað útgáfufélag sem keypt hefur allar eignir Vikudags á Akureyri og mun félagið hefja rekstur blaðsins frá og með áramótum. Kristján verður ritstjóri blaðsins og framkvæmdastjóri útgáfunnar. 30.12.2005 15:43
Bréf í Dagsbrún rjúka upp Hlutabréf í Dagsbrún hafa hækkað um rúmlega níu prósent í dag, eftir að tilkynnt var um breytingar í stjórn fyrirtækisins í morgun. 30.12.2005 15:30
BUGL fær 1,5 milljónir Ein og hálf milljón króna söfnuðust á styrktartónleikum sem haldnir voru af Lýsingu dagana 29. og 30. nóvember í Grafarvogskirkju. Allur ágóðinn rennur óskiptur til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. 30.12.2005 15:15
Borgarstjóri skipar nefnd með leikskólakennurum vegna kjaramála Á fundi Steinunnar Valdísar Óskarsdóttir borgarstjóra í dag með Björgu Bjarnadóttur formanni og Þresti Brynjarssyni varaformanni Félags leikskólakennara vegna kjaramála leikskólakennara var ákveðið að fela hópi skipuðum fulltrúum Reykjavíkurborgar, Félags leikskólakennara, samráðs leikskólastjóra í Reykjavík auk fulltrúa frá Launanefnd sveitarfélaga að móta hugmyndir sem lagðar verði fyrir Launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður 20. janúar nk. Jafnframt beina aðilar þeim tilmælum til leikskólakennara, sem sagt hafa upp störfum eða hafa ákveðið að segja upp, að endurskoða hug sinn og gefa vinnuhópnum kost á takast á við þá stöðu sem uppi er. 30.12.2005 15:00
Íslandspóstur og Súðavíkurhreppur semja um aukna þjóustu Íslandspóstur hf. og Súðavíkurhreppur hafa gengið frá samkomulagi um þjónustu við íbúa á bæjum við Ísafjarðardjúp. Samkomulagið tryggir samgöngutengingu úr Djúpinu við Súðavík og Ísafjörð. 30.12.2005 14:58
Ákvörðun LSH felld úr gildi Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi ákvörðun Landspítala háskólasjúkrahúss um að stöðu Tómasar Zoega geðlæknis yrði breytt úr stöðu yfirlæknis á geðsviði í starf sérfræðilæknis. Þá var Landsspítalanum einnig gert að greiða Tómasi 950 þúsund krónur í málskostnað. Ákvörðunin var tekin í lok apríl á þeim forsendum að Tómas hefði neitað að samþykkja að hætta rekstri á eigin læknastofu. Hún hafði í för með sér launalækkun fyrir Tómas og eins minni ábyrgð. Hann ákvað þegar í stað að kæra ákvörðunina og krafðist ógildingar. Í dómnum frá í morgun segir að engin ástæða hafi verið til að víkja Tómasi úr starfi eða áminna hann, enda hafi hann í engu vanrækt skyldur sínar. 30.12.2005 14:54
Mikil hálka á Mosfellsheiði Vegagerðin varar við mikilli hálku á Mosfellsheiði en þar er unnið að hálkuvörnum. Á Vesturlandi og vestfjörðum er hálka og hálkublettir og þá eru hálkublettir sömuleiðis víða á Norður- og Suðurlandi. Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka, hálkublettir og snjóþekja en greiðfært er um Suðausturland. 30.12.2005 14:10
Starfsmenn Ísal/Alcan lýsa yfir andstyggð á starfsmannastefnu fyrirtækisins Starfsmenn á aðalverkstæði Ísal/Alcan funduðu í morgun vegna þess að einum starfsmanni fyrirtækisins var sagt upp fyrirvaralaust. Starfsmaðurinn sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í mörg ár var kallaður fyrirvaralaust til yfirmanns og tilkynnt um brottrekstur án skýringa að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fundinum. 30.12.2005 13:56
Bílasafn Fornbílaklúbbsins rís í Elliðaárdalnum. Fyrsta skóflustunga að fyrirhuguðu bílasafni og félagsheimili Fornbílaklúbbs Íslands og þjónustuhúsi Orkuveitu Reykjavíkur var tekin í dag klukkan eitt í Elliðaárdalnum. 30.12.2005 13:46