Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skorinn illa á háls á skemmtistað Ráðist var á mann og hann skorinn illa á háls á skemmtistað við Smiðjustíg í miðborginni í nótt. Árásarmaðurinn hafði brotið glas og lagði til mannsins en hann fékk stóran skurð á háls auk nokkurra áverka annars staðar á líkamanum þar sem hann reyndi að verja sig. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og voru saumuð tuttugu spor í hálsinn á honum en hann mun þó ekki vera í lífshættu. 19.11.2005 10:30
Harka hlaupin í prófkjörið Nokkur harka er hlaupin í slaginn um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer í dag. Haraldur Þór Ólason segir mótframbjóðanda sinn, Valgerði Sigurðardóttur, tengjast gömlu ættarveldi í hafnfirskri pólitík, Mathiesen-ættinni, og finnst tími kominn fyrir nýtt blóð í forystu. 19.11.2005 10:08
Heimilislausir á Íslandi Milli 45 og 55 manns eru heimilislausir á hverjum tíma í Reykjavík. Þessir einstaklingar eru flestir einhleypir karlmenn milli þrítugs og fimmtugs. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu samráðshóps um heimilislausa sem gefin var út á vegum Félagsmálaráðuneytisins. Flestir heimilislausra eru öryrkjar og eiga við stórfelld heilsuvandamál að stríða ásamt áfengis- og vímuefnavanda. Þá eru vísbendingar um að stór hluti þeirra eigi einnig við geðræn vandamál að stríða. 19.11.2005 10:00
Langtímaskuldir Hafnarfjarðar lækka Langtímaskuldir Hafnarfjarðar hafa lækkað um 1,5 milljarða króna samkvæmt níu mánaða uppgjöri sem lagt var fram í bæjarráði í vikunni. Niðurstöðurnar eru jákvæðar fyrir bæjarfélagið og gefa fyrirheit um góða afkomu bæjarins, segir í tilkynningu, en fyrstu níu mánuði ársins er 683 milljóna króna afgangur af rekstri bæjarins, en það er sagt umtalsvert betri árangur en áætlanir gerðu ráð fyrir. 19.11.2005 08:15
Mál Litháa í Félagsdóm Samiðn höfðar mál fyrir Félagsdómi og telur Litháa á of lágum launum. Þetta er í fyrsta mál starfsmanna erlendra starfsmannaleiga fyrir dóminum. 19.11.2005 08:15
Lögmaður í hálfs árs fangelsi Hæstiréttur mildaði um tvo mánuði refsingu lögmanns sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í ársbyrjun í átta mánaða fangelsi. Fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir konu sem ákærð var með lögmanninum fyrir skilasvik var óbreyttur. 19.11.2005 07:45
Fá sömu eingreiðslu og aðrir Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að öryrkjar, ellilífeyrisþegar og atvinnulausir fái um 26 þúsund króna eingreiðslu í desember líkt og um samdist á almenna vinnumarkaðnum fyrr í vikunni. 19.11.2005 07:00
Verður fyrir heyrnarskaða Heilsa Erlendar rannsóknir benda til að heyrnarskaði sé orðinn algengur meðal ungmenna sem nota hjómflutningstækin Ipod eða mp3-spilara að jafnaði. Hljóðstyrkur í mörgum slíkum tækjum getur náð 135 desibelum og algengt er að ungmenni hlusti á háum styrk. Jafnast það á við að standa við hliðina á þotuhreyfli en reglur Vinnueftirlitsins kveða á um að sé hávaði á vinnustað meiri en 85 desibel skuli starfsmenn nota eyrnahlífar. 19.11.2005 06:45
Lögmaður dæmdur fyrir auðgunarbrot Hæstiréttur hefur dæmt lögmann, sem fundinn var sekur um auðgunarbrot, til sex mánaðar fangelsisvistar. Lögmaðurinn gerði fjárnám í fasteign konu á grundvelli tryggingarvíxils að fjárhæð fimm milljónir króna, þótt krafan væri mun lægri. Hann hagræddi dagsetningum á ýmsum plöggum, svo það liti út fyrir að kröfurnar væru frá fyrri tíma og gerðist þar með sekur um að aðstoða konuna við svikin. 18.11.2005 22:30
Vandi heimilislausra ræddur á Alþingi í dag Um fimmtíu manns eru heimilislausir á Íslandi, samkvæmt nýrri skýrslu sem félagsmálráðherra kynnti á Alþingi í morgun. Félagsmálaráðherra segir lausn vera í sjónmáli fyrir um tuttugu hinna heimilislausu, og að unnið sé að lausn alls vandans. 18.11.2005 22:07
Sjávarsíki í miðbæ Akureyrar Miðbæ Akureyrar verður umbylt á næstu árum í því augnamiði að laða fólk og fyrirtæki í hjarta bæjarins. Miðbærinn mun fá evrópskt yfirbragð en mesta breytingin er fólgin í sjávarsíki sem liggja mun frá Akureyrarpolli í miðbæinn. 18.11.2005 22:00
Orkuveita Reykjavíkur fær vottun umhverfisstjórnunarkerfis Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, afhenti fulltrúum Orkuveitunnar í gær viðurkenningarskjal um vottun umhverfisstjórnunarkerfisins ISO 14001 hjá fyrirtækinu, en það er fyrsta orkufyrirtækið hérlendis sem starfar samkvæmt þessu umhverfisstjórnunarkerfi. Orkuveita Reykjavíkur hefur það að markmiði sínu að nýting auðlinda sé eins nærri því að vera sjálfbær og kostur er og gefur árlega út umhverfisskýrslu með lykiltölum um atriði sem tengjast umhverfismálum. 18.11.2005 21:47
Alvöru fréttaskýringaþáttur Kompás, nýr íslenskur fréttaskýringaþáttur hefur göngu sína á sunnudag. Þátturinn verður vikulega á dagskrá á samtengdum rásum nýju fréttastöðvarinnar NFS og Stöðvar 2. Hér er um alvöru fréttaskýringaþátt að ræða þar sem vönduð og hispurslaus rannsóknarblaðamennska er höfð í hávegum. 18.11.2005 21:33
Greiddu fyrir Brim með leigu veiðiheimilda Kaupin Guðmundar Kristjánsson útgerðarmanns á útgerðarfélaginu Brimi í ársbyrjun 2004 voru fjármögnuð með því að leigja og selja burt veiðiheimildir í sameign þjóðarinnar segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingar. 18.11.2005 21:20
Nokkuð greiðfært um Alþingi í hjólastól Aðgengi fatlaðra um Alþingishúsið er ótrúlega gott, þótt enn megi bæta um betur, segir eini þingmaðurinn sem er í hjólastól. 18.11.2005 21:00
Íbúasamtök vilja Sundabraut á öðrum stað Íbúasamtök Grafarvogs og Laugardals hafa gagnrýnt borgaryfirvöld harðlega fyrir skort á samráði við íbúa um málefni Sundabrautar og fyrir að setja íbúum afarkosti um skipulag. Gagnrýni íbúa kemur formanni skipulagsnefndar borgarinnar á óvart, samráð hafi verið haft og enn liggi engin ákvörðun fyrir. 18.11.2005 21:00
Aukinn alheimsáhugi á dularfullri starfsemi CIA Athygli umheimsins beinist í sífellt vaxandi mæli að dularfullri starfsemi CIA. Engin svör berast hins vegar frá bandarískum stjórnvöldum. 18.11.2005 20:30
Kvenfélög selja handsaumaðar dúkkur Kvenfélög um land allt hafa handsaumað átta hundruð dúkkur sem gleðja eiga börn á Íslandi og í Gíneu-Bissá sem er eitt fátækasta ríki á jörðu. Dúkkurnar eiga ekki bara að gleðja börn þessa fátæka lands heldur einnig hjálpa þeim að brjótast til mennta. 18.11.2005 19:30
Stærsta orðabók Íslandssögunnar komin út Stóra orðabókin, tímamótaverk í útgáfu orðabóka, hefur litið dagsins ljós. Bókin veitir einstaka leiðsögn um orðaval í ræðu og riti og gefur jafnframt skýra mynd af íslenskum orðaforða og innra samhengi. 18.11.2005 19:04
Brotist inn í grunnskóla og leikskóla Brotist var inn í grunnskóla og leikskóla á Kjalarnesi síðustu nótt. Einn var handtekinn eftir að hafa brotist inn í Klébergsskóla. Hann hafði kastað stórum steini í gegnum rúðu til að komast inn og fært muni úr skólanum í bíl sinn. Lagt var hald á bílinn og þýfi. 18.11.2005 18:25
Aðeins helmingur þingmanna mætti til Eyja Ekki voru nema fimmtíu prósent heimtur í heimsókn Suðurkjördæmisþingmanna til Vestmannaeyja því aðeins fimm þingmenn mættu, að því er fram kemur á vef Eyjafrétta. Þeir sem komu eru Kjartan Ólafsson, Hjálmar Árnason, Magnús Þór Hafsteinsson, Lúðvík Bergvinsson og Guðjón Hjörleifsson. 18.11.2005 18:15
Nýr samningur um sjúkraflug á Akureyri Á morgun mun Jón Kristjánsson ráðherra undirrita samning um sjúkraflutninga á svæði Heilsugæslunnar á Akureyri milli Slökkviliðs Akureyrar og Heilbrigðisráðuneytisins. Í samningnum er gert ráð fyrir aukinni þjónustu vegna sjúkraflutninga á svæði Heilsugæslunnar á Akureyri þ.e tveir mannaðir sjúkrabílar allan sólarhringinn. 18.11.2005 17:45
Langbesta afkoma FL-Group til þessa Hagnaður FL Group fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins var rúmir 8 milljarðar króna, samanborið við 3,4 milljarða króna hagnað á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Að teknu tilliti til skatta var hagnaður tímabilsins tæpir 6,6 milljarðar króna, samanborið við 2,8 milljarða króna fyrir sama tímabil í fyrra. Afkoman er í samræmi við tilkynningu félagsins frá 23. október síðastliðnum. 18.11.2005 17:34
Mannréttindaskrifstofa vill rannsókn á fangaflugi Mannréttindaskrifstofa Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af fréttum um að flugvélar sem notaðar eru til leynilegra fangaflutninga hafi farið um íslenska lofthelgi og haft Ísland sem viðkomustað á leið sinni til landa þar sem pyndingum er beitt við yfirheyrslur. Hið algera bann við pyndingum og illri meðferð í þjóðarétti felur einnig í sér algert bann við að flytja fanga til ríkis þar sem hætta er á að hann verði pyndaður eða látinn sæta grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð. 18.11.2005 17:15
Alfreð hættur í stjórnmálum Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn í áratugi og núverandi formaður Orkuveitu Reykjavíkur, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum næsta vor. Það verða því leiðtogaskipti hjá flokknum í borginni í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. 18.11.2005 17:00
Segja mismunun felast í eingreiðslu Sambandsstjórnarfundur Samiðnar lýsir yfir megnustu óánægju sinni með samkomulag forsendunefndar ASÍ og SA um útdeilingu á sérstakri eingreiðslu. Þetta kemur fram í ályktun sem Samiðn hefur sent frá sér. Fundarmenn telja að sú mismunun sem í eingreiðslunni felist vera einsdæmi í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar. 18.11.2005 16:53
Stöðvarstjóri ráðinn fyrir Kárahnjúkavirkjun Georg Þór Pálsson rafmagnstæknifræðingur hefur verið ráðinn stöðvarstjóri Kárahnjúkavirkjunar. Hann vinnur nú sem aðstoðarstöðvarstjóri á Þjórsársvæði en hefur starfað hjá Landsvirkjun undanfarin fjögur ár. Gert er ráð fyrir að Georg hefji störf fyrir austan í lok ágústmánaðar á næsta ári. 18.11.2005 16:30
Utanríkisráðuneytið neitar styrk Mannréttindaskrifstofu Íslands, sem neitað var um styrk frá utanríkisráðuneytinu þar sem veita átti fé til mannréttindamála á alþjóðavettvangi, er enn neitað um fjárframlög. Ýmis innlend verkefni hafa þó hlotið náð fyrir augum ráðuneytisins. Ráðuneytið hyggst ekki styrkja skrifstofuna á þessu ári þó enn virðist vera til fjármagn. 18.11.2005 16:00
Félagsmenn ánægðir með starfsemi SÍB Viðhorfskönnun SÍB, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, sýnir að lang flestir félagsmenn eru ánægðir með starfsemi samtakanna, starfsumhverfi félagsmanna er gott, en vinnuálag er mikið. Félagsmenn telja sig einnig þurfa meiri tíma til að uppfæra menntun sína. Bæði bankarnir og sambandið standa sig vel í að kynna námsframboð en starfsmenn fjármálafyrirtækja hafa minni tækifæri en æskilegt er til að auka persónulega hæfni sína. Starfsmenn eru almennt ánægðir með yfirmenn og samband sitt við samstarfsmenn 18.11.2005 16:00
Fræðimenn heiðraðir Tveir íslenskir fræðimenn, Jónas Kristjánsson og Svavar Sigmundsson, voru nýlega heiðraðir með veglegum verðlaunum frá Kungliga Gustav Adolfs Akademien í Uppsölum. Jónas hlaut verðlaun úr sjóði sem kenndur er við Nils Ahnlund, Svavar úr sjóði Torsten Janckes. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á árshátíð akademíunnar í hinni fornu konungshöll í Uppsölum 6. nóvember s.l. Á myndinni sem fylgir hér með sjást fræðimennirnir, Svavar og Jónas, að athöfn lokinni. 18.11.2005 15:45
Heilbrigðisráðherra skipar framkvæmdanefnd Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur skipað framkvæmdanefnd um byggingu nýs Landspítala sem á að hafa yfirumsjón með undirbúningi framkvæmda og mannvirkjagerð á lóð spítalans. Þetta var ákveðið eftir að ríkisstjórnin tilkynnti að 18 milljörðum af söluandvirði Símans yrði varið til byggingar nýs spítala. 18.11.2005 15:15
ÖBÍ fagnar samþykkt ríkisstjórnar um eingreiðslu Öryrkjabandalag Íslands fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að öryrkjar, ellilífeyrisþegar og fólk á atvinnuleysisskrá fái eingreiðslu í samræmi við það sem um var samið á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 18.11.2005 14:59
Raforkurverð breytist líklega lítið Raforkuverð mun líklega breytast lítið þegar ný raforkulög taka gildi um áramótin. Söluhluti raforkunnar er aðeins fimm til átta prósent af verðinu, að sögn talsmanns Orkuveitu Reykjavíkur. 18.11.2005 14:12
Ísland verði alþjóðleg fjármálamiðstöð Nefnd á vegum forsætisráðuneytis verður skipuð á næstunni til að gera tillögur um hvernig megi gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tilkynnti þetta í viðtali á NFS í dag og sagði að Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka yrði formaður nefndarinnar. 18.11.2005 13:58
Óbreytt í sex ár Sjómenn hafa haft óbreytt laun í sex ár að mati formanns Farmanna- og fiskimannasambandsins. Ungir sjómenn segja þjóðfélagið misskilja meint ofurlaun sjómanna og hvetja stéttarfélög sín til að leita leiða til úrbóta. 18.11.2005 13:32
Breytingartillaga væntanleg Hilmar Örn Hilmarsson Allsherjargoði skorar á alþingismenn að breyta lögum svo söfnuðir geti gefið samkynhneigða saman í hjónaband. Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður ætlar að leggja fram breytingartillögu á Alþingi í þessa átt, þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar um aukin rétt samkynhneigðra verður lagt fram á þinginu. 18.11.2005 13:16
Úrvalsvísitalan á hraðri uppleið Úrvalsvísitalan er á hraðri uppleið í Kauphöllinni og vísitalan hefur hækkað um hátt í fimmtíu prósent í ár, meira en nokkru sinni fyrr. Hún hefur aldrei verið jafn há og engin lækkun er fyrirsjáanleg, að sögn forstjóra Kauphallarinnar. 18.11.2005 12:00
Flughált á Hrafnseyrarheiði og Klettshálsi Flughált er á Hrafnseyrarheiði og Klettshálsi. Hálkublettir eru á Vesturlandi og Vestfjörðum en háka á fjallvegum. Hálka og hálkublettir eru á Norður-, Norðaustur- og Austurlandi. Hálkublettir eru frá Breiðdalsvík að Kvískerjum. Greiðfært er um Suðurland. 18.11.2005 11:45
Eingreiðsla einnig til öryrkja og ellilífeyrisþega Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að öryrkjar, ellilífeyrisþegar og aðilar á atvinnuleysisskrá muni fá eingreiðslu þá sem aðilar vinnumarkaðarins sömdu um sín í milli fyrr í vikunni. Eingreiðslan reiknast sem álag á tekjutryggingu. Miðað er við að greiðslan komi til útborgunar 1. desember næst komandi. 18.11.2005 11:30
Fá ekki vegabréfalista Úrskurðarnefnd Upplýsingamála hefur hafnað beiðni DV um að láta blaðinu í té upplýsingar um hverjir séu handhafar svokallaðra diplómatavegabréfa. Fulltrúar Utanríkisráðuneytisins höfðu áður vísað málinu til úrskurðarnefndar eftir að DV gerði kröfu um að fá upplýsingarnar fyrir um tveimur mánuðum. 18.11.2005 10:00
Deildar meiningar um samninga Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins eru mragir hverjir ósáttir við samninga sem forystumenn sambandsins lögðu blessun sína yfir og voru undirritaðir á þriðjudag. Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur segir það með ólíkindum að forystumenn í stéttarfélögum skuli hafa samþykkt þá. 18.11.2005 09:04
370 milljóna viðsnúningur hjá Reykjanesbæ Hagnaður Reykjanesbæjar á þessu ári verður um hundrað og sextíu milljónir króna, samkvæmt nýendurskoðaðri fjárhagsáætlun bæjarins. Það er viðsnúningur upp á þrjú hundruð og sjötíu milljónir króna frá síðasta ári þegar tap bæjarins var rúmar tvö hundrað milljónir. 18.11.2005 07:51
Kirkjan hefur ekki gert upp hug sinn Biskup Íslands segir þjóðkirkjuna ekki hafa myndað sér skoðun á því hvort hún vilji gefa saman samkynhneigð pör. En séra Bjarni Karlsson segist ekki þurfa annað en leyfi Alþingis, kirkjan sé ekki her sem bíði eftir skipunum herforingja. 17.11.2005 23:30
Slasaðist á höfði í bílveltu Karlmaður fékk höfuðáverka þegar vikurflutningabíll sem hann var á valt við Þorlákshöfn um klukkan fimm í dag. Hann er nú til eftirlits á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi en mun spjara sig vel að sögn læknis á vakt. 17.11.2005 23:00
Íbúðalánin dýrari en í nágrannalöndunum Íbúðalán eru töluvert dýrari hér en í nágrannalöndunum. Lítið myntsvæði, háir stýrivextir og meiri verðbólga skýrir þetta að mestu, - sem og skortur á samkeppni. 17.11.2005 22:00