Fleiri fréttir

Hjördís sátt

Hjördís Hákonardóttir dómsstjóri er sátt við samkomulag sem náðst hefur milli hennar og Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að dómsmálaráðherra hafi brotið jafnréttislög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara í ágúst árið 2003.

Borgarstjóri þiggur ekki launahækkun

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík.

Útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, útilokar ekki sameiningu við Morgunblaðið. Hluthafafundur Landssíma Íslands hf. samþykkti í dag sameiningu Símans, Skipta ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. sem á og rekur Skjá 1. Síminn stefnir að því að hasla sér frekari völl á fjölmiðlamarkaði, bæði innanlands og utan.

Laun borgarstjóra munu ekki hækka samkvæmt ákvörðun Steinunnar Valdísar

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur ákveðið að úrskurður Kjaradóms frá í gær um hækkun launa æðstu embættismanna muni ekki ná til borgarstjórans í Reykjavík. Laun borgarstjóra hafa miðast við laun forsætisráðherra, en skv. úrskurðinum áttu launin að hækka um 75.000 kr. á mánuði frá áramótum.

Brýnasta verkefnið að lækka virðisaukaskatt á matvæli

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir eitt brýnasta verkefnið fram undan að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Ríkisvaldið verði að stuðla með beinum hætti að lægra vöruverði. Það verði þó að herða eftirlit með verðlagi svo skattaívilnunin lendi ekki í vasa kaupmanna. Sporin hræði í þeim efnum.

Samkomulag milli Björns og Hjördísar

Samkomulag hefur tekist milli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, og Hjördísar Hákonardóttur, dómsstjóra, vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála um að ráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar hann skipaði hæstaréttardómara haustið 2003. Björn skipaði þá Ólaf Börk Þorvaldsson hæstaréttardómara. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Fékk 6 mánaða dóm fyrir að stela kókómjólk, áleggi og köku

Karlmaður var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að brjótast inn í Reynisbakarí í Kópavogi í ágúst síðastliðnum og stela þaðan vörum. Ránsfengurinn var þrjár kókómjólkurfernur, oststykki, hangikjötssalat og brúnkaka.

Þriggja bíla árekstur við Smáralind

Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut í nágrenni Smáralindar fyrr í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild. Svo virðist sem meiðsl þeirra séu lítilsháttar en verið er að rannsaka hugsanlega áverka.

Vetnisrafall tekinn í notkun á Keflavíkurflugvelli

Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kveiktu á vetnisrafali við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í dag. Rekstur rafalsins er hluti af tilraunaverkefni verkfræðideildar Bandaríkjahers með vetni sem varaafl.

Forseti Íslands heimsótti Fjölskylduhjálpina

Forseti Íslands kom í opinbera heimsókn í bækistöðvar Fjölskylduhjálpar Íslands í dag. Það kom honum á óvart hversu margir leita til fjölskylduhjálparinnar allan ársins hring. Hann sagði einnig augljóst að þrátt fyrir að flestir ynnu fulla vinnu næðu margir ekki endum saman.

Geti kennt sjálfum sér um að vera lítið á sviðinu

Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í borginni hafa lítið verið á sviðinu og það er þeim sjálfum að kenna, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en ný skoðanakönnun sýnir að fylgi flokksins í borginni mælist nú 55,7 prósent. Borgarstjóri á von á að kannanir í febrúar gefi skýrari mynd af stöðu floikkanna.

Hálka og hálkublettir víða um land

Hálka og hálkublettir eru víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni frá því um klukkan þrjú í dag. Hálka er á Hellisheiði og víðar á Suðurlandi, ásamt hálkublettum. Í Þrengslum er éljagangur og snjóþekja og þá er einnig snjóþekja og hálka víða á Vesturlandi. Éljagangur er í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði.

Íslendingar eru á faraldsfæti um þessar mundir.

Tólf til þrettán hundruð manns fer í gegnum Reykjavíkurflugvöll daglega þessa síðustu viku fyrir jól og hefur Flugfélag Íslands aukið flug til Egilsstaða og Akureyrar vegna þessa.

Reykjavíkurborg tekur þátt í herferð gegn dauðarefsingum

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að taka þátt í baráttunni gegn dauðarefsingum með því að gerast aðili að herferðinni "Lífsborg -gegn dauðarefsingum". Tæplega 400 borgir víða um heim hafa gerst aðilar að herferðinni. Reykjavíkurborg vill leggja baráttunni gegn dauðarefsingum lið, þar sem um mikilvæga mannréttindabaráttu sé að ræða.

Margar jólabækur að seljast upp

Jólabókaflóðið stendur nú sem hæst. Það hefur aldrei verið straumharðara eða dýpra. Margar bækur eru að seljast upp og nú fer hver að verða síðastur að ná síðustu eintökin af metsölubókum þessara jóla.

Hamborgarhryggur á Suðurnesjum en hangikjöt á Ströndum

Suðurnesjamenn vilja hamborgarhrygg í jólamatinn en líta nánast ekki við rjúpu á sama tíma og rjúpan hefur ýtt hamborgarhryggnum út af jólaborði Mývetninga eftir að veiðibanninu lauk og hangikjöt heldur velli norður á Ströndum.

Örnólfur Thorsson skipaður forsetaritari

Örnólfur Thorsson hefur verið skipaður í starf forsetaritara í stað Stefáns Lárusar Stefánssonar sem lætur af störfum um áramót og hverfur á ný til starfa á vettvangi utanríkisráðuneytisins. Örnólfur var ráðinn sérfræðingur á skrifstofu forseta Íslands árið 1999 og hefur verið skrifstofustjóri frá 2003.

Útlit fyrir að hægi á vexti einkaneyslunnar

Þrátt fyrir talsvert meiri veltu í dagvöruverslun í síðasta mánuði en í sama mánuði í fyrra, eru vísbendingar um að farið sé að hægja á vexti einkaneyslunnar, samkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Viðbúnaður á Kastrup vegna lendingar vélar frá Iceland Express

Viðbúnaður var við lendingu vélar Iceland Express á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn laust fyrir hádegi í dag. Ástæðan var sú að merki í stjórnborði vélarinnar gaf til að nefhjól vélarinn hefði ekki farið niður. Flugmenn vélarinnar settu því hjólið handvirkt niður og gekk það vandræðalaust. Farþegar vélarinnar fengu upplýsingar um gang mála jafnóðum og að lendingu lokinni var þeim boðin aðstoð eftir þörfum. Tæknimenn SAS eru að fara yfir búnað vélarinnar. Engin seinkun varð á lendingunni en búist er við einhverri töf á brottför frá Kaupmannahöfn í dag þar sem kalla þarf inn nýja vél.

Magnús kaupir P. Samúelsson í dag

Toyota-umboðið á Íslandi skipti um eigendur í dag. Magnús Kristinsson útgerðarmaður kaupir P. Samúelsson hf. og var skrifað undir samninga nú fyrir hádegi.

Þorsteinn hættir við að rita sögu þingræðis

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sendiherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur hætt við að rita sögu þingræðisins. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu.

Ríkisstjórnin skipar nýja fjölmiðlanefnd

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að skipa nýja fjölmiðlanefnd til að leggja grunninn að nýju frumvarpi um íslenska fjölmiðla. Nefndin verður skipuð sjö manneskjum úr öllum stjórnmálaflokkum.

Sjálfstæðiflokkurinn með mikinn meirihluta samkvæmt könnun

Sjálfstæðisflokkurinn er með mikinn meirihluta í Reykjavík samkvæmt nýrri skoðanakönnun frá Gallup. Framsóknarflokkurinn næði ekki inn manni en um þrjátíu prósent borgarbúa treysta Birni Inga Hrafnssyni, sem stefnir á efsta sæti á lista framsóknarmanna, til að gegna starfi borgarstjóra.

Sambönd iðnaðarmanna á Norðurlöndum sameinast

Eitt norrænt iðnaðarmannasamband verður til um áramótin en þá sameinast Samband málmiðnaðarmanna og Samband starfsfólks í efna-, pappírs- og textíliðnaði. Samkvæmt frétt á heimasíðu Samiðnar verða félagsmenn yfir 1,2 milljónir í 22 samböndum.

Ríflega helmingur Suðurnesjamanna hefur hamborgarhrygg

Rösklega helmingur Suðurnesjamanna, eða 55 prósent, ætlar að hafa hamborgarhrygg í jólamatinn, samkvæmt skoðanakönnun Víkurfrétta. Næst kemur kalkún, en fimm prósent ætla að hafa hann, fjögur prósent rjúpu, tvö prósent önd en rúmlega þirðjungur er enn óákveðinn.

Bandarísk tollyfirvöld vara við ólöglegum Tamiflu innflutningi

Bandarísk yfirvöld lögðu í gær hald á póstsendingu sem innihélt fimmtíu ólöglega skammta af flensulyfinu Tamiflu. Lyfið er einkaleyfisskylt og framleitt af lyfjarisanum Roche og því ólöglegt að framleiða og selja lyfið. Ólöglegur innflutningur Tamiflu, sem talið er lækna fuglaflensu, er sístækkandi vandamál í Bandaríkjunum. Bandarísk tollayfirvöld segja lyfið vera pantað í gegnum internetið frá Asíu og að oftast sé aðeins um lyfleysu að ræða. Yfirvöld segja þessa hömstrun hættulega og vara við kaupum á lyfinu í gegnum internetið.

Hærra gjald fyrir reykingafólk í dönskum lestum

Reykingafólk sóðar út segir danska járnbrautafyrirtækið DSB. Af þeim sökum hafa fargjöld reykingafólks verið hækkuð um helming á við það sem reyklausir borga. Einnig mun reyksætum fækka í lestunum og sumar lestir verða alveg reyklfríar. Er þetta gert vegna þess að þrif eftir reykingafólk kostar milljónir króna á ári hverju og einnig af tillitssemi við reyklausa. Gjaldhækkunin tekur gildi um áramót.

Launavísitala hækkaði um 0,6 prósent í nóvember

Launavísitala var 272,3 stig í síðasta mánuði og hækkaði um 0,6 prósent frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,3 prósent.

Dökkt súkkulaði meinhollt fyrir hjartað

Nú geta súkkulaðifíklar tekið gleði sína því svissneskir vísindamenn hafa fært sönnur fyrir því að súkkulaðiát geti komið í veg hjartaáfall. Vísindamenn í Zurich rannsökuðu hóp reykingamanna með stíflaðar kransæðar.

Grjóthrun á þjóðveginn í Hvalnesskriðum

Grjót hrundi niður á þjóðveginn í Hvalnesskriðum á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs á fjórða tímanum í nótt og áttu flutningabílar í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar. Vegurinn var þó jeppafær.

Fartölvum stolið á tveimur stöðum

Þjófar brutust inn í íbúð við Hringbraut í Reykjavík í gærkvöldi og stálu þaðan meðal annars nýrri fartölvu. Þá barst tilkynning um innbrot í tölvuverslun við Suðurlandsbraut á fimmta tímanum í nótt. Þar náðu þjófar að stela þremur nýjum fartölvum og komast undan áður en lögregla kom á vettvang.

Jafnt kynjahlutfall á framboðslista sjálfstæðismanna

Jafnt hlutfall er á milli karla og kvenna á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, en fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í borginni gekk frá listanum í gær. Í efstu tíu sætum eru fimm karlar og fimm konur.

Ekið á hross á Eyrarbakkavegi í nótt

Maður ók bíl sínum á hross á Eyrarbakkavegi í myrkri og hálku í nótt og meiddist hesturinn svo mikið að lögregla aflífaði hann á staðnum. Fleiri hestar höfðu sloppið út úr girðingu og hafði bóndinn orðið þess var og var að leita að þeim þegar slysið varð. Bíllinn stórskemmdist og var óökufær eftir.

Sex slösuðust í þremur umferðarslysum

Sex voru fluttir á sjúkrahús eftir þrjú umferðarslys í gærkvöldi en engin meiddist lífshættulega. Fyrst þrír eftir harðan árekstur á Akureyri undir kvöld, aíðan tveir eftir harðan árekstur í Hafnarfirði á níunda tímanum og skömmu síðar einn eftir að bíll valt á Þorlákshafnarvegi.

Falsaði lyfseðla og rauf skilorð

Maður sem framvísaði fölsuðum lyfseðli í verslun Lyfju við Smáratorg í Kópavogi í vor var í gær dæmdur í þriggja mán­aða fang­elsi í Héraðsdómi Reykja­ness. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár. Með broti sínu nú rauf maður­inn skilorð fyrri dóms, en þá var hann dæmdur fyrir að hafa brotist inn í átta bíla og stolið úr þremur þeirra.

Félagsmálaráðherra segir það aldrei hafa hvarflað að sér af segja af sér embætti

Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir aldrei hafa hvarflað að sér að segja af sér embætti vegna hæstaréttardóms í máli fyrrverandi jafnréttisstýru. Þingflokkur Framsóknarflokksins kom saman til fundar í dag og ræddi í fyrsta sinn málið og viðbrögð ráðherrans. Fundurinn tók þó enga afstöðu. Hvorki var lýst yfir stuðningi eða vantrausti á ráðherra.

Langstærsta verkefni austfirskra verktaka

Tugir manna þramma nú um fjöll og firnindi Austfjarða. Þetta eru þó ekki jólasveinar heldur starfsmenn Héraðsverks að steypa undirstöður háspennulínu vegna álversins í Reyðarfirði. Þetta er langstærsta verkefni sem austfirskur verktaki hefur tekið að sér.

Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur

Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir árekstur tveggja fólksbíla á Reykjavíkurvegi klukkan hálf níu í kvöld, meiðsl þeirra eru þó ekki alvarleg. Bílarnir tveir lentu saman á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði á móts við Stakkahraun og valt annar bíllinn. Að sögn slökkviliðsins á Höfuðborgarsvæðinu, sem kvatt var á vettvang, var rigning og dimmt þegar slysið átti sér stað.

Sjá næstu 50 fréttir